Morgunblaðið - 08.05.1976, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. MAl 1976
31
llngt og eínilegt pressulið
gegn reynslumikln landsliði
PRESSULEIKUR í knattspyrnu
fer fram á malarvellinum í
Kaplakrika á þriðjudagskvöld. og
voru bæði liðin valin f gær.
Landsiiðið skipa að stofni til
reynslumiklir leikmenn, sem
þegar hafa gert garðinn frægan
með fslenzka landsliðinu flestir
hverjir. Pressuliðið er hins vegar
að mestu skipað ungum leik-
mönnum, sem fæstir hafa leikið f
landsliði. Á þriðjudaginn fá þeir
tækifæri til að sanna getu sfna og
ef tii vill spila einhverjir sig inn f
landsliðið með góðum leik.
Yngsti leikmaðurinn f þessum
tveimur liðum er Skagamaðurinn
Pétur Pétursson, en hann er á
fyrsta ári f 2. flokki.
Landsliðið verður skipað
þessum leikmönnum á þriðjudag-
inn: Markverðir Árni Stefánsson
Fram, og Sigurður Dagsson Val.
Aðrir leikmenn: Ólafur Sigur-
vinsson ÍBV, Vilhjálmur
Kjartansson Val, Jón Pétursson
Fram, Marteinn Geirsson Fram,
Gísli Torfason ÍBK, Ásgeir Elías-
son Fram, Teitur Þórðarson lA,
Hörður Hilmarsson og Janus
Gulaugsson verða báðir f pressu-
liðinu á þriðjudaginn.
Matthías Hallgrímsson ÍA,
Guðmundur Þorbjörnsson Val,
Stefán Halldórsson Vfkingi, Árni
Sveinsson lA, Jón Gunnlaugsson
ÍA, Magnús Bergs Val, Ólafur
Fram náði ekki
í aukastig og
leikur Vals og
Víkings því
úrslitaleikur
FRAMARAR SIGRUÐU Ármann
í Reykjavíkurmótinu í knatt-
spyrnu f fyrrakvöld, en aðeins eitt
mark var skorað i leiknum og var
Ágúst Guðmundsson þar að verki
strax í byrjun leiksins. Ármenn-
ingar sóttu þó heldur meira í fyrri
hálfleiknum, en í þeim síðari réðu
Framarar lögum og lofum á vell-
inum. Þeim tókst þó ekki að skora
fleiri mörk og fengu ekki auka-
stig eins og þeir höfðu ætlað sér.
Framarar hafa nú lokið leikjum
sínum í Reykjavíkurmótinu og
eru með 8 stig. Valur og Víkingur
eru einnig með 8 stig og leiða
saman hesta sína í hreinum úr-
slitaleik á Melavellinum klukkan
19 á mánudaginn. í dag mætast
KR og Þróttur klukkan 14 á Mela-
vellinum.
Júlíusson ÍBK, Steinar Jóhanns-
son IBK og örn Óskarsson IBV.
Pressuliðið skipa eftirtaldir:
Markverðir Jón Þorbjörnsson
Þrótti og Þorbergur Atlason
Fram. Aðrir leikmenn: Eiríkur
Þorsteinsson Víkingi, Símon
Kristjánsson Fram, Janus
Guðlaugsson FH, Róbert Agnars-
son Víkingi, Sigurður Björgvins-
son IBK, Halldór Björnsson KR,
Hörður Hilmarsson KA, Pétur
Pétursson IA, Ingi Björn Alberts-
son Val, Óskar Tómasson Víkingi,
Jóhann Jakobsson KA, Albert
Guðmundsson Val, Pétur Ormslev
Fram, Kristinn Björnsson Val og
Karl Þórðarson IA.
Eins og sést á þessari
upptalningu eru 18 manns í lands-
liðinu en 17 í pressuliðinu. Er
stefnt að þvf að allir þessir leik-
menn fái að spreyta sig i leiknum.
Liðsstjórar pressuliðsins verða
væntanlega þeir Guðmundur
Jónsson og Jóhannes Atlason
þjálfarar Fram.
Fyrirliði pressuliðsins verður
Hörður Hilmarsson en í pressu-
liðinu er einnig annar Akpreyr-
ingur. Það er Jóhann Jakobsson
eða Donni eins og hann er tíðast
nefndur á Akureyri. Þá er vert að
geta þess í sambandi við pressu-
liðið að annar markvarða þess er
Þorbergur Atlason markvörður
Fram, en fyrir nokkrum árum var
allt útlit fyrir að Þorbergur yrði
að hætta knattspyrnuiðkunum
vegna meiðsla, en með eljusemi
og dugnaði hefur hann náð sér
það vel að hann er af fréttamönn-
um talinn einn af fjórum beztu
markvörðum landsins. I pressu-
liðinu eru 6 unglingalandsliðs-
menn, þeir Róbert, Sigurður, Jón
Albert og Pétrarnir báðir.
Tveir að norðan í nnglingalanösliðið
RAÐAÐ hefur verið f riðla f úrslitakeppni EM
unglinga, sem fram fer f Ungverjalandi f lok þessa
mánaðar. Lenda tslendingar f frekar hagstæðum
riðli, en andstæðingarnir verða Tyrkir, Spánverjar
og Svisslendingar. Þó er rétt að taka undir orð
Tony Knapps á blaðamannafundi hjá KSt f gær, en
hann sagði að lið þessara þjóða væru skipuð piltum
sem væru komnir á atvinnumannasamning og
væru þvf engin lömb að leika við. En hvað um það,
fslenzka unglingalandsliðið hefði getað fengið
erfiðari andstæðinga f keppninni, t.d. Engiendinga
eða Þjððverja.
Fjórum piltum hefur verið bætt við 16 manna
unglingalandsliðshópinn, sem æft hefur meira eða
minna saman sfðastliðið ár. Tveir þessara leik-
manna koma frá Reykjavfk, úr Val og Fram. Hinir
tveir eru að norðan, annar frá Siglufirði, hinn frá
Húsavfk, en Tony Knapp fylgdist með leik tveggja
norðienzkra ungiingaliða á Ákureyri á miðviku-
daginn.
Hinn kraftlegi víkingur
Mac Wilkins kastár 70,86
metra í kringlukasti og
var þar með fyrstur til að
þeyta kringlunni yfir 70
metra.
Heimsmetaregn
í frjálsum íþróttum
FRJÁLStÞRÓTTAMENN vfða vegar f heiminum keppast þessa
dagana við að tryggja sæti sfn á Ólympfuleikunum f Montreal og
hver árangurinn öðrum betri lftur dagsins ljós. Um sfðustu helgi
voru sett þrjú heimsmet f frjálsum fþróttum og eitt heimsmet var
jafnað.
I annað skipti á að-
eins einni viku setti
Mac Wilkins (Super
Mac) nýtt heimsmet
í kringlukasti. Hann
varð fyrsti maðurinn
í heiminum til að
kasta kringlunni
lengra en 70 metra
(70,86), en sjálfur
átti hann eldra met-
ið, sem var 69,16.
Auk þess að vera
heimsins bezti
kringlukastari er
hann einnig mjög
góður i kúluvarpi,
spjótkasti og sleggju-
kasti. I kúlu á hann
bezt 20,84 m, í spjót-
kasti 78,43 m og í
sleggjukasti 58,74.
En næstu mánuðina
mun hann bara ein-
beita sér að kringlu-
kastinu og að sjálf-
sögðu þykir „Super
Mac“ líklegastur til
að hreppa gullverð-
launin í greininni á
Ólympíuleikunum.
Hollendingurinn
Jos Hermes setti tvö
heimsmet um sfð-
ustu helgi, en að vísu
í greinum, sem ekki
eru mikið iðkaðar
hér á landi. I klukku-
stundarhlaupi hljóp
hann 20944 metra og
20 km hljóp hann á
57:24.0 á móti í
Papendal í Hollandi.
Hinn 18 ára gamli
Harwey Glance var
þó kannski sá frjáls-
íþróttamaður sem
mesta athygli vakti
um síðust helgi. Á
móti í Baton Rouge í
Louisana í Banda-
ríkjunum fékk hann
tímann 9,83 sek. í
100 metra hlaupi og
hefði sá tími verið
staðfestur hefði ver-
ið um nýtt heimsmet
að ræða. Síðar var
tíminn þó leiðréttur
og Glance fékk tim-
ann 9,9 sek, sem er
heimsmetsjöfnun. 3.
apríl í ár náði hann
sama tíma.
— Ég vissi áður en
keppnistímabilið
hófst að þessi tími
var innan seilingar
fyrir mig, sagði
Glance, að keppninni
lokinni. — Ég hafði
þó ekki búist við
þessum árangri svo
fljótt, en nú er bara
um að gera að halda
þessu striki og
tryggja sér sæti i
bandaríska Ólympiu-
liðinu, þvi til
Montreal ætla ég
mér, sagði Glance.
Sigra stúdentar
tvöfalt í blakinu
Stór, stærri, stærstur. Jón Hinriksson, Hinrik Þórhallsson og
Janus Guðlaugsson berjast um knöttinn f jafnteflisleik FH og
Breiðabliks um sfðustu heigi.
Hrifsa Haukarnir
„litla bikarinn”
af stórveldunum
SlÐUSTU leikirnir f Litlu bikarkeppninni fara fram f dag og þó
undarlegt kunni að virðast er það ekki leikur stórveldanna
Akraness og Kefiavfkur sem mesta athygli vekur, heldur viður-
eign Hauka og FH f Kaplakrika. Með sigri f þeim leik tækist
Haukunum nefnilega að sigra f litlu bikarkeppninni og yrði það
í fyrsta skipti, sem Akranes eða Keflavfk ynnu ekki f keppninni.
Þó svo að með sigri Hauka f leiknum f dag færi bikarinn til
Hafnarfjarðar mun það vera vfðs fjarri FH-ingum að gefa hlut
sinn f ieiknum, þvf eins og venjulega yrði það erfiður biti fyrir
FH-inga að tapa fyrir „litla bróður" f Hafnarfirðinum.
Auk Haukanna eiga Blikarn- leika, en það verður ekki gert.
ir nokkra möguleika á sigri, en
þeir eru með 5 stig og hafa
lokið leikjum sfnum. Vinni
Akranes t.d. Keflavík og Hauk-
ar gerðu jafntefli við FH yrðu
þrjú lið jöfn f mótinu, Haukar,
UBK, og ÍA. Vinni FH lið
Hauka- og IBK vinni ÍA eða
jafntefli verði í leiknum verða
Blikarnir meistarar. Þannig
mætti áfram telja fleiri mögu-
Aðeins skal bent á að leikir
Hauka og FH í Kaplakrika og
ÍA gegn IBK á Skipaskaga hefj-
ast báðir klukkan 14 í dag.
Staðan i litlu bikarkeppn-
inni:
Breiðablik 4 2 1 1 7:6 5
Haukar 3 2 0 1 4:5 4
Akranes 3 1 1 1 5:3 3
Keflavík 3 1 0 2 4:4 2
FH 3 0 2 1 2:3 2
BLAKMÓTUM keppnistímabilsins lýkur I dag og á morgun með leikjum
I bikarkeppninni og öldungakeppninni. I íþróttahusi Kennaraháskólans
hefst klukkan 14.00 á morgun urslitaleikurinn í bikarkeppninni og
mætast þar liS ÍS og Laugdæla. Að loknum þeim leik verSa verSlaun
afhent fyrir bæSi 1. deildina og bikarkeppnina og verSur fróSlegt aS sjá
hvort stúdentunum tekst aS sigra tvöfalt I blakinu I ár, en þeir hafa
þegar sigraS I deildakeppninni.
Á laugardag og sunnudag fara fram I iþróttahúsi Hagaskólans
úrslitaleikimir i „öldungakeppninni" i blaki og hefst keppnin kl. 14.00
báSa dagana. Þá fer á morgun fram vormót i blaki og þátt I þvi taka
stúlkur úr Vikingi. Þrótti og úr Menntaskólanum á Akureyri.