Morgunblaðið - 23.12.1975, Side 40
Fímm hús skemmast í Axarfirði
r
Botn Mývatns hefur hækkað um 5 cm á kafla
Þessi mvnd var tekin við gos-
sprunguna undir Leirhnjúk á
sunnudaginn og sést vel
hvernig gufustrókarnir standa
upp úr sprungunni. Öxlin sem
mennirnir standa á er gamall
sprungubarmur. Nýja hraunið
sem sést á mvndinni er aðeins
1—2 m á þykkt. Ljósm Friðþjófur.
Þórshöfn:
56 ára maður
finnst látinn
r
Averkar voru á honUm — veskið finnst ekki
LAUST eftir hádegi á sunnudag
fannst Ifk 56 ára gamals manns f
útjaðri Þórshafnar á Langanesi.
Áverkar voru á andliti og vinstri
hendi og föt mannsins úr lagi
færð, en ekki var hægf að sjá á
vettvangi að til átaka hefði
komið. Vitað var, að maðurinn
var með veski sitt á sér þegar
hann fór að heiman daginn áður,
en f þvf voru nokkur þúsund
krónur f peningum og ávfsun að
upphæð 500 þúsund krónur.
Maðurinn var ekki með veskið á
sér þegar hann fannst á sunnu-
daginn og það hefur ekki fundizt
þrátt fyrir leit. Lík mannsins var
sent til Reykjavfkur til krufn-
ingar strax á sunnudaginn.
Framhald á bls. 22
Haldið verður áfram með stöðvarhúsið:
Sjá grein og viðtöl
á bls. 20 og 21.
„Fáum svigrúm fram
í miðjan janúar”
— segir Jón G. Sólnes form. Kröflunefndar
ROLEGT var á gos-
stöðvunum við Leirhnúk í
gærkvöldi og var gosið
jafnvel enn minna en í
fyrradag. Jarðskjálftar
héldu áfram í Mývatns-
sveit og Axarfirði í gær.
Mestir voru þeir í Axar-
firði fyrir hádegi. 1 harð-
asta kippnum, sem kom kl.
10. 35 hentist fólk til þar
sem það stóð á gólfum. Þá
skemmdust einnig þrjú
íbúðarhús, vélahús og fjár-
hús. Landsig hefur orðið á
nokkrum stöðum í Axar-
firði og á einum stað hefur
þjóðvegurinn sigið á 10
metra kafla og var sigið
orðið 50 sm í gærkvöldi og
hélt áfram. Þá virðist land-
ris hafa orðið í austur
hluta Mývatns, þvi 5 cm
vatnsborðslækkun hefur
orðið við Voga og er talin
vera meiri við Reykjahlíð.
Að sögn jarðskjálftafræð-
inga og jarðfræðinga virð-
ist hrinan ganga norður á
bóginn og í gær náði hún
langt út í Axarfjörð.
Upptök skjálftanna virðast
eiga sér stað í kringum
Skinnastaðií Axarfirði, og
er það norðar en jarðfræð-
ingar töldu í fyrstu.
Séra Sigurvin Eliasson frétta-
ritari Mbl. í Axarfirði sagði í gær-
kvöldi, að þar hefðu kippir verið á
nokkurra mínútna fresti í gær, en
þó ekki eins margir og í fyrradag.
Mesta hrinan kom um kl. 10 og
komu margir i röð. Sá öflugasti
kom kl. 10.35. Fólk hentist þá til,
þar sem það stóð inni í húsum. 1
þessum kipp urðu skemmdir á
vélahúsi að Hóli í Kelduhverfi og
Framhald á bls. 22
„ÞAÐ var lán i óláni, að allir
starfsmenn við Kröflu voru
farnir í jólafri þegar náttúru-
hamfarirnar byrjuðu og það
var ákveðið að ekki yrði hafist
handa á ný af neinum krafti
fyrr en um miðjan janúar,
þannig að við höfum nokkuð
svigrúm og getum séð hvernig
málin þróast þann tíma,“ sagði
Jón G. Sólnes, formaður
Kröflunefndar, f samtali við
Morgunblaðið í gær.
Jón sagði, að ef eldgosið í
Leirhnjúk ágerðist ekki, og
vonandi hætti það sem fyrst, þá
væri ætlunin að halda áfram
með stöðvarhúsið þar sem frá
var horfið þegar starfsmenn-
irnir fóru í jólafrí, og Ijúka við
Jón G. Sólnes
það. T.d. ætti eftir að ljúka við
hluta af þakinu m.a. með meiri
jarðskjálftastyrkingu og ýmis
suðuvinna væri eftir.
Að sögn Jóns á vélaniðursetn-
ing ekki að hefjast fyrr en eftir
3—4 mánuði. Túrbinur og raf-
alar eiga að koma til landsins í
maí og eftir því sem síðast frétt-
ist frá framleiðendum, er ekki
annað vitað, en sú áætlun
standist fulikomlega.
„Ef hægt er að segja að
eitthvað sé jákvætt við þessar
náttúruhamfarir, þá er það
svigrúmið sem við fáum fram
yfir áramót. Okkur í Kröflu-
nefnd hefði ekki liðið vel með
100 manns í vinnu á virkjunar-
staðnum nú,“ sagði Jón G. Sól-
nes.
Að jafnaði munu starfa um
100 manns við Kröfluvirkjun.
Kaupir Toyota-fyrirtækið físk-
afurðir héðan fyrir V 2 milljarð
HORFUR er á því að japanska Þarna gæti orðið um að ræða um ekki einungis f flökum heldur hug á að kanna möguleika
stórfyrirtækið Toyota kaupi héð-
an sjávarafurðir á næsta ári fyrir
milli 300 og 500 milljónir króna.
1000 tonn af frystri loðnu, fryst-
an kúffisk, bæði f skelinni og
blokkfrystan og einnig karfa,
einnig heilfrystan. Fulltrúar frá
Toyota-fyrirtækinu hafa verið hér
á landi vegna þessa og tóku þeir
auk þess með sér sýnishorn bæði
af spærlingi og kolmunna.
Milligöngumaður Toyota hér
hefur verið framkvæmdastjóri
Toyota-umboðsins hér á landi,
Páll Samúelsson, og að sögn hans
var það í júlí si. að hann fékk
fyrirspurn frá Japan um þetta
atriði og litlu síðar komu full-
trúar frá fyrirtækinu til að
kynna sér allar aðstæður.
Höfðu þeir þá fyrst og fremst
á að kaupa hér loðnu en
Páll kvaðst hafa farið með
Japanina á fund dr. Björns Dag-
bjartssonar hjá Rannsóknastofn-
un fiskiðnaðarins, er kynnti auk
þess fyrir' þeim karfa, kúfskel,
spærling og kolmunna. Páll
kvaðst hafa leitað aðstoðar við-
skiptaráðuneytisins er sýnt hefði
mikinn áhuga á hugsanlegum
sölumöguleikum á karfanum og
kúfskelinni og boðist til að vera
innan handar á allan hátt. Einnig
kveðst Páll hafa rætt við forráð-
Framhald á bis. 22
^ JT***':