Morgunblaðið - 11.04.1976, Side 16

Morgunblaðið - 11.04.1976, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. APRÍL 1976 UMHVERFISMÁLH Æ, nú fór iDa! Borgin er að sökkva! Það er nú komið upp úr kafinu, að miðbærinn i Mexikóborg er að sökkva. Hann hefur reyndar verið lengi á niðurleið. Sums staðar hefur hann lækkað um rúma sex metra frá siðustu aldamótum. Dæmi um fall Mexíkóborgar er listasafnið. Það var byggt 1911 og er nú 2.5 metrum neðar en þá. Annað dæmi er dómkirkjan. Fall hennar er svipað og listasafnsins en auk þess mismikið, þvi annar endinn á henni stendur2.1 metra ofar en hinn og sígur sá neðri um þumlung á ári. Fjölmargar aðrar byggingar hafa sigið svona og DÓMKIRKJAN sporðreisast. Hún er að missigið. Veggirnir og gólfin i þeim springa og molna og er þetta áþekkast stöðugum jarðskjálfta, mjög hægfara. Búið er að loka mörgum byggingum þarna, af því þær þykja hættulegar mönnum. Það er mönnum að kenna, að Mexíkóborg er að sökkva í jörðu. Borgin er að vísu reist að hluta á gömlum vatnsbotni, en þó fóru hús ekki að siga fyrr en tekið var að dæla upp jarðvatni í stórum stíl. Aztekar reistu fyrstir bæ á þessum slóðum. Eftir þá komu Spánverjar. Þeir hjuggu skógana kringum borgina. Þá losnaði um jarðveginn á skógastæðinu og skolaði honum smám saman niður í dalbotn. Þar voru stöðuvötn. Þau fylltust eðju, vatnið flæddi yfir bakka þeirra og rann inn i borgina. Spánverjarnir hófu þá að þurrka vötnin upp. Þeir voru lengi að því, en þar kom, að dalur- inn umhverfis borgina var þurr orðir.n. Svo var farið að grafa brunna eftir neyzluvatni. Grunn- vatnsborðið lækkaði þá smám saman og loks fór jarðvegurinn að síga. Má sjá það sig á brunnum, sem grafnir voru á síðustu öld og lagðir járni innan. Þeir standa nú sumir marga metra upp úr göt- unum. Ráðamenn i Mexíkóborg eru auðvitað orðnir mjög uggandi um þessa framvindu. Þykjast þeir vita, að feikilegur kostnaður verði af þvi að koma í veg fyrir frekara sig og gera við þau hús, sem þégar eru skemmd. Og það er t.d. í síð- ustu fjárlögum, að fjórar milljónir dollara (u.þ.b. 685 millj. ísl. kr.) skuli renna til viðgerða dómkirkjunnar, sem minnzt var á i upphafi. Nú-sjá lesendur eflaust i huga sér, að Mexíkóborg sekkur i jörðu, án þess, að nokkuð verði við gert. En þótt furðulegt kunni að virðast hefur mexikanskur verkfræðingur fundið upp burðarstoðir, sem virðast geta haldið húsum þarna ofanjarðar. Stoðir þessar eru geysilangar og eru þær reknar marga tugi metra í jörð niður. Hafa slíkar stoðir verið settar undir mörg nýleg hús og jafnvel gömul líka. Geta þær m.a.s. komið að gagni í bygg- ingum, sem farnar eru að siga og hallast. Er þá hægt að ráða nokkru um það, hvernig húsin síga, og rétta þau af. Þetta fer auðvitað eftir aldri húsanna, byggingarefni og ýmsu öðru, en samt virðist, að obbinn af Mexíkó- borg verði hér eftir í sömu hæð og nú. Það gerir þá minna til þótt svolitil hola verði i miðjunni . . . — MARLISE SIMONS. MANNRÉTTINDIBB Með fólsku og fantaskap — og syndakvittun frá SÞ Einu sinni voru miklar vonir bundnar við Sameinuðu þjóð- irnar. Væntu margir þess, að mannréttíndayfirlýsingu þeirra yrði fylgt eftir og ranglæti og ill meðferð á fólki viða um heim færi minnkandi úr því. En þessar vonir dofnuðu, er tímar liðu, og nú er svo komið, að mannréttinda- starfsemi Sameinuðu þjóðanna er afar máttlítil og jafnvel haida sumir því fram, að hún sé til mikils ills. Starfsemi Mannréttindanefnd- ar Sameinuðu þjóðanna er sveíp- uð Ieyndarhjúp og þung í vöfum. KONGAFOLKI MEÐLIMUM brezka háaðalsins virðist vera sérlega hætt við því að lenda í hjónabandsörðugleik- um og skilnaðarmálum. Til dæmis hafa 8 af 26 brezkum hertogum, sem ekki eru af konungsættinni, fengið lögskilnað og nokkrir þeirra oftar en einu sinni. Og þvi er það furðulegt, að fólk sem stendur þeim enn ofar að tign, þ.e.a.s. fulltrúar sjálfrar konungs- fjölskyldunnar, situr ekki við sama borð í þessum efnum, og þegar það á í hlut, eru hjóna- skilnaðir taldir óæskilegir. Þegar hjónaband þeirra Margrétar prinsessu, drottningar- systur, og jarlsins af Snowdon rann út í sandinn nú fyrir skemmstu, var lögð áherzla á, að þau væru aðeins skilin að borði og sæng. En flest þau hjón, er slita samvistum, æskja hins vegar eftir fullum lögskilnaði til að fá tæki- færi til að leita gæfunnar í nýju hjónabandi. Þegar bezt lætur geta konung- leg hjónabönd verið afar gæfurik. Til að mynda voru þjóð- höfðingjarnir og frændurnir Georg V Englandskonungur, Vil- hjálmur II Þýzkalandskeisari og Nikulás annar Rússakeisari álitn- ir miklir hamingjumenn I einka- lífi. Þegar hertoginn af York var á brúðkaupsferð árið 1923 skrifaði faðir hans, Georg V, hon- um eftirfarandi: „Ég er sann- færður um, að þið eigið fram- undan mörg hamingjurík ár, og að þið verðið eins hamingjusöm og við mamma eftir 30 ára hjóna- band. Eg get ekki óskað ykkur neins betra.“ En sannleikurinn er sá, að konungborið fólk nýtur ekki ein- ungis forréttinda, heldur þarf það vissulega að uppfylla sínar skyld- ur, og aðeins gagnvart maka sín- um og fjölskyldu getur það notið Aðferðir nefndarinnar eru oft gagnslitlar. Hún er mjög seinvirk. Þar að auki stendur henní ótti af ýmsum áhrifamiklum aðilum. Lætur nefndin jafnvel sem hún sjái ekki mannréttindabrot sums staðar. Er svo komið, að sumar ríkisstjórnir geta beitt þegna sína hroðalegu ofbeldi árum saman án Því brezka vill verða hált á hjónabands- brautinni MARGRÉT — Hertoginn af Windsor fórnaði hásætinu fyrir Wallis sfna. algers jafnræðis og félagsskapar. Og þegar eitthvað gengur úr- skeiðis, er það ekki látið liggja í þagnargildi í hinu mikla upp- lýsingaþjóðfélagi nútímans. Og fleira hefur farið úrskeiðis en sæmir í sögum og ævintýrum, en þegar öllu er á botninn hvolft eru hjónaskilnaðir konungborins þess, að það verði kunnugt al- menningi í heiminum. Lögum samkvæmt eiga fangar og önnur fórnarlömb að skrifa Mannréttindadeild Sameinuðu þjóðanna í Genf og færa fram kærur sínar. Mannréttindanefnd skipar síðan starfshóp til að rann- saka málið og leitar jafnframt svara viðkomandi rikisstjórnar við kærunni. Ríkisstjórnir gefa sér venjulega góðan tíma til svara og þegar svör berast eru kær- urnar oft gengnar úr gildi og orðnar úreltar. Þá kemst starfs- hópur Mannréttindanefndarinnar yfirleitt að þeirri niðurstöðu, að ekki sé hægt að byggja ásakanir á svo gömlum grundvelli. Fellur málið þá niður. Svona komast sumar ríkisstjórnir upp með of- belcU sitt árum saman. Verst er þó kannski, sem haldið er, að Mann- réttindanefndin „gefi ríkisstjórn- um upp sakir“. Sumar þeirra Framhald á bls. 38 fólks hvorki svo sérstæðir né skelfilegir og stundum er fram haldið. Jarlinn af Harewood, sem er náfrændi drottningar, enda þótt hann beri ekki ávarpstitilinn Hans konunglega tign, skildi við konu sína árið 1967 og hefur kvænzt öðru sinni. Og Hinrik VIII kvæntist 6 sinnum, og fékk aldrei lögskilnað. Fráskilinn þjóðhöfðingi hefur ráðið ríkjum á Englandi. Það var Georg I„ fyrsti fulltrúi núverandi konungsættar. Hann var settur til valda til að bægja frá Stúörtun- um, sem voru rómversk kaþólskrar trúar. Annar Englandskonungur, Georg IV, var tvíkvænismaður. Játvarður VII var góður stjórnandi en hjóna- band hans og dönsku drottningar- innar var aðeins að nafninu til, og hann leitaði fanga langt út fyrir hjónabandið. Og svo að við færum okkur nær nútimanum, er vert að geta þess, að þrjú af barnabörnum Viktóríu drottningar skildu að lögum. En nærtækasta dæmið um örlagaríkt hjónabandsmál innan brezku konungsfjölskyldunnar er saga hertogans af Windsor, föður- bróður Margrétar prinsessu, og mun hún hafa haft mikil áhrif á líf hennar. Hertoginn ríkti undir nafninu Játvarður VII skamma hríð árið 1936, en sagði af sér konungdómi til að kvænast fráskilinni konu, Wallis Simpson að nafni. Bróðir hans, hertoginn af York varð konungur í hans stað og nefndist Georg VI. Hertoginn af Windsor var hins vegar enginn léttúðarseggur. Það kom fyllilega til greina, að hann gegndi áfram konungsembætti ókvæntur, en væri i tygjum við frú Simpson, en um hana sagði hann í útvarpsávarpi: „Konan, sem ég elska.“ Það, sem olli því m.a., hversu andsnúnir menn voru Wallis Simpson var, að ekki þótti jafn- ræði með henni og konungi. En sennilega hefur það þó verið þyngst á metunum á sinum tíma, að Wallis Simpson hafði verið tvigift og báðir fyrrverandi eigin- menn hennar voru á lífi. Þetta blandaðist því einnig trúmálum. Sagan endurtók sig 19 árum síðar, þegar Margrét prinsessa hætti við að giftast Peter Townsend flug- stjóra, vegna þess að fyrri kona hans var á lífi. Það sjónarmið, sem nú er ríkjandi er, að hjónaskilnaður sé miklu fremur harmleikur en sýnd. Margrét prinsessa og Snow- don lávarður geta fengið lög- skilnað samkvæmt nútíma lögum í Bretlandi. Og ekkert getur svipt Margréti preinsessu sæmd sinni og tignarstöðu nema sérstök ákvörðun brezka þingsins, og mjög ólíklegt er, að slikar ráðstafanir yrðu gerðar. — COLIN CROSS Nasser í nýjum búningi Ein helzta skemmtun Egypta um þessar mundir er kvikmynd um ódæðisverk leyniþjónustu Na^sers, fyrr- um forseta Egyptalands. Kvikmynd þessi er liður i nokkurs konar herferð, sem Sadat, eftirmaður Nassers, byrjaði fyrir fimm árum. Sadat lýsti þá yfir því, að frjálsræðisöld væri runnin upp í Egyptalandi. Sleppti hann fjölda manna úr fang- elsi, grisjaði leyniþjónustuna og lét jafnvel brenna hler unartæki og önnur amboð leyniþjónustunnar á al- mannafæri til að sanna mál sitt. Takmark Sadats var það að draga úr orðstir Nassers. Nasser var margföld þjóð- hetja í Egyptalandi meðan hann lifði. Er eðlilegt, að VANGASVIPURI Sadat kynni því illa að standa ? skugga hans. Goðsögnin um Nasser lifði áfram þótt hann væri dauður sjálfur. Sadat hefur verið að reyna að eyða henni með hægðinni. Fyrr- nefnd kvikmynd er nýjasta herbragðið. í henni pynta og drepa leyniþjónustumenn fjölda fólks, sem grunað var um svik við Nasser. Aðsókn er mikil að myndinni, oftast margra vikna bið eftir miðum og auk þess seljast þeir með margföldum hagnaði á svörtum markaði. Kvikmyndahandritið er byggt á skáldsögu eftir þekktan, egypzkan rithöfund, Naguib Mahfouz. Nasser er ekki nefndur á nafn í mynd- inni, en boðskapurinn er skýr fyrir þvi: i stjórnartið Nassers bjuggu Egyptar við stöðugan ótta. Enginn var óhultur. Nú er Anwar Sadat hins vegar tekinn við. Nú búa allir Egyptar við frelsi og öryggi! Myndin fjallar um þrjá stúdenta. Þeir sitja að rabbi á kaffihúsi og ræða um dag- blöðin í landinu. Áliti stúdentanna á dagblöðunum verður bezt lýst með þessum orðum eins þeirra: ,,Hvernig dettur þér i hug að halda því fram, að dagblöðin séu öll eins? Hefurðu skoðað kross- gáturnar?" Stúdentarnir komast svo undir hendur leyniþjónustunnar og eru þeir grunaðir um það að vera félagar í hægrisinnuðum samtökum, félagi Mú- hammeðsbræðra. Stúdentun- um er þó sleppt von bráðar. En fyrr en varir eru þeir hand- teknir aftur. í þetta sinn eru þeir ákærðir fyrir það að vera kommúnistar. Það má geta þess, að bæði kommúnista- flokkurinn og Múhammeðs- bræður eru enn bannaðir í Egyptalandi. En áfram með söguna. Nú hefjast fjölbreytt- ar pyntingar. Einn stúdentinn er stúlka. Leyniþjónustu- maður nauðgar henni kunnáttusamlega, en yfir maður leyniþjónustunnar horfir á og glottir allan tímann út að eyrum. Stúlkan hefur ekkert af sér gert, enda neitar hún að játa á sig nokkrar sakir. Henni er þá nauðgað nokkrum sinnum enn og unnusti hennar látinn horf á það. Til hagræðis er hann hengdur upp á höndunum. Hangir NASSER — Sadat vill að fólkið sjái hann öðruvísi en fyrrum hann svo þarna og lagar blóð úr sárum, sem búið er að veita honum hér og þar um skrokkinn. Leikurinn æsist enn. Fangarnir eru beittir raf- mangspyntingum og grimm- um hundum er sigað á þá. Alltaf eru lögreglumenn að ógna saklausu fólki. Það er eitt áhrifamesta atriðið í myndinni, að striðaldir fanga verðir berja stúdent til bana fyrsta daginn í stríði Egypta og ísraelsmanna 1967. í því stríði fór sérlega illa fyrir Egyptum. Þegar nær dregur lokum myndarinnar er Sadat kominn til valda og lætur hann sleppa fjölda fanga lausum. Vekur það óskiptan fögnuð áhorfenda. En mynd- inni lýkur með atriðum úr októberstríði Egypta og ísra- elsmanna 1973. Það strið þóttust báðir hafa unnið. Margir Egyptar halda því fram, að kvikmynd þessi sé glöggt dæmi um það frelsi, sem Sadat hafi veitt þeim af gæzku sinni. Sumir líta myndina þó gagnrýnni aug- um, og hafa þeir margt til síns máls. Það væri til dæmis enn betri prófsteinn á frelsið og umburðarlyndið i landinu, ef sýnd yrði kvikmynd um eitthvað, sem aflaga hefur farið í stjórnartíð Sadats. Má hugsa sér mynd um þá, sem safnað hafa auði undir verndarvæng hans, svo að eitthvað sé nefnt. En líklega verður bið á þessu. Og hætt er við þvi, að sú skoðun eigi við rök að styðjast, að fyrr- nefnd hryllingskvikmynd, sé aðallega til þess gerð að styrkja stöðu Sadats og varpa lióma á nafn hans. Hann þarf á því að halda. Honum hefur orðið vel ágengt i ýmsum efnum og hann er vinsæll. En mistakist honum til dæmis viðreisn efnahagslífsins kann að verða stutt í vinsældunum. Það er því skynsamlegt ráð Sadats að hressa upp á álitið fyrir fram. Það getur orðið óhægara eftir á. — BERND DEBNSMANN.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.