Morgunblaðið - 15.01.1976, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 15.01.1976, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. JANUAR 1976 + Eiginmaður minn og sonur, ÓLAFUR ÞÓRARINN MAGNÚSSON, Melgerði 1 6, Reykjavik, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju föstudaginn 1 6 janúar kl 1 5 00 Blóm eru vinsamlega afbeðin, en þeim sem vildu minnast hms látna er bent á líknarstofnanir «.. ,, ., . Guðbjorg Hannesdottir, Sigurveig Jónsdóttir. + Kveðiuathofn um eigmkonu mína, móður okkar og dóttur, SIGRÍÐI BJARNADÓTTUR. Aðalstrætí 72, Patreksfirði, fer fram frá Þ|óðkirkjunni i Hafnarfirði fimmtudaginn 15 janúar kl 2 síðdegis Jarðsett verður á Patreksfirði Kristinn Fjelsted og börn, Þórhildur Hannesdóttir. Útför GUÐJÓNS GUÐBJORNSSONAR, fyrrv. skipstjóra, Ránargötu 1 4, verður gerð frá Dómknkjunni laugardagmn 1 7 janúar kl 10.30 f.h Matthea Jónsdóttir, Þuriður Guðjónsdóttir, Páll Ólafsson, Helga Guðjónsdóttir, Sigvaldi Jóhannsson. Eiginmaður minn og faðir okkar ÞÓRÐUR BJARNASON, Langeyrarvegi 1 1, Hafnarfirði verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 1 6 janúar kl 2 Blóm vmsamleqast afbeðin ... « ... Valgerður Johannesdóttir Viðar Þórðarson, Þóra Vala Þórðardóttir. Bjarni Þórðarson, Hrafnhildur Þórðardóttir, Jóhannes Þórðarson, Faðir okkar, tengdafaðir og afi SIGURÐUR MAGNÚSSON ^ frá Stardal, verður jarðsunginn frá Lagafellskirkju laugardaginn 17 janúar kl 2 e.h Guðveig S. Sigurðardóttir, Þórarinn Ólafsson, Sigríður Sigurðardóttir, Kristinn Bjarnason, Anna M. Sigurðardóttir, Böðvar Eyjólfsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Emlægar þakkir fyrir samúð við lát BJARNA BJARNASONAR, læknis og vtrðingu við minmngu hans Dætur, systur, niðjar og tengdafólk. + Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför RAGNHILDAR ERLU ERLINGSDÓTTUR. Sérstakar þakkir til Slysavarnafélags íslands fyrir veitta aðstoð Fyrir hönd systkma Bertel Erlingsson. + Þökkum innilega öllum þeim, er vottuðu okkur samúð og vináttu við andlát og útför, AÐALSTEINS NORBERG, Ása Norberg, Guðrún Norberg, Sigfús Sigfússon, Steinunn Norberg, Jón Birgir Jónsson, Ingibjörg Norberg, Birgir Rafn Jónsson, oq barnabörn. Guðmundur Sveinbjörns son — Minningarorð Fæddur 30. júlí 1911 Dáinn 8. jan. 1976 DaK.sverkinu er lokið, helgi framundan sem boðar hvíld fyrir þann sem ekki gengur heill til skógar, hvíld, svo hægt sé að vinna af sömu trúmennsku og dugnaði sem endranær, en með komu nýs dags er æviskeiðið á enda runnið. Guðmundur Sveinbjörnsson fæddist í Bolungarvík 30. júlí 1911. Ungur að árum fór hann til sjós og var við þá vinnu þar til hann flutti með fjölskyldu sína til Hafnarfjarðar árið 1957. Árið 1946 gekk hann að eiga Eniku Enoksdóttur sem einnig er ættuð úr Bolungarvík. Þau eignuðust fimm börn, þrjár dætur og tvo syni. Guðrún, gift Ragnari Tryggvasyni, Sveinbjörn kvæntur Steinunni Gunnarsdóttur, Enok, kvæntur Önnu Sigríði Björnsdótt- ur, Elín gift Erni Ægi Öskarssyni í Hafnarfirði, Ingibjörn gift Jóni Sigurðssyni, og eru þau búsett í Reykjavík. Eftir að Guðmundur kom til Hafnarfjarðar fór hann að vinna hjá Vegagerð Ríkisins og vann þar samfellt í 13 ár af þessari einstöku prúðmennsku og skyldu- rækni sem ávallt einkenndi þenn- an góðá mann. Eftir að Vegagerð- in fluttist upp fyrir Elliðaár og Guðmundur fór að vinna þar, var erfitt að sækja vinnu þangað úr Hafnarfirði fyrir þann sem ekki hafði sjálfur bíl til umráða en Guðmundur lærði aldrei á bfl, en ekki Iét hann það á sig fá, alltaf fór hann með allmenningsvögn- um fram og til baka, dag eftir dag, vetur, sumar, vor og haust og mætti alltaf á réttum tíma. En eitt sumar henti hann slys í vinnunni. Hann jafnaði sig samt eftir það, að þvi er virtist og byrjaði aftur að vinna, en skömmu seinna veiktist hann og lá á sjúkrahúsi um tíma, eftir það gat hann ekki unnið erfiðisvinnu, sem útheimti bið á strætisvagnastöð hvernig sem viðraði og að hætta að vinna var hugtak, sem þessi eljumaður þekkti ekki, hafði aldrei kynnst því. En Guðmundur átti góð börn og tengdabörn og einn tengdasónur hans útvegaði honum vinnu á Borgarspítalanum og sótti hann á hverjum morgni, um leið og hann fór sjálfur í vinnu og skilaði hon- um heim að kveldi. Nú lék allt í lyndi hjá Guð- mundi. Hann kunni vel við nýja starfið og félagana, þvi að alls staðar var hann jafn vel séður, en þá var allt í einu eins og hendi veifað, kallið kom snöggt og vægð- arlaust. Guðmundur var einstak- ur heimilsisfaðir, alltaf jafn ró- legur og góður enda voru börnin og barnabörnin honum mjög kær og mjög sterk fjölskyldubönd. Ef börnin og tengdabörnin fóru í ferðalög á sumrum, þótti alltaf sjálfsagt að bjóða mömmu og pabba með, sem alltaf þáðu slíkt með þökkum. Með þessum orðum vil ég þakka Guðmundi góð kynni á liðnum árum. Sonarbörn mín þakka afa sínum allt gott. Eiginkonu börn- um og systkinum Guðmundar votta ég dýpstu samúð. Olafía Karlsdóttir Þegar okkur barst sú harma- fregn að tengdafaðir okkar hefði dáið að morgni 8. janúar setti okkur hljóð. Gummi eins og við kölluðum hann dags daglega var okkur ein- staklega góður og tók okkur strax við fyrstu kynni eins og við vær- um hans eigin börn. Alltaf var jafn gott að koma til hans hvort sem við komum til að biðja hann einhvers eða í stutta heimsókn. Alltaf var hann jafn rólggur og skipti aldrei skapi eða hallmælti nokkrum manni. Aldrei kvartaði hann og þess vegna eigum við ennþá erfiðara með að trúa því að hann sé allur. , En sárastur er þó söknuður konu hans, barna og barnabarna sem voru honum allt, þeirra er eftirsjáin mest, er maður á besta aldri er á.brott kvaddur. Við vottum þeim öllum okkar innilegustu samúð og biðjum að góður Guð styrki þau í þessari miklu sorg. Tengdabörn útiaraskreyllngar blómouol Gróöurhúsiö v/Sigtun simi 36779 + Móðir okkar JÓHANNA HALLSDÓTTIR, andaðist í Sjúkrahúsi Akraness 1 3 janúar Sigríður Bjarnadóttir, Knútur Bjarnason, Hallur Bjarnason. + Útför eiginmanns míns INGA M. MAGNÚSSONAR, málara, fer fram föstudaginn 1 6 janúar kl 1 0 30 frá Fossvogskirkju Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vildu minnast hins látna er bent á Hjartavernd Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna Bára Eyfjörð. + Útför móður okkar ÞÓRDÍSAR HALLDÓRSDÓTTUR, Neðra-Nesi, fer fram frá Stafholtskirkju laugardaginn 1 7 þ.m. kl 1 4 Sigurður Þorbjörnsson Þórdís Þorbjörnsdóttir Halldór Þorbjörnsson. + Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUÐMUNDUR SVEINBJÖRNSSON, Norðurbraut 27, Hafnarfirði sem andaðist að heimili sínu 8 janúar verður jarðsunginn frá Foss- vogskirkju í dag kl 10 30 Blóm og kransar afþökkuð en þeim sem vildu mmnast hins látna er vinsamlega bent á líknarstofnanir Enika Enoksdóttir, Guðrún Guðmundsdóttir, Sveinbjörn Guðmundsson, Enok Guðmundsson, Elín Guðmundsdóttir, Ragnar Tryggvason, Steinunn Gunnarsdóttir, Anna Björnsdóttir, Örn Ægir Óskarsson, Jón Sigurðsson. og barnabörn. + Hjartans þökk fyrir auðsýnda samúð víð andlát og útför, GUÐNÝJAR JÓHANNESDÓTTUR, StóraSkógi, Guð blessi ykkur öll, Vandamenn. + Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför GUORÚNAR SIGURÐARDÓTTUR, Finnstungu Guðmundur Tryggvason, Gretar Guðmundsson, Aslaug Guðmundsdóttir, Svanhildur Guðmundsdóttir, Garðar Kristjánsson, Ingunn Gfsladóttir og börn Halldór Marfasson og börn, Heimir Guðmundsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.