Morgunblaðið - 29.04.1976, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1976
Hjalti Jónsson skólastjóri:
Hvers eiga börn-
in að gjalda?
Lengi hefir verið talið, að ekki
skipti máli, þó að þröngvað væri
kosti barna og unglinga. Þó er
svo, að í nýrri borgarhverfum er
gert ráð fyrir leikvöllum og
öðrum stöðum, þar sem börn geta
leikið sér í friði. Ekki á þetta þó
við um gamla Austurbæinn. Þar
er sífelt vegið að yngstu
borgurunum. Síðasta árásin er, að
stærsta stofnun borgarinnar
ræðst að einni þeirri minnstu, og
ætlar í krafti stærðar sinnar að
taka hluta af lóð Austurbæjar-
skólans undir byggingu á aðveitu-
stöð. Nú má segja, að þetta geri
ekkert til, því að allstórt svæði
verði eftir. En lóðin er ekki stór,
því að Rafmagnsveitan hefir áður
fengið hér byggingarlóð og hyggst
því vega tvisvar í sama knérunn,
en á fyrri tímum töldu menn slíkt
óhyggilegt. Fræðsluráð Reykja-
víkurborgar mun hafa þvælst
nokkuð lengi fyrir, en síðan gefist
upp fyrir rökum reiknimeistara
Rafmagnsveitunnar. Þá má
spyrja, hví ekki að gefast upp eins
og Fræðsluráð og láta án mót-
mæla af hálfu skólans byggja
húsið. Þessu má svara með spurn-
ingu. Hvað hafa borgaryfirvöld
gert fyrir yngstu borgarana f
gamla bænum? Þau hafa veitt
fjöldann 'allan af sjoppuleyfum,
enda eru sjoppur einu samkomu-
staðir unglinganna í gamla bæn-
um, ef undanskildir eru bekkir
við sumar biðstöðvar S.V.R.
Austurbæjarskólinn hefir þó
veitt skátum í hverfinu starfsað-
stöðu, frá því að skátaheimilið var
rifið, mjög ófullkomna að visu, en
þó þannig, að skátastarf hefir
getað haldist hér við. Nú fyrir
skömmu Iétu barnavinirnir góðu,
sem ráða ieikvöllum borgarinnar
taka hluta Grettisgötuleikvallar
undir bílastæði handa verzlun við
Laugaveginn, sjálfsagt með það i
huga, að verzlun, sem á að upp-
fylla meira og minna tilbúnar
þarfir, er nauðsynlegri en leik-
svæði. Nú er farið að tala um, að
ekki megi gera allan gamla bæinn
að bönkum og verzlunum og að
þar verði fólk að búa áfram. En til
þess að svo megi verða, má ekki á
nokkurn hátt, skerða þau litlu
óbyggðu svæði, sem eftir eru. Það
er erfitt að standa gegn rökum
reikni- og reglustikumanna, og
með tölum má sanna, að mjög
hagkvæmt er að reisa aðveitustöð
við Austurbæjarskólann. En svo
mörg axarsköft hafa verið hönnuð
í orkumálum, að jafnvel þó að
aðveitustöð væri ekki reist á hag-
kvæmum stað, myndu orkunot-
endur áreiðanlega geta borgað
fyrir það, en ekki skai nefna
snöru í hengds manns húsi og því
skulu orkumál ekki nefnd meira
hér. Hvað er maðurinn að hugsa
að láta sér ekki segjast, þegar
Fræðsluráðh. hefir samþykkt
töku lóðarinnar. Það er nú svo, að
stundum verða menn að vera rök-
heldir. En eru ekki eftirtalin
GARÐAR GISLASON H F.
11500 BYGGINGAVÖRUR
GIRÐINGANET
GADDAVÍR
GALV. STAURAR
HVERFISGATA 4-6
er svo annað lakk
Manstu þegar þú lakkaðir síðast? Lakklyktin ætlaði alla að
kæfa, og þegar þú varst loksins búinn að lakka, áttirðu
enga terpentínu til að hreinsa alla nýju penslana, sem þú
keyptir.
Bráðum þarftu að lakka aftur, sannaðu til. Þá er líka betra
að gera ekki sömu skyssuna aftur. Nú skaltu nota Hitt lakkið.
Kópal-Hitt er hálfgljáandi vatnsþynnt akryl-lakk, ætlað á tré
og stein, — úti sem inni. Kópal-Hitt hefur einnig frábæra
veðurr vatns- og þvottheldni.
Svo geturðu nefnilega notað rúllu, og að sjálfsögðu pensil
líka. Kópal-Hitt þornar á 1-2 klst. Það er lyktarlaust, gulnar
ekki og bregst ekki. Greinargóður leiðarvísir á hverri dós.
Þegar þú ert búinn að lakka, þá, - já þá þværðu rúlluna og
penslana úr venjulegu sápuvatni.
atriði rök? Af byggingarvinnu á
skólasvæði hlýtur að stafa slysa-
hætta. Hávaði, sem óhjákvæmi-
lega fylgir byggingarvinnu hefir
truflandi áhrif á starf skólans.
Fyrirhugað hús Rafmagnsveit-
unnar fer mjög illa á lóðinni og
mundi verða að því stór lýti og
spjöll á umhverfi. Fleira mætti
tína til, þó að það verði ekki gert
að sinni. Ég tek fram, að ég ber
virðingu fyrir miklum lærdómi
verkfræðinga og ætla ekki að
styggja þá á nokkurn hátt. En ég
tel, að mér hafi verið trúað fyrir
að gæta þessarar lóðar fyrir
yngstu borgarana og frekar en að
bregðast þeim trúnaði tek ég
áhættuna að verða fyrir reiði for-
svarsmanna Rafmagnsveitunnar.
Ég heiti á borgarráð að bregðast
ekki yngstu umbjóðendum sínum,
að byrgja brunninn áður en
barnið er dottið ofan í með því að
stöðva byggingarmálið á þessu
stigi. “
Hjalti Jónasson.
LEIRUBAKKI 106 FM 1
Góð 4ra herbergja íbúð á 3.
hæð í nýmálaðri blokk. Sér
þvottahús. Sameign öll snyrtileg
og vel frágengin. LAUS STRAX.
Verð 7.8 millj. útb. 5.5 millj.
ÞVERBREKKA 116 FM
4 — 5 herbergja suðurendaibúð
á 8. hæð i fjölbýlishúsi. Mjög
vandaðar og góðar innréttingar.
Tvennar svalir. Óviðjafnanlegt
útsýni. Verð 8.5 millj. útb. 5.5
millj.
FOSSVOGUR 90FM
Skemmtileg 4ra herbergja enda-
ibúð á 3. hæð i sambýlishúsi.
Góðar innréttingar. Góð teppi.
Suður svalir. Útsýni. Verð
9.5 —10 millj. útb. 7 millj.
SMÁÍBÚÐAHV. 136 FM
6 herbergja ibúð i steinhúsi. Sér
þvottahús, sér inngangur, allt
sér. Bilskúrsréttur. Verð 9.8
millj. útb. 7 millj.
EINBÝLISHÚS
Lítið, nýlegt hús í Garðabæ.
Vandaðar, skemmtilegar innrétt-
ingar. Stór og góður bilskúr.
Verð 12 millj. útb. 8 míllj.
EINBH. — RAÐH. —
PARH.
Við höfum nú á skrá mikið úrval
af einbýlishúsum, raðhúsum og
parhúsum, bæð fullbúnum eign-
um og eins á ýmsum byggingar-
stigum.
í SMÍÐUM
í hinum nýja miðbæ
Kópavogs höfum við til
sölu íbúðir í 3ja hæða
húsi. íbúðir þessar
afhendast tilbúnar undir
tréverk fyrri hluta árs
1977. Mjög skemmti
legur byggingarstíll er á
húsunum, enda eru þau
teiknuð af teiknistofunni
við Óðinstorg. Ca. 20 fm
svalir fylgja með hverri
ibúð. Mjög traustur
byggingaraðili. Komið og
sjáið teikningar og líkan
á skrifstofunni.
LAUFAS
FASTEIGNASALA
L/6KJARGATA6B S:15610
SK3UROUR GEORGSSON HDL.
STEFÁN FÁLSSON HDL.
BENEDIKT ÓLAFSSON LÖGF
/\ r
jr Kl. 10—18. _
S 27750
1
BttSID
BANKASTRÆTI II SIMI27150
Einstaklingsíbúð
snotur um 36 fm. i Hraunbæ.
Skammt f. Háskól-
anum
snyrtileg 3ja herb. kj. íbúð.
Útb. Útb. 2—2,5 m. Laus i
júli
Við Kóngsbakka
nýtizkuleg 3ja herb.
íbúð. Sérþvottahús á
hæðinni.
Við Eyjabakka
rúmgóð 3ja herb. ibúð.
Sérþvottahús á hæðinni.
Ódýr eign
Snotur 3ja herb. kj. íbúð í
tvíbýlishúsi í Garðabæ.
Samþykkt íbúð. Bilskúr
fylgir.
Hraunbær
úrvals 5—6 herb. endaíbúð
m.a. 4 svefnherbergi.
Einbýlishús
Fokhelt á einni hæð um 140
fm ásamt bílskúr á góðum
stað í Mosfellssveit. Góð
kjör.
Hafnarfjörður
glæsilegar séreignir um 1 50
og 1 75 fm. Bílskúrar fylgja.
Benedikt Halldórsson sölustj.
Hjalti Steinþórsson hdl.
Gústaf Þór Tryggvason hdl.
Skólavörðustíg 3a, 2.hæð
Símar 22911 og 19255.
Til sölu m.a.
Breiðholt — 2ja herb.
nýtizkuleg 2ja herb. ibúðarhæð i
háhýsi við Álftahóla. Suður-
svalir. Sólrik íbúð.
Einstaklingsibúð
mjög skemmtileg ca 45 fm ein-
staklingsíbúð á 3. hæð i blokk
við Ásbraut i Kópavogi.
Langholtsvegur —
séríbúð
3ja herb. 92 fm litið niðurgrafin
kjallaraíbúð. íbúðin er öll ný-
máluð. Nýleg teppi. Sérhiti. Sér-
inngangur. Fallegur ræktaður
garður. Laus fljótlega.
Heimahverfi
Til sölu vel með farin og
skemmtileg 1 10 fm ibúð á 1.
hæð við Álfheima. Gæti verið
laus fljótlega. Einnig um 135 fm
íbúð við Ljósheima. Þafnast lag-
færingar. Úíborgun 5 milljónir.
Vesturbær — 3ja herb.
íbúðir
3ja herb. nýtizkuleg ca 93 fm
ibúð á hæð i vesturborginni. Sér-
herbergi i kjallara fylgir.
Ennfremur vönduð litið niður-
grafin að mestu nýstandsett
kjallaraibúð i þribýlishúsi á eftir-
sóttum stað í vesturbæ. ALLT
SÉR.
Kriuhólar
i einkasölu nýtiskuleg 3ja herb.
ibúð i háhýsi. Mikil og góð sam-
eign, laus fljótlega.
Einbýlishús — Kópa-
vogur
til sölu um 1 50 fm einbýlishús á
einni hæð á einum bezta stað i
Kópavogi. Stór og einstaklega
skemmtilegur og sérstæður
garður. Stórt vinnuherbergi ca
35 fm. Eign i sérflokki. Laus
fljótlega. Teikning á skrifstofu
vorri.
Höfum einnig einbýlis-
hús og raðhús á Selfossi
og í Keflavik.
Mikið er um elgnarskipti hjá
okkur.
Látið skrá eignina nú þegar.
Jón Arason hdl.,
málflutnings og
fasteignastofa,
símar 22911 og 19255.
Heimasimi sölustjóra
72755,