Morgunblaðið - 29.04.1976, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. APRIL 1976
Leikendur og leikstjóri, Jón Júlfusson. I leikritinu Leynimelur 13, sem
UMF tslendingur sýnir I Borgarfirði.
Leynimelur 13 sýndur
á vegum UMF Islendings
UNGMENNAFÉLAGIÐ tslend-
ingur frumsýndi sfðasta vetrar-
dag leikritið Leynimelur 13 eftir
Þrfdrang, en það eru þeir
þremenningar Emil Thoroddsen,
Haraldur A. Sigurðsson og
Indriði Waage. Frumsýningin var
á Brún I Bæjarsveit ( Andakfls-
hreppi.
— Óðinn klippti
Framhald af bls. 32
togaranna 43. Þrátt fyrir þessa
fækkun togara eru verndarskip
brezka flotans enn 9 til 10,
dráttarbátar og freigátur. Smám
saman hefur Landhelgisgæzlunni
Að sögn Ófeigs Gestssonar á
Hvanneyri tóku sýningargestii
leiksýningunni vel og kvað hann
það mætti þakka Jóni Júliussyni
leikstjóra, sem að þessu sinni er
með algjöra nýliða í leiklist.
Næsta sýning verður í kvöld,
fimmtudag, en síðan eru sýningar
á föstudag og laugardag kl. 16.
tekizt að þoka brezka flotanum
dýpra, enda sést það af staðsetn-
ingu þeirra atburða, sem nú verða
á miðunum, að flestir þeirra
verða í um það bil 50 mílna fjar-
lægð frá grunnlínupunktum.
Samkvæmt fréttum AP-
fréttastofunnar í gær, hélt
varnarmálaráðuneytið i London
þvi fram i gær að áreksturinn
milli Vers og Statesman hefði
orðið, er dráttarbáturinn reyndi
að verjast ásiglingartilraunum
Vers, sem hefði ekki tekizt að
sigla á Statesman fyrr en í þriðju
tilraun. Ráðuneytið sagði að litlar
skemmdir hefðu orðið. Land-
helgisgæzlan skýrði hins vegar
frá því i gær að dráttarbáturinn
hafi gert tvær tilraunir áður en
honum tókst ásigling.
I fréttaskeytinu er það haft
eftir einum togaraskipstjóranna á
miðunum að „veiðar séu orðnar
mjög svo erfiðar. Það er ekki sök
brezka flotans, en verndin er ekki
að því marki, sem brezka fisk-
iðnaðinum og brezka þinginu var
lofað fyrir togara okkar,“ sagði
þessi togaraskipstjóri. Segir i
skeyti AP, að þessi óánægja sé
líkleg skýring á því, hve togurum
hafi fækkað á íslandsmiðum. í
fréttaskeyti AP er talað um hið
íslenzka Armada, sem mætti þýða
sem hina ósigrandi flotadeild. Er
þar átt Við Landhelgisgæzluna, en
Armada var mikil flotadeild
Spánverja á stórveldistímum
þeirra.
— Hagsmunir
Framhald af bls. 1
harðnar nú mjög — ekki sízt á
bak við tjöldin.
Auk sérreglunnar um ísland,
sem áður er greint frá, vonum
við að önnur mikilvægustu
atriði okkur varðandi haldist
inni í textanum, þ.e.a.s. annars
vegar að strandríki ákveði
sjálft, hve mikið megi veiða og
engan sé unnt að skylda til að
leyfa öðrum fiskveiðar í sinni
auðlindalögsögu, nema um sé
að ræða afla umfram það, sem
strandríkið getur hagnýtt og
hins vegar að tvíhliða samninga
HUSGAG N AVIKA
1976 ‘
22. APRÍL-2. MAÍ
í ÍÞRÓTTAHÖLLINNI í LAUGARDAL
OPIN VIRKA DAGA KL. 16-22
LAUGARDAGA OG SUNNUDAGA KL. 14-22
, SÝNING Á HÚSGÖGNUM OG INNRÉTTINGUM,
FÉLAG HUSGAGNA- OG INNRÉTTINGAFRAMLEIÐENDA MEISTARAFÉLAG HÚSGAGNABOLSTRARA
þurfi að gera til að veiðiheim-
ildir verði veittar.
Ef öll þessi atriði haldast inni
í textanum, eru hagsmunir okk-
ar rækilega tryggðir.
— Carter
Framhald af bls. 1
hann getur sigrað í fjölmennu
iðnaðarriki í norðurhluta Banda-
ríkjanna þótt hann sé Suðurríkja-
maður og það er talin nauðsynleg
forsenda þess að hann hljóti út-
nefningu.
Morris Udall, þingmaðurinn frá
Arizona úr hinum frjálslynda
armi demókrataflokksins, er nán-
ast talinn úr leik. Hann hafnaði i
þriðja sæti en sagði þó í dag að
hann teidi sig enn eiga nokkra
möguleika og að allt gæti gerzt á
flokksþinginu.
Úrslitin i Pennsylvaníu urðu
þau að Carter hlaut 37% atkvæða,
Jackson 25%, Udall 19% og
George Wallace frá Alabama
11%. Carter hefur nú tryggt sér
332 fulltrúa á flokksþinginu,
Jackson 193, Udall 174, Wallace
108 og Humprey 34, en 213 eru
óháðir. Alls á eftir að velja 1826
fulltrúa og til að hljóta útnefn-
ingu þarf 1505 atkvæði.
Sjálfur telur Carter sig hafa
tryggt sér rúmlega 400 fulltrúa.
Hann kveðst hafa sett sér það
mark að tryggja sér 1000 fyrir 8.
júní þegar siðustu forkosning-
unni lýkur.
Margir stjórnmálafréttaritarar
telja að Carter geti tryggt sér
1.000 fulltrúa fyrir flokksþingið,
eins og hann hefir einsett sér. Ef
það tekst er talið að honum ætti
að takast að tryggja sér nógu
marga óháða fulltrúa til þess að
verða öruggur um tilnefninguna.
Ósigur Jacksons öldungadeild-
armanns var þeim mun meiri
vegna þess að hann háði harða
kosningabaráttu í tveimur
stærstu borgunum, Philadelphia
og Pittsburg, og þar við bættist
stuðningur flestra verkalýðsleið-
toga fylkisins.
Auk þess sem margir verka-
menn kusu Carter hlaut hann
mörg atkvæði blökkumanna,
sveitafólks og íbúa smábæja eins
og í fyrri forkosningum. Fylgi
Carters spannar yfir flesta þjóðfé-
lagshópa og það mun ekki fara
fram hjá fulltrúunum á flokks-
þinginu segja stjórnmálafréttarit-
arar.
r
— Italía
Framhald af bls. 1
fram á morgun og þeim lýkur með
ræðu sem Moro heldur á föstu-
dagskvöld. Ekki er vitað hvort
atkvæðagreiðsla fer fram um van-
traust á stjórnina eða hvort Moro
tilkynnir að hann biðjist lausnar
á grundvelli yfirlýsinga þeirra
flokka sem hafa hingað til stutt
stjórnina.
Sósíalistar hafa tilkynnt að þeir
muni greiða atkvæði gegn stjórn-
inni ef atkvæðagreiðsla fer fram
og sósíaldemókratar hafa ákveðið
að sitja hjá.
Líran lækkaði í 893 dollara í
kauphöllinni í Mílanó í dag og þar
með hefur gengi hennar sigið um
30% síðan 20. janúar þegar
stjórnin ákvað að láta það fljóta.
— Rússar
Framhald af bls. 1
anir hefðu gagnrýnt fyrirhugaða
heimsókn Kissingers. Vitnað var í
ályktun Ghanastúdenta, sem
sögðu að heimsóknin yrði „áróður
fyrir bandaríska utanríkisstefnu
er væri fjandsamleg Afríku," og
ályktun 44 háskólakennara, sem
vildu ekki að „einum helzta full-
trúa óvina frelsis Afrikumanna"
væri boðið í heimsókn.“
Hins vegar segja bandarískir
embættismenn, sem ferðast með
Kissinger, og embættismenn í
Washington að raunverulega
ástæðan til þess að heimsókninni
var frestað hafi verið þrýstingur
frá Rússum.
Talsmaður bandaríska utan-
ríkisráðuneytisins, Frederick Z.
Brown, vildi ekki svara spurn-
ingum um áhrif málsins á sam-
skipti Bandaríkjamanna og Rússa
að öðru leyti en því að Bandaríkin
litu það alvarlegum augum. Hann
kvaðst ekki vita til þess að heim-
sökn Kissingers til Nígeríu hefði
verið frestað vegna sovézkra af-
skipta.
í Ghana hafði blaðið Ghanian
Times, sem ríkið á, hvatt stjórn-
ina til að finna „diplómatíska
leið“ til að fresta ferð Kissingers.
Blaðið kvað almennt óttast að
heimsóknin mundi spilla sambúð
Bandaríkjamanna og Ghana í stað
þess að bæta hana. Annað blað,
Daily Graphic, kvaðst hins v,egar
fagna heimsókninni.
Kissinger sigldi í dag um Zaire-
fljót ásamt Mobutu forseta og
ræddi við hann um hinar nýju
tillögur sínar sem eiga að stuðla
að viðræðum milli hvítra manna
og blökkumanna í Rhódesíu. Kiss-
inger verður í Zaire þangað til á
morgun vegna afstöðu Ghana-
stjórnar og fer þá til Líberíu,
fimmta landsins af sex sem hann
heimsækir i Afríku.
— Hörpudiskur
Framhald af bls. 32
núna, en þær hafa legið niðri í um
þaó bil tvö ár á báðum þessum
svæðum.
Hrafnkell sagði, að þarna hefðu
verið könnuð mið sem þekkt voru
fyrir, og hefði virzt svo sem ísa-
fjarðardjúpið hefði náð sér
heldur lítið eftir miklar veiðar á
árunum 1970—73, en aftur á móti
hefði verið mun betri útkoma í
Jökulfjörðunum, enda þótt þar
hefðu einnig verið stundaðar
miklar veiðar á hörpudisk á þessu
sama tímabjli. Fékkst góð veiði
t.d. út af Grunnavík i Jökul-
fjörðunum, við Staðarhlíð og við
Sléttaeyri eða mest yfir 300 kg á
stundarfjórðungi.
Þessu næst sagði Hrafnkell að
farið hefði verið yfir f Húna-
flóann, og kannað fyrst með
ströndinni að vestanverðu í
Ingólfsfirði og Ófeigsfirði, þar
sem skel hefur ekki verið könnuð
áður. Var mestur afli þar um 100
kg af hörpudiski á stundarfjórð-
ungi, sem er algengasti mæli-
kvarðinn. Síðan var leitað áfram
suður með ströndunum og fékkst
einnig um 100 kílóa afli mest út af
Asparvík og Bjarnarfirði. Þá var
farið suður undir Steingríms-
fjörð, þar sem fékkst svipaður afli
á einum stað, sem raunar var
þekktur áður eða við Göngustaða-
boða norður af Grímsey. Þá var
farið yfir að Vatnsnesi þar sem
svæðið utan Miðfjarðar var
kannað. Þar fékkst þokkalegur
árangur eða upp undir 150 kg á
svæði norður af Skarðsvita. Þá
var haldið áfram norður Vatns-
nesálana án verulegs árangurs en
síðan var aftur kannað svæðið
með austanverðu Vatnsnesi og
fékkst þar um 100 kg afli.
Siðan var farið yfir svæðið frá
Blönduósi og langleiðina að Kálfs-
hamarsvík og á öllu þessu svæði
fékkst verulegt magn af skel, sér-
staklega þó á svæðinu frá Blöndu-
bakka og norður undir Króks-
bjarg eða allt að 550 kg á stundar-
fjórðungi. Var meðalaflinn yfir
200 kg í um 11 hölum, sem voru
tekin að þessu sinni. Kvað Hrafn-
kell þetta hafi verið betri árangur
en menn áttu von á, því að þó
þetta svæði hafi verið þekkt áður
hafi aldrei fengizt svo mikill afli
sem nú. Hrafnkell sagði hins
vegar að skelin væri nokkuð mis-
stór á þessum svæðum, og þar
sem mest væri af henni væri hún
tiltölulega smæst.
Um Breiðfjörðinn sagði Hrafn-
kell, að þar hefðu hörpudisks-
miðin verið könnuð um mánaða-
mótin nóvember—desember og
fengist þokkalegur árangur. Væri
stefnt að því þar að loka nær-
lægari svæðum frá Stykkishólmi
fyrir veiði i sumar og beina
veiðunum á hin fjarlægari mið
meðan viðraði vel yfir hásumarið.
Einnig kvað Hrafnkell líklegt, að
settar yrðu einhverjar tak-
markanir á bátastærð og báta-
fjölda.
Hrafnkell var spurður hvernig
markaðsaðstæður fyrir skelfisk
væru núna, og kvað hann markað-
inn hafa styrkzt mjög á sl. ári og
væri verð tiltölulega hagstætt
ennþá.