Morgunblaðið - 08.05.1976, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. MAI 1976
radauglýsingar — raöauglýsingar — raöauglýsingar
til sölu
Góð mold
Hin árlega moldarsala Lionsklúbbsins
Muninn verður helgina 8. og 9. maí.
Tekið verður á móti pöntunum í símum
42478 — 41938 — 44534. Moldinni
verður ekið heim.
Lítil
Matvöruverzlun
í austurbænum í eigin húsnæði til sölu.
Góð velta og góður lager Hentugt tæki-
færi fyrir hjón eða einstakling að skapa
sér trygga atvinnu og góða tekjumögu-
leika.
Tilboð sendist Mbl. fyrir 17. maí merkt
,,góður staður — 3793"
Til sölu er
barnafataverzlun
á góðum stað í bænum. Tilboð merkt
,,Verzlun: 3876", sendist Mbl. fyrir 14.
mai.
Til sölu
Ford Transit sendiferðabíll árgerð 1971
Góður bíll, fæst á góðum kjörum.
Til sýnis í bílasölunni við Vitatorg. Sími
12500 — 12600.
| húsnæöi í boöi
Til leigu
Steinsteypt einbýlishús til leigu á besta
stað í gamla miðbænum góður garður
160 fm. íbúðarhúsnæði. Tilboð merkt
..Miðbær: 3880" sendist Mbl. fyrir 12.
maí.
óskast keypt
Traktorsgrafa
M.F. 50 eða önnur tilsvarandi stærð
óskast til kaups. Upplýsingar í síma 99-
4150.
Si/eitastjóri Hveragerðishrepps.
húsnæöi óskast
Reykvíkingar
athugið
Ég óska eftir einu herb og eldhúsi fyrir
18 ára skólastúlku næsta vetur (algjör-
lega reglusöm), get tekið ungling á gott
heimili úti á landi og útvegað atvinnu i
sumar í staðinn. Tilboð leggist inn á
afgreiðslu Mbl merkt: „Góð skipti:
Sumarbústaður
Félagasamtök óska að taka á leigu á
þessu sumri góðan sumarbústað á falleg-
um stað. Góð leiga fyrir góðan bústað í
boði
Tilboð óskast sent til afgr. Mbl. merkt:
„Fisk-967", fyrir miðvikudagskvöld.
íbúð óskast til leigu
Ungur barnlaus hagfræðingur óskar eftir
nýlegri 3ja—4ra herb. íbúð i vestur-
bænum frá 1 júní n.k. Vinsamlegast
hringið í síma 17447 í dag milli kl.
9 — 2.
Snæfellingar
Sjálfstæðisfélagið Skjöldur
Stykkishólmi.
Heldur fund í Lionshúsinu, sunnudaginn
9. maí 1976 kl. 4 síðdegis.
Fundarefni: Friðjón Þórðarson alþingis-
maður og Birgir Guðmundsson um-
dæmisverkfræðingur ræða samgöngu-
mál.
Fyrirspurnir — Almennar umræður —
Önnur mál
Stjórnin.
HliOMttttWíl&iíii
Vinsamlega birtið eftirfarandi smáaugiýsingu
í Morgunblaðinu þann: ..........................
i I__L.. I.1 1_I_I. 1... 1 1_I_I, 1 1... J_L_1_I_I Fyrirsögn
■------r--y
‘ Athugið
Skrifið með prentstöfum og <
setjið aðeins 1 staf í hvern reit.
Áríðandi er að nafn, heimili
°9 sími fylgi.
-V-V-
1-V—
——v-
irw
XU A£/Su ,
jW ,7'AJCA A
JJA M£A,& VS.Ú6. ,/, 6A/IÍM
ó&'ilvA., £,*,un A£/A/Jí,/,
,///’/’,t.yj,/*.<:,//*• ,/, á,/stA tAonA
i80 Auglýsingunni er veitt móttaka á eftirtöldum stöðum:
1 I I L
J I I I I I I I L
J I I L
J L
J L
J I I L
J I I L
l I I I L
J—I I L
J
J I L
i l i i
I L
J I L
J I I I I L
I 1
J L
J L
J L
J
J—1-
J__I__I_I__I__I 360
J__I__I_I__I__I 540
REYKJAVIK:
HAFNARFJÖRÐUR:
J I L
J I I L
-I I
J L
J L
KJÖTMIÐSTÖÐIN, Laugalaek 2, LJÓSMYNDA-
J 720 SLÁTURFÉLAG SUÐURLANDS 06 GJAFAVÖRUR
Háaleitisbraut 68, Reykjavíkurvegi 64,
J 900 KJÖTBÚÐ SUÐURVERS, Stigahlíð 45—47, VERZLUN
1080 HÓLAGARÐUR, Lóuhólum 2-6 ÞÓROAR ÞÓRÐARSONAR,
„„ SLÁTURFÉLAG SUÐURLANDS Suð“,9d’U 36'_________
Álfheimum 74,
Hver lína kostar kr. 150 Meðfylgjandi er greiðsla kr.
NAFN: .......................................
HEIMILI: ....................................SÍMI:
A 4 i A A A A A A A A 4 A
KÓPAVOGUR
ÁRBÆJARKJÖR,
Rofabæ 9,
ÁSGEIRSBÚO, Hjallabrekku 2 '
BORGARBÚÐIN, Hófgerði 30
Eða senda í pósti ásamt greiðslu til Smáauglýsingadeildar
Morgunblaðsins, Aðalstræti 6, Reykjavík.
A A
. A A
Rannveig Guömundsdóttir
frá Sveinseyri - Minning
Lét hún aldroi
um a-vidaua
hrckjast scm strá fyrir stnrmí:
meinlætí oj? mótKoró.
som rnaruan sinrar.
har hún með auöm<ktarafli.
!>latth. Joch.
Rannveig Guðmundsfióttir lézt
á Borgarspítalanum 13. apríl s.l. á
68. aldursári, eftir þungbæran og
dimman veikindavetur, og var
jarðsett frá Fossvogskirkju á öðr-
um degi nýbyrjaðs sumars.
Á útfarardegi þessarar ágætu
vinkonu minnar, verður mér fyrst
og fremst hugsað til þess, að ekki
skera ytri aðstæður úr um sannan
manndóm, heldur sú afstaða, sem
tekin er til þess, er mætir. Því er
það, að margur, sem lítið ber á í
amstri og flaustri daganna, býr
yfir meiri mannkostum en prýða
ýmsa þá, er berast á og fara
mikinn. Slikar manneskjur bera
raunar uppi það líf, sem verð-
skuldar að kallast mannlif — í
sannastri merkingu orðsins. Ein
þess konar manngerð var
Rannveig Oktavía Guðmunds-
dóttir, eins og hún hét fullu nafni.
Rannveig var fædd að Sveins-
eyri í Tálknafirði 25. ágúst 1908.
Foreldrar hennar voru höfðings-
hjónin Guðríður Guðmundsdóttir,
Arnfirðingur, frá Skeiði í Selár-
dal, og Guðmundur Jónsson bóndi
og kaupfélagsstjóri — og ótal-
margt fleira — á Sveinseyri: víð-
kunnur og vinsæll sveitarhöfðingi
á sinni tíð.
Rannveig ólst upp í föðurgarði
við líf og fjör athafnasams
myndar- og rausnarheimilis við
hlið margra systkina og mikinn
gestagang. Þar Ieiddist engum,
því ærið nóg var að starfa fyrir
alla tii lands og sjávar, og
„kynslóðavandamál“ óþekkt orð,
hvað þá veruleiki. Snemma var
telpan tápmikil og tiltakanlega
dugleg, og skemmtileg og greind í
bezta lagi. En snemma syrti að
fyrir henni, svo heil æviraun
varð. Ung að árum smitaðist
Rannveig af berklum, við störf
fjarri heimili sfnu, var tvisvar
sinnum á Vífilsstöðum, heilt ár í
hvort skipti, en undir læknis-
hendi og í reglubundnu eftirliti
langtímum saman. Geta fáir
ímyndað sér, hvert álag slíkt er,
bæði andlegt og líkamlegt, við oft
og tiðum andsnúnar aðstæður.
En allt þetta bar Rannveig með
hinum mesta hetjuskap og
dugnaði, og kveinkaði sér aldrei.
Kunnugir gátu þó gert sér í
hugarlund, hvað hún leið. Hún
vann samt fyrir sér alla tíð af
undraverðum dugnaði og
einbeitni — var saumakona og
verkmanneskja með afbrigðum;
afkastamikil og eftir því vand-
virk. Er 30 ára samfelld þjónusta
í þágu sama fyrirtækis til nokkurs
mark um þetta.
En svo dugmikil sem Rannveig
var, er mér og sjálfsagt mörgum
öðrum þó enn minnisstæðara,
hversu heilsteypt, hjartahlý og
góð hún var. Þeirra eiginleika
hennar munu bezt hafa notið þau
börn, er hún komst í kynni við, og
þá ekki hvað sízt nafna hennar
litla og önnur frændsystkin.
Annars var hún ein þeirra, er
ekkert aumt eða hjálparvana
mega sjá án þess að iiðsinna.
Þótt Rannveig væri svo sjálf-
stæð og myndug sem ég hefi
þegar látið liggja að, má ekki
gleyma því, að vissulega átti hún
góða að, sem allt hefðu viljað
fyrir hana gera. Mér er sérstak-
lega minnisstæð umhyggja for-
eldranna fyrir henni á sínum
tfma, og víst hefðu þau viljað létta
henni lífið, svo og aðrir nánir
Framhald á bls. 30