Morgunblaðið - 08.05.1976, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. MAÍ 1976
Röntgendeild Borgarspítalans 10 ára:
14 hektarar af röntgenmyndum
— hálf meðalræktun bújarðar
RÖNTGENDEILD Borgarspít-
alans átti 10 ára afmæli 1 gær
og f tilefni þess höfðum við tal
af Ásmundi Brekkan yfiriækni
deildarinnar og leituðum frétta
af starfinu.
Ásmundur sagði að alls hefðu
Ásmundur Brekkan yfirlæknir
Röntgendeildar Borgar-
spftalans ásamt einni af
hjúkrunarkonum deildarinnar
að vinna við röntgenmynda-
töku. Ljósmynd Mbl.
Friðþjófur.
þeir framkvæmt 253 þús. rönt-
genrannsóknir á þessu tímabili
og væru þær færðar á skýrslur
deildarinnar.
Filmunotkun deildarinnar á
þessum tíma hefur verið 140
þús. fermetrar, eða 14 hektarar
Og er það álíka stórt svæði og
helmingur meðalbújarðar i
sveit sem er 27 ha.
Upphaflegt kaupverð tækja
sagði Ásmundur hafa verið 8,6
millj. kr., en núverandi endur-
kaupsverð væri ekki undir 150
millj. kr.
Þá gat Ásmundur þess að
framleiðsluverð á þessum 253
þús. röntgenrannsóknum væri
á þessum 10 árum 1200 millj.
kr. miðað við verðlag i dag, en
um þessar mundir starfa 40
starfsmenn á röntgendeildinni.
Aðspurður svaraði Ás-
mundur um aðstöðu deildarinn-
ar í Borgarspítalanum: „Það
má segja að öll tæki séu orðin
útslitin og meira og minna úr
sér gengin eftir þessa notkun
og við búum við mjög þröngan
húsakost, allt of þröngan.
Undirbúa
mótmælagöngu
frá Keflavík
LAUGARDAGINN 15. maí n.k.
efna herstöðvarandstæðingar til
mótmælagöngu gegn herstöðvum
og aðild Islands NATO.
Gangan hefst við aðalhlið her-
stöðvarinnar í Keflavík kl. 8.30.
Þar ávarpar Karl Sigurbergsson
skipsstjóri gönguna. Gengið
verður til Reykjavíkur í nokkrum
áföngum en göngunni lýkur með
útifundi á Lækjartorgi kl. 22.00.
Þar flytja ræður: Sigrún Huld
Þorgrimsdóttir starfsstúlka, Árni
Hjartarson kennari, og Svava
Jakobsdóttir alþingismaður,
Fundarstjóri verður Andri tsaks-
son prófessor.
Á blaðamannafundi með Mið-
nefnd herstöðvarandstæðinga
sagði Andri Isaksson að mið-
nefndin vildi eggja Islendinga til
tvíefldrar baráttu gegn hersetu á
Islandi, en væntanleg ganga er sú
áttunda sem er farin vegna her-
stöðvarmálsins. 4 göngur hafa
verið milli Keflavíkur og Reykja-
vikur, ein frá Hafnarfirði og ein
úr Hvalfirði, en aðrar hafa verið
styttri.
Akranes:
Karlakórinn
Svanir með
tónleika á
sunnudag
Akranesi — 7. maí.
KARLAKÖRINN Svanir, sem
hefur starfað hér í mörg ár, efnir
nú til tónleika nk. sunnudag kl 21
í Bíóhöllinni. Allan ágóða af þeim
ætla kórfélagar að láta renna til
styrktar ekkjum og börnum
þeirra sjómanna, sem fórust með
Hafrúnu frá Eyrarbakka sl. marz.
Aðgöngumiðinn kostar kr. 500 en
einnig verður tekið á móti frjáls-
um framlögum þeirra sem vilja
leggja fram meira. Má búast við
því, að Akurnesingar og fólk úr
nærliggjandi sveitum noti þetta
tækifæri til þess að hlusta á góðan
söng og styrkja um leið gott mál-
efni. —júifus.
r
Asgrímssýning
á Akranesi
Akranesi, 6. maf —
I DAG klukkan 14 verður opnuð
sýning á 26 verkum Ásgríms Jóns-
sonar í Bókhlöðunni hér á Akra-
nesi. Á sýningunni verða 18
vatnslitamyndir og 8 olíumálverk.
Elzta myndin er frá árinu 1900,
en sú yngsta frá árinu 1956. öll
þessi verk eru fengin að láni úr
Ásgrimssafni. Sýningin er opin
daglega frá klukkan 16 til 22 og á
laugardögum og sunnudögum
klukkan 14 til 22. Sýningunni
mun ljúka sunnudaginn 16. mai.
— Júlfus.
I kvold, laugardag, i fyrsta sinn a Islandi
í Grindavík meö Paradís og Laufinu.
■ TT' TITI h *V ,
Laufið
Föstudag 14. maí í Víkurröst Dalvík meö Galdrakörlum.
Laugardag' 15. maí í Felli Husavík með Galdrakörlum.
Sunnudag 16. maí í Félagsh. Blönduósi með Galdrakörlum.
Skólar athugið í miðri viku er hægt að fá þessa frábæru hljómsveit.
Hafið samband við Tómas Tómasson i Festi, í símum 92-8389 og
92-8255, eða í síma 1 6520 eða Helga Steingrímsson (F.í.h.)
í síma 20255 kl. 2—5
Vísist á skemmtanasíðuna.
Brezka hljómsveitin
Red sky at night