Morgunblaðið - 17.03.1976, Síða 15

Morgunblaðið - 17.03.1976, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. MARZ 1976 15 Slit vináttusáttmála Egypta og Sovétmanna: Sovétmenn reiðir en Kínverjar fagna Kairó, Moskvu, Hong Kong 16. marz — Reuter. LlKLEGT er að sovézki flotinn missi hafnaraðstöðu sína í Egvptalandi, fvrst og fremst í Alexandríu, eftir að Anwar Sadat, forseti, ákvað að rjúfa vin- áttusáttmála Egypta og Sovét- manna frá árinu 1971, að þvi er góðar heimildir í Kairó hermdu í dag. Ekki hefur þó verið tekin ákvörðun um þetta. en búizt er við að svo verði bráðlega. Ekki er þó talið að það muni hafa mikla hernaðarlega þýðingu, því Sovét- flotinn hefur áfram aðstöðu í Alsir og í Tobruk í Líbýu. 1 gær- kvöldi samþvkkti egypzka þingið með miklum meirihluta frum- varp Sadats um að segja upp sátt- málanum. Aðeins tveir þing- menn, sem kunnir eru af stuðn- ingi við kommúnista, greiddu at- kvæði gegn. Sovézka fréttastofan Tass sagði i gær, að þessi ákvörðun Sadats væri enn eitt dæmið um fjand- samlega stefnu hans gagnvart Sovétríkjunum og það yrðu egypzkir leiðtogar sem tækju af- leiðingunum. Hins vegar sagði hin opinbera kínverska frétta- stofa Nýja-Kína að ákvörðun Egypta „markaði gjaldþrot sovézkrar yfirráðastefnu i Egyptalandi og væri mikill sigur fyrir egypzku þjóðina i baráttu hennar gegn yfirráðunum", og „hin svokallaða vinátta og sam- starf sovézku endurskoðunarsinn- anna eru aðeins önnur heiti á yfirgangi og útþenslu“. Embættismenn í Kairó hafa lýst von um að þessi tímamót í sam- skiptum Sovétríkjanna og Egyptalands auðveldi ráðamönn- um í Washington að fá Banda- ríkjaþing til að samþykkja vopna- og efnahagsaðstoð við Egypta i auknum mæli. USA refsar USSR vegna Angóla Washington 16. marz Reuter — AP BANDARlSKA utanríkisráðu- neytið sagði í kvöld að hætt hefði verið við viðræður við Sovétmenn um orkumál, húsnæðismál ogvið- skiptasamvinnu vegna framkomu Sovétrikjanna í Angóla. „I Ijósi ástandsins I Angóla töldum við okkur ekki geta haldið samskipt- um okkar við Sovétrikin áfram eins og venjulega," sagði tals- maður ráðuneytisins, Robert Funseth. „Aðgerðir eins og Sovét- manna í Angóla leiða til refsing- ar.“ Ekki er þó vitað hvort aðgerðir Sovétmanna hafa haft áhrif á að slitnað hefur upp úr viðræðum Bandarikjanna og Sovétrikjanna um kaup Bandarikjamanna á hrá- olíu frá Sovétmönnum vegna ósamkomulags um flutningsgjöld og vegna þess að Sovétmenn hafa engan samkomulagsvilja sýnt undanfarnar vikur, að því er bandarískir embættismenn sögðu í dag. Ekki fengust upplýsingar frá Sovétmönnum um málið. Um var að ræða allt að 200,000 tunnur af hráolíu á dag sem Bandaríkja- menn hugðust kaupa, en viljayfir- lýsing um þetta efni var undir- rituð um leið og kornsamningur landanna tveggja í október s.l. HUA tekur undir gagnrýni á Teng Hong Kong — 16. marz — Reuter. Hua Kuo-feng, settur forsætis- Mokafli af loðnu við Noreg Þrándheimi—16. marz — NTB Loðnuafli Norðmanna hefur verið mjög mikill undanfarna daga, og hafaverið erfiðleikar með móttöku og úrvinnslu afl- ans. Heildaraflinn á vertiðinni er orðinn 90 þús. tonn. Undan- farna daga hefur aflinn komizt yfir 3 þús. tonn, en'dagsafköst fiskverkunarstöðvanna eru 2 þús. tonn. Enn er ekki ástæða til að hafa áhyggjur af ofveiði loðn- unnar, að þvi er aðilar í fisk- iðnaði telja en þó er ekki ósennilegt að gripa verði til einhvers konar takmörkunar á veiðinni, verði áframhald á fengsældinni að undanförnu. ráðherra Kína, hefur látið að því liggja, að stjórnmáladeilur, sem nú eiga sér stað f landinu, muni ekki hafa áhrif ádaglegt lif borg- aranna, að því er fréttastofan NVJA-Kína greinir frá í dag. Er í þessu sambandi vitnað í ræðu, sem Hua Kuo-feng flutti i opinberri veizlu, en talið er að í ræðunni hafi forsætisráðherrann í fyrsta sinn opinberlega sagt frá áróðursherferðinni, sem nú er farin gegn Teng Hsiao-ping, opin- berlega. Kuo-feng sagði m.a., að i Kína væri alræði öreiganna nú ein- dregnara en nokkru sinni, hið sósialistiska kerfi þróaðist stöð- ugt og sóknarandi þjóðarinnar væri mjög mikill um þessar -mundir. Þá vék hann að þvi, sem hann kallaði byltingarkenndar umræð- ur á sviði menntamála, vísinda, tækni, bókmennta og lista, sem hann kvað vera rökrétta afleið- ingu menningarbyltingar öreig- anna, „1 þessum umræðum munu byltingarkenningar Maós for- manns tryggja sér enn fastari sess i þjóðarsálinni og innalands- ástandið mun verða betra og betra,“ sagði Kuo-feng. Hann bætti því við, að kínverska þjóðin sigraðist á öllum vandamálum og héldi ótrauð áfram á braut marx- leninismans i samræmi við hugs- ún Maó Tse-tungs. Nú er um það bií tveir mánuðir siðan fréttist áf Teng Hsiao-ping, varaforsætisráðherra, en í áróð- ursherferðinni á hendur honum hefur hann meðal annars verið úthrópaður sem málsvari kapítal- ismans. Wilson — meistari pólitískrar jafnvægis- listar Lundúnum — 16. marz — AP. ÞEGAR Harold Wilson var tiu ára að aldri tjáði hann móður sinni, að einn góðan veðurdag yrði hann forsætisráðherra Bretlands. Hann stefnd. ótrauður að takmarki sinu, og náði því þegar hann var 48 ára að aldri. Wilson er fæddur i Huddersfield í Norður- Englandi 11. marz 1916. Honum sóttist háskóla- námið í Oxford með ágætum, og hlaut verðlaun fyrir frammistöðu sína. Þegar hann var 21 árs að aldri hóf hann kennslu i hagfræði við háskóla í Oxford, en var um leið náinn aðstoðarmaður Beveridge lávarðar, sem stuðlaði flestum fremur að því að Bretland varð velferðarríki. 1 stríðinu gegndi Wilson borgaralegum störfum á vegum hins opinbera. Hann var fyrst kjörinn á þing árið 1945. H ann hlaut skjótan frama innan Verkamanna- flokksins, og hefur jafnan þótt fylginn sér og slunginn samningamaður. Wilson varð talsmaður skuggaráðuneytis Verkamannaflokksins í efnahagsmálum og utanríkismálum. Árið 1960 tók hann þá örlaga- ríku ákvörðun að bjóða sig fram til flokksforystu gegn vini sínum, Hugh Gaitskell. Hann kolféll og þótti hafa sýnt af sér einstæða sviksemi. Við lát Gaitskells árið 1963 var hann samt sem áður kjörinn formaður flokksins. Ári síðar bar hann Verkamannaflokkinn fram til sigurs I þingkosn- ingum og felldi þar með stjórn Sir Alec Douglas- Homes. Siðan hefur Verkamannaflokkurinn fjór- um sinnum sigrað í þingkosningum og Wilson hefur orðið sá forsætisráðherra landsins, sem lengst hefur gegnt embætti á þessari öld, eða sjö og hálft ár samtals. Wilson hefur þótt takast einstaklega vel að hafa hemil á hinum sundurleitu og að mörgu leyti herskáu öflum innan Verkamannaflokksins, og fáir standa honum á sporði i pólitiskri jafnvægis- list. Stjórnaraðferðir hans hafa að sumu leyti einkennzt af leynimakki og alvarleg átök innan stjórnarinnar hafa sjaldnast farið fram fyrir opn- um tjöldum. Andstæðingar Wilsons hafa stundum haldið því fram, að honum hafi ekki farið stjórn ríkisins jafn vel úr hendi og stjórn Verkamannaflokksins, vegna þess að yfirsýn hans nái ekki yfir víðáttur þjóðlffsins í Bretlandi. Hvað sem um það má segja, er ljóst, að forystuhæfileikar hans eru af allt öðru tagi en eiginleikar manna eins og t.d. Winslon Churchills, sem tók flestum fram um andríki og hæfileika til að hrlfa fjöldann og fá hann til að fylgja sér á erfiðleikatímum. Fyrir ári lét Harold Wilson fyrst að þvi liggja, að hann hygðist draga sig i hlé, og í útvarpsviðtali í siðustu viku varð honum tíðrætt um hvað hann tæki sér fyrir hendur þegar hann yrði ekki lengur forsætisráðherra. Hann kvaðst ætla að halda áfram þingmennsku, án þess þó að gegna þar forystuhlutverki. Þá lét hann f ljós áhuga á fyrir- lestrahaldi heima og erlendis, og ritstörfum. Wilson hefur gert sér far um alþýðlega framkomu á stjórnmálaferli sínum, og hefur gætt þess að gleyma ekki uppruna sinum. I tómstund- um sínum kýs hann fremur að horfa á knatt- spyrnu en að helga sig hátíðlegri menningar- iðkun. Hann drekkur mikinn bjór, og hinir sóma- kæru brezku klæðskerar hafa látið klæðaburð forsætisráðherrans fara allmjög í taugarnar á sér. Forsætisráðherrafrúin, Mary Gladys Wilson, er ljóðskáld. Hún er hcimakær og frábitin eril- sömu samkvæmislifi. Hjónin eiga sveitasetur á* Scilly-eyjum, og dveljast þar þegar tóm gefst frá opinberum skyldustörfum. Portúgal: Kirkjan styður miðdemókrata Lissabon — 16 marz — Reuter — NTB LÍKUR benda nú til þess að íhaldsöfl innan kaþólsku kirkjunnar í Portúgal muni styðja flokk miðdemókrata I þingkosningunum, sem fram fara I landinu 25. aprfl n.k. í yfirlýsingu málgagns kaþólikka f Braga f dag sagði, að stefnuskrá miðdemókrata væri sú eina, sem ekki bryti f bága við kenningar kirkjunnar. Byltingarráð hersins í Portúgal lýsti þvf yfir f dag, að einskis yrði látið ófreistað til að kosningarnar gætu farið fram á tilsettum tfma, enda þótt svo virtist sem ýmis stjórnnálaöfl f landinu ætluðu að reyna að hindra málið. Skoraðí bylt ingarráðið á alla flokka að sýna and- stæðingum sfnum virðingu og tillits- semi ( kosningabaráttunni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.