Morgunblaðið - 29.04.1976, Síða 23

Morgunblaðið - 29.04.1976, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. APRlL 1976 23 Greinargerð flug- manna Vængja hf. — Aðdragandinn Framhald af bls. 17 Benediktssonar við andstöðu þjóðarinnar gegn hersetu hafi hann viljað að viðræður um aðild að bandalaginu „færi fram með mestu leynd ". Þessari rangfærslu blaðsins lýkur með eftir- farandi orðum: „Ennfremur er ljóst, að Bandaríkjamenn ætluðu þegar fyrir inngönguna i NATO að fá hér herstöðvar þrátt fyrir allar yfirlýsingarnar um annað." Ógjörningur er að sjá, hvernig unnt er að lesa þetta út úr skjölunum, en eins og setning sú, sem birt er hér á ensku að framan. sýnir, óskaði Bandaríkjastjórn alls ekki yfir því að hafa herlið á Islandi. Hins vegar yrði i sam- eiginlegum varnaráætlunum hins væntanlega bandalags mælt fyrir um, hvernig Island yrði varið á hættutímum. XXX Samkvæmt bandarisku skýrslunum gerist það næst varðandi aðild Islands að Atlants- hafsbandalaginu, að 8. mars 1949 eru sendi- herrar Danmerkur, íslands, Portúgalsog Italiu boðnir hver fyrir sig til fundar með John D. Hickerson, yfirmanni Evrópudeildar banda- ríska utanrikisráðuneytisins, sem rakti fyrir hverjum þeirra sögu samningaviðræðnanna um Norður-Atlantshafssáttmálann og afhenti þeim boð um að taka þátt í lokaumræðunum og gerast stofn-undirritendur sáttmálans. Frá- sagnir af þessum viðtölum eru ekki birtar. I ræðu þeirri, sem Bjarni Benediktsson flutti á Alþingi 28. mars, lýsir hann á þennan veg því sem gerðist eftir að hann átti fund með bandaríska sendiherranum í Reykjavík 12. janúar 1949: „Eftir að þessi orðaskipti og skilaboó höfðu farið fram, varð nokkur dráttur á málinu. Það var að vísu minnst á það í nokkruni samtölum, en efnislega höfðu þau ekki þýðingu vegna þess, að hin upphaflegu bandalagsriki voru að ræða málið í heild nánar sín í milli. Það var því ekki fyrr en 9. mars, sem á ný var komið til íslensku stjórnarinnar með ákveðna frásögn af því, hvað þessari samningsgerð liði. Þá var sagt, að hún væri svo langt komin. að nú mætti telja tímabært að hefja þa*r umræður um einstök atriði samningsins, sem ég hafði látið uppi i orðsendingu okkar 12. janúar. að ég teldi nauðsynlegar, áður en Islendingar gætu tekið afstöðu til málsins. En í þeirri orðsend- ingu, sem mér var afhent 9. mars, var látið uppi, að æskilegt væri að viðtöl gætu átt sér stað milli fulltrúa Bandaríkjastjórnar og full- trúa íslensku ríkisstjórnarinnar. Þetta varð til þess, að ég gerði um það tillögu í ríkisstjórninni og til stuðningsflokka síjórnarinnar, að ég ásamt tveimur öðrum ráð- herrum, einum frá hverjum flokki, færi vestur um haf. til þess að við gætum kvnnt okkur málið til hlítar. Þetta var samþykkt af réttum aðilum, og fórum við síðan í þessa rannsóknar- för." Spánn VEGNA vfirlýsinga stjórnar Vængja hf. um deilu félagsins við flugmenn þess, hafa flugmenn Vængja beðið Mbl. að birta eftir- farandi: „Helzta ástæðan fyrir inngöngu þeirra i stéttarfélag flugmanna er sú að 5. maí 1975 sendu flug- mennirnir stjórn félagsins bréf þar sem farið er fram á að gerður verði samningur um kaup og kjör milli þeirra og Vængja h.f. Þessari beiðni svaraði stjórnin strax á þann hátt, að fram- kvæmdastjóra félagsins væri falið að ganga frá samningum. Þessari stjórnarsamþykkt hefur ekki verið framfylgt af hálfu framkvæmdastjóra og eru því engir kjarasamningar til. Sem eðlilegt framhald af framan- sögðu gengu flugmennirnir siðan í stéttarfélag sitt á síðastliðnu hausti, til að knýja á um gerð ; kjarasamninga í einhverri mynd. Framkvæmdastjóri hafði því um hálft ár til að ganga frá kjara- samningum. 10 dögum fyrir aðal- fund FlA boðaði stjórn Vængja h.f. flugmenn sína á fund, þar sem hún óskaði eftir að þeir gengju ekki í stéttarfélag. Samt liðu þessir 10 dagar án þess að nokkrir tilburðir kæmu ftam af hálfu Vængja h.f. til samninga. Ókunnugleika stórnar Vængja h.f. er því ekki fyrir að fara í þessu efni. Stjórn FlA hefur aldrei bannað flugmönnum Vængja h.f. að semja beint við félagið, vildu þeir ganga úr FÍA. FlA hefur falið samninganefnd úr hópi flug- mannanna að annast samnings- gerð fyrir sig. Enn sem komið er hefur stjórn Vængja h.f. hafnað FlA sem samningsaðila og viljað, að flugmenn gengju úr FlA og stofnuðu sitt eigið starfsmanna- félag. Flugmennirnir hafa verið ófúsir til þess, þar sem óljóst yrði um þeirra stöðu eftir að hafa sætt þeirri niðurlægingu að vera þvingaðir úr stéttarfélagi undir uppsögn. Tekið skal fram, að því fer víðs fjarri að farið sé fram á sambæri- leg laun miðað við flugstjóra hjá stærri flugfélögunum. Könnuð hefur verið sú leið að ná bráðabirgðasamkomulagi, bæði í gegnum sáttasemjara ríkis- ins, lögfræðing Vængja h.f. og samninganefnd flugmanna við félagið beint, þar sem mjög veru- lega hefur verið slegið af kröfun- um. Loksins þann 23. apríl síðast- liðinn barst flugmönnunum tilboð frá stjórn Vængja h.f. þar sem þeim er gert það úrslitaboð að ganga að þeirra samningsupp- kasti. Var þeim tjáð, ef þeir gengju ekki 99% að einhliða til- boði þeirra, yrði ekki um frekari samninga að ræða. Að áliti flug- mannanna var hér ekki um samningstilboð að ræða heldur afarkosti." Framhald af bls. 1 ritarar segja að hægrisinnar á þingi geti tafið afgreiðslu þeirra. „Eg tel umbætur algera nauð- syn,“ sagði Arias þótt helzta fréttatímarit Spánar segi í dag frá alvarlegum ágreiningi hans og Juan Carlos konungs. Talsmaður upplýsingaráðuneytisins kallaði frásögn tímaritsins „þvætting". Stjórnarandstaðan hefur hert á baráttu sinni fyrir umbótum og ráðgerir viðtæk verkföll og mót- mæli 1. mai þrátt fyrir bann stjórnarinnar. Arias varaði við því i ræðu sinni að öll mótmæli yrðu barin niður. I ræðu sinni vísaði Arias for- sætisráðherra á bug tillögum um þjóðaratkvæðagreiðslu um fram- tíð konungdæmisins og kallaði það „kjarna þjóðlífsins". Arias kvaðst hafa talið nauðsyn- legt að ávarpa þjóðina vegna auk- innar ringulreiðar og undirróð- urs. Hann ítrekaði að flokkur kommúnista yrði bannaður og sagði að þeir fengju ekki að taka þátt í kosningum. Hann sagði að kommúnistar hefðu ekki gleymt ósigrinum í borgarastríðinu og hygðu á hefndir. Berlina og Special 2ja og 3ja dyra nýkominn til afgreiöslu strax. FIAT 127 er vinsæll bíll um allan heim vegna aksturseiginleika og glæsilegs útlits. FIAT 127 hefur hlotiö viöurkenningar bílablaöa og sérfræöinga t.d. veriö 4 sinnum valinn „Bíll ársins í Evrópu” og enn aukast vinsældirnar. FIAT EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI Davíð Sigurðsson hf, SiÐUMULA 35. SÍMAR 38845 — 38888 Nýr hitamælir Nýtt mælaborð úr mjúku plastefni — Kveikjari Kraftmikil 2ja hraða miðstöS.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.