Morgunblaðið - 14.01.1976, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. JANUAR 1976
694 þús. farþegar með Flugleiðum 1975:
Einhver hagnaður
af rekstri félagsins
FLUGVÉLAR Flugleiða að meðtöldum vélum International Air
Bahama, fluttu um 694 þúsund farþega á s.l. ári en það er um 2,5%
fækkun frá árinu 1974. Fluttir voru 282.146 farþegar með Loftleiðum
yfir Norður-Atlantshaf. Gert hafði verið ráð fyrir 10% fækkun á þeirri
Íeik, en hún nam ekki nema 7% Sætanýtingin á þeirri leið var 75,4%. Á
flugleiðum milli Evrópulanda voru fluttir 119.800 farþegar, sem er
0,3% fleiri farþegar en árið áður. Sætanýtingin lækkaði þar úr 66,9% I
62.9%. 206.700 farþegar voru fluttir í innanlandsflugi sem er 2.7%
aukning, en þar var sætanýtingin 62.7% Farþegum með Air Bahama
fækkaði um 10% frá 1974 og voru 72.500. Þetta kom fram á blaða-
mannafundi, sem forstjórar Flugleiða Örn Johnson, Alfreð Elíasson og
Sigurður Helgason, boðuðu til I gær
Örn Johnson sagði á fundinum, miðað við stærð fyrirtækisins og
að gert væri ráð fyrir einhverjum
hagnaði af rekstri Flugleiða á s.l.
ári, en ekki væri hann mikill
Sveinn Jónsson
heiðursborgari
Egilsstaðahrepps
Sveinn Jónsson bóndi á Egils-
stöðum var kjörinn fyrsti heið-
ursborgari Egilsstaðahrepps
s.l. fimmtudag, en þann dag
varð Sveinn 83 ára.
Sveinn á Egilsstöðum er
löngu landskunnur maður.
Hann var oddviti Vallahrepps
árið 1927 og sfðan fyrsti odd-
viti Egilsstaðahrepps eftir að
Vallahreppi var skipt. Hann
hefur verið helsti forystumað-
ur sinnar sveitar um áratuga
skeið.
umsvif.
Hann sagði, að nú væri verið að
ljúka við gerð rekstraráætlunar
fyrir árið 1976. Nokkur óvissa
ríkti þó enn um vissa þætti
sumaráætlunar, en helztu breyt-
ingar i millilandaflugi frá liðnu
sumri yrðu, að væntanlega yrði
fjölgað um eina ferð milli Luxem-
borgar og Chicago, þ.e. úr 3 í 4 á
viku og í stað tveggja ferða til
Óslóar og Stokkhólms með DC-8
yrðu nú farnar 3 ferðir með
Boeing 727. Þá verður beinum
ferðum til Kaupmannahafnar
fjölgað úr 8 í 9 og verða tvær
þeirra með DC-8.
Hann minntist einnig á
margumtalaðar ríkisábyrgðir,
sem Flugleiðir hefðu fengið. Kom
fram, að þegar hún var fengin
voru tekin tvö lán í Bandaríkjun-
um, alls að upphæð 13.5 millj.
dollara. Rúm 1 milljón dollara
hefur verið endurgreidd. Fyrir-
hugað rekstrarlán að upphæð 5
millj. dollara hefur hins vegar
ekki enn verið tekið og getur svo
farið að ekki yrði þörf á að taka
það fyrst um sinn.
Þá kom það fram á fundinum,
að um þessar mundir er unnið að
því að festa kaup á Twin Otter
skrúfuþotu fyrir Flugfélag
Norðurlands, en Flugleiðir eiga
35% hlutafjár þess. — Nanar
verður sagt frá blaðamannafund-
inum í Morgunblaðinu síðar.
Árshátíð á Hornafirði
ARSHATIÐ sjálfstæðisfélag-
anna i Austur-Skaftafellssýslu
verður haldin að Hótel Höfn,
Hornafirði, laugardaginn 17. jan-
úar og hefst með borðhaldí kl.
19/30.
Á hátíðinni verður margt til
fróðleiks og skemmtunar.
Alþingismennirnir Pétur
Sigurðsson og Sverrir Hermanns-
son flytja ræður, Ómar Ragnars-
son skemmtir og margt annað
verður til upplyfingar, s.s.
Ljósm. Magnús Finnsson.
FRETTAMENN ITN — Fréttamenn ITN-
fréttastofunnar brezku voru viðstaddir sjóprófin á
Seyðisfirði á mánudaginn og mynduðu þau. Þessir
sömu menn hafa verið á varðskipinu Þór undanfarna
daga og þeir tóku myndina af árekstrinum við
freigátuna Leander, en sú mynd hefur vakið mikla
athygli erlendis. Þótti hún sanna ótvfrætt að Leand-
er átti sök á ásiglingunni. Lengst til hægri er fyrir-
liði þremenninganna, Norman Rees. Þau mistök áttu
sér stað í laugardagsblaðinu að með viðtali við
Norman Rees birtist röng mynd. Var það mynd af
Óskari Indriðasyni vélstjóra á Þór. En hér sést hinn
rétti Rees, og eru hlutaðeigandi beðnir velvirðingar
á mistökunum.
Flóðahættan
ekki liðin
hjá í Ölfusá
KLAKASTÍFLAN, sem
myndast hafði í ölfusá
brast í fyrrinótt og rennur
áin nú eftir ál meðfram
norðurlandinu. Þegar
stíflan brast munaði ekki
nema feti að áin flæddi yfir
bakka sína hjá kaupfélags-
smiðjunum og einnig var
hætta á því að hún flæddi
yfir bakkana hjá
kirkjunni. Yfirborð
árinnar hefur lækkað
mikið en miklir klaka-
bólstrar ná upp á bakka
hennar.
Að sögn lögreglunnar á Selfossi
er þó ekki öll flóðahætta liðin hjá
ennþá, þvf fréttir höfðu borist um
að stífla væri að myndast neðar í
ánni og væri yfirborð hennar
byrjað að hækka þar. Er þetta á
svipuðum stað og stíflaðist árið
1968, eða á móts við Arnarbælis-
hverfi í Ölfusi. Mikið flóð varð
árið 1968 þegar stíflaðist á þess-
um stað og töluvert tjón.
Hvassviðrið í gær
offi miklum vandræðum
flutningur frumsaminna gaman-
vísna.
AUSTAN hávaðarok gekk yfir
mestan hluta landsins f gær og
fylgdi þvf vfðast hvar snjókoma.
Komst veðurhæðin f 85 hnúta á
Stórhöfða f Vestmannaeyjum en
12 vindstig samsvara 64 hnútum.
Vfðast var vindstyrkurinn 8—10
vindstig. Mjög hvasst var á
miðunum f kringum landið og var
t.d. ekki veiðiveður hjá brezku
togurunum þegar Ifða tók á dag-
inn. Veðrið hafði hina mestu
truflun f för með sér á þjóðlffinu,
samgöngur á landi voru mjög
erfiðar, flug lá niðri innanlands
og engar millilandaflugvélar gátu
lent, kennslu var aflýst eftir
hádegi f mörgum skólum og á
suðvesturhorni landsins átti fólk
f erfiðleikum f umferðinni, helst
þó f Reykjavfk og á vegum í
nágrenninu.
í Reykjavík varð færð mjög
erfið þegar liða tók á daginn, sér-
staklega í úthverfum. Lögreglan
og hjálparsveitarmenn komu bif-
reiðastjórum til hjálpar. Það kom
greinilega fram í gær að margir
bifreiðastjórar hafa oftrú á bílum
sinum i vetrarakstri og lentu
margir þeirra í hinu mesta basli.
Vegir út frá höfuðborginni voru
illfærir eða ófærir vegna roks,
hálku og skafrennings. Varð að
loka Keflavíkurveginum i gær-
kvöldi af þessum sökum, en um
daginn höfðu rúta og margir
smábílar lent þar utan vegar
Framhald á bls. 27
Brezkir togarar á Islandsmiðum:
Miðað við sókn hef-
ur aflinn minnkað
„ÞAÐ mun vera rétt, að miðað
við sókn hrezkra togara á Is-
landsmið, þá er afli þeirra ekki
jafn góður og á sama tíma f
fyrra. Sú aflaaukning, sem
náðst hefur á Islandsmiðum,
kemur eingöngu frá aukinni
sókn, en talið er að 10—15
togurum fleira að meðaltali á
tslandsmiðum nú en á sama
tfma f fyrra. Þetta mun vafa-
laust stafa af því, að Bretar
reyna að ná sem mestum afla
þar til að ná sfðar betri
samningum við tslendinga, og
sagt er að afli hvers einstaks
togara sé allt að 12% minni en
á sama tfma í fvrra,“ sagði Jón
Olgeirsson, ræðismaður f
Grimsby, þegar Mbl. ræddi við
hann í gær.
Jón sagði, að Austin Laing,
framkvæmdastjóri brezkra
togaraeigenda, hefði sagt í gær,
Rætt við
Jón Olgeirs-
í Grimsby
son
að hann fagnaði för Josep Luns
til íslands, að vísu öfluðu togar-
arnir vel þar, en ástandið væri
samt óþolandi. Það sagði Jón,
að mikil óvissa ríkti nú i út-
gerðarmálum brezkra togara
t.d. væri allt í óvissu um kvóta í
Barentshafi. Sér væri kunnugt
um þrjú skip, Boston Sterling,
Boston Halifax og Notts
Forrest, sem verið hefðu á veið-
um í Barentshafi og ekki á
listanum yfir þau skip, sem áttu
að veiða við Island, samkvæmt
samkomulaginu frá 1973, en
væru nú farin til veiða við
ísland. Allt eins gætu fleiri
slíkir togarar verið farnir þang-
að án þess að hann vissi það.
— Ég held að það verði erfitt
að ná samkomulagi milli ríkis-
stjórna Islands og Bretlands,
erfiðara en síðast, sagði Jón að
lokum.
Ný byggingarvísi-
tala tekur gildi
Sú gamla reiknuð út áfram
HAGSTOFAN hefur reiknað út nýja byggingarvísitölu
og er hún í samræmi við lög útgefin á sfðasta ári.
Grundvöllur hinnar nýju vístölu er byggingakostnaður
1. október 1975 og leysir hann af hólmi gamla grundvöll-
inn sem er frá 1. október 1955.
Nýja vísitalan var sett á 100 stig
miðao við 1. október s.l. og verð-
ur hún framvegis reiknuð fjórum
sinnum á ári í stað þrisvar áður.
Var vísitalan reiknuð að nýju um
áramótin og reyndist þá hafa
hækkað um 1 stig og er því núna
101 stig og gildir hún fyrir þrjá
fyrstu mánuði ársins 1976.
Gamla vísitalan verður áfram
reiknuð enda þótt ný hafi tekið
gildi, og verður hún í hlutfaili við
Dómnefndin enn
föst í Glasgow
DÖMNEFND bókmennta-
verðlauna Norðurlanda-
ráðs hefur ekki enn komizt
til landsins, og sitja 8
nefndarmenn fastir í Glas-
gow.
í fyrradag bilaði flugvélin, sem
átti að flytja þá hingað og komst
hvergi og i gær var ólendandi á
Keflavikurflugvelli, en nefndin
átti að halda fund sinn í gær á
Hótel Sögu og ætlaði að tilkynna
úrslitin á blaðamannafundi á eft-
ir. Ráðgert var að vélin með
nefndarmennina lenti snemma í
morgun og ef allt verður með
felldu ætti nefndin að geta haldið
fund sinn í dag.
nýju visitöluna. Er þetta gert
vegna ýmissa gerninga, sem til
hefur verið stofnað samkvæmt
grundvelli gömlu visitölunnar og
er þá fyrst að nefna spariskírteini
ríkissjóðs, en verðbætur á skír-
teihin eru greiddar samkvæmt
visitölu byggingarvisitölunnar
sem gilt hefur fram að þessu.
Garðar Halldórsson arkitekt.
Leiðrétting
ÞAU leiðu mistök áttu sér stað i
blaðinu í gær, að með frétt um
Garðar Halldórsson yfirarkitekt
birtist mynd af Garðari Halldórs-
syni, verkstjóra á Akranesi. Eru
hlutaðeigandi beðnir velvirðingar
á þessu.