Morgunblaðið - 18.02.1976, Page 16

Morgunblaðið - 18.02.1976, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRUAR 1976 ASÍ 02 MFSA gefa út fréttablað í verkfallinu NÝR þáttur hefst i dag í útgáfu Vinnunnar — málgagns Alþýðu- sambandsins og Menningar- og fræðslusambands alþýðu. Vinnan hefur tii þessa verið tímarit og komið út fjórum sinnum á ári en í dag kemur út sérstakt fréttablað með þessu heiti. Að því er Baldur Óskarsson hjá M.F.S.A. tjáði Morgunblaðinu í gær er ástæðan fyrir útgáfu þessa fréttablaðs hið nýhafna alls- herjarverkfall, þar sem alþýðu- samtökin hafi verið knúin til verkfallsaðgerða vegna afstöðu atvinnurekenda og aðgerðarleysis ríkisstjórnarinnar í vinnudeil- unni. Sagði Baldur að þessu blaði væri ætlað að stuðla að samstöðu og samvitund þess fólks sem nú stæði í verkfallsbaráttu og myndi það flytja fréttir frá einum verk- fallshópi til annars. I blaðinu yrðu einnig skýrð rök verkalýðs- hreyfingarinnar fyrir verkfallsað- gerðunum og sagt frá gangi samn- ingamála. — Frakkar Framhald af bls. 1 væri leitað, en slikur stuðningur hefði þá jafnan verið háður því, að sú ríkisstjórn, sem um aðildina sækti, hefði óumdeilanleg yfirráð í viðkomandi landi. Stjórnin í París hefur sætt gagnrýni annarra ríkja Efnahags- bandaiagsins vegna þeirrar ákvörðunar að viðurkenna stjórn MPLA að svo komnu máli, og víkja þannig frá stefnu aðildar- ríkjanna. Þessi gagnrýni kom m.a. fram á fundi leiðtoga Efna- hagsbandalagsríkjanna í síðustu viku, er málið var reifað. Giscard d’Estaing, forseti Frakklands, lét þá m.a. svo um mælt, að Evrópu- löndin tækju engan þátt í gangi heimsmálanna, og það, sem meira væri, enginn hefði þá trú, að Evrópa gæti haft þar hlutverki að gegna. Umræður fulltrúa Efnahags- bandalagsins um Angóla-málið héldu áfram í Luxembourg i gær og í dag. Að fundinum loknum kom fram, að Frakkar höfðu leit- að eftir samstöðu um málið, en þegar hún náðist ekki, lýstu þeir því yfir að þeir viðurkenndu Angólu. — Sjómanna- deila nefnd lagði fram í fvrrakvöld. Var þar sem kunnugt er fjallað um hækkað fiskverð og brevttar hlutaskiptareglur samfara brevt- ingum ásjóðakerfi. „Samninganefndirnar höfðu áður lagt fram tilboð en hugmynd okkar kemur inn á milli þeirra og fékkst þannig ný lína, sem nú er unnið eftir,“ sagði Geir Gunnars- son. Hann vildi að öðru leyti ekkert tjá sig um gang mála. „Við erum nú að ræða um breytingu á hlutaskiptareglunum. Um önnur atriði kjaradeilunnar er ekki fjallað að sinni,“sagði Jón Sigurðsson formaður Sjómanna- sambands Islands við Morgun- blaðið í gærkvöldi. „Við erum að vinna i þessu og um það er ekkert frekar að segja,“ sagði Jón um leið og hann bætti þvi við, að Iíklega myndi fundurinn standa til morguns. — Vestmanna- eyjar Framhald af bls. 28 var ákveðið að frestunin næði til allrar vinnu. Verkakvenna- félagið Snót i Vestmanna- eyjum frestaði hins vegar ekki verkfalli sínu. Eins og fram hefur komið í fréttum höfðu nokkur verka- lýðsfélög á Austfjörðum frest- að verkföllum sinum — flest iil nk. sunnudagskvölds. Þá mun hafa verið heimilað á ver- sföðvum á Suðurnesjum að afli væri unninn úr bátunum, sem áftu net sín í sjó þegar verk- fallið skali á, og höfðu ekki Kctað vitjað þeirra vegna > -ðurs. Samninga- viðræður Framhald af bls. 28 s i a, því að fyrirkomulag þarf að ræðast enn frekar. Þess vegna er : >ndi að reynt verði að finna bráðabirgðaúrlausn meðan fyrr- greind umræða fer fram um enn haldbetri og öruggari leiðir fyrir fólkið." 9 Guðmundur sagði að undan- farna daga hefði verið unnið að því að finna slíka bráðabirgðaúr- lausn í lífeyrissjóðamálum fólks- ins. Guðmundur var þá spurður að því í hverju slík úrlausn væri fólgin. „Hún er hugsanlega fólgin í því, að aðilar taki afstöðu til þess að heimila lífeyrissjóðunum að inna af hendi auknar greiðslur til hækkunar ellilífeyris lífeyris- sjóðsfélaga. I því sambandi eru menn að kanna möguleikana á því hvort sjóðirnir myndu Ieggja tak- markaðan hluta iðngjaldatekna þessa árs og 1977 í sameiginlegan sjóð, sem sfðan greiddi hinn aukna ellilifeyri, sem hér um ræðir." 0 Eftir þvi sem blaðamaður Morgunblaðsins heyrði á göng- unum úti á Hótel Loftleiðum i gær er meginfyrirstaðan á þeirri lausn, sem Guðmundur ræddi um hér á undan, hjá fulltrúum Sam- bands isl. samvinnufélaga, sem ræður yfir sérstökum fyrirtækja- sjóði. Morgunblaðið spurði Guð- mund nánar út í þetta atriði. „Ég hef undanfarna daga haft ásamt fleirum það sérverkefni að tryggja lausn á þvi að út úr þessum samningaviðræðum komi að sjóðirnir greiði verulega hærri ellilífeyri, og vil ekki á þessu stigi skýra opinberlega frá afstöðu ein- stakra aðila til þessarar hug- myndar. Ég trúi þvi hins vegar ekki að þegar á herði taki ekki allir þátt i þessu mikla og brýna hagsmunamáli þúsunda eldri fé- laga í verkalýðshreyfingunni. Fyrir verkalýðshreyfinguna í heild tel ég að stórauknar ellilíf- eyrisgreiðslur séu annað af tveimur þýðingarmestu málum þessara samninga, en hitt er að sjálfsögðu að samningar takist um kauphækkun." Morgunblaðið spurði Guðmund hvort sú bráðabirgðaúrlausn sem nú væri rætt um myndi hafa i för með sér skerta lánamöguleika sjóðanna. Guðmundur kvað ið- gjaldatekjur sjóðanna það háar að enda þótt þeir tækju á sig þá auknu greiðslubyrði er hér um ræddi, þá hefði það óveruleg áhrif á lánamöguleika sjóðanna. 0 Guðmundur J. Guðmundsson formaður Verkaman.nasambands Islands tjáði Morgunblaðinu í gær, að sú lausn sem unnið væri að i sambandi við lifeyrissjóða- málið væri bráðabirgðalausn til tveggja ára sem gilti frá 1. júlí n.k. Væri hugmyndin sú að ríkis- sjóður hækkaði tekjutryggingu eftirlaunaþega sem næmi 200 milljónum á ári og verkalýðs- félögin og lifeyrissjóðirnir legðu fram á móti álíka háa upphæð. Yrði þannig unnt að hækka veru- lega lifeyri eftirlaunaþega og ef hugmyndin næði fram að ganga myndi lífeyrir einstaklinga hækka I 44 þúsund krónur á mánuði og lífeyrir hjóna í 69—70 þúsund krónur á mánuði. 0 Snorri Jónsson, varaforseti ASl, sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær, að það væri ákveðin skoðun forystumanna verkalýðs- hreyfingarinnar að allir lífeyris- sjóðir yrðu að vera með í þessu svo að engir lífeyrisþegar yrðu útundan. „Takmarkið er að eftir- laun allra lífeyrisþega hækki. Þetta er bráðabirgðalausn sem gilda á í 2 ár og eftir þann tíma er það svo takmarkið að við taki verðtryggður lífeyrissjóður fyrir alla landsmenn. „Snorri sagði að afgreiðsla þessa máls gengi hægar en æskilegt væri og væri það vegna andstöðu nokkurra fyrir- tækjalifeyrissjóða. „Við vonum fastlega að það fari að komast skriður á þetta mál og það flækist ekki miklu lengur fyrir. Þetta er fyrst og fremst hagsmunamál launþeganna og það eru þeir sem njóta fyrirgreiðslu sjóðanna." 0 Guðlaugur Þorvaldsson háskólarektor, sem á sæti í sátta- nefnd, sagði að sáttafundi hefði lokið um klukkan 3 aðfararnótt þriðjudags. Þá var engin lausn fengin á lifeyrissjóðamálinu. Var tekið til við það að nýju klukkan 13 í -gær og settar á laggirnar 3 nefndir til að skoða jafnmörg grundvallaratriði þeirrar bráða- birgðalausnar sem unnið er að. Hlé var gert klukkan 18 en tekið til að nýju við lífeyrissjóðamálin klukkan 21 í gærkvöldi eins og fyrr segir. Sáttanefnd hefur enga tillögu lagt fram í Iífeyrissjóða- málinu. Önnur atriði kjaradeil- unnar hafá ekki verið tekin til umræðu á siðustu fundum og er t.d. sáralitið farið að ræða um beinar kauphækkanir. — Saltviðræður Framhald af bls. 1 upplýstu, að umtalsverður árangur hefði náðst í þessu efni á fundum þeirra á siðasta ári. Þegar hefðu verið lögð drög að samningi sem úti- lokaði að aðilar að honum röskuðu náttúrufari, svo sem með þvf að hafa áhrif á vinda og sjávarföll, eða framkölluðu jarðskjálfta og aðra óáran í því skvni að klekkja á andstæð- ingum sinum. Martin og Roshchin létu i ljós vonir um, að hægt vrði að leggja fullgert uppkast að slfkum samningi á allsherjarfundi Sameinuðu þjóðanna næsta haust. — Mjólk Framhald af bls. 28 taka til greina þegar afstaða er tekin tií slíkrar beiðni. En ég tek fram að synjunin á mánudags- kvöld þarf ekki að þýða að það sé endanleg afgreiðsla málsins," sagði Guðmundur. Hann sagði að margar beiðnir um undanþágur bærust og væru þær flestar smávægilegar. I 95% tilfella væri beiðnum synjað en i einstaka tilfelli væri fallizt á þær. T.d. hefði héraðslækni úti á lands- byggðinni verið leyft að taka sér far með Landhelgisgæzluflugvél- inni heim i hérað svo þar yrði ekki læknislaust, en læknirinn var staddur i Reykjavík þegar verkfallið skall á. Að sögn Péturs Sigurðssonar hjá Framleiðsluráði landbúnaðar- ins fer áhrifa stöðvunar á mjólkurflutningunum ekki að gæta verulega fyrr en að fjórum til fimm dögum liðnum. Um 75% af mjólkurframleiðendunum í landinu hafa nú yfir að ráða heimilismjólkurtönkum og ættu þeir í flestum tilvikum að rúma framleiðsluna í fjóra til fimm daga. Stæði verkfallið hins vegar lengur, sagði Pétur að bændur ættu ekki annarra kosta völ en hella niður mjólkinni. Þess má geta að um þessar mundir nemur dagsframleiðsla mjólkur I land- inu um 215 þúsund lítrum og komi til þess að bændur verði að hella niður mjólk nemur tap þeirra í heild um 12 millj. króna á dag. — Brunamála- stjóri Framhald af bls. 2 tjáði Morgunblaðinu var það Heil- brigðiseftirlitið sem hafði spurnir af þvf að þetta efni væri hér fram- leitt og spurðist fyrir um það hjá Brunamálastofnuninni. Hann kvað engin ákvæði vera til hér á landi er bönnuðu framleiðslu þessa efnis en kvað það hins vegar hafa komið til umræðu innan norrænnar nefndar er vinnur að samræmingu bygginga- samþykkta á Norðurlöndum. Væri talið líklegt að það yrði bannað sem byggingarefni og hugsanlega einnig til bólstrunar húsgagna. Bárður kvað dæmi þess frá nágrannalöndunum okkar, að yfirvöld brunamála hefðu bannað slökkviliðsmönnum að fara inn í brennandi hús þar sem úretan- efni væru framleidd eða geymd. Kæmi því ekki annað til greina en forráðamenn fyrirtækjanna tveggja hér fylgdu í einu og öllu fyrirmælum framleiðenda hrá- efnisins um geymslu, og að það yrði að vera geymt í eldtraustu herbergi. Ellegar teldi hann það skyldu yfirmanna slökkviliða á viðkomandi stöðum að banna mönnum sínum að fara inn í þessi hús, ef eldur kæmi þar upp. Kváðst Bárður þess raunar full- viss, að forráðamenn fyrirtækj- anna sæju til þess að þessu yrði fullnægt. Morgunblaðið reyndi i gær að leita viðbragða aðstandenda þessara tveggja fyrirtækja við viðvörun Brunamálastofnunar en tókst ekki. — IRAhefndir Framhald af bls. 1 ins sprakk sprengja í húsgagna- verzlun við hliðina. Irski lýðveldisherinn hefur einnig lýst ábyrgð sinni á sprengingum, sem urðu í gær i aðalpósthúsi borgarinnar og hóteli, sem einnig er í miðborg- inni. Síðan hitna tók í kolunum eftir andlát Staggs fyrir fjórum dögum hafa 11 manns látið lífið í hefndaraðgerðum irska lýðveldis- hersins. — Nixon Framhald af bls. 1 Bandarikjunum. Strauss sagði í sjónvarpsviðtali í dag: „Það er með ólíkindum, að Nixon skuli ekki hafa heilsu til að bera vitni um hlutverk sitt i Watergate- hneykslinu, en svo er hann allt í einu að fara til Kína." Kraft telur, að Nixon hafi valið sérkennilegan tíma til fararinnar, en honum hafi verið I sjálfsvald sett hvenær hann þekktist heim- boð Kínverja. Þá bendir dálkahöfundurinn á, að Nixon leggi upp í ferðalagið aðeins fáeinum dögum áður en repúblikanar velja forsetaefni sitt, en forkosningarnar fara fram í Hampshire 24. þ.m. Éinnig bendir hann á, að Nixon hyggist leggja af stað til Kína nákvæm- lega fjórum árum eftir að hann fór þangað i krafti forsetaem- bættisins. Kraft heldur þvi fram, að for- setinn fyrrverandi geti á engan hátt beitt sér í þágu utanríkis- mála í þeirri stöðu, sem hann sé nú í, og hann bætir við: „Nixon ætlar nú að svíkja manninn, sem sýknaði hann. Framkoma hans getur ekki leitt annað af sér en jafntefli milli Regans og Fords, og þjónar þeim tilgangi einum að styðja framboð mannsins, sem hann dreymdi um að yrði eftir- maður hans í forsetaembætti — gömlu hetjunnar Johns Conally." — Guðmundur Framhald af bls. 2 ansen Spánverjann Medina en Byrne gerði jafntefli við Szmetan frá Argentínu. Rúmenarnir Georghiu og Ciocaltea gerðu báðir jafntefli en þeir eru jafnir Guðmundi að vinningum. Guðmundur hefur teflt með litlum hléum frá þvf í desember og sagði hann í samtali við Morgunblað- ið fyrir skömmu, að hann væri orðinn þreyttur og byggist því ekki við sérlega góðum árangri á þessu móti. — Alþingi Framhald af bls 12 Arið 1975 er ekki hægt að gejra upp með vissu, fyrr en ríkisreikn- ingur liggur fyrir og reikningar helstu sveitarfélaga. Þess ber að geta, að ekki er vfst að samanburður milli landa sé allskostar-réttur, þar sem ekki er vist að hin einstöku lönd flokki þessi mál á nákvæmlega sama veg. Benda má á, að Efnahagsstofn- unin og menntamálaráðuneytið gáfu út skýrslu um menntamála- útgjöld hins opinbera og skóla- hald árin 1946—1971. Er þar að finna sundurliðuð yfiílit um út- gjöld til fræðslumála, rannsókna og annarra menningarmála árin 1946, 1951, 1956, 1961, 1966 og 1971. Er í ráði að semja skýrslu um þetta efni fyrir þau ár, sem siðan eru liðin. Yfirleitt telur menntamálaráðuneytið æskilegt að teknar verði saman tölfræði- legar upplýsingar um menntamál á tslandi f meira mæli en gert hefur verið, þótt slfkt kalli á aukna fjármuni. Vænti ég að háttvirtur fyrir- spyrjandi telji spurningum sfnum svarað með því sem nú hefur verið sagt.“ — Verkföll Framhald af bls. 3 átta sig á þvf enn, að komið sé verkfall, já og sumir trúa þvf vart, sagði Kristvin Kristins- son, forsvarsmaður verkfalls- varða hjá Dagsbrún, en Dags- brún hefur komið upp aðsetri að Laufásvegi 8. Kristvin sagði, að ekki væri talandi um nein sérstök brot, sem komið væri og auðvelt hefði verið að eiga við þau fáu mál, sem upp hefðu komið. — Við höfum verkfallsverði eftir þörfum. Brotin geta alltaf komið upp, en þó er það svo, að á síðustu 10—15 árum hefur þeim farið fækkandi. Það er helzt á litlum vinnustöðum, eins og t.d. víða f byggingar- iðnaðinum, sem verkfallsbrot hafa átt sér stað. Oft er hér um misskilning að ræða, sem leið- réttist þegar málin eru rædd. Ég vona, að menn geri sér það Ijóst, að allar tilraunir til verkfallsbrota koma verst niður á þeim er þau reyna. Það er leiðinlegt fyrir alla menn að þurfa að ganga með verkfalls- brotsstimpilinn á sér, og að sjálfsögðu njóta allir þeirra bóta sem nást. Þá sagði Kristvin að hann hefði staðið í hópi verkfalls- varða Dagsbrúnar síðan 1952 og síðan 1968 hefði hann stjórnað verkfallsvarðaskrifstofu Dags- brúnar, en hún væri ávallt sett á fót þegar verkföll væru. MENNINGABRAGUR MEIRI NUNA Þá lá leið okkar á skrifstofu Iðju, félags verksmiðjufólks. Guðmundur Guðni Guðmunds- son sér þar um starf verkfalls- varða. Hann sagði f upphafi, að ekki væri hægt að segja, að verk- fallsbrot hefðu átt sér stað. Þeir hefðu faríð á nokkra staði, þar sem heyrzt hefði, að ekki væri allt í þvl lagi, sem það ætti að vera. Verkfallsverðir Iðju hefðu verið mjög liprir á þeim stöðum, þar sem brot hefðu átt sér stað. Þeir hefðu séð til þess, að ekki hefði þurft að eyði- leggja liti og efni og annað f þeim dúr, sem væri mjög við- kvæmt. Guðmundur sagði, að hér áður fyrr hefði verið annað andrúmsloft á skrifstofu Iðju, þegar verkföll hefðu átt sér stað. Þá hefði verkfallsskrif- stofan verið full af fólki alla daga, en nú kæmi fólk aðeins til starfa þegar það væri kallað. — Það er líka svolftið annað að standa í þessu, þegar flest öll verkalýðsfélögin standa saman i verkfalli. Þá er miklu minni hætta á brotum. Menningar- bragurinn er líka margfalt meiri nú á tímum, þvf nú skilja báðir aðilar málið til fullnustu. — Iðnaðarvörur Framhald af bls. 5 og er það 71% aukning frá árinu 1974. TJtflutningur málningar og lakks nam 911,5 tonnum og er það 33,4% aukning frá árinu 1974 en heldur minna en flutt var út 1972 og 1973. Þá var í fyrsta skipti flutt út þangmjöl á árinu 1975, og var það einungis flutt út tvo síðustu mán- uði ársins. Utflutningur þess nam 16,3 millj. kr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.