Morgunblaðið - 17.03.1976, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 17.03.1976, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. MARZ 1976 Minning: Helgi Hrafn Helgason bókban dsme is tari Fæddur 16. 2. 1928 Dáinn 9..V76 I dag er til moldar borinn Helgi Hrafn Helgason, bókal)ands- meistari, Miðtúni 18 hér í borg. Hann lést í Borgarspítlanum 9. þessa mánaðar. Hann var fæddur 16. desember 1928 í Reykjavík, sonur hjónanna Engilborgar Helgu Siguróardótt-, ur og Helga Guömundssonar. Helgi faðir hans var kunnur borg- ari, starfaöi hann meöal annars um áraraöir sem kirkjugarösvörö- ur. Krumrni, eins og hann var oft- ast nefndur meðal vina, ólst upp á góðu og reglusömu heimili i stór- um hópi systkina. Sem borinn og barnfæddur vesturbæingur geró- íst hann ungur að árum KR-ingur, lék þar í öllum aldursflokkum knattspyrnunnar, og um 10 ára skeið í meistaraflokki. Þótti hann afbragðs leikmaður, harður og sækinn, enda stór og sterklega hyggður. Hann var drengilegur og sannur íþróttamaður í leik. Ungur hóf hann nám í bók- bandsiðn hjá Aðalsteini heitnum Sigurðssyni í Bókfelk, einhverjum ljúfasta persónuleika sem ég hefi kynnst. Hjá honum hefur hann vafalaust fengið gott veganesti. Hann lauk sveinsprófi 1. október 1949 og vann i Bökfelli til ársins 1960, er hann réðst sem verkstjóri f Félagsbókbandiö. Sagði mér eig- andi þess fyrirtækis, Gunnar Þor- leifsson, einhverju sinni, að betri verkstjóra hefði hann ekkí haft í þjónustu sinni. Þar starfaði hann til ársins 1965, eðatil þesstíma,er hann stofnaði eigið fyrirtæki, Bókbindarann H/F. Hann hóf sjálfstæðan atvinnu- rekstur í iðn sinni í litlum og ófullnægjandi húsakynnum, en með dugnaði og reglusemi óx þetta fyrirtæki í höndum hans, svo að nú þegar hann er allur er það orðið mikilvirkt og traust. A þessum árum hafði hann mikil samskipti við ýmsa bókaútgefend- ur og margvísleg fyrirtæki og ávann sér traust þeirra með sinni sérstöku skaphöfn, sem lýsti sér í rólegu yfirbragði og prúðmann- legri framkomu. Hann var ósérhlífinn og dugleg- ur verkmaður og hafði góða hæfi- leika sem verkstjórnandi. Hann var sanngjarn og göður þeim sem hjá honum unnu, sem meðal ann- ars má merkja á því að sumir starfsmanna hans hafa unnið hjá honum frá fyrstu tíð. Krummi hafði strax mikinn áhuga á félagsmálum stéttar sinn- ar. ilonum voru því fljótlega falin ýms trúnaðarstörf í Bökbindara- félagi Islands. Hann var gjaldkeri félagsins frá 1958—1965 og gjald- keri lífeyrissjóðs bókbindara frá stofnun sjöðsins og hafði umsjón með honum þó nokkur ár eftir að hann gerðist atvinnurekandi, og sýnir það vel hvers trausts hann hafði aflað sér. Hann var fljótlega kosinn i stjörn félags bókbandsiðnrek- enda sem gjaldkeri, og þegar bókagerðarmenn sameinuðust í eitt félag, Félag íslenska prent- iðnaðarins, varð hann fulltrúi sinnar iðngreinar í stjórn þess. Þá var hann i kjarásamninganefnd- um og einnig í ýmsum öðrum trúnaðarstörfum. Fyrir rúmum tuttugu árum átti ég því láni að fagna að kynnast þessum ágæta manni, ungum og glæsilegum. Þann 5. nóvember 1955 gekk hann að eiga dóttur mína, Ingu Rúnu, og allar götur síðar hefi ég haft náin samskipti við hann bæði í starfi og utan þess. Þar kynntist ég manni sem hafði alla þá kosti sem prýða mega einn mann. Þar fór saman hógværð, reglusemi og dreng- lund. Okkur var vel tiLvina þó aldursmunur væri mikill og átt- um mörg sameiginleg áhugamál. Báðir unnum við íslenskri nátt- úru og fórum saman margar ferð- ir um landið. Sérstaklega var fjar- an og leyndardómur hennar fjöl- skyldum okkar kær. Þá vorum við félagar í laxveiði og laxarækt. Við ásamt nokkrum góðum vinum tókum laxlausa á á leigu fyrir nokkrum árum og höfðum báðir mikið yndi af þeim árangri sem náðist við ræktun árinnar. Krummi var elskulegur eigin- maður og frábær heimilisfaðir. Hann og Rúna lifðu í góðu og hamingjusömu hjónabandi. Þau eignuðust þrjá syni sem allir bera vott um að hafa notið umhyggju ástrikra foreldra. Heimili þeirra sýnir og hve samhent þau voru um að gera það fagurt og vistlegt — íverustað allrar fjölskyldunn- ar. Það er með sárum söknuði að við kveðjum þennan góða mann. Það verður styrkur Rúnu og drengjanna í þeirri sorg, að þau eiga minningar um elskulegar eiginmann og föður. Þar bar aldrei neinn skugga á. Guð blessi minningu hans. Sæm undu r Sigurðsson Hann Helgi Hrafn er dáinn. horfinn frá okkur, langt um aldur fram. Erfitt er að átta sig á þess- ari harmafregn, svo stór og sterk- ur sem hann var — en maðurinn með ljáinn spyr ekki að þvi. -Aðeins fáum dögum áður en hann veiktist kom ég i heimsókn á heimili þeirra hjónanna í Miðtúni 18 og var hann þá léttur og hress eins og jafnan. Alltaf var ánægju- legt að koma á þeirra vistlega heimili, þar sem rikti glaðværð og gestrisni og gott er að ylja sér við endurminningar þeirra stunda. Eg held að Helga mesta gæfu- spor hafi verið þegar hann kvænt- ist minni elskulegu bróðurdóttur, Ingu Rúnu Sæmundsdóttur. Vissi ég að hann kunni vel að meta dugnað hennar og myndarskap. I öllu stóðu þau saman sem einn maður og klufu erfiðleikana hvern af öðrum. Frá brúðkaups- degi þeirra eru nú rúm tuttugu ár liðin, en þó er mér sá gleðidagur í svo fersku minni, sem dagurinn í gær. Helgi var mikill knattspyrnu- maður um árabil. Hann var og mikill bókamaður og eignaðist safn góðra bóka, enda valdi hann sér að lífsstarfi bókbandsiðn og stofnaði síðar eigið fyrirtæki, sem hann rak af miklum dugnaði og eljusemi. Mikla ánægju hafði hann af veiðiskap og ferðalögum og var þá oft leitað á vit hinnar fögru islensku náttúru með fjöl- skyldunni. Þau Rúna og Helgi eignuðust þrjá indæla og efnilega drengi. Elstur er Guðmundur Viðir, bráð- um tvítugur og verður hann stúd- ent i vor. Næstur er Þröstur á 15. ári og yngstur er Sæmundur, ný- lega 12 ára. Þá ósk á ég þeim til handa, að þeir feti í fótspor föður sins á sem flestum sviðum og til- einki sér hans góðu eiginleika, svo sem reglusemina og dugnað- inn. Elsku frænka min — þú átt mikinn fjársjóð, þar sem eru þín- ir góðu drengir og veit ég að þeir verða þér þinn styrkur í miklum harmi og missi. Að endingu kveð ég Helga Hrafn og þakka honum allt gott mér auðsýnt frá fyrstu kynnum og bið honum guðsfylgdar yfir landamærin, og öllum hans syrgj- endum votta ég mína dýpstu sam- úð og bið guð að styrkja þá og leiða í gegnum sorgarskýin. Inga frænka. I dag er til moldar borinn svili minn, Helgi Hrafn Helgason, bók- bandsmeistari, sem ævinlega var kallaður Krummi meðal fjöl- margra vina og skyldmenna. A þessari stundu finn ég svo glöggt, hversu stutt kynni okkar voru og hversu mikils ég hafði í raun og veru vænst af sívaxandi og áframhaldandi vináttu okkar. Eg kynntist honum fyrst að ráði fyrir fimm árum þegar ég kvænt- ist inn í sömu fjölskyldu og hann hafði kvænst inn í fimmtán árum áður. Talaðist okkur þá til, ásamt þriðja tengdasyninum, Birni Ar- dal, lækni, að stofna nokkurs kon- ar hagsmunaklúbb, til að verjast ofríki eiginkvenna okkar. Sá klúbbur starfaði þó aldrei neitt, af skiljanlegum ástæðum, en stutt samvera okkar var æ siðan bland- in léttleika og kímni. Krummi átti til mikið vinarþel og hið einkennandi, geislandi og glettnislega bros hans gat ávallt létt mér lund og af mér hvers- dagslegum áhyggjum. Siðast varð ég þess ógleymanlega bross aðnjótandi er ég heimsótti hann fársjúkan, ásamt Rúnu, eigin- konu hans og mágkonu .minni. Meira að segja þá var hann gefandi og þannig mun ég ávallt minnast hans. 1 minum augum verður hann alltaf glettinn, en góðgjarn, hógvær og traustur vin- ur. Kynni mín af Krumma voru alltof stutt, og þó að máltækið um að enginn viti hvað átt hafi fyrr en misst hafLeigi svo sannarlega við um þau, pá er máltækið ekki einhlítt, því að fljótlega eftir fyrstu kynni sá ég hvern mann hann hafði að geyma og þeim manni vildi ég kynnast og eiga að góðum vini. Mér er orða vant, en mikill er harmur minn og fjölskyldu minn- ar, að fá ekki lengur að njóta samvista við Krumma, svo góður og göfugur sem hann reyndist okkur. Megi björt og fögur minningin um hann ylja harmi þrungnum hjörtum hans nánustu, Rúnu og drengjanna þriggja, systkina hans, tengdaforeldra og allra þeirra annarra, sem í dag sameinast í sorg sinni og eftirsjá. Hermann Sveinbjörnsson. Þann 9. mars barst okkur sú harmafregn að hinn ágæti vinnu- veitandi okkar Helgi H. Helgason, væri látinn. Fyrirvaralaust og öll- um á óvart féll þessi hrausti mað- ur niður og eftir stutta en erfiða baráttu á Borgarspítalanum lést hann þar. Helgi stofnaði bókbandsst. Bók- bindarinn fyrir um 12 árum. All- an þann tima hafa samskipti hans við starfsfólkið verið honum til sóma. Hann var mjög viðræðugóð- ur maður og vildi alltaf öllum vel. Okkur er því bæði ljúft og skylt að þakka þessum gæðamanni fyr- ir ánægjuleg og þroskandi kynni. Erfitt er að trúa því að Helgi sem bæði var heilsugóður og reglu- samur skuli vera horfinn héðan svo snögglega á besta aldri. En erfiðast og sárast er þó hjá eigin- konunni Ingu Rúnu og sonunum þrem, Guðmundi, Þresti og Sæ- mundi litla, sem nú hafa misst sérstaklega nærgætinn og góðan heimilisföður. Við sendum eiginkonu, sonum og öðrum ættingjum innilegustu samúðarkveðjur og vonum að minningin um góðan mann muni styrkja þau í þeirra miklu sorg. Starfsfólk Bókbindarans. Afmælis- og minningar- greinar ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verð- ur grein, sem birtast á I mið- vikudagsblaði, að berast í síð- asta lagi fyrir hádegi á mánu- dag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera I sendibréfsformi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu lfnubili. t Þökkum öllum sem auðsýndu okkur samúð og vinarhug við fráfall og útför, GUÐJÓNS GUÐJÓNSSONAR. frá Kaldbak, Systkini og aðrir vandamenn. t Maðurinn minn, JÓHANN ÞORSTEINSSON, frá Berustöðum, fyrrum kennari andaðist að heimili slnu Suðurgötu 1 5. Hafnarfirði hinn 1 6 marz. Astrid Þorsteinsson. Eiginmaður minn t andaðist 13. þ.m. ÓSKAR GUÐNASON. prentari, Hávallagötu 55, Jarðarförin fer fram frá Frlkirkjunni. fimmtudaginn 18 þ m kl 3 Guðný Pálsdóttir. t Móðir min, tengdamóðir og amma, MARGRÉT f. GUÐMUNDSDÓTTIR, frá Vestmannaeyjum, Longuhllð 23, Reykjavfk verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 1 8 marz kl 1:30 Þorfinnur Óli Tryggvason, Alda Berg Óskarsdóttir og börn. Útför eiginmanns míns, JÓNASAR GUÐMUNDSSONAR, verzlunarstjóra, Háaleitisbraut 51 fer fram frá Dómkirkjunni, fimmtudaginn 1 8 marz klukkan 1 3 30. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeir sem vildu minnast hans, er bent á Slysavarnarfélag Islands Fyrir hönd vandamanna, Marla Friðleifsdóttir. t Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi ASMUNDUR ASMUNDSSON bakarameistari Drápuhlfð 20 sem lést 1 1 þ.m. verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 19. marz kl 13.30 Þeim sem vildu minnast hans er bent á K.F.U.M. Kristniboðið I Konsó eða aðrar hjálparstofnanir Gróa Jafetsdóttir böm, tengdabörn og barnaböm. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall eiginkonu minnar, dóttur okkar og systur. RAGNHEIÐAR KONRÁÐSDÓTTUR. hjúkrunarkonu. Skúli Matthlasson og synir, Júliana Jóhanna Guðlaugsdóttir, Konráð Guðjónsson og Guðlaugur Konráðsson. t Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför móður okkar MARGRÉTAR ÞORLEIFSDÓTTUR, Brautarholti, Hofsós. Elfn Ólafsdóttir. Eggert Ólafsson. t Alúðarþakkir fyrir samúð og hlýhug við fráfall og útför SÉRA KRISTINS STEFÁNSSONAR, f.v. áfengisvarnaráðunauts. Dagbjört Jónsdóttir, böm, tengdabörn og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.