Morgunblaðið - 18.02.1976, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 18.02.1976, Blaðsíða 28
AUGLÝSINGASÍMINN ER: 22480 AUGLÝSINGASÍMINN ER: 22480 3M«r0unb[nbi> MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1976 Bátarnir sem stöðv- ast ekki geta séð Nor- global fyrir hráefni LJÓST ER, að a.m.k. 6—7 loðnubátar munu ekki stöðvast f sjómanna- verkfallinu. Geta þeir, þó svo að verksmiðjur f landi stöðvist, losað afla sinn f verksmiðjuskipið Norglobal svo lengi, sem ekki verður lýst yfir samúðarvinnustöðvun um borð f skipinu. Sem kunnugt er hefur A.S.I. farið fram á það við norska alþýðusambandið, að lýst verði yfir samúðarvinnustöðvun um borð f verksmiðjuskipinu um leið og verk- smiðjur á landi stöðvast. Vegna þessa hafði Morgunblaðið samband við Jón fngvarsson hjá Isbirninum og spurði hann hvort Ifkur væru á að Norglobal hyrfi senn af Islandsmiðum. Jón Ingvarsson sagði, að það væri alveg ljóst, að ef Norglobal Verkalýðsfél. í Eyjum frestar verkfalli sínu VERKALYÐSFELAG Vest- mannaeyja hefur frestað verk- falli sínu til nk. föstudags- kvölds.Upphaflegaimunfélagið hafa gefið ádrátt um að heimil- uð yrði loðnubræösla en síðan Framhald á bls. 16 Sjómannadeilan: stöðvaðist vegna hráefnisskorts til langframa, væri enginn vafi á að skipið yrði sent heim, enda kostnaðurinn við leigu skipsins mjög mikill. Þá sagði hann, að sér væri ekki kunnugt um hvaða svar A.S.I. hefði fengið frá norska alþýðu- sambandinu um samúðarvinnu- stöðvun um borð í skipinu. Á hinn bóginn lægi það fyrir að að minnsta kosti 6—7 loðnubátar myndu ekki stöðvast I sjómanna- verkfallinu og ef veður héldist sæmilegt ættu þeir að geta séð Norglobal að mestu fyrir hráefni. Unnið var útfrá hug- myndum sáttanefndar SAMNINGANEFNDIR sjómanna og útvegsmanna settust að samn- ingaborði f Tollhúsinu klukkan 22 I gærkvöldi eftir tveggja tfma matarhlé. Geir Gunnarsson al- þingismaður, sem sæti á í sátta- nefnd, sagði við Morgunblaðið í gærkvöldi að unnið væri útfrá þeirri sáttahugmvnd, sem sátta- Framhald á bls. 16 Sfðustu fréttir Þegar Mbl. hafði síðast fréttir af sáttaumleitunum f sjómannadeilunni virtist svo sem þar væri unnið af miklum krafti að lausn deilunnar og menn þættust þar eygja ein- hver ja von. AÐ LOKNUM SATTAFUNDI — Jón Sigurðsson formaður Sjómanna- sambandsins og Kristján Ragnarsson formaður LlU klæða sig f yfir- - hafnir að loknum sáttafundi. Mjólkurdreifingin: • ' ■ Verkfallsverðir áttu náðugan dag f gær og aðeins f fá skipti þurftu þeir að hafa afskipti af verkfallsbrjótum. Meðfylgjandi mynd Friðþjófs er af nokkrum verkfalls- vörðum Dagsbrúnar. Unnið að lausn líf- eyriss j ó ðamálsins Takmarkið er veruleg hækkun lífeyris eftirlaunaþega SÁTTAFUNDUR hófst á Loftleiðahótelinu klukkan 21 í gærkvöldi eftir að þriggja stunda hlé hafði verið gert á fundinum. Lffeyrissjóðamálið er eina málið sem nú er unnið að lausn á, en ASÍ hefur sett það á oddinn og vill að lausn fáist á þvf áður en önnur atriði kjaradeilunnar eru tekin til umræðu. Lausn sú á Iffeyrissjóðamálinu, sem rætt er um, hefur mætt nokkurri andstöðu, og þá sérstaklega hjá nokkrum fyrirtækjalffeyrissjóðum. Hefur hægt miðað á sfðustu fundum. 0 Vegna þessa lffeyrissjóðamáls sem er efst á baugi f samningaum- leitunum að Hótel Loftleiðum um þessar mundir sneri Morgun- blaðið sér til Guðmundar H. Garðarssonar, sem er formaður Verzlunarmannafélags Reykja- víkur, stærsta launþegafélagsins innan ASI og hefur jafnframt yfir öflugasta Iffeyrissjóðnum að ráða, og spurði hann hvernig þessu máli liði. Guðmundur sagði f því sam- bandi að flestum væri orðið það ljóst að núverandi skipan Hfeyris- sjóðanna með tilliti til trygginga- greiðslna væri gjörsamlega ófull- nægjandi. „Það hefur nokkuð vaf- izt fyrir mönnum með hvaða hætti er unnt að auka verulega tryggingar til aldraðs fólks. Þau stéttarfélög sem nú eiga í kjara- deilu, hafa á undanförnum árum myndað mikla sjóði, sem hafa greitt mjög óverulegan hluta af sfnum iðgjaldatekjum til trygg- ingaþarfa. Stafar það m.a. af þröngum reglum þar að lútandi og mikilli verðbólguþróun. Guðmundur sagði, að þess vegna hefði það verið megin- stefna þessara félaga að nú skyldi reynt að gera lagfæringar f þess- um efnum. „Var því sett fram sú krafa, að fundin yrði leið til að mæta þessari þörf aldraðs fólks,“ sagði Guðmundur. „Ymsar leiðir koma þarna til greina en ég leyfi mér að benda á þá leið sem ég og verzlunarmenn teljum bezta, þ.e. svokallað gegnumstreymiskerfi en vegna þeirra tfmaþrengsla sem yfirstandandi samningsgerð er komin f verður það naumast leyst Framhald á bls. 16 Sfðustu fréttir Samkvæmt upplýsingum blaðamanns Mbl. að Hótel Loftleiðum seint l gærkvöldi var þá nýhafinn fundur hjá sáttanefnd um lffeyrissjóða- málið. Fundinn sátu formenn ASl og VSl og Vinnumálasam- bands samvinnufélaga ásamt fulltrúm f lífeyrissjóðanefnd beggja aðila Það var að heyra á samningamönnum, að hægt miðaði f þessu máli, margt væri óleyst ennþá og óljóst hvort lausn fengist f lífeyris- sjóðamálinu f þessari lotu. Stöðvast stræt- isvagnaferðir? Borgarlæknir hefur óskað eftir undanþágu Öll starfræksla m jólkursamlaganna liggur niðri ÖLL starfræksla mjólkursamlaganna f landinu liggur nú niðri vegna verkfalla. Skúli Johnsen borgarlæknir sagði f sam- tali við Mbl. f gærkvöldi, að hann myndi í dag óska eftir því við þau verkalýðsfélög, sem hlut ættu að máli, að séð yrði fyrir nægjanlegri mjólk handa börnum, barnshafandi konum, sjúklingum og gamalmennum í Reykjavfk. I fyrrinótt óskaði Mjólkursamsalan f Reykjavfk eftir undanþágu til að afgreiða mjólk en þeirri beiðni var þá hafnað. Hins vegar sagði Guðmundur J. Guðmundsson, sem á sæti f sérstakri nefnd ASt, sem fjallar um undanþágubeiðnir að ekki bæri að Ifta á þá synjun sem endanlega afgreiðslu málsins. Engin mjólk er nú sótt til bænda en þessi stöðvun á mjólkut'Tlutningunum fer þó ekki að hafa veruleg áhrif hjá bændum fyrr en eftir fjóra til fimm daga, því um 75% mjólkur framleiðendanna hafa heimilis mjólkurtanka til geymslu á mjólk- inni. Skúli Johnsen sagði að skipulagning mjólkurdreifingar ef leyfð yrði væri ekki ákveðin. Guðmundur J. Guðmundsson ítrekaði það í samtalinu við Morgunblaðið að beiðnin um undanþágu til mjólkurfram- leiðslu og dreifingar er fram kom í fyirakvöld hefði verið rudda- lega fram sett að mati nefndar- innar. Þar hefði verið rætt um undanþágu fyrir alla framleiðslu ellegar enga undanþágu. „Þarna koma mörg verkalýðsfélög inn í myndina og margt sem þarf að Framhald á bls. 16 1 dag verður ljóst hvort Strætis- vagnar Reykjavfkur munu halda áfram ferðum eða stöðvast. For- ráðamenn fyrirtækisins hafa far- ið fram á undanþágu fyrir lág- marks mannafla eða 15 menn til að vinna við viðhald vagnanna og telja að ekki verði að öðrum kosti hægt að halda uppi ferðum áfram. I samtali við Morgunblaðið í gær sagði Eiríkur Asgeirsson, for- stjóri SVR, að í dag hefðu til að mynda 4 vagnar bilað, þrátt fyrir að allur akstur hefði stöðvazt frá kl. 9—11 í gærmorgun vegna hálku. Kvað hann strætisvagnana hafa orðið mjög illa úti i umhleyp- ingunum í vetur og ekki væri nokkur leið að halda þeim gang- andi í verkfallinu nema þeir fengju viðhaldsþjónustu sam- hliða, enda væri þess að gæta að strætisvagnarnir þyrftu að vera þess albúnir að hefja akstur sam- kvæmt áætlun um leið og verk- fallið leystist. Þessa dagana er ekið samkvæmt laugardags- áætlun og akstri hætt kl. 19. Forráðamenn SVR munu i dag eiga frekari viðræður við fulltrúa þeirra félaga, sem viðhaldsmenn SVR eru i, og verða málin þar til lykta leidd að sögn Eirfks. Hann kvað SVR eiga næga olíu til aksturs í viku eða 10 daga. Utanríkismála- nefndfjallar um punktaLuns Ríkisst jórnarfundur var f gærmorgun, þar sem m.a. var fjallað um þau atriði, sem Luns kom á framfæri við Is- Ienzku ríkisstjórnina eftir við- ræður við brezka ráðamenn á dögunum. Að sögn Einars Ágústssonar, utanrikisráðherra, hefur utan- ríkismálanefnd Alþingis verið kölluð saman til fundar árdeg- is í dag, og kvaðst Einar þar mundu gera grein fyrir málinu og niðurstöðu ríkisstjórnarinn- ar. Bjóst utanríkisráðherra við því, að opinber tilkynning yrði gefin út um málið eftir þann fund.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.