Morgunblaðið - 08.05.1976, Side 29
3Tet ÍAM ,8 HUOACIHADUAJ JiICIAJaVÍUDHOM
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. MAÍ 1976
29
VELVKVKAIMDI
% Það snjóar
og snjóar...
Árni Gunnarsson skrifar:
Smá orðsending til þeirra sem
taka ákvörðun um það hvenær
bifreiðaeigendur hætti að aka á
negldum dekkjum. . .
Sjáið þið það sem ég sé? Það
snjóar og snjóar og snjóar og
snjóar og snjóar og snjóar og
snjóar og snjóar og snjóar og
snjóar og snjóar og snjóar og
snjóar og snjóar og snjóar og
snjóar og snjóar og snjóar og
snjóar og snjóar og snjóar og
snjóar. Hér áður virtist það vera
svona þegjandi samkomulag við
veðurguðina að við fengjum að
vera með þetta í friði fram til 15.
maí. Af hverju voruð þið nú að
raska þessu?
0 Sælgæti fyrir
sykursjúka
Kona, sem áður hefur látið
til sin heyra hér í dálkunum
vegna þess, hve erfitt hefur oft
verið að fá sælgæti fyrir sykur-
sjúka, kom enn að máli við blaðið
nú í vikunni. Hún hafði þær frétt-
ir að færa að sælgæti fyrir sykur-
sjúka væri nú aftur fáanlegt, en
kvartaði undan því, hve dýrt það
væri, til dæmis samanborið við
annað sælgæti.
Hún sagði að sér væri kunnugt
um, að verð á sælgæti fyrir sykur-
sjúka væri mjög mismunandi í
hinum ýmsu löndum. Það væri
t.d. dýrt í Danmörku, en í Eng-
landi væri það mjög ódýrt. Kvaðst
hún nokkrum sinnum hafa fengið
það þaðan. Vildi hún vekja at-
hygli innflytjenda á þessu.
• Um
tslandsglímu
Eldibrandur skrifar:
Nýlega var islandsgliman háð
og sýnt frá henni í sjónvarpinu.
Ekki var ég ánægður með hvernig
þáttur þessi var unninn; vil ég
skýra það nánar.
Allt of oft var myndavél beint
að áhorfendum á spennandi
augnablikum glímunnar.
0 Vorhretin
árvissu
Við héldum að það væri að
vora og hlýna, eins og skáldkon-
an, sem orti þetta:
Ég hélt að það væri
að vora og hlýna
og vonin hún kemst yfir allt.
Bjn þegar ég skreið í
holuna mína
var helvítið ísjökul kalt.
Velvakandi svarar I sima 10-100
kl. 1 4— 1 5, frá mánudegi til föstu-
dags
Konan sagðist ekki sjálf vera
neinn sérstakur sælkeri, en áhugi
sinn á sælgæti fyrir sykursjúka
væri fyrst og fremst til kominn
vegna þess, að hún þekkti fólk,
sem ætti sykursjúkt barn. Barnið
ætti að sjálfsögðu érfitt með að
skilja, hvers vegna það væri sett
útundan, þegar hin börnin fengju
sælgæti. Heima kemur þetta ekki
að mikilli sök þar sem foreldrarn-
ir gæta þess. En utan heimilis — í
boðum og slíku — væri þetta
mjög slæmt. Nú þegar sælgæti
fyrir sykursjúka fengist væri
hægt að bjarga málum — en kon-
an undirstrikaði það að verð á
þessu sælgæti væri óheyrilega
hátt. Væri sízt ástæða til að
iþyngja þeim, sem við vandkvæði
ættu að stríða.
nokkrum skjölum, en við urðum
að skilja eftir öll tæki. Okkur
fannst við yrðum fyrst og fremst
að huga að þvf að koma Made-
leine á öruggan stað. Við vissum
nefnilega það sem Marcel var
ókunnugt um, að Madeleine var
barnshafandi. Nó óttaðist hún
meira en allt annað að missa
fóstrið. Simone sagðist skyldu
koma henni á öruggan stað. Hún
sagði einnig að ég yrði að hugsa
um mfna eigin fjölskyldu og við
urðum að vona að fréttir hefði
borizt til Herault læknis um hvað
komið hefði fyrir, svo að hann
forðaðist að reyna að snúa aftur
til hússins. Við skildum á næsta
götuhorni, Simone og Madeleine
fóru saman og ég hvarf mfna leið.
Það var f sfðasta skipti sem ég sá
þær.
Mme Desgranges gerði á ný hlé
á máli sfnu. Löng þögn rfkti f
herberginu. Helen leit snöggt á
David. Hann sat og hallaði höfð-
inu fram og studdi með heil-
brigðu hendinni á hné sér.
Hann sagði stiililega.
— Og hvað dreif svo á daga yðar
eftir þetta?
— Ég gat með harðfylgi komið
fjölskvldu minni f felur á bónda-
bæ þar til strfðinu lauk. Mér tókst
Samband Bjarna Felixsonar og
þess, sem honum var til aðstoðar,
var næsta furðulegt. Bjarni tók
fram í fyrir honum allt of oft. Og í
eitt skipti, þegar hann ætlaði að
segja frá einhverju, sem gerðist í
einni glímunni og sem hann
kvaðst ekki hafa séð áður, tók
Bjarni hreinlega af honum orðið
og aldrei fékkst skýring á því sem
við var átt. Virkaði þetta illa á
áhorfendur, þar sem ég var stadd-
ur, þegar glíma þessi fór fram.
Að lokum, er ekki hægt að sýna
nokkrar glimur hægt (slow
motion) fyrir þá, sem ekki hafa
glímt, en þykir gaman að fylgjast
með glímunni. Oft er erfitt að
greina brögð, sem gerast með
undrahröðum hætti.
Svona er sjálfsagt mörgum
innanbrjósts um þessar mundir,
sem hélt að veturinn væri liðinn
og vorið hlýja komið. En svo allt í
einu er helvitið ís jökul kalt. En
þó okkur hafi vafalaust fundizt að
við hlytum að vera búin að fá
okkar skammt af vondum
veðrum, kulda og snjó í vetur á
þessu landi, þá máttum við
raunar alltaf búast við vor-
hretum, þó hlýnaði í bili. Sem
sannar aðeins það, að maðurinn
fær ekki alltaf, það sem hann á
skilið. Við áttum skilið gott og
blítt vor eftir harðan vetur — og
kannski er ekki útséð un að svo
geti orðið. Ekki er mikill klaki i
jörðu eftir veturinn, og þess
vegna ætti að grænka fljótt eftir
að hlýnar.
HÖGNI HREKKVÍSI
(ji?! 1976
HrNaufbt Sy«d„ lnc.
„Högni ætlar að fá nýtt áklæði í körfuna sína.“
Eyfirðingafélagið í Reykjavík heldur
hlutaveltu og
flóamarkað
í Iðnaðarmannafélagshúsinu við Hallveig-
arstíg (kjallara) sunnudaginn 9. maí kl. 2
e.h.
Engin núll. Miðinn kostar 100 kr. Einnig
verður kökubazar hjá kvennadeild Eyfirð-
ingafélagsins á sama stað.
Eyfirðingafélagið.
Útgerðarmenn — Skipstjórar
Tökum að okkur skipa og bátamálningu með
fullkomnustu tækjum sem völ er á, bæði til
hreinsunar undir málningu með vatns háþrýsti-
tæki blandað með sandi og nýjustu málningar
háþrýstitækjum. Gerum föst tilboð.
Faxaborg h.f., sími 92-2540 — 92-2694.
EF ÞAÐ ER FRÉTT- 8J NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐINU
Söltuð
grásleppuhrogn
EINS OG UNDANFARIN 30 ÁR KAUP-
UM VIÐ SÖLTUÐ GRÁSLEPPUHROGN í
MIKLU MAGNI. VIÐ BIOJUM GAMLA
OG NÝJA VIÐSKIPTAVINI AÐ HAFA
TAFARLAUST SAMBAND VIÐ OKKUR,
ÞAR SEM SKIP Á OKKAR VEGUM MUN
LESTA Á NÆSTUNNI FYRIR NORÐAN
OG AUSTAN.
Þóroddur E. Jónsson,
Tryggvagötu 10, Reykjavík,
sími 22069.
Alþingismenn og borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins verða til viðtals í Sjálf-
stæðishúsinu Bolholti 7 á laugardögum
frá klukkan 14:00 til 16:00. Er þar tekið
á móti hvers kyns fyrirspurnum og ábend-
ingum og er öllum borgarbúum boðið að
notfæra sér viðtalstíma þessa.
Laugardaginn 8. mai verða til viðtals:
Elín Pálmadóttir, borgarfulltrúi
Ólafur B. Thors, borgarfulltrúi
Sveinn Björnsson, varaborgarfulltrúi
VIÐTALSTIMI
Alþingismannsi og
borgarffulltrúa
SfálffstaeðisfloKksins
i Reykjavik