Morgunblaðið - 15.01.1976, Síða 15

Morgunblaðið - 15.01.1976, Síða 15
15 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. JANUAR 1976 Flugleiðir fluttu 694 þús. farþega 1975: Einhver hagnaður verður af rekstri félagsins — meiri áhyggjur af smæð félagsins en stærð „Með sameiningu flugféiag- anna var komið í veg fvrir tap- rekstur þrátt fvrir erfitt árferði og vegna hennar hafa sparazt drjúgar fjárhæðir í erlendum gjaldevri, sem miklu máli skiptir fvrir þjóðarbúið,“ sagði Örn Johnson, forstjóri Flugleiða. á fundi með blaðamönnum I gær, sem hann hélt ásamt forstjór- unum Sigurði Helgasvni og Al- freð Elfassyni. — Ljóst er nú, að einhver hagnaður verður af rekstri Flugleiða, en þó ekki mikill miðað við stærð og umsvif fyrirtækisins. A árinu 1975 fluttu flugvélar Flugfélags Islands, Loftleiða og International Air Bahama um 694 þúsund farþega, sem er um 2.4% fækkun frá árinu 1974. í byrjun fundarins kvað Örn Johnson flugmálin hafa verið mjög í sviðsljósinu á nýliðnu ári — ekki aðeins erlendis heldur einnig hér á landi. í umræðum um þessi mál virtist sem erlendis hefði hæst borið hina erfiðu fjár- hagsafkomu mikils fjölda flug- félaga víða um heim, enda haft á orði, að sum þekkt flugfélög hefðu jafnvel riðað til falls. Orsakir þessara erfiðleika, sem steðjað hafa að flugrekstrinum, eru sjálfsagt margþættar, en ekki færi þó milli mála að meginvanda- málið hefði verið olíuhækkan- irnar og almennar hækkanir á flestum sviðum vegna verðbólgu. Þá sagði Örn, að á árinu 1974 hefði í fyrsta skipti verið gerð heildarrekstraráætlun fyrir félög- in, bæði um flutninga og þá einnig tekjur, gjöld og fjár- streymi. í öllum markaðslöndum hefði verðbólgan vaxið frá árinu áður, mest á íslandi 43%, minnst í Þýzkalandi 7%. Olíuhækkanirnar hefðu verið félaginu erfiðar, sem dæmi mætti nefna, að eldsneytis- kostnaður beggja félaganna hefði verið 130 millj. kr. hærri í júlí 1974 en í sama mánuði 1973. Far- þegum hefði fækkað í fluginu yfir N-Atlantshafið á árinu 1974 og fagmönnum kom yfirleitt saman um, að ekki væri bata að vænta á þeirri flugleið, nema síður væri, á árinu 1975. Af þessari ástæðu m.a. var tekin sú ákvörðun, að starfrækja aðeins þrjár DC-8 flugvélar á N- Atlantshafsleiðinni sumarið 1975, í stað fjögurra sumarið 1975, en þessi ákvörðun leiddi af sér m.a. uppsögn 16 flugliða og mörg fleiri atriði spunnust inn í þessa ákvörðun. Örn vék nú að rekstri Flugleiða árið 1975 ogsagði m.a. Rekstur Flugleiða árið 1975 ,,Nú er árið 1975 gengið hjá og því nokkur ástæða til að skyggnast eftir hvernig okkur hefur farnast, bæði hvað afköst og afkomu snertir. Endanlegar tölur liggja auðvitað ekki fyrir ennþá, og þá sizt að því er varðar fjárhagsafkomuna, en farþega- flutningar fyrstu 11 mánuðina hafa verið gerðir upp og sé áætl- uðum flutningum síðasta mán- aðar ársins bætt við þær tölur hefur árangur orðið sem hér greinir hvað farþegaflutninga snertir I áætlunarflugi: Árið 1974 fluttu Loftleiðir 282.146 farþega milli Bandaríkj- anna og Evrópu, um Island. Gert hafði verið ráð fyrir 10% fækkun þeirra á árinu 1975, en fækkunin nam hinsvegar 7% og farþega- fjöldinn var 262.200. Vegna fækkunar ferða batnaði sæta- nýting og var 75.4%, en hafði verið 72.7% árið 1974. Á flugleiðunum milli Evrópu- landa voru fluttir 119.860 far- þegar, sem er 0.3% fleiri farþegar en árið áður (119.509). Gert hafði verið ráð fyrir samdrætti i þessum flutningum, en þó hafði ferðum verið fjölgað frá fyrra ári vegna mjög hárrar sætanýtingar á Norðurlandaleiðum á tímabili sumarið 1974. Sætanýting lækk- aði því i 62.9% úr 66.9% árið áður. Fluttir voru rúml. 206.700 i inn- anlandsflugi og nemur aukningin um 2.7%, en gert hafði verið ráð fyrir allt að 10% aukningu. Sæta- nýting var svo til óbreytt frá árinu áður, eða 62.7% (var 62.6%). Farþegum í leiguflugi milli landa fjölgaði verulega eða um 23.8% í 32.811 og hleðslunýting f slíkum flugum var 85.3%. Farþegum í Bahamaflugi með félaginu International Air Bahama fækkaði um u.þ.b. 10% og urðu þeir um 72.500. Alls fluttu flugvélar Flugfélags íslands, Loftleiða og International Air Bahama því um 694.000 farþega á árinu, sem er um 2.5% fækkun frá árinu 1974. Vöru- og póstflutningar félag- anna hafa ekki enn verið gerðir upp, en sýnt er að vöruflutningar hafa minnkað nokkuð á milli- landaleiðum. Varðandi fjárhagsafkomu Flug- leiða á liðnu ári er því miður ekki mikið hægt að segja enn sem komið er. Þó má gera ráð fyrir að hagnaður verði af rekstrinum, þótt ekki verði hann mikill. Reynist það svo, hygg ég að við getum sæmilega við unað miðað við allar aðstæður, þ.e.a.s. sam- drátt i flutningum og mikla hækkun reksturskostnaðar vegna verðbólgu. Hefur þá ráðið úrslit- um, annarsvegar takmörkun á sætaframboði, sem leiddi til betri Frá fundi forstjóra Flugleiða með blaðamönnum 1 gær. Talið blaðafulltrúi, Sigurður Helgason, Örn Johnson og Alfreð Elfasson. frá vinstri: Sveinn Sæmundsson DC-8 flugvélum í fyrra, verða nú 3 ferðir með Boeing 727. Þá mun beinum ferðum til Kaupmanna- hafnar fjölga úr 8 i 9 og verða tvær þeirra með DC-8. Tvær ferðir verða til Þýzkalands viku- lega, hliðstætt því sem var sumarið 1973. Fleiri minniháttar breytingar kunna einnig að verða gerðar á sumaráætluninni frá því sem var i fyrra, en ekki er gert ráð fyrir neinum stökkbreyt- ingum, enda margt sem bendir til að hófleg bjartsýni varðandi væntanlega flutninga henti bezt á þessu nýbyrjaða ári. Ríkisábyrgðir 10 milljón $ Farþegatekjur 1975 BANOARfKJADAUR I INORÐURATLANTSHAFSFUJG i I FUXS T1L OG FRÁ iSLANDI r ! AIR BAHAMA INNANLANDSFUJG jan feb mar apr mai jun júl ág sept okt nóv des MAflXABSaANNSÖKNADeU) 5/1 197« A þessu línuriti sést hvernig fjöldi farþega er langmestur vfir sumar- mánuðina, og tekjurnar þar af leiðandi langmestar á frekar stuttu tfmabili. Haustið 1974 sóttu Flugleiðir um ríkisábyrgð fyrir tveimur erlendum lánum. Hið fyrra, að upphæð $ 13.500.000, var til kaupa á tveimur þotum af gerðinni DC-8-63, sem Loftleiðir höfðu starfrækt um nokkurt ára- bil á leigukaupsamningi við Sea- board World Airlines, en upphaf- legt kaupverð þessara flugvéla og núverandi markaðsverð, er um 22 millj. dollara. Um $ 8.500.000 af leiguverði höfðu áður gengið upp í kaupverð flugvélanna. Síðara lánið, að upphæð $ 5.000.000, var ætlað til að bæta rekstrarfjár- stöðu félagsins. Ríkisstjórnin fól sérstakri nefnd að kanna fjár- hagsstöðu félagsins ásamt rekstr- ar- og fjárstreymisáætlunum. Að fengnu jákvæðu áliti hennar, lagði ríkisstjórnin frumvarp fyrir Alþingi til að afla heimildar fyrir veitingu ábyrgðanna óg var frum- varpið, svo sem kunnugt er, sam- þykkt eftir nokkrar umræður. Að rikisábyrgð fenginni voru tekin tvö lán i Bandaríkjunum, alls að upphæð 13,5 millj. dollara, og gengið frá kaupum DC-8 flug- vélanna. Hefur rúm 1 millj. dollara af þessum lánum nú þegar verið endurgreidd, í samræmi við gerða lánasamninga. Fyrirhugað rekstrarlán, að upphæð 5 millj. dollara hefur hinsvegar enn ekki verið tekið og gæti svo farið að ekki yrði þörf á að taka það fyrst um sinn. Við teljum hinsvegar mikið öryggi i þvi fólgið fyrir Flugleiðir að eiga kost á ríkis- ábyrgð fyrir slíku láni, ef nauðsynlegt reynist að bæta fjár- hagsstöðu fyrirtækisins, enda er nýtingar flugvélanna og, hins- vegar margháttuð hagræðing og sparnaður í rekstri. Um þetta hvorttveggja hefur svo örugglega betur til tekist en ella hefði vegna þess, að félögin höfðu verið sam- einuð. Vegna sameiningar þeirra varð taprekstri forðað þrátt fyrir erfitt árferði og vegna hennar hafa sparast drjúgar fjárhæðir í erlendum gjaldeyri, sem miklu máli skiptir fyrir þjóðarbúið. Áætlanir fyrir nýbyrjað ár Nú er verið að ljúka við gerð rekstraráætlunar fyrir árið 1976. Nokkur óvissa rikir þó enn um vissa þætti sumaráætlunar, en helstu breytingar i millilanda- flugi frá liðnu sumri verða vænt- anlega þær að fjölgað verði um eina ferð milli Luxembourg og Chicago, þ.e. úr 3 í 4 ferðir viku- lega og i stað 2ja ferða til Oslo og Stockholm, sem farnar voru með VÍSITÖLUSTVG -400 Samanburöur á fargjöldum og vísitölum kauptaxta og neysluvöru verdlags 1971-1976 -300 -200 -100 ■KAUPTAXTAR ■NEYSLUVÖRUVERÐ ■ KANARI FARGJÖLD 1971 HAOOCILD 5/1 197« rekstursfé þess vissulega í lág- marki. Allmiklar umræður hafa orðið um þessa ríkisábyrgð og aðrar sem Flugfélag Islands og Loft- leiðir höfðu áður fengið. Virðist svo sem sumir vilji líkja þeim við beinan ríkisstyrk, sem er auðvitað hin mesta fjarstæða. Skemmst er frá að segja að hvorugt flugfélag- anna hefir nokkru sinni notið ríkisstyrkja og er líklegt að eins- dæmi sé að tekist hafi að byggja upp fiugsamgöngur þjóðar, innanlands og við umheiminn, algjörlega án rikisstyrkja, svo sem hér hefur verið gert. I þessu sambandi skal þess og getið að lán þau til kaupa á Fokk- er-flugvélum og þotunni „GULL- FAXA“, sem Flugfélagi tslands var veitt ríkisábyrgð fyrir á sínum tima, eru nú að fullu endurgreidd og staðið hefir verið að fullu við alla lánasamninga Loftleiða og Flugleiða. Flugskýlisbruninn Svo sem mönnum er i fersku minni, kom upp eldur i aðal flug- skýli Flugfélags tslands á liðnum vetri og brann það ásamt verk- stæðum félagsins, varahlutum og ýmsum verðmætum tækjum, til kaldra kola. Atburður þessi átti sér stað þann 13. janúar 1975 og er þvi í dag liðið rétt ár síðan. Svo sem að likum lætur hefir flugskýlisbruninn valdið miklum erfiðleikum fyrir flugreksturinn i heild og þá sérstaklega flugvirkj- um og öðrum, sem vinna að við- haldi flugvélanna og á ýmsum verkstæðum félagsins. Aðstaða þeirra til að sinna vandasömum störfum sinum hefur verið mjög bágborin síðan flugskýlið og verk- stæðin brunnu og hafa þeir sýnt mikinn þegnskap og þolinmæði við hinar erfiðu aðstæður. Unnið er nú að lögn hitaveitu og nýrrar raflýsingar í það flug- skýli Flugfélagsins, sem áður var aðeins notað til geymslu flugvél- anna, en það hefur verið notað til viðhalds Fokker flugvélanna siðan hitt skýlið brann, og munu aðstæður batna nokkuð að þvi loknu. Viðunandi verður ástandið i þessum málum þó ekki fyrr en byggt hefur verið nýtt skýli, ásamt verkstæðum, og er unnið að því að það mál komist í höfn á þessu ári. Áróður gegn Flugleiðum betta Ifnurit sýnir samanburð í fargjöldum og visitölum kauptaxta og nevzluvöruverðlags 1971—1976. Kemur glögglega í Ijós, að fargjöid hafa ekki hækkað eins ört og kaup og verð nevzluvara. „Á nýliðnu ári,“ sagði Örn, ,,þá sérstaklega i síðasta mánuði þess, hefur margvislegum áróðri verið uppi haldið gegn Flugleiðum. Kennir þar margra grasa, en að Framhald á bls. 19

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.