Morgunblaðið - 11.04.1976, Side 48

Morgunblaðið - 11.04.1976, Side 48
Al'(iI,YSINí;ASIMINN KR: 22480 ítlargunblníiiö SUNNUDAGUR 11. APRlL 1976 Óvíst um greiðslur af saltfiski Morgunblaðið hafði samband við Davfð Olafsson seðlabankast jóra í gær og spurði hann hvort búið væri að ákveða greiðslur í verð- jöfnunarsjóð af nýgerðum salt- fisksamningi. Davíð sagði, að enn hefði ekki verið tekin ákvörðun um það. Enn væri ekki séð hvort verð það sem fengist fyrir saltfiskinn stæði undir greiðslum i verðjöfnunar- sjóð, en hins vegar lægi það skýrt fyrir að ekki yrði greitt úr sjóðn- um til saltfiskframleiðenda. Að sögn Davíðs miðast greiðslur úr og í sjóðinn við visst viðmiðunar- verð. Ef verðið færi yfir það væri greitt í sjóðinn, en ef afurða- verðið væri undir því, væri greitt úr sjóðnum. Hafís tefur för Olwen 200 manns vilja 60 íbúðir hjá Einhamri BYGGINGARFELAGIÐ Einhamar s.f. mun hefja byggingu á þrem fbúðarblokkum f Hólahverfi f Breiðholti f næsta mánuði. Búist er við að blokkirnar verði með álfka mörgum íbúðum og þær sem fyrirtækið byggði við Austurberg á s.l. ári en þær eru 61. Einhamri hefur ávallt tekist að byggja mjög ódýrt og afhent tilbúnar fbúðir 30% undir byggingarvfsitölu. Til marks um vinsældir fbúða félagsins má geta þess, að um mánaðamótin febrúar-marz voru um 200 manns á biðlista sem umsækjendur eftir fbúðum hjá fyrirtækinu. Gissur Sigurðsson, fram- kvæmdastjóri Einhamars, sagði í samtali við Morgunblaðið, að þeim Einhamarsmönnum fyndist undarlegt að opinber fyrirtæki eins og framkvæmdanefnd Verkamannabústaða gæti ekki byggt jafn ódýrar íbúðir og Ein- hamar, þar sem opinber fyrirtæki hefðu mikið fjármagn úr hinum ýmsu sjóðum, byggðu yfirleitt margar íbúðir í einu, þannig að hægt væri að fá mjög hagstæð tilboð og um miklar endur- tekningar væri að ræða i smiðun- um. Gai Gissur þess að í byrjun maí yrði flutt inn í fyrstu verka- mannaíbúðirnar í Breiðholti 2, en byrjað hefði verið á sáma tíma á húsum Einhamars við Austur- berg, og fyrsta fólkið hefði flutt þar inn í maí í fyrra, þ.e. ári á undan. Gissur sagði að verð á 4 herb. ibúðum í Verkamannabústöðun- um væri að sögn um 7 milljónir króna, en Einhamar hefði afhent hliðstæðar íbúðir í fyrra á tæplega 4,4 millj. króna og væri verðmismunurinn því yfir 65%. Framhald á bls. 26 Ljósm.vnd ÓI.K.M. BREZKA BIRGÐASKIPIÐ Olwen átti í miklum erfiðleikum með að komast að fsröndinni norður af landinu eftir hádegi f gær og var þá óvfst hvort skipið kæmist það nálægt henni, að þyrla frá skipinu gæti sótt norska sjómanninn, sem er mikið slasað- ur um borð f selveiðiskipinu Harmöy, áður en dimmdi. Skip- herra Olwens sagðist ætla að reyna komast nær fsnum og þvrl- an yrði send á loft við fyrsta tæki- færi. Herkules vél frá Varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli fór um hádeg- isbilið í gær í átt að Hamröy. Fór vélin með lyf handa hinum slasaða og átti að henda þeim nið- ur á isinn. Hannes Hafstein framkvæmda- stjóri Slysavarnarfélagsins sagði, að ákveðið væri að Olwen héldu með sjúklingin í átt að Jan Mayen og myndi þyrlan fljúga með manninn þangað um leið og skip- ið væri komið það nálægt eynni, að þyrlan hefði flugþol þangað. Björgunarflugvél frá Noregi var send til Jan Mayen í gær og á að bíða eftir að komið verði með þann slasaða þangað. Kilóið af þorsk- hrognum á 200 kr. MIKILL skortur virðist nú vera á sykursöltuðum þorskhrognum á heimsmarkaði og bjóða sænskir kaupendur og umboðsmenn þeirra hér á Islandi allt að 200 krónur fyrir kílóið upp úr bát. Verð það sem Verðlagsráð sjávar- útvegsins gaf út er hins vegar um 85 krónur fyrir kflóið. Af þessum sökum eiga íslenzkar niðursuðu verksmiðjur f miklum erfiðleik- um með að kaupa hrogn, þar sem hráefnisverðið er þeim ofviða. Þorsteinn Jónsson hjá Kiskiðj- unn Artie á Akranes; sagðí í sam- tali við Morgunblaðið í gær, að undanfarið hel'ðu þeir verið að sjóða niður þorskhrogn, sem væntanlega færu á Englands- markað. Þeir væru nú búnir að sjóða niður 40—50 tonn eða 12 þúsund kassa, en í hverjum kassa eru 24 dósir. — Þetta gengur samt I landsliðsflokki eru 12 keppendur, þar af allir þeir sem voru í fjórum efstu sætunum í fyrra, með sjálfan Islandsmeist- arann Björn Þorsteinsson í farar- broddi, en síðan þá Júlíus Friðjón«son, Margeir Pétursson og Hauk Angantýs'-on Attk þeirra keppa Helgi Ölafsson, Ingvar ekki nógu vel, þvi hráefnisskort- ur hrjáir okkur. Fyrst og fremst stafar hann af litlum afla bátanna og síðan af háu verði fyrir hrogn- in, sem erlendir kaupendur bjóða, en þeir bjóða um 200 krónur fyrir kílóið af hrognunum. Að sögn Þorsteins hefur fengist gott verð fyrir niðursoðin hrogn í Engiandi til þessa, en um áramót hækkuðu innflutningstollar þar og verður sífellt erfiðara að mæta- tollahækkuninni. Þá sagði hann, að undanfarin ár hefðu þeir soðið niður allmikið magn af kavíar, sem selt hefði verið til V- Þýzkalands og Frakklands, en nú væru innflutningstollar þar komnir yrir 30%, þanníg að ekki þýddi að eiga við útflutning þang- að lengur. Þessi háu tollar myndu ekki breytast fyrr en bókun sex tæki gildi. Að vísu ságði hann að verið gæti að A-Þjóðverjar keyptu Asmundsson, Bragi Halldórsson, Þórir Ölafsson, Jónas P. Erlings- son, Asgeir Þór Árnason og skák- meistari Akureyrar, Gylfi Þórhallsson. Einnig keppa 12 inenn i áskorendaflokki, en sá flokkur er nýmæli á skákþinginu og eru þar Framhald á bls. 26 eitthvað magn af kaviar af Islend- -ingum á næstunni, en ekki væri búið að semja um magn eða verð. Bíómyndin sem hvarf LÖGREGLAN fær stundum einkennilegar óskir og ein slfk barst í fyrrakvöld, þegar hún var beðin að svipast eftir bíó- mynd. Flutningabifreið var að koma frá Sauðárkróki á föstudagskvöld, og þegar hún var komin í grennd við Laxá í Kjós vildi það til að ýmiss konar dót á palli bifreiðarinn- ar fauk af í rokinu. Þar á meðal var kvikmynd, sem hafði verið til sýninga i Sauðárkróksbíói. Ökumaður- inn varð þess hins vegar ekki var fyrr en til Reykjavíkur kom, og gerði hann þá lögregl- unni aðvart. Um svipað leyti kom hins vegar ökumaður sendiferðabif- reiðar á lögreglustöðina og hafði hann bíómyndina góðu meðferðis. Maðurinn hafði verið í bil sínum næst á eftir flutningabílnum og orðið þess var þegar eitthvað fauk af henni. Náði hann biómyndinni og kom henni til skila hjá lög- reglunni. Ekki tókst okkar að hafa upp á því hvaða mynd var þarna um að ræða, en stórmynd mun það hafa verið og þar af leiðandi verulegir fjármunir í henni fólgnir. r A annað hundrað þátt- takendur á skákþingi A anr.að hundrað manns munu taka þátt í Skákþingi Islands, sem nýlega er hafið. Þriðja umferðin var tefld í gær í landsliðsflokki og áskorendaflokki, en keppni hófst I fyrradag I meistaraflokki og opnum flokki. Þá hófst einnig keppni f kvennaflokki f gær og einnig innritun keppenda i unglingaflokki, þar sem búist er við mikilli þátttöku.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.