Morgunblaðið - 30.12.1975, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 30. DESEMBER 1975
Eins
leiks
bann
AGANEFND Körfuknattleiks-
sambands íslands hefur nú
fellt dóm sinn yfir bandarísku
blökkumönnunum Jimmy Rog-
ers (Ármenning) og Curtis
Carter (KR) vegna áfloganna
sem þeir lentu í er lið þeirra
mættust í 1. deildar keppninni
skömmu fyrir jól. Sem kunn-
ugt er þá sló KR-ingurinn Ár-
menninginn niður svo um
munaði í leik þessum. Báðir
fengu hins vegar kapparnir
sama dóm hjá aganefndinni —
eins leiks bann, en það fylgdi
með, að gerðust þeir aftur
brotlegir, þannig að aganefnd
teldi ástæðu til þess að refsa
þeim, þá myndi bannið hljóða
upp á sex leiki.
KR-ingar sleppa Ármenning-
um mun betur í máli þessu,
þar sem Carter mun taka út
refsingu sína í leik KR gegn
UMFN sem fram á að fara 10.
janúar. Ármenningar fá hins
vegar sinn mann í bann í leikn-
um við ÍR, íslandsmeistarana,
sem fram fer 3. janúar, en sem
kunnugt er þá stendur slagur-
inn um titilinn í ár ekki hvað
sízt milli Ármenninga og ÍR-
inga.
Þessi mynd af Jóhannesi ESvaldssyni birtist nýlega I skozku blaði. en hún var
tekin er hann, ðsamt 19 öSrum knattspyrnumönnum úr Celtic og Rangers.
voru a8 skemmta vangefnum börnum ð jólahðtið.
Jóhannes átti stjörnnleik
— skoraði tvö mörk fyrir Celtic
JÖHANNES Eðvaldsson sýndi
stjörnuleik með liði sínu, Celtic,
á laugardaginn, er það sigraði
Ayr United með þremur mörkum
gegn einu á heimavelli sínum.
Skoraði Jóhannes tvö af mörkum
Celtic og var sá sem af bar á
vellinum. Kom Jóhannes beint til
þessa leiks úr jólafrfi sínu með
fjölskvldu sinni hérlendis en svo
er ekki að sjá að ferðalagið hefði
haft mikil áhrif á hann. Hann
færði Celtic forvstu með skalla-
marki I fyrri hálfleik. en snemma
í seinni hálfleik tókst Ayr að
jafna. En Jóhannes svaraði því
marki með öðru skallamarki og
þegar leið að lokum leiksins inn-
siglaði svo Kenny Dalglish sigur
Celtic-liðsins. Voru Celtic-menn
einum fleiri lengst af í seinni
hálfleiknum, þar sem einum leik-
manna Ayr Utd. var vfsað af velli.
Celtic hefur nú þriggja stiga
forystu í skozku úrvalsdeildinni,
er með 25 stig eftir 18 leiki.
Glasgow Rangers, sem á laugar-
daginn gerði jafntefli á útivelli
við Dundee United er f öðru sæti
með 22 stig, en sama stigafjölda
hafa einnig Motherwell og
Hibernian. Hearts er svo með 21
stig, Áberdeen með 17 stig,
Dundee með 17 stig, Ayr United
er með 16 stig, Dundee United
með 13 stig, og á botninum er svo
St. Johnstone með 5 stig, og virð-
ist það Iið dæmt til falls í fyrstu
deild eins og málin horfa.
Leedsliðið á fnllri ferð
Hélt knattspurnusýningu er það vann Leicester 4:0
SIGUR Liverpool yfir Manchester
City á laugardaginn varð til þess að
liðið heldur enn forystu sinni I ensku
1. deildar keppninni í knattspyrnu.
Manchester United sem einnig vann
sigur á laugardaginn hefur hlotið
jafnmörg stig og Liverpool, en Leeds
er svo komið I þriðja sætið með
aðeins einu stigi minna en fyrr-
nefndu liðin, og á leik inni. Stendur
Leeds þvl einna bezt að vlgi og það
var annað tveggja liða sem vann tvo
sigra um jólahelgina. Hitt var
Ipswich Town sem tók með þvl
stökk upp á við á töflunni, og er nú
um miðja deild.
Leeds sýndi stórkostlegan leik á
laugardaginn er liðið hreinlega
„malaði" Leicester 4:0. Hvað eftir
annað voru leikmenn Leicesterliðs-
ins eins og „statistar" á vellinum.
þegar knötturinn gekk á milli Leeds-
leikmannanna með hnitmiðuðum og
nákvæmum sendingum. Hefur Leeds
ekki leikið betur I annan tlma. og er
þá töluvert sagt, þar sem þarna er á
ferðinni eitt bezta lið á Bretlandseyj-
um, svo ekki sé meira sagt. Mörkin
fjögur segja ekki alta söguna, þar
sem Leeds hafði engan veginn
heppnina með sér i leiknum. hefði
svo verið má ætla að sigurinn hefði
orðið mun stærri. Mörkin skoruðu
Allan Clarke, Duncan McKenzie tvö
og Peter Lorimer.
Metaðsókn var að leik Manchester
United og Burley, 59.726 áhorfend-
ur, og Manchester United er eitt
fárra liða sem ekki þarf að kvarta yfir
peningaleysi um þessar mundir.
Áhorfendur fengu lika nokkuð fyrir
aurana slna, þar sem leikurinn var
hinn fjörugasti og kom það nokkuð á
óvart að yfirleitt var Burley betri
aðilinn, sérstaklega I fyrri hálfleik er
liðið skoraði tvö mörk. Annað var
dæmt af vegna rangstæðu. en mark-
ið sem taldist gilt skoraði Ray Hank-
in. Staðan var 1—0 fyrir Burnley I
hálfleik, en þegar á leikinn leið náði
United-liðið sér vel á strik — lék
eins og það hefur bezt gert I vetur og
þá var auðvitað ekki að sökum að
spyrja. Sigur vannst þótt ekki gæti
hann naumari verið. Sammy Mcllroy
og Lou Macari skoruðu mörkin.
Ipswich Town er nú greinilega að
rétta úr kútnum og vann bæði
Arsenal og West Ham um jólahelg-
ina. Var leikurinn við West Ham
nokkuð sögulegur þar sem leikmenn
West Ham létu mótlætið fara alvar-
lega I taugarnar á sér og voru upp-
hafsmenn að grófum og leiðinlegum
leik. Mörk Ipswich skoruðu Mike
Lambart og John Peddelty en
Tommy Taylor gerði mark West Ham
úr vltaspyrnu.
Derby County heldur sig enn
nálægt toppnum og vann góðan sig-
ur á laugardaginn I leik slnum við
Aston Villa, 2—0. Mörkin skoruðu
Steve Powell og Carlie George.
Birmingham tókst um jólahelgina
að þoka sér af allra mesta hættu-
svæðinu á botninum með þvl að
hljóta 3 stig af 4 mögulegum á móti
jafngóðum liðum og Stoke og
Tottenham. Var liðið betri aðilinn I
leiknum við Stoke á laugardaginn og
átti mörg góð færi en landsliðsmark-
vörðurinn Peter Shilton I Stoke-
markinu var ekki auðsigraður og
sýndi oftsinnis glæsileg tilþrif.
Þá kom það einnig á óvart að
Sheffield United hlaut tvö stig um
helgina. Gerði jafntefli bæði við
Middlesbrough og Newcastle. Segja
forráðamenn liðsins baráttuna engan
veginn vonlausa þótt hún sé vitan
lega erfið. Aðalvandamál liðsins sé
orðið það að leikmennirnir séu búnir
að missa trú á sjálfa sig
I annari deild stendur baráttan enn
milli Sunderland og Bolton sem
mættust á heimavelli slðarnefnda
liðsins á laugardaginn. Bolton
sigraði I þeirri viðureign, enda ekkert
samræmi milli frammistöðu Sunder-
land á heimavelli þar sem liðið er
nær ósigrandi og á útivelli, þar sem
það tapar jafnvel fyrir slökustu liðun-
um.
35 sólarlandaferðir
Vinningar í happdrætti Blaksambands íslands
eru 35 sólarlandaferðir. Þú getur unnið 5 ferðir
á aðeins einn miða, vegna þess að dregið
verður 4 sinnum, 5 janúar, 15. janúar, 15.
febrúar og 15. marz n.k. Miðana þarf ekki að
endurnýja.
1. DEILD
L Heima tfti Stig
Liverpool 24 8 4 1 25:13 4 5 2 12:7 33
Manchester United 24 9 2 0 20:6 5 3 5 18:15 33
Leeds United 23 9 1 2 26:9 5 3 3 16:13 32
Derby County 24 11 0 1 27:17 2 6 4 10:13 32
Queens Park Rangers 24 9 4 0 20:5 1 6 4 11:13 30
West Ham United 23 9 1 2 19:10 3 3 5 16:20 28
Manchester Citv 24 7 5 1 24:8 2 4 5 14:15 27
Stoke City 24 5 4 3 17:15 5 3 4 14:13 27
Everton 24 5 5 1 22:13 4 4 5 19:28 27
Middlesbrough 24 5 4 1 10:1 4 4 6 15:20 26
Ipswich Town 24 6 4 2 18:12 2 6 4 9:11 26
Newcastle United 24 6 4 1 28:10 3 1 9 12:23 23
Aston Villa 24 8 3 1 25:11 0 4 8 6:23 23
Coventry City 24 3 5 4 12:14 4 3 5 14:20 22
Leicester City 24 4 6 2 18:17 1 6 5 8:18 22
Tottenham Hotspur 24 3 6 3 16:20 2 5 5 16:19 21
Arsenal 24 6 2 4 21:13 1 4 7 8:18 20
Norwich City 24 5 4 3 18:13 2 2 8 15:26 20
Birmingham City 24 6 3 3 21:17 1 1 10 14:31 18
Búrnley 24 3 4 4 13:14 1 3 9 10:23 15
Wolverhampton Wand. 24 3 4 5 12:15 1 2 8 12:23 14
Sheffield United 24 1 3 8 10:22 0 2 10 8:31 7
2. DEILD
L HEIMA tJTI STIG
Sunderland 24 12 1 0 30- -6 3 2 6 9- -15 33
Bolton Wanderes 24 7 3 1 22- -8 6 4 3 19- -16 33
Bristol City 24 7 4 1 24- -7 5 3 4 17- -15 31
Southampton 23 11 0 1 31- -8 2 2 7 12- -21 28
Notts Countv 24 7 4 1 18- -5 4 2 6 12- -17 28
Luton Town 24 7 3 2 20- -10 4 2 6 14- -15 27
West Bromwich Albion 24 4 6 1 12- -8 5 3 5 10- -18 27
Oldham Athletic 24 9 3 3 24- -14 1 3 7 10- -24 26
Fulham 23 5 4 3 18- -10 4 3 4 12- -15 25
Bristol Rovers 24 4 5 3 13- -11 3 6 3 12- -12 25
Notthingham Forest 24 5 1 6 14- -11 3 6 3 13- -12 23
Orient 23 6 4 2 13- -7 1 5 5 8- -13 23
Chelsea 24 5 4 2 16- -9 3 3 7 13- -22 23
Blackpool 24 4 5 3 13- -15 4 2 6 9- -12 23
Carlisle United 24 6 4 2 14- -10 2 3 7 8- -19 23
Plymouth Argyle 24 8 2 2 22- -12 0 4 8 7- -20 22
Charlton Athletic 23 5 1 4 17- -17 3 4 6 11- -23 21
HuII City 24 5 3 5 17- -14 3 1 7 9- -18 20
Blackburn Rovers 24 3 5 5 12—14 2 5 4 10- -14 20
Oxford United 24 3 3 6 12- -16 2 3 7 11- -19 16
York City 24 4 1 6 13- -19 1 4 8 6- -20 15
Portsmouth 24 0 5 6 5- -14 3 1 6 10- -22 12
Knattspyrnuúrslll
ENGLAND 1. DEILD
Arsenal — Queens Park 2—0
Birmingham — Stoke 1 — 1
Coventry — Tottenham 2—2
Derby — Aston Villa 2—0
Leeds — Leicester 4—0
Liverpool—Manchester City 1—0
Manchester United —
Burnley 2—1
Middlesbrough — Everton 1 — 1
Newcastle — Sheffield United 1 — 1
Norwich City — Wolves 1 — 1
West Ham — Ipswich 1—2
ENGLAND 2. DEILD
Blackburn — Nottingham 1—4
Blackpool — York 0—0
Bolton — Sunderland 2—1
Bristol Rovers — Luton 0—1
Chelsea — Charlton 2—3
Hull — Carlisle 2—3
Notts County — Oldham 5—1
Oxford — Southampton 1—2
Plymouth — Fulham 4—0
Portsmouth — Bristol City 0—1
W.B.A. — Orient 1 — 1
ENGLAND 3. DEILD
Aldershot — Crystal Palace 1 —0
Cardiff — Peterborough 5—2
Chester — Preston 3—0
Chesterfield — Southend 1—2
Colcester — Grimsby 1 —0
Gillingham — Brighton 1—0
Millwall — Swindon 0—0
Port Vale — Bury 2—1
Rotherham — Halifax 0—1
Sheffield Wed. — Mansfield 0—0
Shrewsbury—Hereford 2—1
Walsall — Wrexham 2—2
ENGLAND 4. DEILD
Bournemouth — Swansea 2—0
Brentford — Reading 2—2
Cambridge — Torquay 2—1
Crewe — Bradford 1—3
Lincoln — Barnsley 2—1
Northampton — Newport 3—0
Rochdale—Darlington 1—0
Scunthorpe—Doncaster 2—1
Southport — Huddersfield 1—2
Tranmere — Stockport 5—0
Watford — Exeter 2—0
Workington—Hartlepool 1—2
SKOTLAND ÚRVALSDEILD:
Aberdeen — Hibernian 2—2
Celtic — Ayr United 3—1
Dundee Utd. — Rangers 0—0
Hearts — St. Johnstone 2—0
Motherwell — Dundee 3—2
SKOTLAND 1. DEILD:
East Fife — Airdrieonians 1 — 1
Falkirk— Dunfermline 4—1
Kilmarnock — Morton 3—2
Montrose — Clyde 4—3
Partick — Arbroath 2—0
Queen of the South
— Dumbarton 4—2
St. Mirren — Hamilton 2—2
SKOTLAND 2 DEILD:
Albion Rovers — Raith Rovers 1 — 2
Alloa — Stirling Albion 1—2
Cowdenbeath — Brechin 5—2
Forfar — Berwick 1—3
Meadowbank — East Stirling 0—4
Queens Park — Clydebank 0—2
Stranraer—Stenhosemour 3—1
SPÁNN 1. DEILD:
Hercules — Real Betis 1 — 1
Real Oviedo—Las Palmas 1—2
Racing — Real Sociedad 2—0
Atietico Madrid — Espanol 3—1
Granada — Valencia 2—1
Barcelona — Real Madrid 2—1
Athletio Bilbao
— Real Zaragoza 0—0
Salamanca — Sporting 1—0
Sevilla — Elche 2—1
PORTÚGAL 1. DEILD
Benfica — Sporting 0—0
Setubal — Porto 2—2
Beira Mar — Farense 2—0
Guimaraes — Tomar 3—1
Leixoes — Braga 2—0
Boavista — CUF 9—0
Atheletico — Belenenses 0—0
Estoril — Academico 0—0
Markhœstir
Eftirtaldir leikmenn eru nú mark-
hæstir I ensku knattspyrnunni:
1. DEILD:
Ted MacDougall. Norwich 19
Dennis Tueart. Manchester City 16
John Duncan, Tottenham 16
Peter Noble, Burnley 15
Alan Gowling, Newcastle 13
Duncan McKenzie 13
2. DEILD
Derek Hales, Charlton 1 5
Paul Cheesley, Bristol City 13
Mike Channon, Southampton 12