Morgunblaðið - 21.03.1976, Síða 7
Fyrir hálfum mánuði
minntist ég á eðli og inntak
föstunnar i lútherskum sið, að
kirkjan mælti sterklega með
því að fólk legði þá meira að
sér en ella til að miðla þeim,
sem liða nauð. En fastan er
jafnframt hinn rétti tími til að
ihuga þá staðreynd, að lífið
er ekki neinn dans á rósum,
það á marga dimma dali og
ýmsa erfiðleika, sem við þarf
að glíma.
Það segja sumir, að trúar-
brögð séu bara ópíum fyrir
fólkið, en slíkt hljómar barna-
lega í eyrum þeirra, sem
þekkja einlægt trúarlíf.
Einmitt hin kristna trú hefur
ýmislegt að segja við þá, sem
heyja sina baráttu við erfið-
leikana, og ekki síst af því að
Kristur reyndi svo mikið af
sliku sjálfur. Og það, sem
hún hefur að segja hefur
síður en svo reynst nokkuð i
ætt við deyfilyf.
Kristindómurinn er i
rauninni bæði fæddur i
erfiðleikum og mótaður af
þeim. Og Kristur bjó læri-
sveina sina undir það, að
erfiðleikar mættu þeim.
Kristinn maður hlýtur þvi að
horfast beint i augu við erfið-
leikana. Hann veit, að hann
verður að vera við því búinn
að sigla þungari sjó. En hann
veit ekki síður hitt, að hann er
ekki einn á ferð Með honum
stendur við stjórnvölinn sá,
sem á hina öruggu hjálp, sá
sem sjálfur sigraði alla erfið-
leika, einnig sjálfan
dauðann Kristindómurinn
er því síst af öllu leiðin fram
hjá erfiðleikunum. Hann er
leiðin í gegnum þá.
Við þekkjum öll orð, sem
Jesús mælti eitt sinn:
,,Komið til mín allir þér sem
erfiði og þunga eruð hlaðnir,
og ég mun veita yður hvíld.
Takið á yður mitt ok og lærið
af mér, þvi að ég er hógvær
og af hjarta lítillátur og þá
skuluð þér finna sálum yðar
hvíld, því að mitt ok er indælt
og byrði mín lett."
bera
byrðar
fyrir tvær fötur, tvær byrðar,
okkar og einhvers
annars.Reynum aðtaka líka
undir hjá einhverjum öðrum
helst þeim sem eru að kikna
og þurfa mest á hjálp að
halda Þá munum við finna
best af samanburðinum að
okkar byrðar eru ekki
erfiðastar Við höfum ekki
mesta ástæðu til að kvarta.
Við getum því verið hógvær
og af hjarta lítillát.
Jesús beinir huga okkar
frá eigin vandamálum til
annarra manna, sem bera
jafnvel enn þyngri byrðar, og
vill virkja okkur til átaka með
þeim. Og það er staðreynd,
að ef tekst að vekja kærleika
og samúð til meðbræðranna,
sem einnig líða, þá gengur
oft betur að létta þær byrðar,
sem á eigin herðum hvíla.
Annað getum við einnig
lært af fordæmi Krists, en
það er að gera erfiðleikana
sjálfa að skapandi afli. Þegar
þeir birtast, þá ber að takast
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. MARZ 1976
Gefið
nytsamar
fermingargjafir
ÚRVAL AF
HLIÐARTÖSKUM —
FERÐATÖSKUM —
SKJALATÖSKUM
HANZKABÚÐIN SKOLAVÖRÐUSTlG 7 — SlMI 15814
Þetta er ekki boð um að
hvílast í ró og friði, laus við
allt andstreymi. Þetta er boð
Krists um að læra af honum
að bera byrðar.
Okið var algengt tæki á
tímum Jesú, notað bæði á
dýr og menn. Það var notað
til að létta dráttardýrunum að
draga plóginn og við
þekkjum það einnig sem
vatnsbera, ok til að bera í
vatnsfötur.
En hvernig bar Jesús
byrðar sinar? Hann lýsir þvi
sjálfur: í hógværð og lítillæti.
í auðmýkt og trausti Hann
æðrast ekki, en tekur með
rósemi og guðstrausti þvi
sem að höndum ber. Þannig
gengur allt best Þannig mun
okkur líka ganga best.
Og við skulum íhuga eitt
enn. Okið, vatnsberinn er
á við þá í trausti á æðri hjálp
og láta baráttuna við þá skila
ágóða, láta þaðjafnframt
sýna sig, hve máttur Krists
getur orðið mikill i lífi trúaðs
manns.
Öll áreynsla skilur eftir
verðmæti. Stephan G. sagði:
„Færar herðar þroskar örðug
byrði."
Það verður enginn neitt,
nema hann takist á við eitt-
hvað. Eftir Davíð Stefánssyni
er betta haft:
„Að bera eitthvað þungt,
það er að vera."
Páll postuli skrifar úr
fangelsinu i Róm, aðfjötrar
sínir og þjáning hafi orðið
fagnaðarerindinu til eflingar.
Slíkt var ekki sjálfsagður
hlutur. En með Guðs hjálp
tókst Páli að láta svo verða.
Og þetta er það, sem fjölda
fólks tekst enn í dag. Úr sorg
og andstreymi vinnur það
andlega hæfileika og kraft,
sem gerir það enn sterkara
og hæfara öðrum mönnum til
hjálpar. Slíkt heitir að gera
erfiðleikana að skapandi afli.
Jesús gerði það sjálfur við
krossinn.
Það er sjaldgæft að við
ráðum okkar eigin reynslu.
En með Krists hjálp eigum
við að geta ráðið, hvað
kemur út úr þeirri reynslu,
sem á okkur er lögð
Það þarf oft, ásamt traust-
inu á hjálp Krists, ótrúlega
bjartsýni og mikla þraut-
seigju til að leggja til atlögu
við erfiðleikana. En þar sem
þetta er fyrir hendi, mun sig-
ur vinnast.
Grundvallaratriðið er og
verður Jesús Kristur, og lát-
um föstutímann með öllum
blæbrigðum myndrikrar
frásagnar sinnar af pínu og
dauða hans færa okkur heim
sanninn um þá óstöðvandi
sigurgöngu sem hver sá fer
er fylgir fordæmi Krists og
treystir á hjálp hans í
baráttunni við erfiðleikana.
ÁL-GRÓÐURHÚS
60611] fyrír heimagarða
8 X 10 fet. Áætlað verð kr. 72.000
8X12 fet. ÁætlaS verð kr. 79.000
Sjálfvirkir hitablásarar
2500 wött kr. 13.790
3000 wött kr. 15.125
Ál-sólreitir / blómakassar,
Stærðir122 X 70 cm.
kr. 7.700
Hillur 122 cm. kr. 1.750
Borð 244 cm. kr. 12.500
f fyrra seldust EDEN húsin upp, enda verðið hvergi
lægra. Nú erum við að fá nýjar sendingar til afgreiSslu
af lager I þessum mánuði. Vegna góSrar samvinnu viS
framleiðendur getum við boðiS óbreytt verð frá s.l.
ári.
Við ráðleggjum kaupendum að hafa samband við okkur
strax og tryggja sér hús, en s.l. sumar seldust húsin
jafnóðum og urðu allmargir að blða næstu sendinga.
KLIF
Vesturgötu 2, Reykjavlk
Sími 23300 til kl. 7 e.h.
autoheat
FOR ACCURATE GREENHOUSE HEATING
Hef opnað
tannlækningastofu
í Garðabæ
viðtalstímar eftir samkomulagi, alla virka daga.
Ómar Konráðsson, tannlæknir,
Sunnuflöt 41, sími 42646.