Morgunblaðið - 30.12.1975, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1975
5
Dr. Sturla Friðriksson afhendir Jðni Steffensen prófessor verð-
laun Ásu Guðmundsdóttur Wright.
Jóni Steffens^n
veitt verðlaun Asu
Guðmundsd. Wright
HEILÐURSVERÐLAUN Veið-
launasjóðs Ásu Guðmundsdótt-
ur Wright voru veitt Jóni Steff-
ensen prófessor við hátíðlega
athöfn f Norræna húsinu sfðast-
liðinn sunnudag. Jón Steffen-
sen fékk verðlaunin að þessu
sinni fvrir uppfræðslustörf f
læknisfræði og veigamikil
mannfræðileg vfsindastörf.
I ræðu, sem dr. Sturla
Friðriksson, einn þriggja
stjórnarmanna sjóðsins, hélt
við afhendinguna sagði hann
m.a. um verðlaunahafann: „Jón
Steffensen hefur með mikilli
samvizkusemi og kunnáttu
verið giftusamur uppfræðari.
Og mun hann hafa verið kenn-
ari flestra lækna, sem nú starfa
á landinu. En samfara kennslu-
störfum hefur prófessor Jón
Steffensen alitaf sinnt veiga-
miklum vísindastörfum á sviði
mannfræða. Hann hefur skýrt
frá niðurstöðum af rannsókn-
um sínum og athugunum i
fjölda ritgerða, sem að miklu
leyti hefur verið safnað saman í
bókinni Menning og meinsemd-
ir, sem gefin var út á vegum
Sögufélagsins.“ Síðan sagði dr.
Sturla: „Með vísindastarfsemi
sinni og þeim rannsóknarað-
ferðum, sem hann hefur beitt
hefur honum tekizt að leggja af
mörkum drjúgan þátt til þekk-
ingar okkar á tildrögum land-
náms, sögu íslendinga og af-
komu og heilsufari þjóðarinnar
f landinu.“
I stjórn Verðlaunasjóðs Ásu
Guðmundsdóttur Wright eru
auk dr. Sturla Friðrikssonar,
dr. Kristján Eldjárn og dr.
Jóhannes Nordal.
Kennedy ekki sagður við eina
fjölina felldur í kvennamálum
BANDARÍSKA VIKURITIÐ Time
birti I siðasta tölublaði sinu grein,
sem sögð er vera nákvæm lýsing é
ástalifi Kennedys Bandarikjafor-
seta, þau þrjú ár sem hann sat i
Hvita húsinu. Ýmsar sögusagnir
hafa veiS á kreiki um kvennamál
forsetans, en ekki veriS um þau
fjallað opinskátt fyrr en nú. Skv.
frásögn Time var Kennedy langt
frá þvi aS vera viS eina fjölina
felldur I kvennamálum og fór
raunar aldrei dult meS hrifningu
sina á fögrum konum og þegar
hann var i samkvæmum eSa meS
móttökur gerði hann aár far um aS
gefa sig á tal viS ungar, fallegar
konur, sem hann kom auga á.
Upphafið að þessari frásögn Time
er, að kona nokkur i Los Angeles,
Judith Campell Exxner, skýrði frétta-
mönnum frá þvi fyrir jól, að hún
hefði verið náin vinkona forsetans
um tveggja ára skeið,
1961—63 Kona þessi var áður gift
leikaranum Wiliiam Campell. Þessi
frásögn Judith staðfesti orðróminn
um kvennamál forsetans og kom
öllum skrifunum af stað. Time segir
að forsetinn hafi einkum lagt lag sitt
við konur, sem ekki voru kunnar. en
þó hafi hann einnig haft náin kynni
af leikkonunum Jayne Mansfield,
Marilyn Monroe og verið orðaður
við Kim Novak, Janet Leigh,
Rhonda Flemming og Angie
Dickinson, eiginkonu Burts
Bacharachs. Þá mun einnig hafa
verið talsvert um það að ungar og ’
fallegar flugfreyjur kaemu i heim-
sókn í Hvíta húsið, og þurfti leyní-
þjónustan þá að kanna nákvæmlega
æviferil þeirra. Einnig kom það fyrir
að vinir Kennedys sendu stúlkur í
heimsókn til hans, er Jackie var I
burtu, og skipaði Kennedy þá lif-
vörðum sínum að hleypa stúlkunum
inn, sem þeir gerðu, en höfðu alltaf
nokkrar áhyggjur af. Lifverðir for-
setans voru hans helztu bandamenn
í þessum málum og gættu þess eins
og sjáaldur auga sins að ekki
kæmist upp hvað Bandarikjaforseti
væri að aðhafast.
Fregnir herma einnig að Kennedy
hafi haft nokkrar ungar og fallegar
konur á launaskrá I Hvíta húsinu
sem skrifstofustúlkur, en þær hafi
næsta litið sinnt þeim störfum, en
alltaf verið nálægar hvar sem for-
setinn var. Einkum voru tvær stúlkur
nefdar i þessu sambandi og gengu
þær undir dulnefnunum „Fiddle og
Faddle" hjá lifvörðum forsetans.
Þá er hermt að Kennedy hafi eitt
sinn hneykslað tvo settlega brezka
ráðherra, þá Harold Macmillan for-
sætisráðherra og Richard A. Butler,
er hann átti með þeim fund i Nassau
1962, er hann trúði þeim fyrir þvi
að ef langur timi liði milli þess að
hann sængaði hjá kvenmanni fengi
hann áköf höfuðverkjaköst
Ekki fara sögur af hvort
Jacqueline hafi vitað um þetta atferli
manns síns, en þó er sagt að eitt
sinn er hún hafi komið heim úr
ferðalagi hafi hún fundið kven-
mannsnærflik undir dýnunni i svefn-
herbergi forsetans. Afhenti hún
honum flikina og bað hann ofur
róleg um að leita að eigandanum,
þvt að þetta væri ekki sitt númer.
Mari fyn Monroe.
Kim Novak.
Jayne Mansfield.
10 sölustaðir í Reykjavík:
Skátabúðin Snorrabraut - Volvosalurinn Suðurlands- Hraunbær 102E - Burstafell, Réttarholtsvegi ■
braut - Alaska Breiðholti - Við Úlfarsfell Hagamel - Bílaborg Borgartúni 29 - V!ð verslunina Víði
Seglagerðin Ægir Grandagarði - Austurstræti 12 Starmýri.
Þú færóallt fyrirgamlárskvöld hjá
okkur,opið til kl.10 daglega
Hjálparsveit skáta
Reykjavík
Ef þú
Flugeldar - sólir - blys - gos - tivolíbombur ■
Ijós og margt fleira - allt traustar vörur.
3 gerðir af fjölskyldupökkum. 10% ódýrari.
1200 kr. 2000 kr. 3000 kr.
þú þarft fyrir gamlárskvöld.
Reykvíkingar, Flugeldasalan er fjáröflunarleið til
tækjakaupa og reksturs hjálparsveitarinnar.
Hjálpið okkur til þess að við getum hjálpað ykkur
sem best.
stjörnu-