Morgunblaðið - 18.02.1976, Síða 21

Morgunblaðið - 18.02.1976, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRUAR 1976 21 fclk f fréttum s A hálum baðkerið + Árið 1959 háði tékkneskt (shokkflið kappleik f Kanada við þarlent lið, McFarlands, sem vann með yfirburðum, 7—2. Það vakti mikla athygli og undrun er kanadfska liðið tapaði f seinni leik liðanna f Prag, 3—5. Þetta þykir þó að- eins I frásögur færandi vegna nýlegra ummæla tékknesks fþróttafulltrúa, er staðhæfir að leynilögreglan f landi hans hafi dyggil'ega gengið fram f að sjá svo um, að kanadfsku liðsmenn- ina skorti ekki „félagsskap" eftir komuna til Prag. Floyd Crawford, sem var fyrirliði kanadfska liðsins f keppnisför þessari hefur vfsað ummælum tékkans harðlega á bug. Haft er eftir tékkneska fþróttafulltrúanum, sem nú er hættur störfum, að „undir- búningurinn“ fyrir leikinn hafi lánast fullkomlega og kanadamennirnir mætt þreytu- legir til leiks daginn eftir. Boeing undir Gloria Swanson og William Dufty + „Þetta kom alveg eins og þruma úr heiðskfru lofti. Eg hafði ekki verið gift frá 1948.“ Þannig lýsti Gloria Swanson, hin 76 ára gamla Hollywood- leikkona (Sunset Boulevard) uppákomunni, er rithöfundur- inn William Dufty bað hennar fyrir skömmu. Þegar Gloria hitti hann f fyrsta sinn átti hún að baki fimm hjónabönd og jafnmarga skilnaði. Það var fyrir 20 árum. William Dufty var þá aðstoðarritstjóri hjá New York Post. „Hann var einna lfkastur Búdda," segir hún, „svo akfeitur var hann, a.ni.k. 110—112 kg.“ Gloria er heitur fylgismaður náttúru- lækninga og hún fékk William til að hafna sykuráti og annarri óhollustu — og giftist honum 2. febr. s.l. á Manhattan. Þetta er hans annað hjónaband. „Hann hefur algerlega söðlað um og borðar aðeins náttúru- lækningafæði eins og ég,“ segir Gloria hróðug, „og nú vegur hann 71 kfló.“ William er m.a. höfundur ævisögu Billie Holly- days, Lady Sings the Blues. Hann er nú sextugur að aldri 03 segist ætla að tileinka Billie Holliday og Gloriu Swanson næstu bók sfna, Sugar Blues, sem fjallar um heilsusamlegt mataræði. „Þessar tvær konur breyttu allri tilveru minni,“ segir hann, „Billie með dauða sfnum og Gloria með lffi sfnu.“ (Time Newsweek) + Keisaraynjan af Iran, Farah Diba, kom til Parfsar 11. janúar s.l. til að gera minni háttar inn- kaup,m.a. að kaupa marmara f nýja sundlaug handa fjölskyld- unni. Meðan á heimsókninni stóð snæddi hún eitt sinn hádegisverð með franska for- setanum, Valery Giscard d’Estaing. Hún flaug svo heim á leið, er hún hafði erindað lyst sfna, f Boeing-727 einkaþotu sinni og á eftir fylgdi Boeing- 707 þota frá franska hernum með dótið hennar og 3 tonn af marmara f nýju sundlaugina keisarans. + Kvikmyndaleikarinn Sal Mineo var stunginn til bana á fimmtu- dagskvöldið skammt frá heimili sfnu f vesturhluta Hollywoodborg- ar. Vitni sögðust hafa heyrt hann hrópa og séð mann hlaupa á brott. Hér er lögreglan að taka myndir á morðstaðnum. Sal Mineo var 37 áragamall. BO BB & BO 39S-/J- 7S StG-MOrJO * Astar- brími í Frans + Astsjúkur ungur frans- maður, sem var alveg viðþols- laus af þrá eftir elskunni sinni, fann upp á nýrri aðferð til að fjölga sameiginlegum unaðs- stundum þeirra. Sjö sinnum á tveimur vikum hringdi hann úr krá einni f gagnfræðaskólann hinum megin við götuna í Dammarieles-Lys — nálægt París — þar sem stúlkan hans sat f kennslustund. Tilkynnti hann að sprengja væri falin f skólahúsinu og mundi springa þá og þegar. 1 öll skiptin voru nemendurnir látnir yfirgefa húsið á stundinni, — og hann náði fundi sinnar heitt elskuðu. Það var eigandi fyrrnefndrar krár, sem kom upp um kauða — fannst hann eyða grunsam- lega miklu af vasafé sínu f sfm- töl. Greinargerð frá bæjar- stjóm Vestmannaeyja yegna Sigfinnsmálsins MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi greinargerð frá bæj- arstjórn Vestmannaeyja vegna uppsagnar Sigfinns Sigurðssonar bæjarstjóra: A fundi bæjarstjórnar Vest- mannaeyja laugardaginn 31. jan- úar 1976 var samþykkt að leysa Sigfinn Sigurðsson, þáverandi bæjarstjóra, frá störfum fyrir- varalaust frá og með þeim degi að telja. Ástæður þessarar skyndilegu ákvörðunar bæjarstjórnar voru eftirfarandi: A árinu 1973, nánar tiltekið á timabilinu 30. janúar til 4. maí, lögðu ýmis sveitarfélög í Suður- landskjördæmi fram fé til Vest- mannaeyjasöfnunar, sem fram fór þá um land allt vegna jarðeld- anna. Sum sveitarfélög sendu sin framlög beint til Vestmannaeyja- kaupstaðar, en önnur, samtals 22, sendu framlög sín á skrifstofu Samtaka sveitarfélaga í Suður- landskjördæmi. Þáverandi fram- kvæmdastjóri Samtakanna, Sig- finnur Sigurðsson, tók við þessum greiðslum og lagði á sérstakan reikning við útibú Landsbanda Is- lands á Selfossi á nafni Samtak- anna. Samkvæmt yfirliti, sem nú ligg- ur fyrir nam söfnunarféð á greindum reikningi kr. 3.542.500,- 1 árslok 1973 voru vextir af inn- stæðu á reikningnum kr. 16.734,- þannig að heildarupphæðin varð kr. 3.559.234,- Greiðslur af greindum söfnun- arfjárreikningi fóru fram með eftirgreindum hætti: 1. Greitt 7. febrúar 1973 til Vestmannaeyja 1.000.000,- 2. Greitt 22. febrúar 1973 til Vestmannaeyja 1.000.000.- 3. Millifært framlag Vestmannaeyja 1973 til Samtakanna 371.210,- 4. Millifært framlag Vestmannaeyjatil Samtakanna fyrir 1974 829.200,- 2.860.410,- I apríl 1974 eru útteknar eftir- stöðvar á reikningnum, kr. 54.234,- og innstæða þar með þurrkuð út, en þá er óskilað til Vestmannaeyja fjárhæð kr. 698.824,-. Tekið skal fram, að greinargerð um fyrrgreinda fjársöfnun hafði ekki borist Vestmannaeyjakaup- stað. Kvittanir fyrir framlögum Vestmannaeyja til Samtakanna fyrir árin 1973 og 1974 hafa held- ur ekki borist til kaupstaðarins. Hinn 31. desember 1975 eru greiddar inn á hlaupareikning Bæjarsjóðs Vestmannaeyja við útibú Útvegsbanka Islands i Vest- mannaeyjum nr. 1300 kr. 222.090- Þáverandi bæjarstjóri, Sigfinnur Sigurðsson, innti þessar greiðslur af hendi í nafni Samtaka sveitar- félaga í Suðurlandskjördæmi og aðspurður um þessa greiðslu auð- kenndi hann kvittun fyrir greiðsl- unni með orðinu gjafafé. Athugun á endanlegum skilum gjafafjár í árslok 1975 leiddi í ljós, að enn var óskilað af gjafa- fjárreikningi kr. 476,734,-. Þessi fjárhæð, að viðbættum reiknuð- um vöxtum, að fjárhæð kr. 89.751,-, eða samtals kr. 566.485,- var greidd inn á reikning Sam- taka sveitarfélaga í Suðurlands- kjördæmi nr. 2702 við útibú Landsbankans á Selfossi hinn 3. febrúar 1976, innborguð af Sig- finni Sigurðssyni, eða þrem dög- um síðar en ákvörðun bæjar- stjórnar um uppsögn var tekin. Bæjarstjórn telur að hér sé ekki um fullnaðargreiðslur að ræða. þar sem reiknaðir vextir eru mun lægri en bæjarsjóður hefði feng- ið, ef fullnaðarskil söfnunarfjár hefði farið fram á réttum tima. Bæjarstjórn mótmælir þeirri fullyrðingu Sigfinns Sigurðsson- ar, að hafðar séu f frammi póli- tískar ofsóknir gegn honum. Bæj- arstjórn samþykkti einróma að leysa hann frá störfum af ástæð- um, sem fram koma í þessari greinargerð, enda samþykkti bæj- arstjórn jafnframt á fundi sinum 31. janúar að láta fara fram könn- un á fjármálaviðskiptum Sigfinns Sigurðssonar gagnvart bæjar- sjóði, og kynnu þar að reynast óuppgerð viðskipti. Tíðar rafmagnstrufl- anir á Snæfellsnesi Olafsvfk 16. feb. MIKIÐ hefur verið um rafmagns- truflanir hér I vetur. Þó keyrði um þverbak nú um helgina en þá rofnaði straumurinn nokkrum sinnum, reyndar skamman tfma hvert sinn. Lengsta straumleysið stóð ( rúma klukkustund á sunnu- dagskvöld. Enn varð svo straum- rof um klukkan 9.30 f morgun. Virðast mönnum rafmagnsbil- anirnar tfðari eftir að samteng- ingin við Andakflsárvirkjun komst á. Að sögn starfsmanna RARIK í Ólafsvfk bar ýmislegt til varðandi traumrofin nú um helgina. Til dæmis bilaði rofi á Vegamótum í Miklaholtshreppi, einn«g slitnaði lfna f Staðarsveit. Slæmt veður var um helgina, hvassviðri með éljagangi og tefur það eðlilega viðgerðir. Hafa starfsmenn RARIK iðulega þurft að leggja sig f beina Hfshættu við að finna og gera við bilanir á lfnum i verstu vetrarveðrunum. Allmikið er um það hér, að hús séu hituð upp með rafmagni. Eru það einkum ný hús. Mörgum þyk- ir kostnaðurinn við rafhitunina of mikill til þess að það sé hvetjandi fyrir fólk að nota innlendu ork- una. Algengt gjald fyrir rafhita í ný einbýlishús er á bilinu 10—15 þúsund á mánuði með söluskatti og venjuleg heimilisnotkun 4—6 þúsun á mánuði. Kostnaður við upphitun með oliu er nokkuð mis- jafn, en algengt er 10—15 þúsund á venjulega íbúðarhæð á mánuði og 15—25 þúsund á einbýlishús eftir gerð húsanna og ástandi kynditækjanna. Styrkur til þeirra, sem olíu nota til kynd- ingar, er aftur á móti um 700 krónur á mánuði fyrir hvern ein- stakling. A. því sést að olíu- styrkurinn vegur lítt á móti kostnaði þar sem fátt er í heimili. Símakostnaður þykir nokkuð tilfinnanlegur hér. Algengt gjald fyrir notkun sima á heimili er 3—6 þúsund á mánuði. Nokkrir sleppa með minna en margir þurfa að greiða meira. Eg varð t.d. vitni að því uth daginn að heimilisfaðir greiddi rúmlega 40 þúsund krónur íyur þriggja mánaða simanotk$U|, t pessari upptalningu er í dæminu kostnaður við rekjitef, fyrirtækja en söluskattur etP Ttijinn með. Lestur dagblaOÍjjWf er einn kostnaðarliður af sem ekki þarf að greiða hæaSBÍerði hér en á Reykjavikursvæí|j$aí— Helgi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.