Morgunblaðið - 15.01.1976, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 15.01.1976, Blaðsíða 28
AUGLÝSINGASÍMINN ER: 22480 AUGLYSINGASIMINN ER: 22480 JR«r0xinblsíiil> FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 1976 Ingimundur Páls- son, Katastöðum: Óttast um slösuðu kindurnar Katastöðum í gær frá Ingva Hrafni Jónssyni. EINS og frá var skýrt í Morg- unblaðinu í gær varð bónd- inn á Katastöðum við Kópa- sker, Ingimundur Pálsson, fvrir tilfinnanlegu (jóni f náttúruhamförunum, er milli- veggur í fjárhúsi hrundi og varð sex kindum að hana og slasaði margar aðrar og varð Ingimundur að lóga ejnni kind til viðbótar f morgun. Blaða- Framhald á bls. 27 1 túnið á Katastöðum komu tugir sprungna og sumar þann- ig, að hægfega mátti reka fót niður f þær. Ljósmvnd Mbl. Friðþjófur. I TtJNGJANNI — Sturla bóndi Sigtryggsson I Keldunesi stendur þarna ofan í sprungu sem myndaðist f túninu hjá honum og er hún allt að 1,5 metrar á breidd, mannhæðar- djúp og hundruð metra löng, en upp úr sprungunni vellur vfða 40 stiga heitt vatn. Sturla stendur þarna á syliu f gjánni þar sem 40 stiga heitt vatn bullar undir. Ljósmynd Frióþjófur Hafnargarðurinn nær gleypti stýrimanninn Frásögn skipverja á Ljósafossi af jarðskjálftunum Húsavfk 14. jan. Frá blm. Mbl. Ingva Hrafni Jónssyni: EINS OG fram hefur komið f fréttum var Ljósafoss f höfn á Kópaskeri er jarðskjálftinn reið þar yfir og var verið að skipa um borð f hann kjöti. Stýrimaður skipsins, Steinar Magnússon, var þá mjög hætt kominn og minnstu munaði að hann félli ofan f stærstu sprunguna sem kom f hafnar- garðinn. Við báðum hann að lýsa þessu fyrir okkur. — Ég var staddur niðri á bryggjunni og var að skoða kælivatnsrennslið út úr skipinu þegar þetta dundi yfir. Ég fann hvernig ég var að missa fótanna og baðaði út öllum öngum til að ná jafnvægi. Sprungan opnað- ist alveg við fætur mér, en ég rétt sá hana útundan mér og gat forðazt að falla ofan í. Þeg- ar ég svo var búinn að ná jafn- væginu kom mikil holskefla upp milli skips og bryggju og fékk ég sæmilegan skerf af henni yfir mig og þá forðaði ég mér hið bráðasta um borð. Ég skildi í fyrstu ekkert hvað var á seyði enda hafði ég nóg að gera við að halda jafnvægi. En þetta var óneitanlega hálf óhugnan- leg reynsla að sjá bryggjuna Framhald á bls. 27 Dr. Joseph Luns við komuna til íslands: „ísland mikilvægt fyrir NATO og fiskveiðar mikilvægar fyrir Island” JOSEPH Luns fram- kvæmdastjóri Atlantshafs- bandalagsins kom til Keflavíkurflugvallar kl. 12.30 í gær. Hann hélt þeg- ar til Reykjavíkur á Hótel Sögu, þar# sem hann býr meðan á Islandsdvöl hans stendur. Að því loknu eða klukkan rúmlega þrjú hélt Luns á fund Geirs Hall- grímssonar forsætisráð- herra í stjórnarráðinu. Stóð fundur þeirra til tæp- lega fimm. í dag ræðir Luns við ríkisstjórnina, en hann heldur utan í fyrra- málið. Luns kom hingað með þotu frá v-þýzka flughernum. Þegar hann Ienti í Keflavík, var veður heldur hryssingslegt, éljagangur og hvasst með köflum. Dr. Joseph Luns, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins heilsar Geir Hallgrímssyni, forsætisráðherra, við komuna til Islands f gær. Að baki dr. Luns er Tómas A Tómasson, sendiherra tslands hjá Atlants- hafsbandalaginu. Á Keflavfkurflugvelli tók Geir Hallgrímsson á móti Luns ásamt fylgdarliði. Er Luns hafði heilsað forsætisráðherra ræddi hann lítil- lega við fréttamenn og sagði: „Eg get ekki mikið sagt fyrr en ég er búinn að taia við ríkisstjórn Is- lands. Ég get aðeins látið í ljós von um, að réttlát lausn finnist á þessari hörmulegu deilu milli Bretlands og Islands. Ég væri mjög feginn ef ég gæti gert eitt- hvað til lausnar deilunni enda geri ég mér fulla grein fyrir því, að ísland er mikilvægt fyrir NATO og fiskveiðar mikilvægar fyrir Island." Þá náði Morgunblaðið tali af Geir Hallgrímssyni forsætisráð- herra. Hann sagði: „Joseph Luns er góður gestur og okkur kærkominn. Luns hefur alla tíð reynzt okkur vel og því er að vænta árangurs af viðræðun- um við hann. En það er ekki hægt að búast við að lausnin komi strax.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.