Morgunblaðið - 17.03.1976, Síða 28

Morgunblaðið - 17.03.1976, Síða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 17. MARZ 1976 Á hættu- slóðum í ísraelS “re Sigurður Gunnarsson þýddi egg mýflugnanna. Sumir í hópnum uróu sjúkir og einn dó. En það ríkti enn friður í landinu og það skipti mestu máli. En svo gerðist það dag inn, að tveir Arabar komu til okkar. Þeir voru ríðandi á úlföldum og vildu ekki fara af baki. En þeir sögðu að þeir ættu þetta landsvæði okkar og hefðu þaö skjalfest. Og þess vegna kröfðust þeir að við færum þegar í stað. Við höfðum keypt landið, en sá sem seldi það átti það ekki. Það kom í ljós, aö mennirnir höfðu aö nokkru á réttu að standa. Sá sem hafði selt þeim landið, var leiguliði, en eig- andinn bjó í Damaskus. Hann hafði frétt um söluna, en látið kyrrt liggja, þangað til hann heyrði að við værum komnir og COSPER ------------\ V_______________________/ farnir aö rækta landið. Og nú vildi hann fá það á ný.Dómstóll tók málið til meó- feðar, lögreglan skarst í leikinn og okkur var borið á brýn, að vió hefðum rænt landinu. En við vildum ekki flytja. Hvert áttum við eiginlega að fara, — tuttugu ungir menn frá átján löndum, og allir foreldralausir? Viö áttum ekkert hús til að búa í. Við höfðumst viö í tjöldum, sem við gerðum úr umbúðastriganum, sem við vorum fluttir í, þegar við komum hingaö. Steinhús voru í smíðum hjá okkur og sumum aö mestu lokið. Á miðri landareigninni var stórt steinhús, sem við hugsuðum okkur að nota sem vígi, ef ófriður kynni að brjótast út vió Araba. Sumir okkar höfðu kvænzt og eignazt börn, og þau höfðum við í steinhúsinu stóra. Þannig leið eitt ár. En svo dundi ógæf- an yfir. Við höfðum alltaf menn á verði, en það var tilgangslaust í þetta sinn, við vorum svo fáir. Arabar komu fjölmennir og geystust fram eins og fellibylur, sumir voru á úlföldum, en aðrir fótgangandi. Þrír okkar voru drepnir, hinum tókst að flýja með börnin sem voru tvö. En nokkrum nóttum seinna komum viö aftur Þá höfðum við fengið mikilvæga hjálp og m.a. góð vopn. Við náðum landareign okkar á ný. Þetta var land- svæðið okkar. — hér höfðu forfeður okkar búið fyrir þúsundum ára, og við höfðum keypt og borgað þetta land. Það var að vísu hægt að reka okkur burt, en við komum aftur. Eftir þetta byggðum við fleiri steinhús. Við unnum á daginn með byssu um öxl og héldum vörð um nætur. En svo brauzt stríðið út, — frelsisstríðið — og þá var ég að vera fullorðinn var einmitt 17 ára gamall. Þetta var árið 1948. Óvinirnir umkringdu okkur og við vorum lengi matarlaus höfóum hvorki vott né þurrt. Tilfinnanlegast var þaö þó að sjálfsögðu vegna barnanna, sem oft báru sig illa og grétu sáran af sulti. Við vörðumst í stein- húsunum og héldum út, þangað til hjálp- in barst og friður var saminn. Við áttum landið. En héðan geturðu séð, að það voru aðeins nokkur hundruð metrar til landamæranna. Míron hafði staðið á fætur og bent í áttina. Óskar stóð líka upp, en hann sagði ekki neitt. óg ekkert þeirra mælti orð af vörum. Skömmu seinna settust þau upp í Æ, hjálpi mér Guð. — Ég er komin með þráðinn úr botn- langaskurðinum þfnum. Við erum ekki beinlfnis trúlof- uð, — cn f gildi eru á milli okkar 10 daga vináttutengsl. Eins og stendur er fjárhagur fyrirtækisins mjög þröngur og ekki horfur á að þú fáir launa- hækkun. Tommi litli kom heim eftir fyrsta daginn f skólanum. Mamma hans: — Jæja, Tommi minn, hvernig féll þér við kennarann, heldurðu ekki að þú getir lært mikið af hon- um? Tontmi: — Nei, áreiðanlega ekki, hann þurfti alltaf að spyrja mig. X Hún: — Ætlarðu ekki að fara að gifta þig, frændi? Hann: — Nei, sú kona, sem vildi eiga min, væri mjög heimsk, en heimska konu vil ég ekki eiga. X Kerlingin: — Þú segir það Gunna mfn, að Guð hafi skap- að þig, en þú átt eftir að sanna það kindin mfn. — Hefurðu heyrt það, hann Arni vinur okkar gekk f her- inn og liggur nú særður á spft- ala. Þegar hann særðist hróp- aði hann: „Hjálp, hjálp, kúlan lærbraut mig.“ Jóni, sem var þarna nærstaddur, þóttu hljóð- in heldur mikil og sagði: „Veinaðu ekki svona hátt mað- ur, meira særðist hann Andr- és. Þeir skutu af honum haus- inn, og þó kvartaði hann ekki.“ X — Konan mfn fer með ákaf- lega erfitt hlutverk f leiknum. sem verið er að leika hérna núna. — Erfitt? Ég heyrði hana ekki segja eitt einasta orð. — Já, það er einmitt það, sem er svo erfitt fyrir hana. V J Arfurinn í Frakklandi Framhaldssaga eftir Anne Stevenson Jóhanna Kristjónsdóttir þýddi 20 heimílislegra. Svo að íbúðar- álman er öðruvfsi innréttuð. Þar höfum við sjónvarp og Nicole heimlaði vitanlega að fá að hafa plötuspilara sem aldrei þagnar. Og þar hef ég skrifstofur mínar. Leiðist yður? Viljið þér að égsvni yður garðinn? — Hvernig gæti mér leið/.t, sagði David. Marcel hló við. — Ég vett að mörgum finnst hundleiðiniegt að skoða þetta. Ég veit ég á ekki alltaf að miða við sjálfan mig. Þegar þeir gengu út og eftir flötinni leit David uni öxl og sá þá systkinunum bregða fyrir á svölunum. Þau stóðu eins ogstytt- ur og horfðu heint i áttina til þeirra. Tvö Iftil rik börn f finum fötum og ólundin iýsti af þeim langar leiðir. Þó var eins og þau horfðu á þá með gremju eða var eitthvað annað falið í andlitssvip þeirra? — Ég þekkti þessa höll, þegar ég var drengur, sagði Marcel. — Ég fór iðulega hjólandi hingað og sat í leiðslu og horfði á hana úr fjarla-gð og lét mig dreynia um það þegar sú stund rynni upp að ég væri orðinn eig- andi hennar. Sem þeir gengu eftir grasflöt- inni fannst David sem spennan ykist á milli þeirra eins og ein- hver tengsl væru sem hann gat þö ekki gert sér grein fvrir hver væru. — Þeir eru svipaðir á hæð, sagði Nicole á svölunum. — Én þeir hafa ólíkt göngulag. Helen kom út til þeirra og hélt á kaffibolla í höndinni. Hún horfði einnig á mennina tvo. — Éjarlægðin villir manni sýn, finnst vkkur ekki, sagði hún. — Það virðist vera eitthvað ósýni- legt band ámilli þeirra. — Af hverju komstu með hann, sagði Paul. — Ég kom ekki með hann, sagði Ilelen hvatskeytlega. — Marcel hað mig um að ná í hann. — 0, guð minn almáttugur, sagði Nicole og sneri sér snögg- lega frá. — Þetta er svoddan tímasóun. Paul. Hvers vegna í ósköpunum ertu að skevta um þetta Paul. — Sagði ég þér ekki að halda þér saman. hvæst i Paul. — Æ, góði slappaðu af. Vertu ekki svona alvörugefinn. Ég hef ekki sagt eitt einasta orð. En ég býst ekki við að það þýði að vera -neð þessi látalæti öllu lengur. Ilún Ivfti hendinni eins og til að verjasig. — Svona farðu ekki að öskra á mig. Ég ætla að fara og róa inömmu. — Það er ekkert sérstakt sem amar að móður þinni, eða hvað sagði Helen spvrjandi. — Það ga-ti verið núna. Hún skcllti svaladyrunum harkalega á eftir sér. Helen tók aftur upp kaffiboll- ann sinn og færði sig na>r Paul. — Hvað á þessi geðshræring að þýða? — Ékki ncitt. Hann reyndi að brosa til hennar. — Þú vei/t hvernig Nicole er. Hún þarf alltaf að vera að setja eitthvað á svið. Ilelen haliaði sér fram á svala- handriðið. — Én hvað er einkennilegt að sjá þá saman, Marcel og David. Það er eins og þeir hafi þekkzt árum saman. — Utlit, eins og þú sagðir — getur verið svikult og villt manni sýn, flýtti Paul sér að segja. David og Marcel væru komnir niður í fjarlægasta hornið í garð- inuin. David andaði að sér ilminum af blómum sem þarna voru i ótrúlegu litaskrúði. '— Þetta er eftirlætisstaðurinn minn, sagði Mareel. — Héðan er tilkomumikið að sjá til hallar- innar — eins og í mvndaramma. — Ég óska vður sannarlega til hamingju nuH) þetta allt, sagði David. — Þér hafið skapað mikið listaverk. Hann sá að Helen var að tala við Paul á svölunum. Nicole var farin inn. Marcel tók við óskum hans með höfuðhneigingu. — Slikan stað vildi ég eftirláta syni mínum, sagði hann. — Ef ég a'tti son. — Þér hafið aldrei kvænzt? — Nei. Ég hef aldrei hitt kven- mann, sem ég var ekki orðinn leiður á eftir vikuna. David sagði næstu setningu án þess að hugsa og hrökk í kút þegar hann uppgötvaði hvað hafði sloppið út úr honum. — A það einnig við um Helen Stewart? Marcel brosti. — Svo að þér hafið hrifist af henni. Veslings Nicole! — Nicole? — Frænka mín hefur ágirnd á yður, hafið þér ekki tekið eftir þvi, en hún er svo ung að henni hefur ekki lærzt listin. Þér haldið að ég eigi einhverja von hjá Mlle Stew art? — Ég bið innilega forláts. Ég hefði ekki átt að segja þetta. Það

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.