Morgunblaðið - 14.05.1976, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 14.05.1976, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. MAl 1976 29 VEL-VAKAIMOI Velvakandi svarar í sima 10-100 kl 14—15, frá mánudegi til föstu- dags 0 Lögreglan með hvolpana Guðrún skrifar: Um daginn las ég í Morgunblað- inu að lögreglan hefðí hund og væri að leita að heimili fyrir hann, Ekki var þá tekið fram, að það þyrfti að vera á einhverjum stað, þar sem hundahald er lög- legt. í næstu frétt sást að hundin- um hafði verið komið fyrir uppi i Mosfellssveit, svo ég býst við að það hafi aldrei verið ætlun lögreglunnar að koma honum fyrir í Reykjavík. En i þeirri sömu frétt var gefið í skyn að margir hefðu snúið sér til lögregl- unnar, sem vildu fá hunda og að lögreglan mundi kannski hjálpleg við að útvega hund á heimili. Nú þykir mér skjóta nokkuð skökku við, ef lögreglan hefur milligöngu um það að fólk fái að brjóta lög og reglur, sem henni er ætlað að framfylgja. Og svo liðfáir sem þeir eru, blessaðir, þegar lög- gæzlumál eru rædd, þá sýnist mér að þeir gætu snúið sér að öðru þarfara í sinum störfum. Nú kann að vera að blaða- mennirnir hafi ýkt þarna tilgang lögreglumannanna, og að þeir hafi aldrei ætlað að koma hundi fyrir á hundabannsvæði og væri þá gott að fá það leiðrétt. Og úr þvi ég er að skrifa um þetta, þá vildi ég aðeins vekja athygli þeirra, sem eru með hunda í óleyfi, á þvi að þeir mega ekki ofbjóða þolinmæði nágrann- anna, m.a. með því að senda hund- ana sína lausa út á kvöldin til að gera á nærliggjandi grasfleti. Einkum ekki nú, þegar vorar og börnin eru farin að leika sér á þessum sömu grasflötum. # Viðhorfið til löggæzlu Úr þvi ég er farin að tala um löggæzlu og löghlýðni, langar mig að ræða frekar um hana almennt. Ég held að ekki fari fram hjá neinum nú þessa síðustu mánuði, að viðhorf fólks til laga og réttar er orðið ákaflega slæmt. Og mér sýnist margt benda til þess að þetta viðhorf nái inn i raðir allra, allt frá þeim sem afbrotin fremja og jafnvel til þeirra, sem ættu að fylgja lögunum eftir. Maður heyr- ir það á ummælum í fjölmiðlum, að smábrot eins og smásmygl eða refsiverð ummæli um einhvern séu svoseni ekkert til að elta ólar við. Og jafnvel að sjálfsagt sé að hundsa það. Þegar maður heyrir slík viðhorf upp i gegnum allt kerfið, þá hlýtur það að siast inn i þjóðina. Og siðgæði hennar er nú vera. Hún var örmagna við þessi heilabrot, en hún vissi að þetta var þó aðeins upphafið. Allt sem var á undan gengið hafði aðeins verið ein; vonar formáli. 1 Barcelona stoppuðu þau í nokkrar klukkustundir, fengu sér að borða og létu að nýju búa um sár Davids. Þau fóru aftur á fund sama ia'knis og þegar David kont út frá honum var hann ólfkt hressilegri f bragði en f fyrra skiptið. Hann hrevfði handlegg- inn til að sýna hversu hann væri mun sveigjanlegri nú. — Gættu þfn samt að fara var- lega, sagði Helen. — Hann segist verða að gefa skýrslu um þetta, þar sem um skotsár sé að ræða, sagði David en ba'tti við þegar hann sá hversu Helen varð hverft við: — Hann a>tlar ekki að gera það fvrr en f kvöld eftir að við erum komin til Frakklands. F,g sagði honum að frönsku lögreglunni hefði verið gert viðvart og honum fannst ekki ástæða til að tefja för okkar vegna formsatriða. — Hefur frönsku lögreglunni verið gert viðvart? — Ef svo er ekki, sagði David sýnilega orðið ákaflega slappt. Ég held að varla fari það fram hjá neinum nú orðið. Og þá er íslenzk þjóð illa sett, ef enginn vill þar spyrna við fótum, þegar svo aug- ljóslega er komið langt yfir strik- ið. 0 Dýrar auglýsingar ókeypis Ekkja skrifar: Nýlega varð ég óþyrmilega var við það, að dýrt er að deyja, engu síður en að lifa. Við andlát ein- hvers, þurfa eftirlifendur að hafa ríflegt fé í buddunni sinni. Til dæmis eru andlátsauglýsingar mjög dýrar, þegar auglýst er bæði í blöðum og útvarpi. Og ekki dugar að auglýsa andlát aðeins einu sinni. Við þessu er ekkert að gera, og þetta eru vafalaust út- gjöld, sem maður reynir möglunarlaust að greiða. En því hef ég máls á þessu, að mér sýnist til vera ráð til að komast hjá að greiða auglýsinga- gjald í útvarpinu, — þó ekki sé það í slikum tilfellum — og það er með því að tala við þuli útvarps- ins. I morgunútvarpinu má iðu- lega heyra þá auglýsa alls konar skemmtanir og fundi, sem vinir þeirra efna til og það i töluðum texta, sem auðvitað er mun áhrifameira. Til dæmis var i síðustu viku allan morguninn auglýst söngskemmtun í Austur- bæjarbíói. Ekki aðeins að leikin væru lög með söngvurunum, sem þar komu fram, heldur minnti þulurinn stanzlaust á þessa hljómleika í Austurbæjarbiói milli laga. Ég sé ekkert við það að nefna slikt einu sinni í rabbi í morgunútvarpi, en þegar svona er farið að, þá þykir mér fólki vera gert mishátt undir höfði hjá þess- ari rikisstofnun. Að visu hefi ég ekki reynt að biðja þulina um að auglýsa jarðar- för í rabbi sínu að morgninum, en ef til vill væri það reynandi. Ég minnist þéss líka að í sumar, á kvennadaginn, þá kom þulurinn með heilan dagskrárlið inn í morgunútvarp, að því er mér er sagt án þess að dagskrármenn eða nokkur annar hefði um fjallað. Hann tók á móti þremur vinkon- um sinum til að koma á framfæri áróðri. Og þó ég hefði siður en svo á móti áróðri um kvennadaginn, þá vaknaði hjá mér sú spurning, hvort hver sem er gæti komizt inn í þularherbergi útvarpsins og beint i hljóðnemann. Og þá um leið, hvort einhver hópur manna eða kvenna kæti kannski ruðzt þangað inn og tekið hús á þulun- um og þarmeð þessum ríkisfjöl- miðli. Erlendis hefur slíkt gerzt i byltingum. Útvarpsstöðvar eru þar þó betur varðar en svo að slíkt sé auðvelt. Þetta er alvarlegt mál, einkum þar sem útvarpið er tengi- liðurinn milli almannavarna og fólksins i landinu, ef eitthvað ber út af. Ég vil vekja á þessu athygli, um leið og ég ræði um misnotkun í sambandi við auglýsingar. HÖGNI HREKKVÍSI ,Jæja! — Ekki vildi ég vera mús á þessum morgni!* S3P SIGGA V/GGA £ ‘í/LVtWW Grillar þn um helgina? Nauta-Roast-Beef ... kr. 1040 kg Nauta grillsteikur ... kr. 555 •<g Nauta bógsteikur . .. kr. 555 kg Nauta T-Bone ... kr. 840 kg Nauta innanlærisvöðvi ... kr. 1 100 kg Nauta fille mörbrá ... kr. 1480 kg Kálfalæri . .. kr. 370 kg Kálfa grillkótilettur ... kr. 370 kg Kálfahryggur ... kr. 300 kg Ódýr matarkaup Nýtt hvalkjöt ... kr. 219 kg Nautahamborgari ... kr. 50 stk Nýr Svartfugl . . . kr. 140 stk Nautahakk ... kr. 590 kg Nautahakk 1 0 kg ... kr. 530 Lambahakk ... kr. 495 kg Saltkjötshakk . . kr. 495 kg Kálfahakk ... kr. 460 kg ATH: Lambasúpukjöt Lambasaltkjöt ennþá á gamla verðinu og ódýru rúllupylsurnar saltaðar og reyktar 458 og 498 kr. kg. ATH: g::ði Við mælum sérstak/ega með goða vörum t.d. goða grillpylsur — goða dalapylsa — goða búrpylsa — goða vínarpylsur — goða paprikupylsa -— goða óðalspy/sa og sérstak/ega með goða medisterpy/su reykt og ný og um helgina færðu þessa fínu uppskrift af goða reyktri medesterpy/su. Líttu inn nuna það verður gaman að sjá þig. Laugalaek 2, REYKJAVIK, simi 3 5o2o £6 EL'oM v/á, um

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.