Alþýðublaðið - 23.09.1958, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 23.09.1958, Blaðsíða 1
verk SAM'NINGANEFNDIR deiluaðila í Dagsbrúnardeilunni náðu samkomulagi um 9 leytið í gærkveldi eftir 30 stunda samfelldan samningafund. Var sam- komulagið Iagt fyrir Dagsbrúnarfund í gærkveldi og samþykkt. Áðalatriðið er 9—9Vz% kauphækkun. Þeir fá kauphœkkun Hér fara á eftir helztu atriði hinna nýju samninga: Tímakaup hækkar u.m 9— %. Mánaðarkaup hækkar hlut- fallslega og þeir mánaðarkaups- menn, sem unnið hafa tvö ár fá 5% aukahækkun. Khup vakt- manna í skipum verður 10% hærra en annarra næturvarð- manna. Vinna á loftpressum hækkar um einn flokk. llinna á jþungaVinnuvélum' hækkar úr 6. fl. í 8 flokk. Þá var samið um að ávallt skulu 3 menn hið minnsta vera um hverja tvo krana. Atvinnurekendur gáfu 3 bind- andi yfirlýsingar: 1. Um að bæta aðbúnað á vinnustöðum. 2. Ákveða hvenær vinna skuli hefjast við höfnina, þ. e. að eigi vinnia að hefjast fyrir hádegi, skuli verkamönnum tilkynnt um það eigi síðar en kl. 9,40 f. h. og ráðning þá fara fram fyrir há- degi, eigi vinna að hefjast eftir Framhald á S. siðu Beirut, mánudag. MIKIL spenna var ríkjandi í Beirut í kvöld og óttuðust menn, að borgarastyrjöldin mundi blossa upp að nýju, er varnargarðar höfðu verið hlaðn ir á mörgum götum. Stjórn Sami Sohls sagði formlega af sér í morgun og á morgun á hinn nýkjörni forseti, Fuad Chehab, hershöfðingi, að taka við embætti og mynda stjórn. Sprengja sprakk í miðbænum í Beirut í dag og dreifð skothríð heyrðist á mörgum stöðum í úthverfunum. — Hægriflokkur inn, falangistar, sem aðallega eru kristnir menn, hefur byggt götuvígi og menn óttast nýjar óeirðir, er Chehab tekur við á morgun. MIKLAR VARÚÐAR- RÁÐSTAFANIR. Víðtækar varúðarráðstafanir hafa verið gerðar Og um allt land hefur verið sett útgöngu- bann. Höfuðorsök spennunnai’ milli kristinra og múhammeðs- -trúarmanna er m’»-int rán á blaðamanní við falangista-blað- Hafa falangstar hvatt verka- menn til að gera verkfall vegna mannránsins, en leiðtogar upp reisnarmanna segjast ekkerí vita um brottnám mannsins. Talin er lítil ástæða til að ætla, að stjórnarandstaðan haft rænt manninum, þar eð það sé and- stætt hagsmunum hennar að hefja uppgjör við falanglsta sem stendur. MÓTMÆLAFUNDIR. Mótmælafundir voru í rnörg- um þorpum í dag og er því hald ið fram, að falangistum finn- ist þeir hafa verið sviknir og stjórnarandstaðan hafj fengið öllurn kröfum sínum fram- Framliald á 8. síðu. fen Búið aS kjósa í 16 félögum 74 fulllrúa NU ER BUIÐ að kjósa til 26. þings Alþýðusambands íslands í 16 félögum, samtals 74 full- trúa. Þar af hafa andstæðing- ar kommúnista hlotið 45 full- trúla, kommún/istar 23 vissir eru 6. Þessi félög hafa kosið: FéJ. rafvirkja 4 (andstæðingar' kommúnista), Framsókn 13 (andstæðingar kommúnista), Múrarafélagið 2 (andstæðingar kommúnista), Prentarafélagið 3 (andstæðingar kommúnista), | Jötunn 2 (kommúnistar), Mál- arafélagið 1 (kommúni'sti), Féi. járniðnaðarmanna 5 (kommún- istar), Eining á Akurej^ri 3 (kommúnistár), Verkamannafél Akureyrar 3, Iðja á Akureyri 3, Verkakvennaféj Keflavíkur 3, Bakarasveinafélagið 1 (and- stæðingur kommúnista). ASB 2 (kommúnistar), Verkalýðsfélag Hveragerðis. 1 (kommúnisti) Og Sókn 5. I Jötni í Vestmannaeyjum urðu úrslit þau, að A-listi komm únista hlaut 84 atkvæði, en B- listi andstæðinga kommúnista hlaut 56. Til samanburðar má geta þess, að síðast hlutu komm únistar 82 atkvæði en andstæð- en ó- ingar þeirra 20. FYI.GI KOMMUNISTA MEÐAL MÍJRARA MINNKAR. I Múrarafélagi Roykjavíkur urðu úrslit þau, að A-list;i stjórnar og trúnaðarmannaráðs hlaut 95 atkvæði og báða full- trúa félagsins kjörna. En B- listi kommúnista hlaut 48 at- kv-æði. Fulltrúar verða Eg'gert G .Þortseinsson og Einar Jóns- son. Varafulltrúar eru Jón G-. S. Jónsson og Ásmundur J. Jó- hannesson. Við stjórnarkjör í vetur hlaut A-listinn 91 atkv. en B-listinn 53 atkv. Andstæðingar kommúnista hafa greinilega forustuna og eru í sókn. Aðalatriðið er a-ð halda þeirri forustu. Svíþjóð unnu á ! BÆJAR. OG SVEITA- STJÓRNARKOSNINGAR fóru fram í .Svíþjóð á sunnu daginn. Jafnaðarmenn juku fylkj sitt nokkuð í kosning unum. Hlutu þeir rúm 1.7 millj. atkv. eða 47.4%. Hægri menn hlutu 738 þús. atkv. eða 19,7%. Þjóðflokk urinn hlaut 580 þús. atkv. eða 15.5%., miðflokkurinn hlaut 500 þús. eða 13.4%. kommúnistar hlutu 152 þús. eða 4%. I síðustu kosning- um í Svíþióð hlutu jafnaðar menn 46.9%. Borgaraflokk- arnir töpuðu nú meirihluia sínum í Stokkhólmi. VARBSKIPIÐ ,,Þór“ kom til Reykjavíkur í fyrradag. Á lciðiimi suður og vestur með landi frá Langanesi varð ekki vart við cinn einasta togara að veiðum í landhelgi. Á Norð- firði fóru af skipinu menn þeir, sem teknir voru í stað þeirra, sem „Eastbourne“ rændi á dögunum. „Það er mikill spenningur milii oklcar á varðsldpunum um það, hver verður fyrstur tíl að koma brezkum landhelg isbrjót til lands og ég vona að það falli í okkar hlut“, sagði elzti skipverjinn á „Þór“ og líklega aallri landhelg'isgæzl- unni, er blaðið átti taj við hann í gær. „Enda ætti >,Þór“ að hafa yfirburði yfir hin varð skipin, þar hann er stærstur og hefur mestan ganghraða“. Hann heitir Jón Kristóiersson og varð sjötugur í júní. ---- „Maður er nú að verða eins og kvenfólkið, þegar spurt er um aldurinn“, sagði Jón og hló við. Hann hefur verið á Framhald á 8. síðu Trúfðfui Þá er hún gengin út í annað sinn þessi. Þið þekkið kann- ski svipinn — og fótinn. Hún skikli við manninn sinn í er tuttugu og þrggja ára og fyrra. Hún er líka frönsk. Nú er hún trúlofuð gítarleik- ara að nafni Sacha Distel (hann er 22 ára) og kvað vera óskaplega hamingju. söm. Jú, hún heitir Brigitte Bardot.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.