Morgunblaðið - 29.04.1976, Síða 32
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
ftttrgtsitblabtfe
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
JHorjjimblabib
FIMMTUDAGUR 29. APRÍL 1976
RÓÐUR — Heldur hefur lifnað yfir vertíðinni suðvestanlands síðustu daga, þó naumast valdi það
neinum straumhvörfum á þessari lélegu vertíð. Hér er vb. Bergþór frá Sandgerði að draga netin á
Eldeyjarbanka, en Bergþór er nú annar aflahæsti báturinn á þessari vertíð.
Ljósmynd Friðþjófur
. r
Utflutningur íslenzks kindakjöts til Noregs:
500 tonn til
viðbótar ?
NORDISK kjöt og flesk central f Noregi hefur óskað eftir þvf að kaupa
af Islendingum 500 lestir af kindakjöti til viðbótar þvf sem þegar
hefur verið selt til Noregs af fslenzku kjöti, en það eru 2.250 lestir.
Framleiðsluráð landbúnaðarins vill gjarnan selja meira til Noregs af
kjöti og hefur sótt um innflutningsleyfi á þessum 500 tonnum, en í gær
hafði það leyfi enn ekki fengizt hjá norskum yfirvöldum.
Sveinn Tryggvason, fram-
kvæmdastjóri Framleiðsluráðs-
ins, sagði í gær að þessi norski
aðili, sem væri norsku bændasam-
tökin, hefðu undanfarið gefið 9 til
9,50 krónur norskar fyrir hvert
kg af íslenzku kindakjöti, en það
er jafnvirði 295 til 312 króna ís-
lenzkra. Nýlega sagði Sveinn að
orðið hefði fjögurra króna
hækkun á kg í Noregi, eða
hækkun, sem nemur um 131
krónu á hvert kg. Samkvæmt því
getur því hvert kg af kindakjöti í
Noregi farið upp í 443 krónur.
Sveinn sagði að útsöluverð t.d.
lambalæris i Noregi væri um 30
krónur norskar fyrir hvert kg,
þ.e. um 985 krónur íslenzkar, en
álagning er þar mjög há. Enn-
fremur kvað hann verðbólgu hafa
verið talsvert mikla í Noregi, þótt
skýrslur segðu annað og nefndi
sem dæmi að fyrir um 4 árum
hefði lambalæri kostað um 14
krónur norskar hvert kg — eða
jafnvirði 459 króna íslenzkra
miðað við núverandi gengi.
Sveinn sagði, að sá norski aðili,
sem vildi kaupa þessi 500 tonn af
kjöti, sem nú væri rætt um, hefði
ekki boðið neitt ákveðið verð
fyrir kjötið, en af fyrri reynslu
væri vitað að verðið myndi verða
á bilinu 13 til 13,50 krónur norsk-
ar fyrir hvert kg.
Búizt er við töluverðri
hörpudisksveiði í sumar
BtlAST má við þvf að töluverð
hörpudisksveiði og vinnsla verði f
sutnar á vestanverðu landinu.
Hörpudisksveiði er til að mynda
að hefjast núna f Arnarfirði f
Óðínn klippti
— Statesman
sigldi á Ver
kjölfar rækjuveiðinnar. Einnig
munu verða stundaðar slfkar
veiðar frá Hólmavík og á
Hvammstanga, Blönduósi og
Skagaströnd er mjög til athug-
unar að veiða og vinna hörpudisk
f sumar, en Hafrannsóknastofn-
unin hefur nýlega fundið veru-
legt magn af hörpudisk á svæðinu
frá Blönduósi og langleiðina að
Kálfshamarsvfk. Þá má einnig
búast við hörpudisksveiði í Jökul-
fjörðunum, þar sem fannst tölu-
vert af hörpudiski f hinum sama
leiðangri og einnig f Breiðafirði,
þar sem reynt verður að haga
veiðunum þannig að fremur verði
sótt á hin fjarlægari mið þar f
sumar en þeim nærlægari lokað.
Að því er fréttaritari Morgun-
blaðsins á Hvammstanga, Karl
Sigurgeirsson, tjáði Morgunblað-
inu er nú mjög í athugun að vinna
hörpudisk þar eftir að rækju-
vertíð er lokið, en það myndi
veita mikla atvinnu ef af yrði, og
kemur sér vel, m.a. fyrir skóla-
fólk. Fer þessi athugun fram í
framhaldi af hörpudisksleitinni í
Húnaflóa og þeim góðu niðurstöð-
um sem þar fengust.
Morgunblaðið hafði samband
við Hrafnkel Eiríksson fiskifræð-
ing og spurði hann nánar um
þessi hörpudisksmið. Hrafnkell
sagði, að um miðjan marz hefði
verið farinn sérstakur leiðangur
til að athuga þessi mið. Fyrst hafi
verið farið í ísafjarðardjúp og þar
m.a. verið könnuð hörpudisksmið
í Jökulfjörðunum og isafjarðar-
djúpi, þar sem séð hefði verið að
áhugi væri fyrir þessum veiðum
Framhald á bls. 18
Lsafoldarhúsin
seldust fyrir um
100 milljónir kr.
SVO SEM kunnugt er af frétt-
um voru Isafoldarhúsin við
Austurstræti seld nýlega. Sá
maður, sem undirritaði kaup-
samning fyrir hönd kaupenda
var Sverrir Kristinsson, fast-
eignasali f Eignamiðluninni í
Vonarstræti. Mbl. spurði
Sverri í gær, hverjir væru
kaupendur að húsunum og
sagðist hann ekki geta skýrt
frá því að svo stöddu, þar sem
ekki væri enn fullfrágengið,
hvernig eignaraðild að þeim
yrði háttað.
Áður hefur komið fram í
fréttum og var það þá haft
eftir Ólafi B. Thors, að kaup-
verð húsanna hefði verið um
100 milljónir króna. Sverrir
sagðist geta staðfest þá tölu.
Aðspurður, hvað hinir nýju
eigendur ætluðu að gera við
húsin sagði hann að húsin
myndu örugglega standa enn
um sinn, því að kaupverð
þeirra væri það hátt að það
væri að sýnu mati allt of hátt
sem lóðaverð eingöngu.
Þá hafði Mbl. samband við
Sigurð Líndal prófessor for-
seta Hins íslenzka bókmennta-
félags, og spurði, hvort félagið
ætti einhvern þátt i þessum
kaupum. Sigurður sagði það
ekki vera.
Samningurinn við Vestur-Þjóðverja:
Reynslan sannar réttmætið
Þingmaður Alþýðuflokksins breyt
ir um afstöðu að fenginni reynslu
HELDHR hafði spennan á
miðunum fyrir austan minnkað
frá því í fyrradag, en þó tókst
varðskipinu Óðni í gærmorgun
um klukkan 08.30 að klippa tog-
víra aftan úr Ilulltogaranum St.
Gerontius, sem ber einkennisstaf-
ina H-350. Atburður þessi gerðist
í um 50 mflna fjarlægð f suðsuð-
vestur frá Hvalbak. Klukkan
09.20 sigldi svo dráttarbáturin
Statesman á varðskipið Ver. Ekki
urðu miklar skemmdir á varð-
skipinu lunning lagðist niður á
2ja metra kafla á stjórnborðshlið
þess aftan við fremri gálga.
Allmikil fækkun hefur orðið í
brezka togaraflotanum undan-
farna daga. 1 gær var aðeins 21
togari á miðunum fyrir austan, en
fyrir örfáum dögum var tala
Framhald á bls. 18
HARÐAR umræður urðu í efri
deild Alþingis í gær, f tilefni
þess, að þá voru 5 mánuðir liðnir
frá því er samningurinn við V-
Þjóðverja um takmarkaðar veiði-
heimildir gekk f gildi, án þess að
bókun sex (um tollfríðindi ís-
lenzkra sjávarafurða) væri komin
til framkvæmda. Samningurinn
gerir ráð fvrir þvf að þá geti Is-
lendingar einhliða frestað fram-
kvæmd hans.
Sa atburður gerðist i þessum
umræðum, að einn af þingmönn-
um Alþýðuflokksins, Bragi Sigur-
jónsson, sagði sig hafa verið and-
vígan samningnum í þeirri trú, að
hægt hefði verið að verja 200
mílna íslenzka fiskveiðilandhelgi
bæði gegn Bretum og V-
Þjóðverjum. Reynslan hefði sann-
fært sig um að þetta væri rangt
mat. Rétt hefði því verið að gera
þennan samning á sinum tíma og
rétt væri að semja við Breta, ef
viðunandi samningar fengjust.
Einn af þingmönnum Sjálfstæð-
isflokksins, sem og lýsti samn-
ingsvilja sínum, bæði við V-
Þjóðverja og Breta, Albert Guð-
mundsson, sagði hins vegar, að
það ylli sér furðu og vonbrigðum,
að ríkisstjórnin skyldi ekki fresta
framkvæmd v-þýzka samningsins
nú þegar, þar sem samnings-
ákvæðið um tollfriðindi inan EBE
hefði ekki komið til framkvæmda,
þrátt fyrir 5 mánaða ákvæði.
Sjá nánar um þessar umræður á
þingsíðu blaðsins.