Morgunblaðið - 30.12.1975, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1975
3
Þór klippti á víra
jólasveinsins!!!
SKÖMMU fyrir jól fór brezka frei-
gátan Lowestoft á fslandsmið til þess
að vernda brezka landhelgisbrjóta.
Aðmírállinn, Sir Anthony Troup, gaf
við brottför skipsins áhöfninni heljar-
stóra jólatertu, sem samkvæmt
upplýsingum brezka sjóhersins vó 10
kg. Á kökunni er jólasveinninn á sleða
og er hann dreginn af tveimur hrein-
dýrum. Varðskipið Þór er nýbúið að
klippa á báða tauma jólasveinsins og
er komið út á eitt hornið á kökunni. Þá
fékk áhöfnin á Lowestoft einnig jóla-
tré sem sést á efri myndinni svo að
hún gæti haldið jól úti fyrir fslands-
ströndum. Ekki er Ijóst hver hefur
gætt sér á varðskipinu á jóladag, en
haft er fyrir satt að það hafi verið
yfirmaður freigátunnar og hafi hann
notið bragðsins vel og lengi. Morgun-
blaðið fékk myndirnar sendar frá
brezka flotanum.
Nöfn nýju búðanna í Þor-
lákshöfn enda öll á „berg”
Bakaríið á staðnum fær ekki að selja mjólk
Þorlákshöfn 29. des.
TVÆR verzlanir og bakarí voru
nýlega opnuð f Þorlákshöfn.
Heita verzlanirnar Valberg og
Háberg og bakarfið Brauðberg.
Hinn 3. október s.l. opnuðu þær
frú Bryndís Kristinsdóttir og frú
Ólöf Kristmundsdóttir verzlun
sína Valberg á Knarrarbergi 2 í
Þorlákshöfn. Þar er á boðstólum
fatnaður fyrir börn og fullorðna,
hannyrðavörur, snyrtivörur og
fleira og fleira. Hinn 18. desemb-
er var opnuð ný matvöruverzlun,
verzlunin Háberg á Selvogsbraut
43. Framkvæmdastjóri hennar er
Hörður Bjartmarsson á Lýsubergi
10. Verzlunin er i nýju húsnæði
sem byggt var með það fyrir aug-
um að þjóna sem bezt hlutverki
sfnu sem verzlunarhúsnæði. Kjöt-
iðnaðarmaður vinnur þarna því
góð tæki til kjötvinnslu eru á
staðnum og góðar kæligeymslur. 1
sama húsi var opnað þennan dag
bakaríið Brauðberg. Bakarinn
heitir Guðmundur P. Jónsson,
Lýsubergi 10.
Verzlunin og bakaríið eru mið-
svæðis i þorpinu, en það var orðið
æði langt fyrir þá sem vestast búa
í einu matvöruverzlunina sem hér
Framhald á bls. 27
Grindavíkurkirkju
færðar stórgjafir
TÓMAS Þorvaldsson forstjóri f
Grindavfk afhenti kirkjunni þar
1 millj. kr. að gjöf rétt fvrir jólin
í tilefni farsæls samstarfs
eigenda fyrirtækisins Þorbjörns
h.f. s.l. 22 ár, bæði til sjós og
lands, en gefendur auk Tómasar
eru Hulda Björnsdóttir, Sigurður
Magnússon, Kristinn Ólafsson og
Sæmundur Sigurðsson.
Á s.l. rúmu ári hafa eftirtalin
fyrirtæki gefið höfðinglegar gjaf-
ir til kirkjunnar: Fiskimjöl og lýsi
1 millj. kr. Arnarvík h.f. eitt
hundrað þús. kr., Kvenfelag
Grindavíkur 1. millj. kr., ónefnt
fyrirtæki gaf 1/2 millj. kr. vegna
mannbjargar af skipi fyrirtækis-
ins, en skipið fórst á s.l. vetri. Þá
lagði Grindavíkurbær fram 3
millj. kr. til kirkjunnar á þessu
ári.
Happdrætti Grindavíkurkirkju
gaf af sér 1 millj. kr., en áður hafa
félög og einstaklingar gefið veru-
legar upphæðir til kirkju-
byggingarinnar. Bæjarbúar hafa
sýnt mikinn áhuga sinn í verki
með sjálfboðavinnu, svo og Lions-
klúbburinn, fyrirtæki hafa lánað
bíla sína og ökumenn þeirra ekið
öllu efni í lóð kirkjunnar og gefið
vinnu sína, en mikill áhugi er á að
Ijúka byggingunni sem fyrst.
Ekki hefur enn þurft að taka nein
lán vegna framkvæmdarinnar, en
nú er búið að fullsteypa kirkju-
húsið. Eftir er að byggja safnaðar-
heimilið og turn kirkjunnar, en
lokið er við grunnplötu. Samtímis
þessum framkvæmdum hefur
kirkjugarðurinn að Stað í Grind-
vík verið stækkaður um 1600
ferm ásamt hleðslu kirkjugarðs-
ins. Stækkun garðsins mun hafa
kostað um 2 millj. kr. Öllum fram-
kvæmdum við kirkjubygginguna
hefur stjórnað með mestu prýði
ðlafur Sigurðsson múrara-
meistari og formaður- byggingar-
nefndar Grindavíkurkirkju. —
Guðfinnur.
C1 ••• 1 • A*
ðmjorbirgoir
í lágmarki
FYRSTU 10 mánuði þessa árs
tóku mjólkursamlögin á móti
98.073.307 kg af mjólk og er það
3,1% minna magn en á sama
tfmabili árið 1974. Á þessum tíma
hefur orðið veruleg aukning á
sölu mjólkur eða tæplega 3 millj.
ltr. og nemur aukningin 7,5%
Skyrsala hefur dregizt nokkuð
saman, eða um 2,7% en meðal-
neyzla á hvern íbúa var 0,65 kg á
mánuði fyrstu 10 mánuði þessa
árs.
Verulegur samdráttur hefur
orðið í neyzlu smjörs en fram-
leiðsla þess hefur minnkað um
12,5% á árinu. Meðalsala á
mánuði var 126 smálestir og er
það 32% minni sala en i fyrra.
Meðalneyzla smjörs á hvern íbúa
landsins í ár verður rétt um 7 kg.
Af mjólkurosti voru framleiddar
1.805 smálestir, þar af fara til sölu
Framhald á bls. 27
(irkjuhús hinnar nýju kirkju í Grindavik.
Ljósmynd Mbl. Guðfinnur.
tlokk
Smamiðohi
Kveðjið árið
rtiomidahappdr.vtti
■kauða
■ KROSSINS
flok
1975
+
25
ppd
rauða
KROSSINS
+
2 5
ÍF
1975
Smamidahappdr.vtti
■rauda
■ KROSSINS
veró kr. 25 +
Smámi ðahappdrættinn