Morgunblaðið - 15.01.1976, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 15.01.1976, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. JANUAR 1976 Svipmyndir frá jarðskjálftasvæðinu „Eins og tröll hafi þrammað um bryggjuna” Friðrik Jónsson oddviti á Kópaskeri er þarna á staðnum þar sem hann var er hrinan gekk yfir og heldur hann við glerstafla sem minnstu munaði að hryndi yfir hann. Tveir Kópaskersbúar skoða eina rifuna á bryggjunni. I fjarska sézt varðskipið Baldur eins og punktur yfir i-inu. Hillur og varningur á tjá og tundri f Kaupfélaginu. ^riðrik Jónsson oddviti stfgur þarna með vinstri fæti f 10 sm breitt bil, sem myndaðist eftir að húsið Skógar á Kópaskeri hafði kastazt til á grunninum. Svona var umhorfs f mörgum húsum á Kópaskeri, margsprungnir veggir í fbúð- arhúsum. „Byrjum af fullum krafti” Framhald af bls. 1 þess að koma í veg fyrir skemmd- ir af völdum frosts. Hugað var að viðgerð á frystihúsinu til að koma frosti þar á aftur, en vatnið fór af því sem öðrum byggingum og auk þess sprakk ammoniakssleiðsla við það. Þá voru menn að huga að og kanna aðrar hugsanlegar skemmdir. í dag komu til Kópa- skers menn frá Viðlagatryggingu íslands og byggingarverk- fræðingar frá Akureyri til að kanna öryggi húsanna til íbúðar og starfa. Komu þá einnig þing- menn kjördæmisins, Sigurður Gizurarson sýslumaður Þing- eyínga, Ragnar Stefánsson jarð- fræðingur, fréttamenn og fleiri. Friðrik Jónsson oddviti á Kópa- skeri tjáði biaðamanni Mbl. að mönnum þætti nú Ijóst að tjónið næmi ekki tugum milljónum króna, heldur huridruðum. Þá má þess geta að fólkið I Leirhöfn og Miðtúni, sem þangað flúði í gær, var flutt þaðan í dag af öryggis- ástæðum til Raufarhafnar og var sú ferð erfið sökum þungrar færð- ar, en vegir milli Kópaskers og nágrahnabyggðanna voru ekki opnaðir fyrr en eftir hádegi er veðrinu slotaði. Þá munu flestir heimamenn á Valþjófsstöðum hafa yfirgefið staðinn um sinn. Jarðskjálftinn í gær er nú tal- inn hafa verið rúm 6 stig á Richter-kvarða og af samtölum við fólk kemur fram hversu gífur- legar náttúruhamfarir hafa verið hér á ferð. Má segja að næstum hver einasti maður í þorpinu og nágrenni hafi fallið við skjálft- ann, ef örfáir, sem náðu góðu taki á einhverju haldföstu, eru undan skildir. Sögur fara af því hvernig menn köstuðust til eins og í stórsjó og varð sumum svo um veltinginn, að þeim varð flökurt. Geysistórir og þungir hlutir sem 4—5 menn hefðu átt í erfiðleikum með að færa úr stað köstuðust eins og eldspýtur. Þá fylgdi þessum hrinum óskaplegur hvinur og hávaði og einn af starfsmönnum kaup- félagsins sagði við Morgunblaðið að þegar jarðskjálftinn hefði verið genginn yfir, hefði hvinur- inn og hávaðinn í verzlun kaup- félagsins verið svo yfirgengilegur að það hefði verið líkast því er menn fengju martröð og vöknuðu og gleddust yfir því að hafa aðeins dreymt illa, en þarna hafði blákaldur veruleikinn verið á ferðinni og martröðin haldið áfram enn skelfilegri. Tveir félagar sem voru staddir skammt fyrir utan þorpið að setja vélsleða í bíl, sáu jörðina koma í bylgjum á móti sér og náðu að stíga fyrstu bylgjuna án þess að falla, en þá kom skyndilega bakslag og þeir skullu kylliflatir á jörðina. Eru allir sammála um að það gangi kraftaverki næst að enginn skyldi slasast f hamförunum, því það voru aðeins örfáir, sem hlutu smávægilegar skrámur við að detta eða kastast á eitthvað. Er ljóst af lýsingum sjónarvotta, að Kópasker hefur í orðsins fyllstu merkingu gengið í bylgjum. Við ræddum síðdegis í dag við Friðrik Jónsson oddvita á Kópa- skeri og spurðum hann hvernig ástandið væri og hvað það væri sem helzt blasti við. „Vatnsveitan er langefst á baugi hjá okkur til þess að hægt sé að hafa fólk hérna, því ekkert vatn er nú að hafa. Við vitum ekki hve langan tíma tekur að kanna skemmdir á veitunni og gera við þær, en byrjað var á að hleypa vatni á tankinn sem tæmdist al- gjörlega og síðan á að hleypa vatni á leiðsluna í áföngum til þess að sjá hvar lekur. Vatns- leiðslan hjá okkur er úr asbeströr- um og það er hætt við að þau hafi farið í sundur. Við erum nú að athuga með vatn, sérstaklega fyr- ir frystihúsið, úr borholu í þorp- inu, en það vatn, sem dælt hefur verið upp úr henni í dag, hefur verið mjög gruggugt og við vitum ekki hverju fram vindur þar. Einnig fór ammoníaksleiðsla í sundur sem þarf að gera við til að hægt sé að halda frosti á frysti- húsinu og koma í veg fyrir að afurðirnar þar skemmist. Annars ætti ekki að vera svo mjög mikil hætta á því í svona köldu veðri. Þá hafa einnig verið gerðar ráð- stafanir til þess að fá flugvél með þéttiefni til þess að gera við sprungur I íbúðarhúsum. Ekki er búið að taka ákvörðun um hvort verður haldið áfram að skipa út kjöti í Ljósafoss, en ýmis tor- merki eru talin á að hægt verði að fá menn úr nágrannasveitunum til að vinna að útskipun, til þess að fara aftur inn í frystihúsið, þannig að við yrðum að fá nýtt lið.“ „Hvernig er hugurinn í fólk- inu?“ „Það er nokkur ótti ennþá í konum og börnum við að snúa heim, þó eru tvær konur, sem fóru að heiman í gær, komnar heim aftur og þá geta þær dugn- aðarkonur, sem staðið hafa í því látlaust að elda ofan í okkur, farið heim og hvílt sig einn og einn tíma. Það þarf auðvitað ekki að taka það fram, að þessar náttúru- hamfarir valda sveitarfélaginu gífurlegu tjóni þar sem allt at- vinnulíf lamast og við leggjum alla áherzlu á að geta byrjað lífið hér af fullum krafti á ný, því að við máttum sízt við því af öllu að atvinnulíf hér lamaðist. Annars má segja að þetta byggist meira og minna á úrskurði manna frá Viðlagatryggingunni, sem komu hingað í dag, því menn vilja ekki hefjast verulega handa fyrr en allt tjón hefur verið metið og kannað.“ „Eruð þið nokkuð farnir að gera ykkur grein fyrir tjóninu?" „Nei, ekki annað en það, að það skiptir hundruðum en ekki tug- um milljóna króna.“ Á Skógum i Öxarfirði er það að frétta í kvöld að talið er að fram- ræslan fram í sjó hafi borið góðan árangur þó svo að vatn hafi hækk- að verulega í kílnum f nótt, en síðdegis voru talin líkindi á að vatnið í kílnum væri byrjað að lækka verulega. Allsendis er þó óljóst hvenær og hvort Jón bóndi Ólafsson á Skógum getur flutzt aftur heim til sín með heimilis- fólk og fénað, sem flutt var á brott í gær. Eftirskjálftavirknin á þessu svæði hefur verið nokkuð mikil í gær og í dag, en þó hefur hún heldur farið minnkandi, eftir því sem á hefur liðið og mun flestum þykja mál að linni. Svo virðist sem vatn sé nú aftur farið að seytla í Klifatjörn, sem hvarf með öllu þegar stóri kippur- inn reið yfir og sagt var frá í Morgunblaðinu í gær. 54 Kópaskersbúar höfðu komið til Húsavíkur í gær og þar af höfðu 24 farið áfram til vina og vandamanna á Akureyri, i Reykjavik og víðar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.