Morgunblaðið - 18.02.1976, Síða 2

Morgunblaðið - 18.02.1976, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRUAR 1976 Brunamálastjóri: Ekki næg varúð við framleiðslu úretan 1 LJÖS hefur komið að tvær efna- verksmiðjur hér á landi — Sjöfn á Akurevri og Börkur í Hafnar- firði — framleiða svonefnt úretan-plast til notkunar við bólstrun húsgagna og einangrun húsa en hér er um að ræða efni, GUÐMUNDUR Sigurjónsson tefldi í gærkvöldi við Spán- verjann Munoz á Torremolinos-skákmótinu á Spáni. Lauk skákinni með sigri Guðmundar í 26 leikjum. Hann er nú í 3.—5. sæti í mót- inu með 6'A vinning. Banda- ríkjamennirnir Dvrne og Christiansen eru efstir og jafnir eftir 11 umferðir með 8 vinninga. Guðmundur er tap- laus í mótinu, hefur gert 9 iafntefli en unnið 2 skákir. I gærkvöldi sigraði Christi- Framhald á bls. 16 sem við bruna myndar eiturgas er inniheldur blásýru. Hafa farið fram bréfaskriftir milli Heilhrigðiseftirlitsins og Bruna- málastofnunar ríkisins vegna þessa, og hefur viðkomandi verk- smiðjum og slökkviliðsstjóra á Akureyri verið send viðvörun um þá hættu sem stafar af þessu efni. Blásýra er sterkasta eitur sem til er, og þarf einungis eitt milli- gramm af henni til að bana manni. Að þvi er Bárður Daníels- son, brunamálastjóri ríkisins, Framhald á bls. 16 Verkfall boðað í prentiðnaðinum LAUNÞEGAFÉLÖG prentiðnað- arins boðuðu í gær til verkfalls, sem koma skal til framkvæmda frá og með 25. febrúar næstkom- andi, hafi samningar ekki tekizt fyrir þann tíma. Er þarna um að ræða Hið íslenzka prentarafélag, Bókbindarafélag íslands og Graf- íska sveinafélagið. Dagblöðin munu þannig stöðvast 25. febrúar vegna verkfalls HIP og GSF, hafi samningar ekki tekizt þá. Bretarnir farnir af friðaða svæðinu SAMKVÆMT upplýsingum Land- helgisgæzlunnar voru í gær alls 34 brezkir togarar að veiðum við Island. Voru þeir allir mjög djúpt úti af Vopnafjarðargrunni, en fyrir sunnan og utan friðuðu svæðin á þessum slóðum. Fjórar freigátur gættu togaranna, og hafði þeim því fjölgað um eina frá því sem var. I gær mátti heita fyrsti dagurinn frá því fyrir helgi, sem togararnir hafa eitthvað getað verið við veiðar, en í óveðrinu siðustu daga hafa togar- Missir Reykja- vík stjórn Elliðaánna? Eigandi bæjarins Vatnsenda við Elliðavatn hefur skrifað landbúnaðarráðunevtinu og óskað eftir þvf að fá að inn- levsa veiðiréttindin í Elliðaán- um, sem eru í höndum Revkja- víkurborgar. Hefur Veiði- og fiskiræktar- ráð borgarinnar gert álvtkun um þetta, þar sem það mælir mjög gegn erindinu og telur, að ef að þessu vrði gengið, þá mundi borgin missa þau tök sem hún hefur á stjórnun veiðimála í Elliðaánum. Stað- festi borgarráð í gær þessa samþykkt veiði- og fiskimála- ráðs. arnir hrakizt undan veðrinu fram og aftur á þessum slóðum. Allt var með friði og spekt á miðunum í gær, að sögn Gunnars Ólafssonar hjá stjórnstöð Landhelgisgæzl- unnar. Fyrirlestur um tannskekkju o.fl. ÞÖRÐUR Eydal Magnússon prófessor flytur fyrirlestur á vegum Islenzka mannfræðifélags- ins, og nefnir það „Tannskekkja og komutími fullorðinstannanna meðal Islendinga og annarra þjóða“. Verður fyrirlesturinn fluttur í 3. kennslustofu í aðal- byggingu Háskóla tslands fimmtudaginn 19. febrúar kl. 20. febrúar kl. 20.15. öllum er heimill aðgangur. Þórður Evdal Magnússon Eyfellingar halda Haraldi Pálssyni afmælissamsæti í dag Borgareyrum, Eyjafjöllum — SJÖTUGUR er f dag Haraldur Pálsson, trésmíðameistari, Hrúta- felli i A-Eyjafjallasveit. Haraldur fæddist 18. febrúar 1906 í Bolungarvík og ólst þar upp. Hann vann þar algeng störf til lands og sjávar. Haraldur fór til Reykjavikur 1928 og hóf þar nám í húsasmíði, tók þar próf í iðn sinni 1932 og hlaut hæstu. einkunn sem þá hafði verið gefin. Næstu 6 árin var hann við húsa- smíðar í Reykjavík en fluttist undir Eyjafjöll árið 1938, og hefur unnið á flesturn býlum í sveitinni meira og minna. Haraldur hefur reist fjölda húsa, bæði ibúðarhús og hey- hlöður. Hann hefur verið sæmdur hinni íslenzku fálkaorðu fyrir störf sin í byggingariðnaði. Sveit- unar hans i V-Eyjafjallahreppi halda honum samsæti í dag, mið- vikudag, að Heimalandi sem þakklætisvott fyrir mikil og góð störf í þeirra þágu. Eyfellingar árna honum allra heilla. Samningar um landaskipti: UPPDRATTURINN sýnir það landsvæði, sem Seltjarnarneskaupstaður fær á Eiðinu, milli Nesvegar og Eiðsgranda. Svarta strikið afmarkar landið, sem Reykjavfk á, og fær Seltjarnarnes landið að brotalfn- unni. Seltjarnarnes fær land á Eiði Rvft: Viðey, Engey og Akurey REYKJAVlKURBORG og Seltjarnar- neskaupstaður eru um þessar mundir að ganga frá samningum um landaskipti, þannig að Seltjarnarnes fær 40 þús. ferm. á svokölluðu Eiðsgrandasvæði, en á móti fær Reykjavfkurborg iögsögu yfir eyjunum Viðey, Engey og Akurey. Annars vegar afsalar Reykja- víkurborg til Seltjarnarness um 40 þús. ferm. af landi, sem er á svokölluðu Eiðsgrandasvæði, þ.e. við vesturmörk borgarinnar. Þetta svæði er að hluta fyrir vest- an tengibrautina, sem er á milli Eiðsgranda og Nesvegar og að hluta austan við þau mörk. A þessu svæði standa nokkur hús, svo sem Eiði, Vindás, Baldurs- heimur o.fl., sem Seltjarnarnes- kaupstaður þarf að leysa til sín, ef þau þurfa að vfkja af skipulags- ástæðum. Hins vegar fær Reykjavíkur- borg lögsögu yfir eyjunum Viðey, Engey og Akurey. Engey er í eigu ríkissjóðs, Akurey í eigu borgar- sjóðs og Viðey að hluta f eigu Reykjavíkur, hluta i eigu ríkisins og hluta í einkaeign. Minna má á, Liggja fyrir samningsdrög milli aðila, sem báðir hafa lýst sig samþykka. Stað- festi borgarráð Reykjavfkur það í gær á fundi og borgarstjórn væntanlega á morgun. t höfuðatriðum felur þetta f sér: að fyrir 1958 voru uppi áform f Reykjavík um gerð hafnar með garði út i Engey og um Akurey, sem þá var fallið frá, en gæti komið upp síðar. Samningsumræður um þetta hafa staðið yfir i nærri 5 ár, með hléum að vísu. En báðum aðilum liggur á að leiða málið til lykta, til að geta lokið skipulagsaðgerðum á mörkunum. Breytingar á lög- sögumörkum milli kaupstaða þurfa lagasetningu frá Alþingi. I samningnum er ákvæði um að vinna að þvi að fá það í gegn. Má reikna með að ekki verði fyrir- staða með það, en það tekur nokkurn tfma. „Enn til heiðarlegt fólk hér á íslandi” MAÐURINN, sem sagt var frá f blaðinu f gær að tapað hefði umslagi með 100 þúsund krónum f, hringdi til okkar f dag f sjöunda himni. „Eg ætlaði bara að segja ykkur frá þvf, að það hringdi til mfn kona f dag, sem hafði fundið umslagið með öllum peningunum f, svo að það er ennþá til heiðarlegt fólk á Islandi," sagði hann. Kyrrt á jarðskjálftasvæðinu í Öxarfirði: Enn skjálfa þó stofublóm Karólínu íÆrlœkjarseli Skinnastað, Öxarfirði — 17. febrúar Hér f jarðskjálfta- sveitunum hefurmjög mikið dregið úr hrær- ingum sl. hálfan mánuð. Sfðasta meiri- háttar hrinan skall yfir dagana 1.—2. febrúar, eins og áður hefur komið fram f fréttum, og átti að öllum Ifkindum upp- tök úti f friðinum skammt norður af Sandinum. Eftir þá hrinu kyrrðist jarð- skjálftabeltið mjög allt suður á Lcirhnúks svæðið, og hafa fáir umtalsverðir kippir komið hér sfðan. Þó finnast oft vægir kippir, einn eða fleiri á sólarhring, einkum á bæjum f Sandinum f Öxarfirði, en f fyrri- nótt einnig f uppsveit Kelduhverfis. Ennþá skjálfa þó stofublóm hjá Karólfnu í Ær- lækjarseli, þótt sjálf verði hún ekki vör við nema einstaka smá- kippi, og svo mun vera hjá fleiri konum hér f sveit. A mælitækjum sjást Ifka allt að 3—400 smáskjálftar á sólarhring hverjum, og einstaka kippur sem getur verið allt upp f 3 stig á Richter- kvarða. Annars er þetta allt annað lff hjá fólki hér nú heldur en meðan ósköpin gengu á f fyrra mánuði, og um hátfðarnar. Allmargar konur hafa brugðið sér burtu til hvíldar og hressingar, eftir margar þreytandi vikur. Bráðabirgðaskýrsl- um hefur verið safnað um skemmdir á mann- virkjum f héraðinu, og hafa a.m.k. 80—100 hús orðið fyrir ein- hverjum skaða, senni- lega mun meira alls. Allgott eftirlit er haft með vegum í Keldu- hverfi og Sandi, enda ekki vanþörf. I hlákunum undanfarið hafa sigdældirnar og gjárnar komið betur í ljós og eru margar ljótar útlits. Er hætt við að ofaníburðurinn hvlli sumsstaðar á stokkfreðnum klaka- spildum, sem halda honum uppi I bili. Dag einn í sl. viku voru vegagerðarmenn að lagfæra veginn hjá Lyngási í Kelduhverfi með því að sprengja upp varasöm stykki. Ennþá er mikill vatnsgangur I Skóga- kíl og hækkar vatns- borð mikið, ef brim eða norðan hvassviðri stfflar útfallið til sjávar, en það getur gerzt á nokkrum klukkustundum. Segja bændur hér f sveitinni að þeir eigi í sffelldu „vatnsstríði" með Skógabændum við að hjálpa þeim að opna útfallið með upp- moksturstækjum. Uppbygging er í fullum gangi á Kópa- skeri, fólkið flest komið heim og tekið til við fyrri störf sín, óttalaust að mestu, en landið f kring og raunar Núpasveit öll er þakin Ijótum sárum eftir ógnarkraftana, sem léku þar lausum halda, sér í lagi þriðju- daginn 13. janúar sl. — sr. Sigurvin.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.