Morgunblaðið - 14.01.1976, Síða 28
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
jMorgunblabife
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
2H»r0unt>labitt
MIÐVIKUDAGUR 14. JANUAR 1976
Viðlagatrygging
íslands bætir tjón-
ið á Kópaskeri
Tryggingin hefur sannað gildi
sitt,” segir tryggingaráðherra
HIN NÝJA Viðlagatrygging Islands, sem stofnað var til
með lögum á alþingi I fyrra, mun bæta fðlki tjðnið sem
hefur orðið og kann að verða á eignum þess af völdum
jarðskjálftanna á Kðpaskeri og annars staðar í Axar-
firði, að þvf er Ásgeir ólafsson stjðrnarformaður Við-
lagatryggingarinnar tjáði Morgunblaðinu f gær. Er tjðn-
ið á Kópaskeri fyrsta stðrtjðnið sem hin nýja trygging
mun greiða, en hún hefur til þessa tekið að sér tjðna-
greiðslur vegna flðða á Eyrarbakka og veðurtjðns á
Suðureyri.
Morgunblaðið ræddi i gær-
kvöldi við Matthías Bjarnason
tryggingaráðherra, en hann flutti
frumvarpið um Viðlagatryggingu
íslands á síðasta þingi. Ráðherr-
ann sagði m.a.: „Ég taldi þegar ég
flutti þetta frumvarp, að það
hefði mátt vera miklu fyrr á ferð-
inni og það hefur nú sannað gildi
sitt aðeins 8 mánuðum eftir að
það tók gildi. Ég reikna með því
að tryggingin hafi um 160 milljón-
ir i ráðstöfunarfé um næstu ára-
mót og að með frumvarpinu sé
komið í veg fyrir að leggja þurfi
aukaálögur á landsmenn til þess
að mæta greiðslu á tjóni sem verð-
ur í náttúruhamförum."
Von á Luns
um hádegið
DR. JOSEPH Luns fram-
kvæmdastjðri Atlants-
hafsbandalagsins, er
væntanlegur til landsins
um hádegisbil í dag.
Hann kemur með einka-
flugvél og er ráðgert að
hún lendi á Keflavíkur-
flugvelli. Með Luns eru
nokkrir aðstoðarmenn.
Eftir hádegi í dag mun Luns
eiga einkaviðræður við Geir
Hallgrímsson forsætisráðherra
og Ólaf Jóhannesson, sem nú
gegnir starfí utanríkisráð-
herra. Á morgun ræðir fram-
kvæmdastjórinn við íslenzku
ríkisstjórnina og er ráðgert að
Einar Ágústsson utanríkisráð-
herra sitji þann fund, en hann
hefur að undanförnu legið á
sjúkrahúsi til lækninga.
Jósep Luns heldur utan
snemma á föstudagsmorgun.
Ljósm. R.Ax.
OFÆRÐ —Mikið óveður gerði víðast hvar á landinu í gær og vegir tepptust. í
Reykjavík lentu margir í erfiðleikum með bíla sína, aðallega í úthverfunum. Hér á
myndinni er verið að aðstoða bílstjóra á Kringlumýrarbrautinni. Sjá nánar um
Framhaid á bis. 27 óveður og ófærð á bls. 2.
J ar ðsk j álf tafr æðingar:
Búast við tímabimdinni
aukningu jarðskjálfta
Ef eitthvað gerist frekar benda líkur til að það verði sunnar
VISINDAMENN eru sammála um að búast megi við
tímabundinni virkniaukningu í Kelduhverfi og Axar-
firði í kjölfar hins snarpa skjálfta sem kom þar f gær.
Morgunblaðið ræddi við jarðskjálftafræðingana Ragnar
Stefánsson og Eystein Tryggvason til að frá fregnir um
horfurnar.
„Ég er hræddur um, að þessi
útleysing f Kelduhverfi kalli á
meira og þá að nýir jarðskjálftar
geti átt upptök sín annaðhvort
fyrir norðan eða sunnan staðinn,
þar sem jarðskjálftinn í dag átti
upptök sín. Það er því ekki ólík-
legt, að það verði tímabundin
virniaukning á jarðskjálftum og
þá helzt nokkru sunnar en jarð-
skjálftinn varð í dag,“ sagði
Ragnar Stefánsson jarðskjálfta-
fræðingur í samtali við Morgun-
blaðið i gærkvöldi, en hann var þá
staddur á Húsavík á leið í Axar-
fjörð.
Hann var spurður að því hvort
Ifkur á eldgosi hefðu ekki aukizt,
og sagði hann að hætta á eldgosi
væri alltaf fyrir hendi. — En eins
og ég sagði, þá benda líkur til að
ef eitthvað gerist, þá verði það
sunnar en í dag.
Ragnar Stefánsson sagði, að
jarðskjálftakippurinn í gær hefði
átt upptök sín skammt suðvestan
við Kópasker. Kippurinn hefði
verið geysimikill og styrkleikinn
nálægt 6 á Richterkvarða. I kjöl-
far skjálftans hefðu komið mjög
margir smærri kippir, sem væru
nú að fjara út.
— Skjálftinn í dag var brota-
hafa á þessum slóðum að undan-
förnu. Hann er með þeim stærri
sem mælzt hafa hér á landi
síðustu ár. Styrkleiki hans mun
hafa verið nálægt því sem jarð-
skjálftinn á Reykjanesskaga var
1968. Munurinn á þessum kippum
er að skjálftinn á Reykjanes-
skaganum var miklu lengra frá
byggð, en það munar mjög mikið
um hverja 10 km frá byggð þegar
svona sterkir kippir koma. Þá
kom mjög sterkur kippur í mynni
Skagafjarðar, 7 stig á Richter,
árið 1963, en hann olli engu tjóni
Framhald á bls. 27
A sjó við upptök jarðskjálftans:
„Eins og að steyta á skeri”
— segir skipstjórinn á Þingey ÞH 102
Fólk og peningur flutt burt frá Skógum
Frá fréttamönnum Mbl,
Ingva Hrafni Jónssyni og Frið-
þjófi Helgasyni
I HÚSI Kaupfélagsins á Kópa-
skeri hitti blaðamaður Morgun-
blaðsins Gunnar Gunnarsson,
sem býr á Klöppum við Klifa-
götu en það er f austnorðaust-
urhluta þorpsins og varð ásamt
Asgarði og Vfðihóli, einna verst
úti f landskjálftanum mikla f
gær.
Húsið að Klöppum er upphaf-
lega byggt f kringum 1955 og er
hlaðið steinhús, en Gunnar
hefur undanfarið verið að
ganga frá mjög myndarlegri
viðbyggingu við húsið. Við
komum inn f húsið bakdyra-
megin, gegnum þvottahúsið, og
þá blasti við eyðileggingin og
hvað gerzt hafði: frystikistan,
þvottavélin og allt, sem f
þvottahúsinu var, eins og hrá-
viður um allt, og við höfðum
orð á þvf að eitthvað hefði
gegnið á. Þá sagði Gunnar:
„Mér finnst ekki mikið til um
þetta, en inni er skuggalegt um
að lftast.
Það reyndust orð að sönnu.
Þegar inn var komið í eldhúsið,
var þar allt á tjá og tundri. Hið
sama gilti um önnur herbergi
hússins: heimili Gunnars, konu
hans og fjögurra barna er í rúst
og húsið sjálft meira og minna
kolsprungið. Gunnar tók þessu
áfalli þó með hægð og sagði:
„Það skiptir mig mestu máli að
kona mín og börn voru heil á
húfi. — Yngsta barnið okkar er
4ra mánaða gamalt og hið elzta
12 ára. En auðvitað er hroða-
legt að horfa svona upp á
heimili sitt.“
Úr húsi Gunnars fórum við
niður að Asgarði, sem er næsta
hús og stendur einnig við
hliðargötu, þar býr Jón Þór
Þóroddsson, ásamt konu og
tveimur börnum. Þar var eng-
inn inni, en Friðrik oddviti
hafði leyfi til að sýna okkur
húsið. Það er talið hafa farið
einna verst. Varla var hægt að
ímynda sér, þegar maður kom
frá húsi Gunnars, að ástandið
gæti verið verra annars staðar,
en þegar komið er inn í Ásgarð,
blasir þó við enn verri sjón:
algjör eyðilegging. Húsið er
óíbúðarhæft og eru þar sums
staðar slíkar fellingar á gólfum,
að menn geta hrasað um þær ef
þeir gæta sín ekki. I gegnum
sprungur á veggjum má sjá út
og innanstokksmunir eru allir í
maski og hafa tvistrast út um
allt. Er tjón þessa fólks gífur-
legt.
1 kaupfélagshúsinu hittum
við einnig Auðun Benedikts-
Jón Ölason f Skógum
son, skipstjóra á Þingey ÞH 102
en þegar jarðskjálftinn varð
var hann við togveiðar á báti
sínum um 8 sjómílur suðvestur
af Kópaskeri, sem er nokkurn
veginn yfir upptökum land-
Framhald á bls. 27