Morgunblaðið - 18.02.1976, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRUAR 1976
11
Sinfóníutónleikar
Háskólabíó 12. febr. 1976.
Stjórnandi: Karsten Ander-
sen.
Einleikari: John McCaw.
Efnisskrá: J.S. Bach —
Brandenborgarkonsert nr. 3 í
G-dúr C. M. Weber —
Concertino í Es-dúr op. 26.
M. Seiber — Concertino.
A. Dvorak — Sinfónfa nr. 7 i
d-moll op. 70.
Brandenborgarkonsertar J.S.
Bachs eru hreinasta náma fyrir
þá, sem unna hinum pólí-
fóniska stíl. Þriðji konsertinn
er fágætlega vel gerð og
skemmtileg tónsmíð, þar sem
rökrétt þróun kontrapunktsins
situr í fyrirrúmi. Svo virðist
sem tónlist Bachs láti Andersen
ágætlega. Strengjasveitin var
venju fremur samtaka og lék af
ákveðni, þar sem allar aðallínur
verksins voru skýrt dregnar.
Að vísu var tónninn óþarflega
harður, en allegro-kaflinn var
leikinn af miklum þrótti.
Klarinettleikarinn John
McCaw er óvéfengjanlega snill-
ingur á hljóðfæri sitt. Hann er
einn þeirra listamanna, sem
neglir áheyrendur niður við
fyrsta tón og heldur athygli
þeirra til hins síðasta. Leikur
Tðnllst
eftir EGIL
FRIÐLEIFSSON
hans ber öll einkenni afburða-
mannsins, óbrigðúlt öryggi,
tæknileg fullkomnun, þroskað
næmi fyrir mótun hendinga og
styrkleikabreytingum, léttleiki
og skýrleiki, en auk þess felst
eitthvað í leik hans sem ekki er
hægt að koma orðum að, heldur
aðeins njóta. Konsert Webers
ristir e.t.v. ekki djúpt, en í
höndum McCaws hljómaði
hann sem sjaldgæft eyrna-
gaman. Mun áhugaverðari tón-
smíð er konsert ungverjans M.
Seibers, sem gerir óvægnar
kröfur til einleikarans, en með
sigurbros á Vör og að því er
virtist algerlega áreynslulaust
lék McCaw sér að hinum
erfiðustu þrautum og skundaði
í mark við dynjandi lófaklapp
hrifinna áheyrenda. Áreiðan-
lega verður John McCaw
minnisstæður öllum þeim, er til
hans heyróu í Háskólabíói á
John McCaw
fimmtudagskvöldið. Ekki
verður annað sagt en hlutur
hljómsveitarinnar hafi verið
góður og samvinna við ein-
leikarann með ágætum. Tón-
leikunum lauk svo með 7.
sinfóníu Dvoraks, þeirri I d-
moll op. 70. Þetta er stórt verk i
allri byggingu, litríkt og fagurt
og flutningur tókst vel i þetta
sinn, einkum var lokaþátturinn
áhrifarikur. Mikil stemmning
var rikjandi á þessum tón-
Ieikum, og þökkuðu áheyr-
endur fyrir sig með innilegu
lófaklappi.
85 ára í dag:
Gunnar Olafsson
lœknabílstjóri
Gunnar Ölafsson, bifreiðastjóri
Frakkastíg 6a hér í bæ, er 85 ára í
dag. Ber hann aldurinn betur en
flestir menn, svo sem gert hefur
frændgarður hans lengi. Hálfnf-
ræður lætur hann engan bilbug á
sér finna, enda kominn af kjarn-
miklu og langlifu Suðurnesjafólki
stórra sæva f báðar ættir. Glað-
lyndur og hressilegur rennir
hann gljáfægðri bifreið sinni fim-
lega gegnum ólgusjó umferðar-
innar, og hefur hvorki valdið né
lent i óhappi í sextiu ár, en ein-
lægt mættur á mfnútunni — og
geri aðrir betur.
Gunnar fæddist hinn 18. febrú-
ar 1891 suður í Njarðvík, sonur
sæmdarhjónanna Ölafs kaup-
manns Ásbjarnarsonar frá Innri-
Njarðvík, sem verslaði í Keflavík
og síðar I Reykjavik, og konu hans
Vigdísar Ketilsdóttur, sem látin
er fyrir fáum árum, hátt á tíræðis-
aldri. Faðir Ölafs var Ásbjörn
Ölafsson, bóndi í Innri-Njarðvik,
Ásbjarnarsonar, merkisbónda og
vel látinn. Kona hans var Ingveld-
ur Jafetsdóttir gullsmiðs i
Reykjavík Einarssonar. Vigdís
móðir afmælisbarnsins var dóttir
Ketils hreppstjóra og Danne-
brogsmanns Ketilssonar í Kotvogi
og konu hans Vilborgar Eiriks-
dóttur, Olafssonar frá Litla-
Landi. Var Ketill talinn mestur
stórbóndi um Rosmhvalanes um
sína daga og hafði á sér höfðingja-
háttu. Enn skarta á Reykjanesi
myndarleg handaverk þessara
skörunga, því að afar Gunnars
reistu sína kirkjuna hvor, Guði til
dýrðar og i þakkarskyni fyrir góð
og gjöful ár til sjós og lands, Ólaf-
ur Njarðvíkurkirkju og Ketill
Hvalsnesskirkju.
Gunnar ólst ’upp í stórum syst-
kinahópi og við gott atlæti for-
eldra sinna. A sumrum dvaldi
hann til skiptis f Njarðvík og á
Kotvogi, sem kúarektor og létta-
drengur hinna hugumstóru afa
sinna. Sérstöku ástfóstri tók hann
við hestana og hafði jafnan gam-
an af þeim síðan, hafði lengi gæð-
inga á eldi úti i bílskúr hjá sér, f
félagi við Óla M. Isaksson, mág
sinn. Og þótt hugurinn beindist
ekki að sveitabúskap, kunna
áhrifin frá útvegsbændunum á
Suðurnesjum að hafa skilað sér
hjá Gunnari í þeirri staðreynd, að
eftir að hann hætti með hestana í
bílskúrnum á fimmta áratugnum,
sneri hann sér að hænsnarækt f
sömu húsakynnum.
Þegar Ólafur og Vigdis fluttu
til Reykjavikur, settust þau að á
Grettisgötu 26, þar sem að höfuð-
stöðvar fjölskyldunnar hafa stað-
ið síðan. Þar býr nú systir Gunn-
ars, Halldóra, höfðingi I sjón og
raun, mikil drengskaparkona, og
óbrigðul hjálparhella fjölda fólks
fyrr og sfðar, en hin systkinin eru
Ingveldur, listræn og ákaflega
flink hannyrða- og matgerðar-
kona, Unnur, stórbrotin lista-
kona, eins og mikilúðlegir höklar
hennar, altarisklæði og félagsfán-
ar bera vott, Ásbjörn, gjafmildur
viðskiptajöfur, og Vilborg, list-
feng og vel að sér un kvenlega
mennt, allra kvenna léttust á fæti.
Ungur lærði Gunnar húsgagna-
smiði hjá Jóni Halldórssyni og Co.
á Skólavörðustíg 6, og lauk prófi í
þeirri grein 1913. En samhliða
vann hann við húsasmíðar, meðal
annars kirkjubyggingu á stóra-
gnúpi 1911 og barnaskólabygging-
una á Akranesi 1912. Þótt þessi
verkefni hefðu að sjálfsögðu í för
með sér kynni af mörgum góðum
drengjum hefur Gunnar sagt svo
frá sfðar, að hann hafi í rauninni
verið dauðleiður á snikkeríinu og
að þar hafi meðfædd lofthræðsla
hans mestu valdið. Hvað sem þvf
líður, voru það hin fjórhjóluðu
farartæki hins nýja tíma, sem
fljótlega tóku hug hans allan, þótt
mörgum áratugum siðar ætti
Gunnar eftir að snúa sér aftur að
mublusmíðinni af endurnýjuðum
krafti.
Gunnar var kúskur í konungs-
komunni 1907, þegar hans hátign
Friðrik 8., af Guðs náð konungur
Islands og Danmerkur, vinda og
gauta, hertogi í Slésvik, Holtsseta-
landi, Stórmæri, Þjéttmerski,
Lainborg og Aldenborg heimsótti
þennan part ríkis sins hér vestur í
hafinu. Það voru 32 röskir svein-
ar, sem óku konungi og föruneyti
hans austur yfir fjall. I þá daga
tíðkuðust Iystikerrur, sem lend-
prúðum hesti var beitt fyrir.
Tveir tignarmenn sátu í hverri
kerru, og kúskurinn þar fyrir
framan. Þá var Gunnar á sautj-
ánda árinu.
Hvort þessi eftirminnilegi at-
burður hefur orðið kveikjan á
ökuferli Gunnars eða ekki, þá er
hitt jafnvíst, að hinn 23. nóvem-
ber settist hann fyrst undir stýri
bifreiðar, eftir að hafa lært listina
af Jensen skólastjóra Vélskólans.
Framhald á bls. 18
28flfl0
Til sölu
Asparfell
2ja herb. 60 fm ibúð á 1. hæð.
Verð 4.5 millj. Útb. 3.5 millj.
Arahólar
2ja herb. 60 fm ibúðir sameign
frágengin verð 5 millj. Útb 3.5
millj.
Miðvangur
2ja herb. 60 fm íbúð i blokk i
Norðurbæ Hafnarfirði. Útb. 3.8
millj.
Kópavogsbraut
2ja herb. 70 fm kjallaraibúð.
Dúfnahólar
3ja herb. 90 fm ibúð á 2. hæð
ásamt bilskúr. Verð 6.5 millj.
Útb. samkomulag.
Lindargata
3ja herb. 70 fm ibúð innarlega
við Lindargötu
Njálsgata
3ja herb. 80 fm ibúð á 3. hæð i
steinhúsi. Verð 6 millj. Útb. 4
millj.
Fífusel
4ra herb. fokheld endaibúð á 3.
hæð. Afhendist ásamt hita og
einangrun.
Birkigrund
200 fm fokhelt raðhús
Álfhólsvegur
Litið snoturt 50 fm einbýlishús á
byggingarlóð innarlega við Álf-
hólsveg.
Kársnesbraut
4ra herb. risibúð.
Víðimelur
3ja herb. ibúð á hæð og 2ja
herb. íbúð í kjallara.
Opið laugardag 2—6.
Fasteignasalan
Bankastræti 6
Hús og eignir
Simi28440.
kvöld- og helgarslmi 72525
S—85009
Til sölu
Við
Leirubakka
Glæsileg 3ja herb. íbúð á 3ju
hæð, enda. Herb. í kj. útsýni.
Vönduð sameign. Verð
6.7—6.9 millj.
Við Hraunbæ
115 fm. íbúð á 3ju hæð (efstu).
Góð íbúð, ný teppi og nýjar
hurðir. Gott skápapláss. Útsýni.
Verð 8.5 millj. Útb. 6.3 millj.
í Hveragerði
Parhús í smíðum við Heiðar-
brún. Stærð um 1 10 fm. Fokhelt
í vor. Verð 3.1 millj.
Vantar
nýlega 4ra herb. ibúð (100 fm)
nálægt miðbænum í Hafnarfirði,
góð útborgun og 3ja—4ra herb.
íbúð í Breiðholti. helst með bil-
skúr.
Upplýsingar og teikn-
ingar hjá Sigurði S.
Wiium, Ármúla 21, R.
(hús Vatnsvirkjans)
S. 85009.
26600
ÓÐINSGATA
3ja herb. kjallaraibúð i steinhúsi.
Laus strax. Verð: 4.2 millj. Útb.
2.6 millj.
VESTURBERG
4ra herb. 106 fm. ibúð á 4. hæð
i blokk. Verð: 7.5 millj. Útb.:
5.0 millj.
VÍÐIHVAMMUR
3ja herb. íbúðarhæð í þríbýlis-
húsi. Bílskúrsréttur. Verð: 6.5
— 6.7 millj.
ÆSUFELL
4ra herb. íbúð á 4. hæð í blokk.
Mjög snyrtileg ibúð. Fullgerð
sameign. Mikið útsýni. Verð:
7.8 millj.
Fffsteignaþjónustan
Austurstræti 17 (Silli&Zaldi)
simi 26600
l s
FLÓKAGÖTU 1
SÍMI24647
Við Hraunbæ
4ra herb. íbúð á 3. hæð 3
svefnherb. Suður svalir. Laus
strax.
Við Njálsgötu
3ja herb. ibúð á 3. hæð i stein-
húsi.
í Breiðholti
3ja herb. nýlegar og vandaðar
íbúðir.
í Norðurmýri
2ja herb. kjallaraibúð. Sérinn-
gangur. Útb. 2.2 millj.
Helgi Ólafsson
löggiltur fasteignasali
kvöldsimi 21155.
Til sölu
Hafnarfjörður
Falleg 2jaherb.
ibúð i fjölbýlishúsi við Slétta-
hraun. (búðin er velútlitandi.
Með góðum innréttingum.
3ja herb.
íbúð i fjölbýlishúsi við Móabarð.
Bilskúr fylgir. Fallegt útsýni.
3ja herb.
íbúð í tvíbýlishúsi nálægt
miðbænum. Nýstandsett vel út-
litandi.
Verzlunar og
skrifstofuhúsnæði
eða fyrir léttan iðnað við Reykja-
vikurveg. Húsnæðið selst fokhelt
með tvöföldu gleri. Teikningar
liggja frammi á skrifstofunni.
Garðabær 6 herb.
endaraðhús á Flötunum.
Vandaðar innréttingar. Stór
ræktuð lóð
Hvolsvöllur grunnur
fyrir einbýlishús, ásamt steyptri
plötu járn timbur og glugga-
karmar fylgja. Tilboð óskast.
Skipti á góðum bil koma til
greina.
Árni Gretar
Finnsson hrl.,
Strandgötu 25,
Hafnarfirði,
Simi 51500.
Fasteignir til sölu:
3ja herb. jarðhæð við Skólagerði í Kópavogi.
4ra herb. sérhæð í Vesturbæ Kópavogs.
Sigurður Helgason hrl,
Þinghólsbraut 53,
sími 42390.
E i n bý I i s h ú s
Óska eftir einbýlishúsi til kaups á Stór-
Reykjavíkursvæðinu. Húsið þarf að vera nýlegt
og vandað, æskileg stærð um 320 fm. Hugsan-
leg skipti á nýlegu fullfrágengnu, vönduðu
einbýlishúsi sem er um 1 50 fm. auk tvöfalds
bílskúrs. Tilboð með nánari upplýsingum legg-
ist inn á afgreiðslu Mbl. fyrir 24. febr. n.k.,
merkt Einbýlishús — 3940.
Fasteignir til sölu
KÓPAVOGI
Fallegt 120 fm einbýlishús í Vesturbæ,
Kópavogs, ásamt 40 fm. bílgeymslu. Lóð
frágengin.
■fr 3ja herb. falleg íbúð við Ásbraut.
+ 2ja herb. jarðhæð við Vallartröð.
★ Raðhús við Vallartröð, ásamt stórri bíl-
geymslu um 1 40 fm.
REYKJAVÍK
Glæsileg 3ja herb. íbúð ca. 90 fm við
Engjasel. Fallegt útsýni. Góð bílgeymsla
fylgir.
SIGURÐUR HELGASON LÖGFRÆÐINGUR,
Þinghólsbraut 53, sími 42390.