Morgunblaðið - 14.01.1976, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.01.1976, Blaðsíða 1
28 SÍÐUR 10. tbl. 63. árg. MIÐVIKUDAGUR 14. JANUAR 1976 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Náttúruhamfarirnar á Kópaskeri: Stórtjón á mannvirkjum -fólk flúið - jörð rifin og tætt KÓPASKER — Um 100 íbúar Kópaskers flúðu heimili sín i gær eftir að jarðskjálfta- kippur að styrkleika um 6 stig á Richter hafði riðið þar um hlöð og valdið gífurlegri eyðileggingu á íbúðarhúsum og öðrum mannvirkjum. Tjörn handan við þorpið, hvarf eftir að jörðin rifnaði á þessu svæði í gær. Ljósmynd Guðmundur Bjftrnsson. Sjá bls. 3 Brezka utanríkisráðuneytið um Luns: Á ekkí eríndi til London nema Islendingar sýni sveigjanleika LUNS TALSMAÐUR brezka ut- anrfkisráðuneytisins sagði f gær, að dr. Luns ætti ekki erindi til Lundúna, ef við- ræður hans við fslenzku rfkisstjórnina færu ekki á þá lund, að Íslendingar væru reiðubúnir að ræða málin af meiri sveigjan- leika en áður, að því er segir í skeyti AP- fréttastofunnar til Mbl. f gærkvöldi. t,Telji hann útlit fyrir sveigjanleika af hálfu Is- lendinga að heimsókninni lokinni, og horfur á sáttum fyrir milligöngu hans, munum við fagna komu hans til Lundúna,“ sagði talsmaður ráðuneytisins. Þá segir, að dr. Luns ætti að öðrum kosti að biða þar til í næstu viku, er hann muni hitta James Callag- han, utanríkisráðherra Breta í Briissel. Áreiðanlegar heimildir í Briissel herma, að dr. Jos- eph Luns muni leggja að íslenzku ríkisstjórninni að viðhalda stjórnmálasam- bandinu við Breta, að þvi er segir í Reuters-frétt í gærkvöldi. Heimildarmenn frétta- stofunnar létu um leið í ljós þá skoðun, að slík að- gerð af hálfu íslendinga torveldaði dr. Luns milli- göngu í málinu, og mundi hann þvf beina því til Is- lendinga, að þeir gættu hófs í aðgerðum sínum, til að auðvelda lausn deilunn- ar. Frá blaðamanni Morgun- blaðsins, Ingva Hrafni Jónssyni, á Kópaskeri f gærkvöldi: Sjá ennfremur samtöl við konur frá Kópaskeri á bls. 3. Frásagnir af jarðskjálft- um á bls. 5 og frekari frétt- ir á baksfðu blaðsins f dag. Orð skortir til að lýsa aðkomunni að Kópaskeri eftir jarðskjálftann mikla f gær. Þjóðvegurinn sfð- ustu 10 km að þorpinu er sprunginn á 60 til 70 stöð- um. Þegar komið er inn í þorpið verður að gæta var- úðar við akstur og göngu því að jörðin er rifin og sundurtætt. Og þegar kom- ið er inn f glæsileg heimili Kópaskersbúa blasir við gereyðilegging og rústir, og sum húsin eru þannig farin, að sjá má út um rif- urnar á þeim. Hafnargarðurinn er sprunginn á fjórum stöð- um, þannig að sums staðar sést f sjó, og f jöldi annarra smárifa eru í honum. Nem- Í I J L.J f 1 kaupfélagshúsinu sem hér sést hrundu allar vörur úr öllum hill- um verzlunarinnar á gólfið og f trésmfðaverkstæðinu á staðnum er enginn fjöl á þeim stað sem hún var fyrir skjálftann. i bóka- búðinni er sömu sögu að segja og f vörugeymslunni er allur lager- inn á tjá og tundri. t kaupfélag- inu eru höfuðstöðvar Almanna- varna. ur tjónið á hafnargarðin- um einum tugum milljóna. Vatnslaust er f þorpinu, þar eð vatnsleiðslan uppi f fjallinu fór f sundur á mörgum stöðum, að því er talið er. Tjörn, sem var f norð- austurhluta þorpsins, um einn hektari að stærð, er horfin. Þess má geta hér, að jarðskjálftinn er talinn hafa verið 6,3 stig á Richt- er, og er sú mæling fundin út með samanburði við mæla erlendis. Þetta er því einn mesti jarðskjálfti sem hér hefur orðið f byggð. Framhald ábls. 27 Aldo Moro falin stjórnarmyndun Róm, 13. jan. — Reuter. honum ákvörðun sfna að lokn- GIOVANNO Leone, forseti um tveggja daga viðræðum við ttalíu, hefur falið Aldo Moro, leiðtoga stjórnmálaflokka. fráfarandi foisætisráðherra, Að loknum fundi sínum með myndun nýrrar rfkisstjórnar. forsetanum sagði Aldo Moro, að Forsetinn kallaði Moro á sinn hann mundi reyna myndun lýð- fund f gærkvöldi og tilkynnti Framhald á bls. 27

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.