Morgunblaðið - 11.04.1976, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. APRÍL 1976
15
Wiliam Francis
Pálsson 80 ára
Willi Frans verður áttræður á
morgun þann 12. apríl. Hann er
fæddur að Halldórsstöðum í
Laxárdal, S-Þing. Foreldrar hans
voru hjónin Páll Þórarinsson og
Elisabeth Grant (Lizzie).
Willi varð snemma sérstakur i
sinni röð, undi takmarkað við
búskap en drakk þeim mun betur
í sig allan þann fróðleik sem lá
mjög á lausu í Laxárdal meðal
bænda og skozkra frænda sem
voru tíðir gestir í dalnum.
Sé til algjör einstaklingshyggju-
maður á Islandi, þá er það Willi.
Því er ekki að undra þótt hann
færi út i „business".
Eftir að hafa verið heima á
Halldórsstöðum sín bernsku- og
táningaár gerðist hann verzlunar-
maður hjá A & P. Kristjánsson á
Húsavík. Þaðan lá leiðin til Skot-
lands.
I Skotlandi bjó hann hjá afa
sínum og ömmu, vann hjá dönsku
fyrirtæki sem átti skipti við
ísland og nam verzlunarfræði.
Að lokinni Skotlandsdvöl kom
hann við í Reykjavík, þar vann
hann verzlunarstörf, lengstum
hjá Fritz Kjartansson og Co^, en
einnig hjá Nathan & Olsen.
Hið ljúfa líf í Reykjavík átti
einhvern veginn ekki við Willa og
þrátt fyrir stóran vina- og
kunningjahóp, ágæt efni og
ánægju af þvi að lifa og vera til,
sneri hann aftur til Laxárdals.
Willi var um þrítugt þegar
hann kom aftur heim og var sem
gustur færi þar um hérað.
Eftir heimkomuna sneri hann
sér jöfnum höndum að búskap og
„business“. Um tíma stýrði hann
búi föður síns að Halldórsstöðum.
Willi ferðaðist mikið um öræfi
Islands. Byrjaði það snemma er
hann gætti sauða föður síns á
Mývatnsöræfum og siðar þegar
hann var leiðsögumaður erlendra
ferðamanna í náttúruskoðun.
Willi hefur alla tið verið áhuga-
maður um náttúrufræði og aflað
sér um hana staðgóðrar
þekkingar af bókum, ásamt eigin
athugunum og viðskiptum við
erlenda náttúrufræðinga. Hann
er áhugamaður um eflingu
náttúrugripasafns í sinni heima-
byggð og hefur stutt það af alúð
með mikilsverðum gjöfum og á
trúlega enn eftir að koma þar við
færandi hendi.
Sjálfsagt eru fáir menn á miðj-
um aldri í Suður-Þing. sem ekki
hafa átt eitthvað fatakyns frá
Willa. Hann flutti inn, að mér
fannst á unga aldri, allt sem nöfn-
um tjáir að nefna. Vefnaðarvara
var hans sérgrein í innflutningi,
einkum á árunum 1930 til 1945.
Ur og hvers konar skartgripir frá
Willa voru vinsælir. Ekki lét
hann sér nægja innflutning
eingöngu, hann hefur flutt út
bæði hrogn og lýsi ásamt öðru, en
eggjaútflutningur hans er mjög
sérstæður.
Faðir hans byrjaði þann út-
flutning en Willi tók fljótlega við
honum. 1 áratugi hefur hann stað-
ið í bréfaskiptum við fjölda
erlendra náttúrufræðinga,
náttúrufræðistofnanir og bú-
SAPAFRONT + ál-forma-kerfið (profilsystem) er hentugt bygg-
ingarefni fyrir íslenzkar aðstæður. Einangraðir álformar í út-
veggi, glugga og útihurðir. Óeinangraðir álformar innanhúss.
Utlitið er eins á báðum gerðunum. í sérstökum leiðbeininga-
bæklingi eru upplýsingar um burðarþol, varmaleiðni og hljóð-
einangrun álformanna, ennfremur vinnuteikningar, sem léttir
arkitektinum störfin. Ál-formarnir eru rafhúðaðir i ýmsum
litum. Lagerlitir eru: Natur og KALCOLOR amber. Hurðir og
glugga úr ál-formum þarf ekki að mála, viðhaldskostnaður er
því enginn.
Byggingarefni framtíðarinnar er SAPAFRONT +
ÁLFORMA - IIANDRIÐ
SAPA — handriðið er hægt að fá í mörgum mismunandi
útfærslum, s.s. grindverk fyrir útisvæði, íþróttamannvirki o.fl.
Ennfremur sem handrið fyrir veggsvalir, ganga og stiga.
Handriðið er úr álformum, þeir eru rafhúðaðir í ýmsum litum,
lagerlitir eru: Natur og KALCOLOR amber.
Stólparnir eru gerðir fyrir 40 kp/m og 80 kp/m.
Með sérstökum festingum er hægt að nota yfirstykkið sem
handlista á veggi.
SAPA — handriðið þarf ekki að mála, viðhaldskostnaður er þvl
enginn eftir að handriðinu hefur verið komið fyrir.
Gluggasmiðj an
Gissur Simonarson Siðumúla 20 Reykjavik — Simi 38220
garðseigendur um þessa hlið við-
skipta sinna.
Það eru einkum dýragarðar i
U.S.A., Bretlandi, Þýzkalandi,
Frakklandi, Hollandi og Japan,
sem kaupa eggin og láta þau í
útungunarvélar. Ennfremur eru
auðugir búgarðseigendur sem
kaupa egg til útungunar og sleppa
þeir síðan ungunum fullvaxta á
jarðeignum sínum, skotglöðum
gestum til ánægju.
Eftir þvi sem árin hafa liðið
hefur fækkað þeim tegundum
eggja, sem flytja má út og þegar
Willi hættir fellur þessi arðvæn-
iegi útflutningur niður með öllu.
Willa er fátt óviðkomandi á við-
skiptasviðinu en það telur hann
eina sina hörðustu raun, þegar
hann var beðinn að útvega ensk-
um náttúrufræðingi nokkrar
tylftir af íslenzkri lús. Þetta var
eftir að hún fannst ekki á hverj-
um bæ. Hann heimsótti nokkra
bæi sem voru liklegir en varð
fremur óvinsæll þegar hann
falaðist eftir því, sem aðeins var
fyrir næturgesti. Öllum sinum
viðskiptum stjórnar Willi með
bréfaskriftum að heiman og láta
mun nærri að hann hafi hand-
skrifað um 1000 bréf á ári til
jafnaðar síðastliðinn 50 ár.
Willi er forfallinn safnari og á
gott safn frímerkja, myntar og
bóka auk annars. Hann hefur
verzlað með frímerki svo lengi
sem hann man eftir sér en fyrst
og fremst safnar hann peningum.
Hér áður fyrr keypti hann oft
frimerki i einu landi og seldi til
annars án þess að sjá þau
nokkurn timann, það var gert
með bréfaskiptum.
Hann liggur ekki á fé sinu, er
gjafmildur þegar þannig liggur á
honum og sker þá ekkert við nögl.
Meiri höfðingja er vart hægt heim
að sækja.
Þó Willi eigi heilt kvenfélag
hefur hann aldrei gifzt og þar
með náð lengst í sinni einstakl-
ingshyggju.
Hann bjó í foreldrahúsum
ásamt bróður sínum, Þór. Eftir lát
þeirra bjuggu þeir bræður á
Halldórsstöðum og annaðist Þór
Framhald á bls. 26
mmmm
■ SKEIFUNNI 15i ISÍN
SKEIFUNNI15MSIMI 86566
FERMINGARSKOKKAR
Fallegir og þægilegir flauelsskokkar.
Rósóttir meö grænum, brúnum eöa
svörtum grunnlitum. Verö 4.900.—
Einlitir: brúnir, rústrauöir, dökkgrænir
og beige. Verö 5.500.—
o