Morgunblaðið - 29.04.1976, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 29. APRIL 1976
7
Portúgal
Fyrstu lýSræðislegu
þjóðþingskosningar i
Portúgal i 50 ár fóru fram
sl. sunnudag. Ljóst er nú
að jafnaðarmenn. flokkur
Mario Soares. er óum-
deildur sigurvegari kosn-
inganna. enda þótt flokk-
ur hans hafi tapað nokkru
fylgi frá stjórnarskrár-
kosningunum á sl. ári.
Hann hlaut tæplega 35%
atkvæða. sem þó nægir
ekki til flokkslegs þing-
meirihluta. en Soares
hafði lýst því mjög ein-
dregið yfir að hann myndi
aldrei ganga til stjórnar-
samstarfs við aðra flokka.
hvorki kommúnista né þá
tvo mið/hægri flokka.
sem einkum koma við
sögu í samtíma portú-
gölskum stjómmálum.
Þeir flokkar. sem taldir
eru til mið/hægri flokka,
og kenna sig við lýðræði.
fengu 24.03% (PPD) og
15.91%, eða samtals um
40% atkvæða. og um 111
þingmenn (jafnaðarmenn
106). CDS, svokallaðir
miðdemókratar, juku fylgi
sitt mest, meir en tvöföld-
uðu það frá kosningunum
á fyrra ári.
Kommúnistar, sem eftir
byltinguna I Portúgal
stefndu Ijóst og leynt að
valdaráni. og héldu sig
eiga meirihlutahljóm-
grunn meðal almennings i
Portúgal. hlutu aðeins
tæplega 15% atkvæða (á
móti 35% fylgi jafnaðar-
manna og 40% fylgi
mið/hægri flokkanna
tveggja). Þar með er sú
staðreynd enn áréttuð,
sem skýrt kom I Ijós I
stjórnlagakosningunum i
fyrra. að þeir eiga siður en
svo neitt afgerandi fylgi
meðal almennings i land-
inu.
Hvað gerist
eftir kosningar?
Það er eilítið broslegt
að lesa leiðara Þjóðviljans
I gær um þessi kosninga
úrslit. Þrátt fyrir það, að
flokkur Soares sé ótvírætt
lýðræðisjafnaðarmanna-
flokkur, og hafi lýst yfir,
að hann vilji ekki stjómar-
samvinnu við kommún-
ista, sameinar Þjóðviljinn
atkvæði þessara flokka
tveggja, jafna ðarmanna
og kommúnista, í meiri-
hlutasigur róttækra
vinstri stefnu. Hins vegar
er Iftið rætt um sérfylgi
kommúnista, sem reynd-
ist í hrópandi mótsögn við
fréttir Þjóðviljans frá þvi
skömmu eftir byltinguna í
Portúgal.
En hvað gerist nú i
Portúgöslkum stjórn-
málum? Um það er erfitt
að spá. Líklegasti kostur-
inn er e.t.v. minnihluta-
stjóm jafnaðarmanna og
þá hugsanlega með hlut-
leysi kommúnista. Eftir
kosningaúrslitin er það
eina áhrifavon
kommúnista, sem nú eiga
naumast kost á kröfugerð
um stjómaraðild. Kenning
Þjóðviljans um stjórnar-
samvinnu þessara flokka
(sjá leiðara Þjv. i gær) er
sennilega fremur ósk-
«n rökhyggja, þó
ekki sé rétt á þessu stigi
að útiloka neinn valkost
með öllu. Sá kostur, sem
yrði sennilega far-
sælastur, eins og mál
standa nú, fyrir framtíðar-
þróun i lýðræðisátt í
Portúgal, er samvinna
flokks Soares við annan
eða báða þá lýðræðis-
flokka, sem sýnilega eiga
traustar rætur i almanna-
fylgi, CDS og PPD. Slik
stjóm yrði og líklegri til
að ráða við umfangs-
mikinn efnahagsvanda er
að steðjar en minnihluta-
stjóm
Öfgaöfl enn
til staðar
Kosningarnar í Portúgal
hafa afhjúpað þá stað
reynd að almenningur þar
i landi vill sízt af öllu for-
ystu kommúnista i mál-
efnum sínum Þeirri stað-
reynd breytir ekki barna-
leg túlkun Þjóðviljans á
niðurstöðum kosning-
anna. Hins vegar er Ijóst
að þar i landi eru til staðar
vel skipulögð öfgaöfl,
bæði yzt til vinstri og
hægri, sem engan veginn
er rétt að vanmeta, þótt
ekki eigi rætur í hugum
almennings. Hættan á ör-
þrifaaðgerðum þessara
öfgaafla er engan veginn
horfin. Af þessum sökum
veltur á miklu að takist að
koma á samvinnu allra
þeirra afla i Portúgal, sem
tryggja vilja lýðræðislega
þróun i landinu; samstarf
á breiðum og traustum
grundvelli, sem þann veg
heldur á málum, að friður
verði um nauðsynlegar
framfarir í landinu. —
Vonandi ber þessi lang-
þreytta þjóð gæfu til að
búa sér bjarta framtíð,
pólitískt frelsi og efna-
hagslegar framfarir.
L
VANTAR ÞIG VINNU (nj
VANTAR ÞIG FÓLK £
ÞÍ’ AUGLÝSIR L'M ALLT
LAND ÞEGAR ÞLI AUG-
LÝSIR í MORGUNBLAÐINU
Sir Carol
Reed látinn
Brezki kvikmyndaleikstjórinn
Carol Reed lézl í fyrradag, 70 ára
aó aldri. Ásamt David Lean var
Sir Carol sá leikstjóri sem setti
mestan svip á brezkan kvik-
myndaiónað, er hann stóð með
hvað mestum blóma á fimmta
áratugnum. Fyrir framlag sitt til
brezkrar kvikmyndagerðar var
hann aðlaður árið 1952 en á slðari
árum gerði hann fremur fáar
myndir, sem fæstar náðu veru-
legri hylli eða þar til hann gerði
Oliver; sem hann hlaut Óskars-
verðlaun fyrir.
Kvikmyndir Sir Carols voru yf-
irleitt lágstemmdar, húmanískar
og einlægar, og persónulegustu
myndir hans einkennast oft af því
að lýsa utangarðsmanninum —
svo sem i Odd Man Out
The Third Man, sem íslenzka
sjónvarpið sýndi nýlega og er
hans kunnasta mynd, svo og i The
Outcast og The Island og Our Man
Umferðarslys
UMFERÐARSLYS varð á gatna-
mótum Holtsvegar og Skipasunds
í fyrrakvöld á tiunda tímanum.
Skullu þar saman bifreið og
piltur á vélhjóli. Pilturinn var
fluttur í slysadeild Borgarspítal-
ans, en þegar Mbl. fór i prentun
var ekki vitað um meiðsli manns-
ins eða hversu alvarleg þau væru.
in Havana, en allar þessar myndir
eru gerðar á tímabilinu frá
1947—59. Aður hafði þó Sir Carol
vakið á sér verulega athygli með
tveimur stríðsmyndum — The
Way Ahead og The True Glory.
Rafkerti
Bosch rafkerfi
í bílinn, í bátin. . .
BOSCH
Viðgerða- og
varahiuta þjónusta
BRÆÐURNIR ORMSSON %
LÁGMÚLA 9 SÍMI 38820
ífeii
S/OASTA
----UTSÝNARKVÖLDto
þar til f haust
vSumarhátí
títsýnar”
FRANSKT KVÖLD
Súlnasal, Hótel Sögu,
sunnudag 2. maí n.k.
★ Kl. 19.00 Húsiðopnað
h Kl. 19.30 Veizlan hefst
MENU
Matseðill
Gigue de veau roti poivrade
Heilsteikt kálfalæri
með piparsósu
Profiteroles au cocolat
Franskar súkkulaðibollur
Duc de Damien
(1 gl. fyrir manninn)
★ Franski matreiðslusnillingurinn
FRANCOIS FONS stjórnar matseldinni.
Matarverð aðeins Kr. 2200.—
★ FJÖLBREYTT SKEMMTIATRIÐI
★ FEGUROARSAMKEPPNI „UNGFRÚ
ÚTSÝN" VALIN OG KRÝND
if Ferðabingó: Spilað verður um 3
sólarferðir með Útsýn til
Spánar og ítallu
if Dans. Hin vinsæla hljómsveit
Ragnars Bjarnasonar leikur
FagniO sumri með Útsýn og munið að panta
borð snemma hjá yfirþjóni. Hjá Útsýn
komast jafnan færri að en vilja
Útsýnarkvöld eru skemmtanir i sérflokki. þar
sem fjörið oq stemmninqin bregzt ekki
FEROASKRIFSTOFAN ÚTSÝN
ATH.
Gestir sem koma fyrir kl.
20.00 fá ókeypis happ-
drættismiða og vinningur-
inn er ókeypis Útsýnarferð
til Spánar eða Ítalíu