Morgunblaðið - 15.01.1976, Side 3

Morgunblaðið - 15.01.1976, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. JANUAR 1976 3 „Það varð haf af bókumíbúðinmniiiim’ EINN AF elztu Ibúum Kópa- skers, Kristjana Þorsteins- dóttir, sem er 70 ára gömul, hefur rekið bókabúð á Kópa- skeri um 38 ára skeið. Hún bvr ein í Melum, þriggja hæða húsi, sem að sjálfsögðu fór ekki varhluta af jarðskjálftanum mikla og fóru m.a. allar bækur í búð hennar á flevgiferð. Við röbbuðum við Kristjönu þar sem hún var stödd hjá vanda- mönnum á Húsavfk í gær. „Það fóru allar bókahillurnar í búðinni á ferð,“ sagði hún, ,,og féllu niður og það varð heilt haf af bókum á gólfinu. Ég var svo heppin að vera ekki í búðinni, var nýfarin út, því þá hefði að öllum líkindum farið illa fyrir mér. Þetta eru stórar hillur og bækurnar eru þungar. Ég var hins vegar í stofunni heima hjá mér á gangi þegar kippurinn reið yfir og ég hékk bara i stofuhurðinni og flaug með henni fram og til baka. Svo sá ég útvarpið koma þjótandi á móti mér og kom mér þá fram úr stofunni. Allt i báðum stof- unum brotnaði meira og minna og leirtauið mitt fór allt í mask. Þetta var mikið áfall en mér liður vel hér og svo ræður Guð og lukkan því hvenær við för- um aftur. Bókabúðin er í útbyggingu á stofuhæðinni og það er voðaleg summa af bókum þar frá öllum bóksölunum, en ég held nú að bækurnar hafi ekkert skemmzt þótt allar hillurnar hafi fallið, en svo reisum við bara hillurnar upp aftur.“ Rabbað við Kristjönu bóksala á Kópaskeri sem flaug fram og til baka á stofuhurðinni t hókahúðinni hjá Kristjönu var allt á tjá og tundri, eða öllu heldur minnti það á jólabókaflóðið. desembermánuði en hún er kennd við G.B. Viotti. öll verk eru send undir dulnefni og sendi Hafliði inn verk fyrir flautu og selló, er hann nefnir Vers'I. Að- eins mátti senda inn verk fyrir eitt eða tvö hljóðfæri. Hafliði hlaut fyrstu verðlaun, sem eru vegleg peningafjárhæð ásamt prentun og útgáfu á verk- inu af útgáfufyrirtæl^^sem hefnist Casa BD. BeSPn Di Ancona. Engin önnur verðlaun voru veitt að þessu sinni, en nokk- ur tónskáld fengu gullpeninga og viðurkenningarskjöld fyrir þátt- töku sína. Gullverðlaun hlutu þannig Hafliði Hallgrímsson hlaut 1. verðl á Ítalíu HAFLIÐI Hallgrfmsson, selló- leikari og tónskáld, hreppti fyrstu verðlaun og veglega peningaupphæð á alþjóða tón- skáldasamkeppni, er haldin var nýlega á ttalfu. Samkeppni þessi var nú haldin í 26. sinn í Vercelli á ítalíu í Pedro Saenz frá Madrid og Ellen Taaffe Zwillich frá New York, Dale Anthony Stark frá Boston hlaut silfurverðlaun en Uri Branea frá Minneapolis, Gianni Possio frá Torino og Yloande de Maco frá Briissel fengu viður- kenningarskjöl. Afnám tolla í Þýzka- landi forsenda ís- fisksölu ísl. togara LÆKKI V-Þjóðverjar tolla á ís- lenzkum sjávarafurðum á næst- unni má vænta að í gildi gangi samkomulag um sölu íslenzkra fiskiskipa á um 20 þúsund tonn- um af ísfiski f v-þýzkum höfnum. Að því er Kristján Ragnarsson, formaður Landssambands ísl. út- vegsmanna, tjáði Morgunblaðinu var gengið frá slíku samkomulagi um ísfisksölu hérlendra fiski- skipa í Þýzkalandi í samnings- drögum er gerð voru milli land- anna i landhelgisviðræðum 1973 en sá fyrirvari var af hálfu út- vegsmanna hér, að landhelgis- deila þjóðanna leystist, tollar þar- lendis yrðu afnumdir af þessum fiski og ýmis löndunar- og markaðskostnaður íslenzkra fiski- skipa yrði hinn sami í v-þýzkum höfnum og hjá v-þýzkum togur- um. Kristján sagði, að siðast þegar landhelgisviðræður hefðu verið hér í Reykjavík, hefðu komið full- trúar útgerðarmanna í Þýzka- landi ásamt viðræðunefndinni þýzku og rætt við fuiltrúa Lands- sambandsins. I þeim viðræðum kvað Kristján það hafa verið ítrekað af hálfu islenzku út- gerðarmannanna að samkomu- lagið frá 1973 stæði af þeirra hálfu svo fremi að fullnægt yrði fyrrgreindum fyrirvörum. Kristján benti á, að enn væri allt óbreytt hvað tollamálin í Þýzkalandi áhrærði, en sam- kvæmt landhelgissamningi þjóð- anna hefðu V-Þjóðverjar frest til 1. maí nk. til að fullnægja fyrir- varanum um tollaívilnanir i land- helgissamningnum. Kristján sagði ennfremur, að nú strandaði fyrst og fremst á þessu tollaatriði og sú væri ástæðan fyrir þvi að ekki væri meiri áhugi meðal ís- lenzkra togara á að sigla með is- fisk á þýzka markaðinn. V- Þjóðverjar hefðu þegar lækkað löndunar- og markaðskostnað ís- lenzkra togara til jafns við þýzka. Dagblaðið kaupir Laugaveg 45 fyrir tæpar 50 millj. kr. DAGBLAÐIÐ hefur fest kaup á húseigninni Laugarvegi 45, sem stendur á horni Laugarvegar og Frakkastígs, en þar voru áður til húsa Sokkabúðin og verzlun Sláturfélags Suðurlands. Er kaupverð hússins milli 45 og 50 milljónir króna, en gengið var frá kaupsamningi milli fvrri eiganda og forráðamanna Dagblaðsins í gærmorgun. Húseign þessi er þrjár hæðir auk riss og kjallara og bakhúss. Er stærð hússins nálægt því að vera um 1000 fermetrar. Morgunblaðið náði tali af Sveini R. Eyjólfssyni, fram- kvæmdastjóra Dagblaðsins, og spurði hann hvort fyrirtæki hans hefði fyrst og fremst verið að fjár- festa með því að kaupa þessa hús- eign eða hvort fyrirhugað væri að flytja bækistöðvar blaðsins í þetta hús. Sveinn kvað það fyrst og fremst hafa vakað fyrir þeim Dagblaðs- mönnum að verðtryggja það hlutafé sem fólk hefði trúað for- ráðamönnum fyrirtækisins fyrir frá því að blaðið var stofnað, þar eð ekki væri að fuliu ljóst hvað yrði með kaup Dagblaðsins á eigin prentvél. Forráðamenn Dag- blaðsins hefðu talið sér skylt að gæta þess að fara vel með þetta fé sem fólk hefði lagt í kaup á hluta- bréfum Dagblaðsins en það hefði ekki verið keypt sérstaklega til að Dagblaðið flytti þangað bæki- stöðvar sínar, þó að það hefði Framhald á bls. 27 Flugumferðar- stjórar taka ekki þátt í heræfingum varnarliðsins MBL. barst í gærkvöldi eftir- farandi fréttatilkynning: Starfsmannafundur flugum- ferðarstjóra í Flugstjórnarmið- stöðinni i Reykjavík haldinn þ. 14. janúar 1976, hefur sam- þykkt eftirfarandi: Vegna hernaðarihlutunar Nató-ríkis gegn islenzkri lög- gæzlu innan landhelgi okkar, munu flugumferðarstjórar ekki starfa við heræfingar várnarliðsins á Keflavikur- flugvelli né annarra Nató- herja innan íslenzkrar loft- helgi og innanlandsflug- stjórnarsvæðis vikuna 15.—21. þ.m. Verði áframhald áður- nefndrar hernaðaríhlutunar má vænta áframhaldandi og aukinna aðgerða.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.