Morgunblaðið - 15.01.1976, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. JANUAR 1976
13
Frydenlund
harmar slit
KNUT Frydenlund, utanríkisráðherra Noregs, hefur
staðfest í viðtali við NTB, að tslendingar hafi beðið
Norðmenn að gæta hagsmuna sinna f London fyrir
tilstilli norska sendiráðsins ef stjórnmálasambandi
fslands og Bretlands verður sHtið.
„Norömenn munu verða viö
þessari ósk,“ sagði Frydenlund.
,,Ég mun harma ef til stjórnmála-
slita kemur og vona að hjá því
megi komast, en við verðum að
horfast í augu við það að til þess>
geti komið,“ sagði hann.
Roy Hattersley, aðstoðarutan-
ríkisráðherra Breta, verður i Ósló
22. og 23. janúar og mun þar eiga
pólitískar viðræður. Hattersley
stjórnaði fyrir Breta hönd fyrstu
viðræðum tslendinga og Breta,
„en ég er hræddur um að þróunin
allra næstu daga muni ráða úrslit-
um,“ sagði Frydenlund.
Agreiningur um
tillögur Wilsons
— varðandi Skotland og Wales
Leiðtogar kfnverska kommúnistaflokksins votta Chou En-lai forsætisráðherra
hinztu virðingu og þökk við líkbörur hans í Peking 11. janúar.
London 14. jan. Reuter.
SÚ fyrirætlun ríkisstjórnar Bretlands að veita Wales og
Skotlandi takmarkaða heimastjórn hefur vakið upp
geysilegar þrætur brezkra stjórnmálamanna og er líkt
við deilur um aðild Breta að Efnahagsbandalaginu f
fyrra.
Gagnrýni frá ýmsum aðilum
hefur beinzt að Harold Wilson,
forsætisráðherra, eftir að hann
Viðbúnaður
í Danmörku
Kaupmannahöfn, 14. janúar. Reuter.
Yfirmenn öryggismála hafa
lokið undirbúningi víðtækra
öryggisráðstafana með þátttöku
danskra og erlendra öryggisvarða
til að mæta hugsanlegum hryðju-
verkaárásum á fundi æðstu
manna sósíalistaflokka Evrópu i
Kaupmannahöfn 18. og 19.
janúar.
Engum væntanlegum þátttak-
anda í viðræðunum hefur verið
hótað, en meðal þeirra verða
Harold Wilson forsætisráðherra
frá Bretlandi, Francois Mitterand
frá Frakklandi, Mario Soares frá
Portúgal, Helmut Schmidt
kanzlari frá Vestur-Þýzkalandi og
Willy Brandt fyrrverandi
kanzlari.
hóf umræður um málið í neðri
deildinni. Gert er ráð fyrir, að
kjörin þing verði i Edinborg og
Cardiff, en úrslitavald verði
áfram í höndum brezka þingsins í
London.
Nokkrir þingmenn töldu að of
langt væri gengið og gæti haft
þær afleiðingar, að um algera
upplausn ríkisins yrði að ræða.
Aðrir töldu þær mjög ófullkomn-
ar og að Skotar og Walesbúar
ættu að fá miklu víðtækari stjórn
eigin mála. <
Wilson sagði að tillögurnar
væru að likindum viðamestu
stjórnlagabreytingar í Bretlandi
síðan árið 1707 en þá voru lög um
samband Skotlands og Englands
staðfest.
I tillögunum er gert ráð fyrir,
að þing Skota muni hafa fram-
kvæmdavald til að setja Iög um
ýmis mál, svo sem menntunar-,
húsnæðis- og heilbrigðismál. Aft-
ur á móti er ekki gert ráð fyrir að
þingið f Wales verði annað en
ráðgjafarþing.
Myndin er af Leonid Plyushch er hann kom til
Austurríkis á laugardaginn. Með honum er kona
hans Tatjana og að baki hennar sést í ungan son
þeirra.
Danskir sjómenn gagnrýna
landanir íslenzku skipanna
Frá Lars Olsen f Kaupmannahöfn.
KAJ BORK, formaður félags fiskimanna í Skagen, hefur gagnrýnt
íslenzka sjómenn vegna erfiðleika danska sjávarútvegsins. Hann segir
að miklar landanir þeirra ættu þátt f að lækka verð á fiski f Danmörku.
Á sama tfma drægi úr Iöndunum sjómanna frá hinum Norðurlöndun-
um og Austur-Evrópu.
Samtök sjávarútvegsins í Hirts-
hals, Skagen og Hanstholm ætla
að reyna að leysa vandann með
samkomulagi milli danskra sjó-
manna og fiskiðnaðarins. Slíkt
samkomulag á að útiloka miklar
og óvæntar landanir og tryggja
dönskum sjómönnm stöðugra
verð.
Danskir sjómenn hafa enn ekki
náð sér eftir það áfall sem þeir
urðu fyrir þegar danska ríkis-
stjórnin bannaði allar sfldveiðar
danskra sjómanna í Norðursjó.
Það leiddi til þess að sjómenn
lokuðu höfnum á mörgum stöðum
og neituðu að fara til veiða. Síðan
hafa verið kosnar nýjar stjórnir í
félögum sjómanna á mörgum
stöðum. Gömlu stjórnirnar for-
dæmdu herskáar aðgerðir bar-
áttumanna sjómanna.
Kaj Bork, sem er formaður ann-
ars stærsta sjómannafélagsins í
Danmörku telur að danska ríkið
eigi að tryggja dönskum sjómönn-
um betri samkeppnisaðstöðu
gagnvart erlendum sjómönnum,
sem njóti ríkisstyrkja. „Tryggja
verður að danskir sjómenn fái
sanngjarnt verð,“ segir Kaj Bork,
„annars verður danska ríkið að
veita sjávarútvegnum ríkisstyrk."
Kissinger til Moskvu
Washington 14. jan.
AP. Reuter.
HENRY Kissinger, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, mun fara
til Moskvu f næstu viku og vera
þar dagana 20.—23. janúar til að
ræða við Leonid Brezhnev flokks-
leiðtoga sovézkra kommúnista
um væntanlegan samning um
gagnkvæman samdrátt herafla
Bandarfkjamanna og Sovétrfkj-
anna f kjölfar Vladivostoks-
samningsins milli Bandarfkjanna
og Sovétrfkjanna frá 1974.
Bandaríska utanrfkisráðuneyt-
ið neitaði í dag að segja nokkuð
um hvort þjóðirnar hefðu leitt til
lykta það þrátefli sem hefur verið
eftir að Vladivostokfundurinn
var milli Fords og Brezhnevs. En
Henry Kissinger.
talið er trúlegt, að málamiðlun
hafi náðst í höfuðdráttum, þar
sem kveðið sé á um að Bandaríkin
takmarki framleiðslu langdrægra
eldflauga sem tilraunir verða
gerðar með á þessu ári og á móti
komi að Sovétríkin takmarki
þróun á nýrri tegund sprengju-
flugvéla.
I Vladivostoksamningnum var
gert ráð fyrir að hvort riki um sig
takmarkaði kjarnorkubúnað sinn
við 2400 flaugar og orrustuflug-
vélar. Hámark flauga með marga
kjarnaodda mátti vera 1320.
Ágreiningur um hvort ætti að
telja hina nýju sprengjuflugvél
Sovétríkjanna með í þessu svo og
eldflaugategundina nýju, sem
Bandaríkjamenn eru að fram-
leiða, hefur sfðan staðið í vegi
fyrir þvi að niðurstaða fengist.
Tun A bdel Razak lézt í gœr
London, Kuala Lumpur 14. jan
Reuter.
FORSÆTISRÁÐHERRA Malaysiu.
Tun Abdul Razak, lézt á sjúkranúsi
I London i dag Banamein hans var
hvltblæSi, en hann hafSi einnig
þjáðst af beinakölkun og öSrum
sjúkdómum. Hann var 53ja ára
gamall. Razak hafSi veriS for-
sætisráSherra Malaysiu I fimm ár
og var oft nefndur „faSir fram-
þróunarinnar" vegna þess aS slS-
an hann tók viS völdum hafa stór-
stigari breytingar I framfara og
þróunarátt orSiS I Malaysiu en á
nokkru tlmaskeiSi áSur slSan
landiS hlaut sjálfstæSi undan
brezkri stjórn 1957.
Razak var mjög andvígur
kommúnistum og bannaði starfsemi
þeirra i landinu. Hann var ékafur og
dyggur bandamaður vestrænna rlkja
og er ekki búizt við breytingu á
stefnu landsins við fráfall hans, svo
fremi Datuk Hussein taki við en
hann hefur gegnt embætti forsætis-
ráðherra siðasta mánuð I veikinda-
forföllum Razaks. Hussein tilkynnti
lát forsætisráðherrans I útvarpi og
mun fréttin hafa komið flatt upp á
þorra manna þar sem ekki hafði
verið opinberlega tilkynnt hversu
alvarleg væru veikindi Razaks
Razak var fæddur árið 1922 og
hlaut menntun sina fyrst i Kuala
BREZKA leikkonan Margaret
Leighton andaðist I dag, 53ja ára
að aldri. Leighton var i hópi
frægustu leiksviðs- og kvikmynda-
leikkvenna Breta og mótleikarar
hennar voru menn á borð við Sir
Laurence Olivier, Sir Alec Guinnes
og fleiri. Þekktustu myndir hennar
voru „Winslow Boy", „The Sound
and The Fury" og „Lady Caroline
Lamb".
Lumpur, slðan í Singapore og loks i
London Hann var kjörinn leiðtogi
æskulýðshreyfingarinnar Umno árið
1950 og hóf þar með afskipti af
stjórnmálum Þrátt fyrir að Razak
væri mjög andsnúinn kommúnistum
gerði hann þó á allra siðustu árum
tiiraunir til bættra samskipta við
kommúnistalönd, þar á meðal Kina
Hún fékkst við kvikmyndaleik nær
eingöngu siðustu árin en kom i fyrra
aftur fram á leiksviði i London og lék
þá aðalhlutverk i verkinu ,,A Family
and a Fortune" á móti Alec Guinnes
Siðasta mynd hennar var „Great
Ecpectations" en sú mynd verður
frumsýnd í London á morgun
Margaret Leighton naut mikils
álits sem kvikmyndaleikkona og fékk
margs konar viðurkenningu á þvi
sviði Eiginmaður hennar var
Michael Wilding.
Margaret Leighton látin
London 14 jan AP