Morgunblaðið - 18.02.1976, Síða 5

Morgunblaðið - 18.02.1976, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRUAR 1976 5 Sinfóníuhljómsyeitin leikur á Akranesi Akranesi, 17. febrúar. Fimmtudaginn 19. febrúar kl. 8.30 leikur Sinfóníuhljómsveit Is- lands f hinu nýja íþróttahúsi á Akranesi. Þetta er f fvrsta sinn sem tónleikar eru haldnir í fþróttahúsinu. sem er hid glæsi- legasta f alla staði. Ahorfenda- pallarnir rúma 12—1500 manns. Efnisskrá tónleikanna er mjög fjölbrevtt — í fvrsta lagi forleik- ur eftir Berlioz, einnig Capriceio Italien eftir Tschaikovskv og konsert f B-dúr fvrir celló og hljómsveit eftir Boccerene og loks svrpa úr West Side Storv eftir Bernstein. Páll P. Pálsson er stjórnanfi en einleikari á celló er Deborah Da- vis, sem er vandarískur ríkisborg- ari og hefur numið tónlist frá unga aldri hjá þekktum kennur- um. Hefur hún leikið með Sinfón- íuhljómsveitinni hér sl. tvö ár og jafnframt verið kennari við Tón- listarskólann í Reykjavík. Akranesbær og tónlistarfélagið standa að þessum tónleikum. — Júlfus Iþróttahallarkabarett í Eyjuni ÝMSIR aðilar og félög i Vest- mannaeyjum hafa að undan- förnu efnt til eins og annars í Eyjum til þess að styrkja bygg- ingu íþrótta- og sundhallar sem þar er að rísa og verður tilbúin á þessu ári. Næstkomandi sunnudag verður fluttur kabarett i Sam- komuhúsi Vestmannaeyja til þess að afla fjár til íþrótta- hailarinnar og að þeirri skemmtun standa Leikfélag Vestmannaeyja, Samkór Vest- mannaeyja, Lúðrasveitin, Dixielandband Eyjaskeggja, söngkvartett og einnig munu nemendur í Dansskóla Heiðars Ástvaldssonar i Vestmannaeyj- um sína nýjustu dansana, en dagskráin er miðuð við að eitt- hvað verði fyrir alla i fjölskyld- unni hvort sem þeir eru á fyrstu árum eða efri æviskeiði. Þannig var umhorfs við húsið. Grindavík: Þak tók af í heilu lagi Grindavík 16. feb. I GRINDAVlK bar það til tíð- inda aðfararnótt sunnudagsins s.l. um klukkan 2 eftir miðnætti að þak fauk í heilu lagi af íbúðarhúsi í Hrauni í Grinda- vík. Þar býr Sigurður Gíslason með fjölskyldusinni. Þakið eyðilagðist alveg, hluti af því lenti á þaki nýlegrar Bronco- bifreiðar sem skemmdist tals- vert. I húsinu er steypt loft- plata yfir efri hæð hússins. Urðu því ekki skemmdir á innbúi. Þegar þetta gerðist var suð- Ljðsm. Guðfinnur. vestan ofsaveður og miklar eld- ingar svo að bjart var eins og um hádag. Hús Sigurðar er byggt 1955—6 við gamla húsið að Hrauni, en það stóð af sér þetta fárviðri. Björgunarsveitin Þorbjörn veitti aðstoð við að fergja járnplötur og aðstoðaði Sigurð á annan hátt en hann er starfandi félagi f sveitinni og skotmaður hennar um árabil. — Guðfinnur. Iðnaðarvörur fluttar út Myndin sýnir þrjá af leikurum LeikfélagsVestmannaevja I sfð- astaverkefni félagsins, Hart 1 bak, nú um áramótin, en leikararnir eru frá vinstri: Marta Hallgrímsdóttir, Astþór Jóhannsson og Elva Elfasdóttir. Ljósmynd Mbl. Sigurgeir 1 Eyjum. fyrir 8,5 milljarða í fyrra HEILDARUTFLUTNINGUR iðn- aðarvara árið 1975 nam 8.521,3 millj. kr. Er aukningin 21,3% frá árinu 1974, en þá nam iðnaðar- vöruútfiutningurinn 7.024,3 millj. kr. Stærstu flokkar útfluttra iðnað- arvara árið 1975 eru: Á1 og álmelmi 5.047,1 millj. Ullárvörur 1.406,6 millj. Loðsútið skinn og vörur úr þeim 665,2 millj. Kísilgúr 571,8 millj. Niðursoðnar/niður- lagðar sjávarafurðir 463,4 millj. Hvolfbyggingar Buckminster Eins og Mbl. hefur sagt frá, kom til landsins 1 vetur Banda- ríkjamaðurinn Buckminster Fuller og kvnnti kúlubvggingar sínar. Þessar kúlubvggingar hafa vakið mikla athvgli víða um heim. Sigurður Karlsson sem verið hefur erlendis og kvnnt sér bvggingar Huckminster Fullers hefur nú fengið umboð fvrir þær og hvggst flvtja þær inn. Slíkar kúlubyggingar hafa marga kosti. Má nefna að fá hús hafa staðizt jarðskjálfta og óveður betur. Kemur það til af lögun hússins, en það ber s.ig að mestu leyti uppi sjálft og lögun þess veldur því einnig að það tekur lítið á sig veður. Þakið er við- haldsfritt og er húsið líklega miklu ódýrara en sambærileg hús af viðlíka stærð. Einnig má nefna að þakið er mjög létt og gefur því kost á ódýrari undirstöðum. Fljót- legt er að setja húsin upp. Er nefnt sem dæmi að sex menn geta lokið byggingu sem er 50 metrar í þvermál á fjórum vikum. Kostnaðaráætlun hefur verið gerð fyrir byggingu húss á Islandi sem er 62 m 1 þvermál. Sam- kvæmt henni kostar húsið upp- komið á Akureyri um 115 millj. kr. með tollum og söluskatti. Er þá ekki gert ráð fyrir undir- stöðum, gólfi, klæðningu veggja eða einangrun þaks. Auk þess eru innréttingar og það, sem arki- tektum hússins finnst til þurfa, ekki í áætluninni. Hvolfþökin má fá af mismun- andi stærðum og gerðum. Þau eru öll samsett úr álgrind með formuðum álplötum á milli, eða þá gegnsæjúm plötum. Af öðrum vöruflokkum má nefna að málning og lökk voru flutt út fyrir 167,4 millj., fiskilín- ur.kaðlar og netfyrir 68 millj. og pappaöskjur fyrir 55,5 millj. Iðnaðarvöruútflutningurinn nam nú 18,8% af heildarútflutn- ingi landsmanna, en var 21% árið 1974. Þessi samdráttur er nær eingöngu vegna minnkandi út- flutnings og lágs verðs á áli. Hlutur annarra iðnvara i heild- arútflutningnum jókst nokkuð eða úr 6,8% af heildarútflutn- ingnum í 7,3%. Athyglisverð er aukning í út- flutningi ullarvara, þar er verð- mætisaukningin 82,8% í ísl. kr., en 19,7% sé reiknað I dollurum á meðalgengi hvors árs. Aukning- in er mest f fullunninni vöru. Töluverð aukning varð einnig i útflutningi véla og tækja. Ut- flutningur þeirra varð 21,5 millj., Framhald á bls. 16 ^JJL, vVr Hvolfbygging reist á suðurskautinu. Hvatarfundur um stjórnarskrána I kvöld, miðvikudagskvöld. heldur sjálfstæðiskvennafélagið Hvöt fund i Atthagasal Sögu, og hefst hann kl. 20.30. Þar mun dr. Gunnar Schram tala um stjórnarskrá Islands. Er allt sjálfstæðisfólk hvatt til að sækja fundinn. Gunnar Ölafsson Ráðinn aðstoðar- forstjóri hjá Rannsóknastofnun landbúnaðarins GUNNAR Ólafsson, lic. agr.. hefur verið ráðinn aðstoðarfor- stjóri við Rannsóknastofnun land- búnaðarins og tók hann við því starfi um síðustu áramót. Gunnar varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavik 1954 og lauk búfræði- kandidatsprófi frá Ási í Noregi 1960. Framhaldsnám stundaði hann við sama skóla og einnig í Bretlandi á árunum 1963—64. Licentiatprófi lauk hann frá Ási árið 1972 í næringarlifeðlisfræði og fóðurfræði. Frá árinu 1963 hefur hann starfað sem sér- fræðingur í fóðurfræði hjá Rann- sóknastofnun landbúnaðarins. Gunnar er kvæntur Unni Mariu Figved. Leiðrétting I frétt blaðsins á sunnudaginn um nauðumgaruppboð á frysti- húsinu i Höfnum slæddist sú villa, að Hafblik hf„ sem rekið hefur hisið, væri gjaldþrota. Þetta er ekki rétt og engin gjald- þrotabeiðni hefur borozt sýslu- mannsembættinu. Eru hlutaðeig- endur beðnir velvirðingar á þessu ranghermi. PMRV SKÉI AUGLÝSINGASÍMINN ER: 22480 jtotjwiMrtit

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.