Morgunblaðið - 14.01.1976, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 14.01.1976, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 14. JANUAR 1976 25 VELA/AKAIMIDI Velvakandi svarar i sima 10-100 kl 14—15, frá mánudegi til föslu- dags 0 Beðið um hljóð úr horni „Stella" sendir okkur eftirfar- andi bréf, og enn er það sjónvarp- ið, sem er á dagskrá: „Það er skrifað svo mikið um sjónvarpið í biöðin, sem er lika skiljanlegt, jafn drjúgur partur og það er orðið af „heimilislífi" okkar. Hinsvegar ber það varla við að sjónvarpsmenn láti sjá eftir sig staf um þetta i blöð- unum, hvað þá að þeir taki til máls i sínum eigin fjölmiðli. Eru þeir svona hlédrægir eða hafa þeir bara ekkert að segja? Mér og starfssystrum mínum finnst nú samt, að þeir mættu gjarnan svara einhverju af þeirri gagnrýni, sem þeir liggja undir svo að segja i hverri viku. Okkur kemur að visu ekki til hugar, að öll sú gagnrýni sé réttlát, en naumast er það samt af eintómum ótuktarskap sem menn eru að senda þessari stofnun tóninn. Sannleikurinn er sá, að það er sama við hvern maður talar, allir eru orðnir jafn uppgefnir á dag- skránni þeirra í sjónvarpinu. Kannski eru fjárráð þess svo þröng, að það megnar bara ekki að gera betur. En þá eiga sjón- varpsmennirnir að koma út úr skel sinni og segja okkur frá því hvar skórinn kreppir. Þeir geta viðrað sínar raunir opinberlega án þess að setja ofan. Mér og fleirum finnst það meira að segja skylda þeirra að gera hreint fyrir sinum dyrum. Ég heiti nú á þá að þeir reyni að útskýra fyrir okkur, hvers vegna sjónvarpið er nú á heljarþrök. Því að það er rétt, sem fram kom í Velvakanda fyrir fáeinum dögum að þó að ótrúlegt sé er það ennþá að versna!“ 0 Aðallega til búnaðarmálastjóra K.T skrifar um (ó)kindur „Óttalega gengur mér illa að trúa þvi sem Halldór Pálsson bún- aðarmálastjóri hélt fram i kapp- ræðu sinni við Hákon Bjarnason í sjónvarpinu í siðastliðinni viku, að sauðkindin sé enginn skaðvald- ur á gróðri, og jafnvel þvert á móti. Við hjónin urðum fyrir því óláni fyrir nokkrum árum að fá- einar af þessum skjólstæðingum hans Halldórs míns komust i garð- inn okkar að næturþeli, og árang- urinn var í stuttu máli sá, að gífurleg spjöll voru unnin á garð- inum. Blessaðar skephurnar gerðu sér vitanlega mat úr því sem þarna var á boðstólum.og lái ég þeim það ekki. Girðingin um garðinn okkar var ekki fjárheld, og er raunar varla hægt að ætlast frú Parsons hefur keypt allar þessar bækur af Minnu. — Minna gæti verið frú Parsons sjálf — gælunafn. — Sú hugsun hafði hvarflað að mér, sagði Wexford hranalega. — Þetta eru gððar bækur og vandað- ar, ekkert rusl og ég fæ satt að segja ekki skilið hvernig þessar bækur gætu verið hér nema þvf aðeins að henni hafi verið færðar þær að gjftf. Bókmenntir heimilisins vitna hreint ekki um að þessi hafi verið smekkur henn- ar. Ef mér skjátlast ekki er þessi útgáfa hér af Omari Khayan rok- dýr og sömuleiðis „Verses of Walter Savage Landor". Hann las orðin sem skrifuð voru á saur- blaðið, hástemmd og viðkvæmnis- legt Ijóð sem f var vitnað og sfðan stóð skrifað: „Finnst þér þetta ekki fallegt, Minna? Innilegar kveðjur frá Doon. 21. marz 1951.“ — Hver sem þessi Minna hefur verið fæ ég ekki af neinu séð hún hafi fagnað þessum gjöfum neitt sérstaklega. Hún hefur ekki einu sinni skorið upp úr bókinni. Eg þarf að tala ögn meira við hann Parsons, en við verðum sennilega að taka allt þetta hafurtask með : okkur á stöðina. Wbl VlíNN \im VxÍK/I'dÍ/ MA909 4 \$Í.An9/ V4 VA9LA W \/EÍ?A \1 AR \ f/SKl, WmiMö w WQW'Kofl *0 til þess, að húseigendur reisi þannig viggirðingar í bæjarland- inu. En hvar í ósköpunum hefur búnaðarmálastjóri verið öll þessi ár? Og einkanlega: Hvar hefur hann verið á vorin, þegar garðeig- endur hér i Reykjavik byrja að hringja i ofboði á lögreglu og blöð — vegna skaðans sem þeir verða alltaf fyrir af völdum sauðkind- anna sem komast i úthverfin. — Kveðja, K.T.“ 0 Að loknu kvennaári Hér er bréfritari sem vill að konur líti sér nær: „Ég kunni ekki við að vera að fitja upp á því á „kvennaárinu", en getur kvenfölkið ekki æði oft kennt sjálfu sér um þegar það dregst aftur úr í launamálum til dæmis. Ég veit til dæmis ekki betur en að konur séu í yfirgnæf- andi meirihluta í frystihúsum, þar sem þær segja oft og sjálfsagt oft með réttu að þær séu „híru- dregnar" samanborið við karl- mennina. En þarna hafa þær nú samt sjálfar staðið i sínum launa- samningum og eiga þar af leið- andi við engan annan að sakast en sjálfar sig. Mig langaði bara að skjóta þessu að þeim í bróðerni. Það má kenna okkur karlmönn- um um margt, sem hefur gengið böslulega hjá kvenþjóðinni. En samt ekki allt! — Vinur.“ % Þakkar gangstéttarþrifin Roskinn maður hringdi og bað Velvakanda að koma þakklæti sínu til þeirra verslunareiganda sem hefðu „haft rænu á“ að moka snjónum frá verslunum sínum áð- ur en hann byrjaði að frysta. „Þetta eru eins og vinjar i eyði- mörkinni," sagði símhringjandi, „og okkur ber aö sjá það við mennina sem sýna þó þetta frám- tak." Hann vildi lika vita hvort verzl- unarmenn og húseigendur al- mennt „bæru ekki ábýrgð" á sín- um gangstéttum. Þeirri spurn- ingu kunnum við ekki að svara. En ef „Gatnahreinsunardeild" borgarinnar vill leggja hér orð í belg þá er henni velkomið að senda okkur línu. HOGNI HREKKVISI Knattspyrnuþjálfarar íþróttafélagið Huginn. Seyðisfirði óskar að ráða knattspyrnuþjálfara á komandi sumri. Uppl. gefnar í símum 97-2207 á daginn, 2326 — 21 41 á kvöldin fram til 1 . febrúar. K nattspy rn u ráð. LE/TIÐ AÐ ÞVOTTA VÉL MEÐ STÓRFt/ HURÐ (auðve/t að hlaða og afhlaða) LEITIÐ AÐ ÞVOTTA VÉL MEÐ STÓRUM ÞVOTTABELG (fer betur með þvottinn-Þvær betur) LEITIÐAÐ ÞVOTTA VÉL SEM ER ÓDÝR íREKSTRI (tekur bæði heitt og kalt vatn, sparar rafmagn) LEITIÐAÐ ÞVOTTA VÉL MEÐ DEMPURUM (lengri ending og hljóðlátari) LEITIÐAÐ ÞVOTTA VÉL SEM ER ÞUNG (meira fyrir peningana, vandaðri vara) o. fl. o. fL o. fl. o. fí. o. fl. o. fí. o. fí. OG ÞÉR MUNUÐ SANNFÆRAST UM YFIRBURÐI PHILCO ÞVOTTAVÉLANNA. Þess vegna segjum við að þær hafi VIÐGERÐARÞJÓNUSTA OKKAR TRYGGIR YÐAR HAG. heimilistœki sf Hafnarstræti 3—Sætúni 8 EFÞAÐERFRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU 83? S\öeA V/GGA £ A/LVER4W <dV0£6VA<dT Af. íú* VA9F A9 VIR/N6M ir pisj •oía vivo^r mahma)! 99 !VÖK\<09y/MÍ VA9 YlBV YfyfíOOM < VtdN ATT/ YíIea 1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.