Morgunblaðið - 17.03.1976, Síða 11

Morgunblaðið - 17.03.1976, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. MARZ 1976 11 Mynd BragaÁsgeirssonar „Stóri hvfti hestur“ frá 1974 Myndlist eftir BRAGA ÁSGEIRSSON Guðmundur Erró á 7 myndir á þessari sýningu, m.a. eina klipp- mynd frá árinu 1958, en að öðru leyti eru myndir hans annað tveggja litógrafíur eða sáldþrykk. Flestar myndanna ef ekki allar virðast byggjast á myndvörpu og klipputækninni, en afgangurinn virðist fagleg verkstæðisvinna. Eg varð a.m.k. ekki var við, að myndir hans væru merktar sem „eigið þrykk". Ekki er ég hér að setja út á Erró, þvi að myndir hans eru samar að gæðum fyrir þvi, en bendi á að í grafík- heiminum þykja eigin þrykk meistaranna stórum verðmætari faglegri verkstæðisvinnunni. Myndir Erró eru bráðskemmtlegt og áhrifaríkt innlegg í sýninguna, fagmannlega gerðar og af mikilli hugkvæmni. Myndir þessa lista- manns sjást alltof sjaldan á sýn- ingum hér heima og væri ekkert eðlilegra en að ástæðan sé, að nokkurrar biturðar gæti hjá hon- um í garð sinna afskiptalausu landa. Væri meira en æskilegt, að hann kæmi með stóra sýningu hingað heim sem allra fyrst. — Það er varla meir en að eitt hornið i mynd Rósku (Ragnhildar Oskarsdóttur) teljist til pop- listar, og teikningar Arnars Her- bertssonar eru meira í ætt við surrealisma, þótt ekkert sé út á útfærsluna að setja, sem stendur fyrir sinu. Bræðurnir Kristján og Sigurður Guðmundssynir koma vel frá þessari sýningu og er mér í dag ráðgáta, hví þeim var hafnað sem félagsmönnum í F.I.M. á sínum tíma Víst er, að myndir þeirra njóta sin öllu betur á lista- safninu en i sýningarhúsnæði S.O.M., eru hreinar og tærar i útfærslu. Tryggvi Óiafsson er greinilega undir áhrifum frá amerísku poppi og comic-strip teikniserium þeirra, en liturinn er hans eigin, fjarrænn og rómantiskur. Miriam Bat Yosef eða réttara Maria Jósefsdóttir, því að hún er með íslenzkt vega- bréf, fellur vel inn í þessa heild með hinni lit- og formriku gínu- mynd sinni og renningur Magnúsar Páissonar orkar sér- kennilega á skoðendur. Stálhjarta Jóns Gunnars Árnasonar veldur jafnan óvæntum viðbrögðum hjá skoðendum, sem ekki eru kunnir slíkri tegund Hstar og er þar að auki með magnaðri verkum, er frá hans hendi hafa komið. Object-verk Magnúsar Tómas- sonar þurfa meiri einangrun og hlýlegra umhverfi en forsalur safnsins býður upp á og gjalda þau þess, það er helzt, að brjósta- haldarinn komi til skila, en þó tel ég gleraugun forvitnilegasta framlagið frá hans hendi, einkum nr. 30. I heild er þetta eitt áhuga- verðasta framtak, sem listasafnið hefur tekið sér fyrir hendur í langan tíma, einungis verður að harma það, að sýningin er alltof smá í sniðum og gefur alls ekki raunsanna mynd af pop-list á íslandi frá upphafi, er fremur út- tekt á ýmsu því sem hefur verið gert innan þessarar listastefnu. Ber því að fara varlega í sakirnar, hvað stórar fullyrðingar um þróun listastefnunnar hérlendis áhrærir, því að ýmis Jturl munu eiga eftir að koma til grafar og ekki skyldi mig undra þótt stærri og yfirgripsmeiri sýning slíkrar tegundar eigi eftir að sjá dagsins ljós innan margra ára Þessi lista- stefna hefur þó a.m.k. haslað sér völl á áþreifanlegan hátt með þessari sýningu og m.a. stóraukið aðsókn á listasafnið þær vikur, sem hún hefurverið opin. Að lokum þakka ég aðstandend- um sýningarinnar framtakið og þeim, sem vilja fræðast frekar um eðli pop-listar, vísa ég á grein eftir undirritaðan, sem mun birtast í Lesbók 28. marz. Rétt er að benda á að sýningin er einungis opin á almennum opnunartima safnsins eða þriðju- daga, fimmtudaga, laugardaga og sunnudaga á milli 13.30 —16.00. leg á nokkurn hátt, mér finnst mega eygja Stanislavskí víðast hvar, en hún óvenjutraust og hnökralaus. Leikmyndin þjónar sínu hlutverki prýðilega og hrað- inn og hópatriðin með ágætum. En þó fannst mér mest koma til leikstjórnarinnar sjálfrar. Það er langt siðan ég hef fundið til þeirr- ar tilfinningar að leikstjóri hafi fullt vald á öilum atriðum sýning- ar, fái út úr hverjum það sem unnt er og haldi siðan utan um allt saman mjúkum en föstum tökum. Persónur eru margar og hér er mikið leikaraval á ferð, næstum allt stórskotalið Þjóðleikhússins og Gísli Halldórsson að auki sem hljóp í skarðið fyrir Val Gislason. Gisli leikur Lúkas, förumann og spámann, eins konar Jón Prímus þessa ágæta húss, með miklum ágætum. Annars er það tómt mál að ætla sér að telja upp alla leik- endur og gefa þeim einkunn, enda held ég að slíkt tíðkist hvergi nema hér á landi, að minnsta kosti ekki þar sem ég þekki til. Ég læt mér því nægja að þakka þeim Baldvini, Krist- björgu, önnu Kristínu, Ævari, Hákoni, Gísla, Herdísi, Árna, Flosa, Bjarna, Jóni, Sigurði, Hólmfriði, Kristinu og Svanhvítu fyrir þann besta og samstæðasta leik sem ég hef séð hér til þessa í jafnmannfreku leikriti. Ekki varð ég var við annað en lýsingin væri ágæt og þýðing Halldórs Stefánssonar hnökra- laus að mestu. Róbert Arnfinnsson og Ævar R. Kvaran f hlutverkum. Eskifjarðar- togarar stöðvast Eskifirði, 15. marz. Sjómannaverkfall hefur verið boðað hér á Eskifirði frá þriðju- degi 16. marz. Eru það sjómenn á togurunum, sem ekki eru ánægðir með sinn hlut, en báta- sjómenn hafa sent frá sér undir- skriftalista og neitað að fara í verkfall og skrifuðu 60 sjómenn undir þann lista. Stjórn Verkalýðs- og sjómanna- félagsins lýsti því þá yfir að engu að síður skyldi farið í verkfall. Samningafundir voru hér fyrir helgi, en á laugardag slitnaði upp úr þeim. Ekki hafa samningar A.S.l. og Vinnuveitenda verið bornir hér upp á félagsfundum. Togararnir eiga að koma inn á morgun og ef ekki semst þá stöðvast þeir. Ekki er vitað hvenær næsti samninga- fundur verður haldinn en það verður varla fyrr en undir miðja viku. Góður afli er nú hjá netabátum héðan og um helgina lönduðu 5 netabátar um 75 lestum. Mestan afla hafði Sæljón, 25 lestir, og Votaberg 20.5, en bátarnir eru við Hvítinga. Ævar. Klapparstig 16, •ímar 11411 og 12811. Takið eftir Höfum kaupanda að stóru einbýlishúsi með tvö- földum bilskúr, helzt á Flötunum eða i góðu ræktuðu hverfi. Höfum kaupanda að einbýlishúsi i Reykjavik, má vera í gamla bænum. Húsið má þarfnast standsetningar. Skipti á glæsilegri sérhæð koma til greina. Höfum kaupanda að 3ja—4ra herb. ibúð, helzt með bilskúr við Sæviðarsund eða nágrenni. Höfum kaupanda að 2ja herb. ibúð eða góðri ein- staklingsibúð í Fossvögi, Stóra- gerði eða viðar. Höfum kaupanda að 4ra—5 herb. góðri sérhæð, með bilskúr, Æskilegur staður Hliðar, Háaleitishverfi, eða vesturbær. Ennfremur vantar okkur allar stærðir íbúða og húsa á söluskrá. ASPARFELL 2HB 60 fm, 2ja herb. ibúð til sölu i fjölbýlishúsi. Mjög góð ibúð á 1. hæð. Verð: 5 m. Útb.: 3,5 m. ASPARFELL 3HB 87 fm, 3ja herb. ibúð á 4. hæð i fjölbýlishúsi til sölu. Góðar inn- réttingar og mikil sameign. Verð: 6,2 m. Útb.: 4,5 m. BIRKIMELUR 3HB 85 fm, 3ja herb. ibúð á 4. hæð i blokk. Góð íbúð á besta stað i Vesturbænum. Útb.: 6 m. GRETTISGATA 3HB 65 fm. 3ja herb. ibúð á jarðhæð i tvibýlishúsi. Húsið er steinhús. Ibúðin er í mjög góðu standi. Verð: 5.5 m. Útb.: 3,5 m. HAMRAGARÐUR 3HB 90 fm. 3ja herb. ibúð i Kópavogi til sölu. íbúðin er tilbúin undir tréverk. Þvottahús á hæð. Bíl- geymsla fylgir. Verð: 5.5 m. Útb.: 4.4 m. HOLTSGATA 3HB 93 fm. 3ja herb. ibúð i Vestur- bænum til sölu. Sör stofa. Sér hiti. Verð: 7.5 m. Útb.: 5 m. KÓPAVOGSBRAUT 5HB 143 fm. 5 herb. sérhæð i tvi- býlishúsi til sölu i Kópavogi. Sér- lega falleg og vönduð ibúð. Bil- skúr fylgir. Útb.: 8 —10 m. MARKARFLÖT EINBH 330 fm, einbýlishús i Garðabæ til sölu. Sérlega stórt og fallegt hús með tvöföldum bilskúr. Teikningar og frekari upplýs- ingar veittar á skrifstofunni. MELGERÐI 3HB 80 fm. 3ja herb. mjög falleg risíbúð i tvíbýlishúsi til sölu. Sér hiti. Tvöfalt gler. Verð: 6 rh. Útb.: 4 m. MIÐVANGUR 3HB 98 fm, 3ja herb. ibúð í fjölbýlis- húsi í Hafnarfirði til sölu. Mögu- leg skipti á 5 herb. ibúð koma til greina. STÓRAGERÐI 4HB 1 1 6 fm, 4ra herb. íbúð á 3. hæð i fjölbýlishúsi til sölu. íbúðin tvær samliggjandi stofur og tvö svefnherbergi. íbúðin er í mjög góðu standi. Sameign mjög góð Bílskúr fylgir. Verð: 9.5 m. Útb.: 7 m. VÍÐIMELUR 3HB 90 fm, 3ja herb. ibúð á neðri hæð í tvíbýlishúsi. Geymslur í kjallara. Gróinn garður. Verð: 7,8 m. Útb.: 5,5 m. ÞORLÁKSHÖFN EINBH 136 fm, einbýlishús i Þorláks- höfn til sölu. Húsið er rúml. fokhelt. Teikningar og frekari upplýsingar veittar á skrif- stofunni. Fastcigna torgio GRÓRNNI1 Sími:27444 Jón Gunnar Zoéga hdl. Jón Ingólfsson hdl. Sölustjóri: Karl Jóhann Ottósson Heimasími 17874 Fastpigna GRORNN11 Sámi: 27444 Skrifstofuhúsnæði óskast á miðbæjarsvæðinu. Tilboð sendist Mbl. merkt „miðbæjarsvæði — 1 137“. Fasteignir óskast Seljendur athugið, okkur vantar flestar stærðir og gerðir af íbúðum og einbýlishúsum í Kópa- vogi og á höfuðborgarsvæðinu. Fjársterkir kaupendur. Mikil útborgun. Sigurður Helgason hrl., Þinghólsbraut 53, sími 42390.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.