Morgunblaðið - 14.05.1976, Page 30

Morgunblaðið - 14.05.1976, Page 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 14. MAl 1976 M verða það bít- ingar í Eyjum \ jj LYFTINGAKAPPINN kunni, Óskar Sij: isrpáisson, er nú fluttur til Vestmannaeyja, þar sem hann starfar sem lög- regluþjúnn. Er mikilt hugur í Eyjamönnum að nýta sér kunnáttu Óskars til að hlutur lyftingafþróttarinnar verði meiri í fþróttalffi bæjarins en verið hefur. í fþróttahöll Vest- mannevinga, sem tekin verður í notkun f sumar, er gert ráð fyrir góðri aðstöðu fyrir lvft- ingar og þess verður þvf ef til vill ekki langt að bfða að Vest- manneyingar verði stórveldi f lyftingum. Félögin lögðu blessun sína gfir áœtlun HSÍ fgrirHM Handknattleikssambandið hélt í fyrrakvöld fram- haldsfund með forráðamönnum félaganna um endur- skoðaða áætlun um undirbúning landsliðsins fyrir heimsmeistarakeppnina 1977. Lögðu félögin yfirleitt hlessun sfna yfir áætlunina, en mörg þeirra höfðu frá fyrri fundi lagt áætlunina fyrir leikmenn sína. I grund- vallaratriðum var áætlunin samþykkt, en nokkrar um- ræður urðu um hvernig heppilegast væri að mótin gengju fyrir sig á því tímabili, sem áætlunin spannar. Þannig vildi Karl Benediktsson undirbúningi landsliðsins stæði. að þrjár umferðir í 1. deildinni yrðu keyrðar í einu og myndi þá hvert félag þurfa að leika 3 leiki um helgi, þ.e. föstudag, laugardag og sunnudag. Var þessari hug- mynd og fleirum vísað til hand- knattleiksráðanna sem tæpast fallast á þessa leið, vegna ótta við að missa áhorfendur. Það félag sem lengst vildi ganga í sambandi við æfingar landsliðsins voru Haukar úr Hafnarfirði, en Haukarnir lögðu til á fundinum að félögin yrðu nánast lögð til hliðar meðan á Árangur landsliðsins væri. það sem skipti máli fyrir íslenzkan handknattleik. Enn er ekki vitað hvort af komu pólska þjálfarans verður og lýsti Bergur Guðnason á fundinum yf- ir andstöðu sinni við ráðningu hans þar sem hann gæti ekki kom- ið fyrr en 1. september. Áætlun HSl um landsliðið gerði ráð fyrir því að landsliðið hefði algjöran forgang fram yfir félögin frá 1. júní til 15. september, en félögin hefðu mennina síðan til 1. desem- (Ljósm. RAX). Landsliðsnefndin ( handknattleik, Gunnlaugur Hjálmarsson, Birgir Björnsson formaður og Karl Benediktsson. ber. Landsliðsþjálfarinn pólski daga fyrstu sex mánuði áætlunar- yrði því með landsliðið aðeins í 15 innar, þ.e. frá 1. — 15. september. Jóhanna Magnúsdóttir úr Vlkingi er nýliði f kvennalandsliðinu sem valið hefur verið til Hollands- og Þýzkalandsfararinnar. Kvennalandsliðið á förnm til Hollanös og IKzkalands Tveir nýliðar eru 1 kvennalandsliðinu, sem 20. þessa mánaðar heldur f keppnisferð til Þýzkalands og Hollands. Eru það þær Jóhanna Magnúsdóttir úr Vfkingi og Grete Iversen frá Keflavfk. Leiknir verða 2 landsleikir við V-Þjóðverja f ferðinni og einn leikur gegn Ilollend- ingum. Auk þess verður svo tekið þátt f móti f Hollandi, þar sem meistaralið frá Svfþjóð, Noregi, Belgfu, V-Þýzkalandi, Frakklandi, Sviss og Hollandi verða meðal þátttakenda. Landsliðsnefndin hefur valið Sigurþórsdóttir Ármanni (15), eftirtaldar 14 stúlkur til þessarar farar, landsleikjafjöldi í svigum: Markverðir: Gyða (Jlfarsdóttir FH (12) og Magnea Magnúsdóttir Ármanni (8). Aðrir leikmenn Arnþef’ð' Karlsdóitir Fram (17), Greta Iversen IBK (0). (’.uðrún Guðrún Sverrisdóttir Fram (5), Hansína Melsted fyrirliði úr KR (21), Harpa Guðmundsdóttir Val (4), Helga Magnúsdóttir Fram (2), Jóhanna Halldórsdóttir Fram (7), Jóhanna Magnúsdóttir Vfk- ingi (0), Margrét Brandsdóttir FH (5), Oddný Sigsteinsdóttir Fram (13), Svanhvít Magnúsdótt- ir FH (4). Olympíuleikarnir méla mjög sumarið hjá frjálsíþróllafólkinu — HJA frjálsfþróttafólkinu ein- kennist tfminn fram að Ólvmpíu- leikunum mjög af undirbúningi fvrir leikana og jafnvel við í stjórn FRl eigum erfitt með að fvlgjast með öllum þeim mótum sem einstaklingar innan íþróttar- innar taka þátt í. Það var Örn Eiðsson formaður Frjálsíþrótta- samhandsins, sem mælti þessi orð á hlaðamannafundi f fvrradag, en þar kvnnti FRl helztu verkefni sumarsins bæði hér heima og erlendis. Fvrir utan Ólympfuleik- ana má nefna Kalottkeppnina, sem hér verður í sumar, 50. meistara mótið í frjálsum fþrótt- um og fjölmörg mót erlendis með erlendri þátttöku. Fyrsta frjálsíþróttamótið hér innanlands i ár verður vormót ÍR á Melavellinum 20. maí, en síðan rekur hvert mótið annað, allt fram í byrjun september. Reykja- víkurleikarnir verða 22. og 23. júní og Kalottkeppnin síðan 6. og 7. júlí. Þátt i þeirri keppni taka lið frá íslandi, N-Noregi, N- Svíþjóð og N-Finnlandi og koma hingað á annað hundrað keppend- ur frá hinum þjóðunum. Auk þess kemur hingað mikill fjöldi ferða- manna í sambandi við keppnina, t.d. yfir 100 Norðmenn, auk fréttamanna og forystumanna. I byrjun ágúst fer 50. meistara- mót íslands í frjálsum íþróttum fram og munu 5 Sovétmenn verða meðal keppenda. Bikarkeppnin í 1. deild verður í lok ágúst og er það síðasta stórmótið innanlands. Á erlendum vettvangi hafa ís- lendingar þegar tekið þátt í mörg- um mótum og í gær lauk t.d. í Sovétríkjunum þátttöku I miklu móti en þar voru þrír íslendingar meðal keppenda og settu þau 2 íslandsmet. Mun ferðin til Svarta- hafsins, þar sem keppt var, vera FRJHLSÍtiROnHSHMBIjNDS ISLRNDS 19/6 lengsta ferð frjálsíþróttafólks, sem farin hefur verið á vegum FRÍ. 12. og 13. júní verður kvennalandsliðió meðal þátt- takenda í bikarkeppni Norður- landa í Finnlandi. Sömu daga verður að minnsta kosti eínn íslenzkur keppandi — Stefán Hallgrímsson — meðal keppenda á sterku tugþrautarmóti í Pól- landi og standa vonir til að Elías Sveinsson geti einnig verið með í keppninni þar. Þá hefur FRÍ verið boðið að senda 4 keppendur á þrjú mót i Tékkóslóvakíu og V-Þýzkalandi í byrjun júní. Landskeppni verður við Skota i sumar, UMFl fer með hóp til Danmerkur í lok júní, tekið verður þátt í Norðurlanda- móti unglinga í fjölþrautum og fleiri mót mætti nefna á erlendri grund i sumar. 6% af rekstrarkostnaði frá hinu opinbera Á fundi stjórnar FRl með fréttamönnum á miðvikudaginn kom fram megn óánægja með hversu lítið fé hið opinbera veitir til iþróttastarfsins. — Við fengum t.d. úthlutað fyrir nokkru 480 þús- und krónum í svonefndan út- breiðslustyrk frá ríkinu, sagði Örn Eiðsson, formaður FRl. — En eftir okkar útreikningum er sú upphæð aðeins um 6—7% af rekstrarkostnaði Frjálsíþrótta- sambandsins í ár. Allt i allt fær íþróttahreyfingin 6 milljónir í út- breiðslustyrki frá hinu opinbera, sagði Örn. Meðal þeirra leiða sem FRÍ hefur ákveðið að fara til að afla fjár er happdrætti sem dregið verður í 10. ágúst. Vinningar i happdrættinu eru 15 verðmæt listaverk eftir ýmsa af fremstu listamönnum þjóðarinnar. Mótabók FRÍ er nýkomin út og hefur hún að geyma auk upplýs- inga um mót sumarsins, metaskrá í öllum aldursflokkum, símaskrá keppenda hinna ýmsu félaga, skipan nefnda og stjórna innan FRÍ og fleiri upplýsingar. Bókin verður seld á krónur 300 á skrif- stofu FRÍ og ISÍ, og auk þess i bókaverzlun ísafoldar í Austur- stræti. Sigvaldi Ingimundarson hefur verið framkvæmdastjóri FRÍ frá því um áramót og verið á skrif- Framhald á bls. 31. X Iþróttakenn- araþing ÍÞRÓTTAKENNARAÞING hefst á Hótel Loftleiðum á laugardaginn klukkan 14 og verður þar fjallað um Ólvmpfu- málefni og almenningsfþróttir. Tfu fvrirlesarar munu fjalla um þessi efni og þeirra á meðal þýzkur íþróttasagnfræðingur, Birgir Thorlacius ráðunevtis- stjóri, Þorsteinn Einarsson fþróttafulltrúi og Vilhjálmur Hjálmarsson menntamálaráð- herra mun ávarpa þingið. A sunnudaginn klukkan 18 verður sfðan opnuð f Æfinga- skóla KHI sýning á teikningum barna og unglinga, sem fjalla um Ólvmpfuhugsjónina. Efndu fþróttakennarar til samkeppni um þetta efni f vetur og var mjög mikil þátttaka f keppn- inni, en dæmt verður unt það á næstunni hverjir hreppa sigur- launin. Bjarkirnar efna til fim- leikasýningar FIMLEIKAFÉLAGIÐ Björk i Hafnarfirði efnir til fimleika sýningar í Iþróttahúsinu í Hafnarfirði þriðjudaginn 18. maí nk. og hefst sýningin klukkan 20.30. Fimleikastúlk- urnar úr Björk, sem staðið hafa sig mjög vel á mótum keppnis- tímabilsins munu sýna auk gesta frá Gerplu i Kópavogi, IR, KR og Armanni. Meðal piltanna sem taka þátt í sýningunni verða Islandsmeistarinn Sigurður T. Sigurðsson og fé- lagi hans Gunnar Ríkharðsson, sem báðir hafa aðstoðað við þjálfun Bjarkanna I vetur. Fimleikafélagið Björk á von á heimsókn frá Þýzkalandi í júnf, en það er fimleikaflokkur frá Albert Schweitzer skólanum í Leenberg f Þýzkalandí sem mun sýna i Hafnarfirði og e.t.v. viðar. Er hér um mjög góðan fímleikaflokk að ræða, sem sýnt hefur viða við góðar undir- tektir. .....» ♦ ♦-- Handbolta- skólinn fígzt til Akraness HSl gengst fyrir Handknatt- leiksskóla á Akranesi f sumar, en f fyrra var skóli sem þessi í fyrsta skipti starfræktur á Laugarvatni og þótti gefa góða raun. Hið nýja fþróttahús á Akranesi verðuropið fvrirskól- ann þannig að veður ætti ekki að trufla kennsluna. Aðstaðan virðist því æskilegri en á Laugarvatni vegna innivallar- ins. Þátttökutilkynningar þurfa að berast HSl fyrir 12. júnf nk. en brýnt er fyrir félögunum að senda aðeins sitt úrvalsfólk á skólann svo að sem mest gagn verði af kennslunni. Aðalfundur KKRR AÐALFUNDUR Körfuknatt- leiksráðs Reykjavikur verður haldinn á Hótel Esju mánudag- inn 17. maí nk. Hefst íundurinn klukkan 20.00. Fundarefni venjulcg aðalfundarstörf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.