Morgunblaðið - 08.05.1976, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 08.05.1976, Blaðsíða 1
32 SÍÐUR 98. tbl. 63. árg. __LAUGARDAGUR 8. MAl 1976_Prentsmiðja Morgunblaðsins. „Hagsmunir íslands eins vel tryggðir og hægt er 1 stöðunni” Grundvallartexti hafréttarfrumvarpsins um efnahagslögsögu lagður fram óbreyttur Næsti fundur í New York 2. ágúst—17. september n.k. Skipverjar á Tý slóu ekki slöku við, þar sem skipið lá inni á Berufirði ( gær. Unnið var af miklum krafti við að gera við skemmdir til bráðabirgða, en á þessari mynd sjást tveir vélstjóranna undirbúa að skera stykki f burtu. Afturhluti Týs bakborðsmegin er mjög illa farinn og töluverðar skemmdir munu vera undir sjólfnu m.a. brotnuðu öll skrúfublöðin af bakborðsskrúfu. New York, 7. maí „ÞESSI úrslit eru íslendingum eins hagstæð og hugsast getur, og allar greinarnar í öðrum kafla varðandi efna- hagslögsöguna óbreyttir frá grundvallartextanum, sem lagður var fram í Genf í maí á sl. ári þannig að hagsmunir íslands eru í þessari stöðu eins vel tryggðir og hægt er,“ sagði Eyjólfur Konráð Jónsson alþingismaður í samtali við Mbl. í gær frá New York, eftir að endurskoðaður texti að hafréttarfrumvarpinu hafði verið lagður fram á loka- fundi 3. áfanga ráðstefnunnar. Þá var jafnframt sam- þykkt á fundinum að næsti áfangi skyldi hefjast í New York 2. ágúst n.k. og standa til 17. september. Eyjólfur Konráð sagði að það i væri ásetningur manna, að nota fyrstu 3 vikurnar í ágúst til að reyna að setja niður ágreinings- atriði og ná samstöðu um sam- komulag, en ef það ekki tækist, þá yrði farið út í atkvæðagreiðslur um hin ýmsu mál. Sagði Eyjólfur Konráð að þótt erfitt væri að spá um framvindu mála virtist nú fátt geta komið í veg fyrir að 200 mílurnar yrðu að alþjóðalögum. Textinn um lögsögu ríkja í frumvarpinu er mikilvægastur fyrir tslendinga, þar sem gert er ráð fyrir því í 46. grein að strand- ríki megi ákveða efnahagslögsögu Talið að 1000 hafi farizt í jarðskjálftunum á Italíu Majano, Feneyjum, Róm, 7. mal — AP. Reuter RtJMLEGA 550 lfk hafa verið grafin upp úr rústum húsa f borg- um og bæjum á Norðaustur-ítalfu eftir jarðskjálftana miklu á fimmtudagskvöld, og er óttazt að dánartalan eigi eftir að fara upp fyrir 1.000 áður en lýkur. Ekki ber mönnum saman um styrkleika jarðskjálftanna, en tal- ið er að mestu hræringarnar hafi mælzt 6,9 á Richterkvarða. Mann- skaði varð hvergi nema á ítalfu, en hræringanna varð einnig vart f Júgóslavfu, Austurrfki, Tékkó- slóvakfu, Vestur-Þýzkalandi, Frakklandi, Belgfu og Hollandi. Talsmaður innanríkisráðuneyt- isins I Róm segir að áætlað sé að um 110 þúsund manns hafi misst heimili sín. Giovanni Leone forseti ítalíu heimsótti jarðskjálftasvæðin við rætur ítölsku Alpanna I dag og herma fregnir að hann hafi verið gráti næst er hann gekk um og ræddi við særða. Fjölmennt björgunarlið vinnur að því að grafa I rústunum, þar á meðal eitt þúsund hermenn. Greip nokkur ótti um sig I dag þegar jörðin fór að skjálfa á ný, en kippirnir voru yfirleitt vægir, sá öflugasti um 4,2 á Richter- kvarða. Framhald á bls. 18 sína allt að 200 mílum frá grunn línum. 1 50. gr. segir að strand- ríkið skuli sjálft ákveða hvað sé leyhlegt aflamagn innan efna- hagslögsögunnar, I 51. gr. segir að standríkið ákveði einnig getu sína til að nýta aflamagnið, en þetta eru þau tvö atriði, sem Islendingar hafa lagt höfuð- áherzlu á frá upphafi. Þá eru greinar 57—59 einnig óbreyttar, en þær gera ráð fyrir því að land- luktu ríkin skuli hafa aðgang að efnahagslögsögu samliggjandi rfkja, en þó skuli þau fara eftir sérstökum samningum, þar sem tekið skuli sérstakt tillit til allra efnahagssjónarmiða, bæði land- luktra rlkja og strandríkja, sem þar kom til greina. I 58. greininni eru réttindi fyrir afskipt ríki bundin við afskipt nálæg þróunarlönd, þó þannig aðgætt sé ákvæða 50. og 51. greina. Þá er þannig gengið frá kaflanum um lausn deilumála að ágreiningur um þau atriði verði ekki borinn undir þriðja aðila án samþykkis strandríkis. 1 frumvarpinu er ekki gert ráð fyrir neinum sérstökum undan- þágum innan efnahagslög- sögunnar, sem hlýtur að boða hag- stæða niðurstöðu þegar endan- lega verður gengið frá nýjum haf- réttarsáttmála. 1 ræðu sinni I dag sagði Aguilar formaður 2. nefndar. er hann Framhald á bls. 18 Mikill gleðidagur eftir streð myrkranna milli” — sagði Hans G. Andersen, formaður ísl. sendinefndarinnar MBL. náði f gærkvöldi sam- bandi við formann fslenzku sendinefndarinnar á hafréttar- ráðstefnunni, Hans G. Ander- sen sendiherra, og spurði hann hvað honum væri efst f huga á þessum degi. „Þetta er mikill gleðidagur eftir margra vikna streð myrkr- anna á milli og mikla óvissu, því að maður hefur aldrei getað vitað hverjar lyktirnar yrðu fyrr en nú I dag. Það hafa auð- vitað allir reynt að knýja sitt fram og stöðug togstreita verið milli hinna ýmsu hópa eins og gengur og gerist. — Er nokkuð hægt að spá I ljósi þessara úrslita hvort hægt verður að ljúka efnislegum störfum á ágústfundinum nk.? — Já, eftir að ákvörðunin um þann fund var tekin nú I dag er stefnt að því að ljúka efnislegum störfum á næsta fundi þannig að aðeins verði eftir formleg undirritun. Fyrri hluti næsta fundar verður notaður til að reyna enn einu Framhald á bls. 18 t rústunum f Udine á Norður Italfu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.