Alþýðublaðið - 23.09.1958, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 23. sept. 1958
Alþý8ublaSi»
SVORTUSKOGAR nefnist
landsvæðr vestast í Suður-
Þýzkalandi, í fylkinu Baden-
Wiirtenberg. Takmörk þess
eru áin Rín að vestan og Sviss
að sunnan.
Þarna er mjög fjöllótt, há
fjöll og djúpir dalir skiptast
á, og allt er vaxið þéttum, há-
vöxnum furu- og greniskógum.
Hæð yfir sjávarmál er allt frá
160 metrum upp í 1495 metra.
(Hæsta fjallið Feldberg). Þetta'
er víðlent svæði og eru þar ó-
tal smábæir og þorp í dölunum,
kastalar frá miðöldum í hæð-
um og nokkrar stærri borgir,
svo sem Offenburg, Freiburg
<o. fl. Aðalatvinnuvegir eru
landbúnaður, skógarhögg,
klukkusmíði, útsknrður og
annar heimilisiðnaður, nokkur
vínrækt, en margir hafa at-
vinnu af ferðafólki, sem þang-
að kemur á öllum árstímum,
enda eru þar mörg gistihús og
búðir, sem selja fólki útskorna
minjagripi o. fl. Þetta er mjög
vinsælt hérað fyrir ferðafólk,
því þar er hægt að fara í fjall-
göngur á sumrum og baða sig
í háfjallasól og heilsulindum,
sem þar eru líka, veiða í ám og
vötnum, og á vetrum eru þarna
mikið sóttir vetraríþróttastað-
ir, fyrir skíðaferðir, sleðaferðir
o. s. frv.
ÍSLENZKIR HESTAR.
Nú á síðustu árum hefur eitt
skemmtiatriði bætzt við til
þess að lokka ferðamenn þang-
að, en það er hið svonefnda
hestahótel (Pferdehotel), sem
hefur upp á að bjóða íslenzka
hesta til útreiða um fiöll og dali
Svörtuskóga. Er það orðið mjög
vinsælt og hefnr, sem kunnugt
er, orðið til þess, að það er orð-
in tízka í Þýzkalandi að eign-
ast íslenzkan hest. Kemur það
sér ekki illa fyrir íslenzka
bændur að fá þann markað
fyrir hesta sína. Munu vera að
rísa upp fleiri slík hótel í Þýzka
landi, t. d. í nánd við Saar-
brueken.
Það er þýzkur maður, Falkn-
er að nafni, sem hér dvaldi í
mörg ár, sem stofnað hefur
þetta fyrsta hestahótel í Svörtu
skógum, ásamt fleirum.
SVÖRTUSKÓGARRAUT.
Frá Konstanz, sem er á landa-
mærum Sviss og Þýzkalands,
liggur hin svonefnda Svörtu-
skógajárnbraut norður í gegn-
tim Svörtuskóga til Offenburg.
Er brautin geysilegt mann-
virki, byggð á síð'ari hluta 19.
aldar og vígð 10. nóvember
1873.
Verkfræðingurinn, sem gerði
uppdrátt að henni og stjórnaði
foyggingu hennar hét Robert
Gerwig og er minnismerki um
hann í bænum Triberg. Járn-
forautin liggur í gegnum og ut-
an í Jurafjöllunum, utan í
snarbröttum hengiflugum og
gegnum hæðir Svörtuskóga í
28 jarðgöngum, að minnsta
kosti.
í fyrstu ferðinni var skóla-
börnnm boðið frítt far og þykir
Þjóðverjum það hafa verið
góðs viti, því að til þessa dags
hefur þar ekkert slys hent á
þessari hættulegu og erfiðu
leið. Hlýtur það að vera mikið
tæknilegt afrek á þeim tíma,
Þóra M. Sfeíánsdóttir:
Ferðaþættir Vi.
að koma öUu svo örugglega fyr-
ir á þessari leið, sem raun ber
vitni.
TIL SVÖRTUSKÓGA.
Við förum frá Konstanz við
Bodenvatn með járnbrautar- j
lest síðdegis sunnudag einn og |
er ferðinni heitið norður í |
Svörtuskóga (Schwarswald). i
Fyrst liggur leiðin meðfram j
ströndum Bodenva^nsins, að
vestanverðu. Er mjög fallegt að
horfa yfir vatnið og til skógi-
vaxinna hæðanna hinummegin.
Það eru AUgöver-Alparnir í
Bavern. sem við fórurn um í
gær. Á vinstri hönd eru skóg-
ar næst. með þorpum og hús-
um á víð og dreif. Margir sum-
arbústaðir standa nálæ.gt. vatn-
inu. enda er þarna tilvalinn
staður fvrir þá. Skammt frá
rísa hæðir og fjöll, klædd
greni- og furuskógum. Þar sjá-
um við enn til Sviss.
Nú stefnum við í norður frá
Bodenvatni og Sviss og þjót-
um gegnum Baden-Wúrtem-
bercr í glaða sólskini.
Nú er Bodenvatnið horfið,
en hér eru háar hæðir, með
skóvi og kastalarústum, kletta-
hæðir, með tún í hlíðunum,
miklir greniskósar og stór engi
og akrar á milli og mjög fal-
legt og tilbreytingarríkt lands-
lag.
Fvr.sta stöðin. sem við kom-
um til, eftir að farið var frá
Konstanz, heitir Rodolfzell.
Svo koma ýmsar smástöðvar,
t. d. heitir ein Singen, önnur
Enpon o. s. frv. Þetta eru allt
smábæir.
Á WENGIFLUGI
Nú erum við að komast inn
í Schwarswald (Svörtuskóga)
o? er nú klukkan orðin fimm.
Nú hækka hæðirnar og dal-
irnir eru hér dýpri. Dimmur
greniskógur þekur allar hæðir,
en niðri í dölunum eru smábæ-
ir og þorn. Grenitrén eru risa-
vaxin. Nú fórum viS stöðugt
ofan í móti. utan í háum hæð-
um og virðist brautin liggja
sums+aðar á hengiflugum. Ligg
ur við að mér ógni að horfa
niður. Þetta er hrikalegasta
landslag, sem ég hefi séð. Þó
hefi ég ferðazt mikið um ís-
land og vfir Noreg þveran. Hér
lækkar brautin um 200 metra
á skömmum tíma. enda erum
við alltaf á niðurleið.
Við förum í gegnum tvö
jarðgöng með stuttu millibili
og- hallast brautin í þeim mik-
ið niður í móti. Það er eins og
við séum að steypast ofan háa
brekku og ískrar í öllum heml-
um lestarinnar. Á suðurleið,
upn bessar sömu brekkur, eru
hafðir tveir eimvagnar, annar
á undan lestinni. eins og venja
er, og hinn á eftir, til að ýta
henni áfram upp brattann.
Minna þykir ekki duga.
Við förum yfir ána Gutach,
sem er ein mesta á á þessum
slóðum. Neðar og norðar í
Svörtuskógum sáum við foss í
henni, það var um kvöldið, þeg- j
ar við komum til Triberg, sem
er mikill ferðamannabær.
Rétt eftir að við fórum yfir
ána, komum við á stöðina
Immendingen, sem er smáþorp.
Unglingahópur er hér í lest-
inni á sunnudagsferðalagi. Eru
tíma dembist yfir mann ýms
fræg verk eftir hina og þessa
meistara og allskonar dans-
lög, þjóðlög og dægurlög, sitt
úr hverri búð, en þær geta
skipt tugum. En fullorðnir,
unglingar og börn reika um og
kaupa sér sælgæti eða aðra
hressingu, eða einhvern varn-
ing,. minjagrip eða eitthvað,
sem vantar f búið. Allir eru í
hátíðaskapi og allt er iðandi
líf og fjör og hávaði.
í fjarska sjáum við sjón-
Foss í Svörtuskógum
Krækuber og Aðalbláber.
Bféma og grænsnetismarkaðurinn
Laugavegi 63 — Sími 16990.
það auðsjáanlega skóladrengir
í fríi. Einn drengjanna er að
spila á munnhörpu ýmis þjóð-
lög og dægurlög og spilar hann
snilldarvel. Þetta eykur enn á'
sunnudagshugblæinn, sem hvíl
ir yfir þessum degi.
Við þjótum framhjá þorpi,
þar sem verið er að halda árs-
markað (Jahrmarkt), en það
eru samkomur, sem haldnar
eru í hverjum smábæ í Þýzka-
landi, á vorin og síðari hluta
sumars.
varpsturn, til vinstri handar
við okkur. Þeir eru til og frá
nm Þýzkaland.
Við sjáum mörg þorp á víð
og dreif og alltaf er faileg
kirkja í hverju þorpi. Sumstað-
ar sjáum við kapellur og kross-
merki á víðavangi, eins og í
Bayern, því að hér eru flestir
kaþólskir, eins og þar.
KAUPAHÉÐNAR.
Koma þangað allir kaupa-1
héðnar og framleiðendur, svo
sem bændur, garSyrkjumenn j
og ýmsir iðnaðarmenn með j
varning sinn, auk alls konar
verzlunarmanna, og setja þar
upp sölutjöld og búðir með allt
milli himins og jarðar. Auk,
þess eru þar auðvitað mörg1
veitingatjöld með allskonar
hressingu á boðstólum og sýn-
ingartjöld með ýmsu og svo
rólur, hringekjur og margt til j
skemmtunar. Hver keppist við
annan að bjóSa vörur sínar og j
skemmtanir og happdrætti og |
hver búð heíur sitt útvarp, með 1
alls konar hljómlist. Er hér
hinn herfilegasti hávaði og
gauragangur, því að á sama
VIÐ UPPTÖK DONAR.
Stundarf jórðung yfir sex
komum við til smábæjarins
Donaveschingen og er hér höfð
stutt viðdvöl. Hér er uppspretta
Dónár. Erum við því tvisvar
búin að mæta þeirri miklu á,
því að við fórum yfir hana við
Dónárwörth í Bayern. En á
hvorugum staðnum er hún eins
mikil og maður hefði haldið,
enda vex hún seinna mjög,
þegar hinar stóru þverár taka
að falla í hana á hinni löngu
leið hennar um ýms lönd og út
í Svartahaf. Eina þverá hennar
— Leck — sáum við í Lands-
berg. Er hún stórfljót, og hlýt-
ur Dóná að muna mikið um
hana.
Þegar klukkan er stundar-
fjórðung yfir sex komum við
til þorpsins St. Georgen. Það
er klukkubær, þ. e. hér em
búnar til og skornar út Svörtu-
skógar-gauksklukkur, sem
frægar eru um allan heim og
fást meira að segja úti á ís-
landi, en þá eru þær nú orðnar
nokkuð hærri í verði en þær
voru hér, fast við uppruna
sinn. Þessi klukkusmíði og út-
skurður hefur í aldaraðir verið
heimjlisiðnaður hér.
Hingað til höfum við fengið
ágætt veður, sól og blíðu, en.
nú skiptir um og fer að rigna
og komum við skömmu síðar
til annars klukkubæjar, Tri-
berg, í dvnjandi ringingu. Rétt
| áður klifrar lestin enn niður
j mörg brött jarðgöng og er hér
| sami hrikaléikinn í náttúrunni
og fyrr um daginn.
I
RÉTTNEFNI.
j Nú skil ég hversvegna þetta
heita Svörtuskógar. Ðimm-
grænn greniskógurinn risahár
þekur þessi háu og snarbröttu
fjöll frá rótum og upp á tinda
og á milli liggja djúpir dalir og
þröngir, langt niðri. Grenitrén
vaxa alls staðar jafnvel út
úr grjóti og klettum, þar sem
enginn jarðvegur virðist vera.
Svo þegar regnið strevmir úr
loftinu, eins og hellt sé úr fötu,
eins og núna, þá verð ég að
viðurkenna, að mér finnst hér
nokkuð dimmt og drungalegt,
eins og niðri í þröngum potti,
— sannnefndir Svörtuskógar.
Járnbrautarstöðin í Triberg
j er í miðri hlíð og förum við
þar úr lestinni og göngum ofan
í bæinn, sem liggur allur fyrir
neðan, niðri í dalbotninum.
Þegar við komum ofan í bæ-
inn minnkar heldur rigningin
og höldum við áfram gegnum
hann, í áttina að fossinum
fræga í Gutach-ánni, sem fyrr
getur. Við mætum mörgu fólki, -
því að Triþerg er mikill ferða-
mannabær og eru þar mörg
hótel. Er það ýmist að koma
frá fossinum eða á leið upp að
honum.
Á leiðinni. sjáum við margar
minjagripaverzlanir við aðal-
götuna og eru þar margskonar
útskornir .munir, auk gauks-
klukknanna, úti í sýningar-
gluggunum. En slík verzlun er
meira að segja opin núna, þótt
sunnudagur sé.
FOSSAR.
Það kemur sér vel núna að
hafa plastregnkápur og regn-
hlífar með í förinni, því að
stöðugt er sama rigningin. Við
öslum gegnum bleytuna og upp
með ánni, eftir góðum göngu-
vegi, eftir að við höfum farið
framhjá bvggðasafni og stóru
hóteli sem stendur skammt fyr
ir neðan fossinn. Loks kom-
umst við að fossinum. Hann
felur í mörgum stöllum og er
talsvert vatnsmikill og hár.
Annars mvndi ég frekar kalla
þetta marga smáfossa.
Ekki get ég sagt að mér finn-
ist hann mikilfenglegur, sam-
anborið við okkar góða gull-
foss eða Dettifoss, en rétt lag-
legur er hann nú samt. En
hvað fossa snertir þarf nú þó
nokkuð til að „imponera11 eða
ofbjóða okkur íslendingum.
Við getum sagt eins og Ame-
ríkumenn: „Ég hefi nú séð
þetta betra!“
Við göngum miðja vega upp
með fossinum og setjumst þar
á bekk. Þar er hljómleikapall-
ur og þar auglýstir hljómleik-
ar kl. 8 um kvöldið, en ég býst
ekki við, að úr því hafi orðið
í þessari rigningu.
Trébrýr liggja yfir fossinn
á nokkrum stöðum og sumar
hátt uppi í hlíðinni og var þar
fólk á ferli, en ekki nenntum
við þangað upp. Er sennilegt,
að þaðan sé þó fossinn tilkomu
meiri að sjá.