Morgunblaðið - 17.03.1976, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. MARZ 1976
5
Selma Júlíusdóttir:
Enginn „mömmuleikur”
Islendingar góðir
Fyrir tveimur mánuðum reyndi
ég að ná eyrum ykkar og benda á
að það er verið að leika hildarleik
á þorskmiðum lands okkar. Það
virðist enginn hafa hlustað hvorki
á mig né aðra sem hafa reynt að
brýna raustina og vara við afleið-
ingum þess hildarleiks. Það er
enginn „mömmuleikur".
Við vitum öll að það var vilji
allrar þjóðarinnar að færa út ein-
hliða fiskveiðilögsögu okkar út í
200 mílur. Það var svo ákvörðun
alþingis og stjórnarforustu okkar
hvenær og á hvern hátt það yrði
gert. Ég ætla þvi að beina orðum
mínum til þeirra manna nú. Er
það raunverulegt, að þið hafið
einungis fært hana út í orði en
hvergi á borði? Er það raunveru-
legt, að þið ætlið að horfa að-
gerðarlausir á að láta varðskips-
menn óhvílda og á stórlöskuðum
skipum heyja baráttu jafnvel upp
á líf og dauða við ofurefli liðs?
Þeir hafa staðið og standa enn
eins og klettar, en við vitum öll að
bæði menn og skip gefast upp á
endanum ef ekkert er að gert. Á
miðunum dygði lítið að segjast
ætla að gera hlutina eða setja upp
nefnd til að athuga hvernig best
væri að komast hjá næstu
ásiglingartilraun bresku herskip-
anna. Eg álít að ef þeir viðhefðu
þau vinnubrögð á miðunum,
lægju margir i valnum i dag.
Aukin umsvif Lands-
málafélagsins Varð-
ar 1 utanlandsferðum
LANDSMÁLAFELAGIÐ Vörður
hefur undanfarin ár skipulagt
ferðir til útlanda i samráði við
ferðaskrifstofuna Úrval fvrir
meðlimi sjálfstæðisfélaganna um
land allt. Hefur aðallega verið
farið til Kaupmannahafnar og
sólarlanda og hafa þessar ferðir
gengið vel.
Blaðið sneri sér til Hilmars
Guðlaugssonar og Guðmundar J.
Oskarssonar til að spyrjast fyrir
um þessar ferðir í sumar, tilgang
þeirra, skipulagningu o.fl.
— Þessar ferðir eru farnar til
þess að gefa meðlimum sjálf-
stæðisfélaganna tækifæri á
ódýrari ferðum til útlanda en
gefst á hinum almenna markaði.
— Þetta er í þriðja sinn sem
landsmálafélagið Vörður semur
við ferðaskrifstofuna Úrval um
ferðir til útlanda.
— Þessar ferðir hafa verið
mjög vinsælar og sést best á því
að s.l. sumar fóru yfir 1000 manns
á vegum Varðar til Kaupmanna-
hafnar og hátt í 300 til sólarlanda.
— I sumar verður tilhögunin
þannig varðandi Kaupmannahöfn
að brottfarir verða vikulega frá 9.
maí til 25. september. Ferðirnar
9. mai, 19. september og 25.
september kosta 24.500 kr. Aftur
á móti kosta ferðirnar y.fir sumar-
tímann 15. maí til 15. september
31 þúsund kr. Flugmiðinn gildir
fyrir frjálsa heimkomu innan
mánaðar og er möguleiki á við-
Heillaóskir og gjafir til
ASÍ á 60 ára afmælinu
Nærri 300 manns fóru á vegum
Varðar til sólarlanda á síðast
liðnu ári.
komu í Glaskow eða Osló á heim-
leið. ‘ Almennt sumarverð á
ferðum til Kaupmannahafnar er
nú um 59.000 kr.
— Kaupmannahafnarferðir eru
valdar með hliðsjón af því að þær
gefa svo mikla möguleika á
ferðum annað um Evrópu.
— Ennfremur hefur landsmála-
félagið Vörður samið um ferðir til
sólarlanda þ.e.a.s. til Mallorka og
Ibiza. Við höfum tekið upp þann
hátt til þæginda fyrir meðlimi að
Framhald á bls. 31.
Á 60 ára afmæli Alþýðusam-
bands Islands sl. föstudag bárust
sambandinu ýmsar gjafir og
heillaóskir. Má þar nefna stvttu
af Guðgeiri Jónssyni, forseta ASI
1942 —44, sem Bókbindarafélag
lslands færði ASl að gjöf og val-
inn hefur verið staður í fundarsal
sambandsins.
Guðgeir Jónsson, fyrrverandi for-
seti ASt, við stvttuna af honum,
sem gefin var ASl á 60 ára afmæl-
inu.
Dóttir Guðgeirs, Asbjörg af-
hjúpaði styttuna en viðstaddir at-
höfnina voru stjórn Bókbindara-
félagsins, forseti ASI og nokkrir
miðstjórnarmenn. Formaður
Bókbindarafélagsins, Svanur Jó-
hannesson, flutti stutt ávarp er
hann afhenti styttuna en forseti
ASI, Björn Jónsson, þakkaði og að
lokum mælti Guógeir Jór.sson
nokkur orð.
Styttan er eftir Sigurjón Olafs-
son myndhöggvara og er hið feg-
ursta listaverk.
Annað listaverk barst ASI í til-
efni dagsins. Var það frá Ragnari
Jónssyni í Smára, sem grundvöll-
inn lagði að stofnun listasafns
ASI fyrir rúmum áratug með
hinni stórmerku listaverkagjöf
sinni, og í tilefni afmælisins nú
eaf hann ASl lítið málverk eftir
Gunnlaug Scheving. Er það elzta
verk listamannsins, sem varð-
veitzt hefur málað á léreft er
hann var 10 ára gamall og sýnir
Ingólfsfjall séð fráEyrarbakka.
Af kveðjum og heillaóskum,
sem bárust, má nefna heillaósk
frá forseta Islands, forsætisráð-
herra, fyrrverandi forsetum ASl,
Framhald á bls. 31.
Landhelgisgæslunni nægir ekki
að fá alla þá samúð utan úr heimi
og kveðjur sem okkur hafa verið
sendar. Nei, varðskipsmenn hafa
orðið að leggja nótt við dag til að
standast þá hörðu og ljótu baráttu
sem er háð á Islandsmiðum. Þeir
hafa sýnt alveg einstæðan dugnað
og einurð, en ég sé og heyri að
þeir eru orðnir langeygðir eftir að
sjá einhvern áþreifanlegan vott
um að líf þeirra sé einhvers met-
ið. Hvar er skipakosturinn fyrir
þessa menn? Á að bíða eftir að
einhverju skipannasé sökkt, áður
en framkvæmt er að koma með
skip sem hafa eitthvað að segja á
móti herskipunum?
Ef svo hræðilega tekst til,
finnst mér þorskurinn vera
keyptur mjög dýru verði.
Eg tók það nærri mér að lesa i
dagblöðum borgarinnar að einn
af harðduglegustu skipstjórum
Selma Júlfusdóttir
okkar er farinn að álíta að lands-
menn almennt séu þeirrar
skoðunar að það séu engar taugar
í varðskipsmönnum. I mesta lagi
sé þar ein görn. Er nema.von að
maðurinn álíti þetta, þar sem
þeir sjá ekki að nokkuð áþreifan-
legt sé gert þeim til hjálpar. Ef
við erum svo fátæk þjóð aó við
getum ekki veitt það fé til land-
helgisgæslunnar sem þarf til að
verja 200 mílurnar, verðum við
hreinlega að játa það og gefast
upp áður en mannslífum er bók-
staflega fórnað.
Eg persónulega vildi óska þess
að þeir menn sem eiga að sjá um
fjárveitingu til landhelgis-
gæslunnar mundu fara og vera
einn 18—19 daga túr á miðunum
á varðskipi. Á þann eina hátt
kynntust þeir raunveruleikanum.
Blaða- og fréttamenn landsins.
Eg er þeirrar skoðunar að þið
hafið að sumu leyti brugðist þess-
um mönnum. Það má þakka fyrir
ef einn fréttamaður er á miðun-
um í dag, á meðan fréttamenn
breska heimsveldisins eru óþreyt-
andi að vaka með sínum mönnum
og mata heiminn af falsfréttum,
okkar mönnum til hnjóðs.
Fyrir tveimur mánuðum bað ég
um að varðskipsmönnum okkar
væri lagt lið. Nú kem ég aftur og
bið alla þá sem geta lagt þeim lið:
Gerið það áður en einhverjum
þeirra verður fórnað.
Landhelgisgæslunni bið ég
allrar blessunar og gæfu, og vona
að það verði betur búið að henni i
framtíðinni. Öskabarni þjóðar-
STÓRGLÆSILEG
HEKLAhf
Laugavegi 170—172 — Sími 21240