Morgunblaðið - 22.05.1976, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 22.05.1976, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MAI 1976 FRÁ BORGARSTJÓRN: Birgir ísl. Gunnarsson, borgarstjóri: Víðtæk athugun á nýjum atvinnutæki- færum, sérstaklega á sviði iðnaðar Borgarfulltrúi Alþýðuflokks Á borgarstjórnarfundi 20. maí lagði Björgvin Guðmundsson fram eftirfarandi tillögu. Borgarstjórn Reykjavíkur sam- þykkir að fela atvinnumálanefnd að kanna á hvern hátt Reykja- víkurborg geti stuðlað að eflingu iðnaðar i borginni. M.a. skal eftir- farandi kannað: 1) Hvaða ráðstafanir borgin geti gert til þess að auðvelda iðn- fyrirtækjum að koma upp hús- næði yfir starfsemi sína. (At- hugað skai, hvort unnt sé að veita iðnfyrirtækjum betri skilmála en nú tíðkast við greiðslu gatnagerðargjalda. Ennfremur skal athugað, hvort borgin eigi að fara inn á þá braut að byggja iðnaðarhús- næði fyrir smáiðnað og leigja það fyrirtækjunum). 2) Hvaða smáiðnaður henti bezt í nýjum íbúðahverfum, m.a. með tilliti til vinnuafls úr hverfunum. 3) Hvaða stóriðnaður mundi heppilegastur í höfuðborginni m.a. með tilliti til þess að auka sem mest atvinnu. í því sam- bandi skal sérstaklega at- hugað, hvort borgin eigi að stuðla að stofnun skipasmiða- stöðvar í Reykjavík. 4) Hvort framkvæmanlegt væri og heppilegt að koma á fót nýjum iðnaði, sem grundvall- aðist fyrst og fremst á jarð- varma. Atvinnumálanefnd skal kanna annað, er hún telur máli skipta í sambandi við eflingu iðnaðar í Reykjavík. Framangreindri könnun verði hraðað og lokið eigi síðar en i lok ársins. Ræða borgarstjóra Áður en ég ræði sérstaklega þá tillögu, sem hér liggur fyrir, vil ég fara nokkrum orðum um niður- stöður athugana, sem gerðar hafa verið á vegum Reykjavíkurborgar og Sambands sveitarfélaga i Reykjaneskjördæmi á aðstöðu til veiða og vinnslu fisks á Reykja- nessvæðinu. Árið 1972 i maímánuði sam- þykktu stjórnir samtaka sveitar- félaga í Reykjanesumdæmi og borgarráð að ganga til samstarfs um gerð athugunar á sjávarútvegi á öllu þessu svæði. Talið var nauð- synlegt, til þess að heildarmynd fengist af þróun þessa mikilvæga atvinnuvegar, að öll sveitarfélög- in á Reykjanessvæðinu kæmu inn í þessa mynd, þannig að unnt væri að gera sér grein fyrir hvernig ástandið væri og hver lík- leg væri þróunin í þessum efnum. Þessari athugun er nú lokið og hefur henni verið dreift, en þess ber jafnframt að geta, að full- trúar allra þessara sveitarfélaga mættu til fundar að Höfða fyrir u.þ.b. hálfum mánuði þar sem niðurstöður skýrslunnar voru ræddar og aðilar báru saman bækur sínar um það, hvert verða ætti framhald þessa máls. Niðurstöður þessara athugana voru ætlaðar opinberum aðilum, bæði ríki, sveitarfélögum svo og öðrum, sem hlut eiga að máli, til leiðbeiningar við skipulag og fjár- festingarþörf. Það er fróðlegt að athuga nokkrar tölur, sem fram hafa komið við þessa athugun, til þess að sjá hver þróunin hefur orðið í sjávarútvegi og fiskvinnslu hér í Reykjavík. Ef tekinn er skipa- stóllinn, þ.e. fiskibátar hér í Reykjavík, þá var fjöldi fiskiskipa hér á árinu 1960 samtals 78. Hæst komst fjöldi skipanna árið 1965 í 83, en árið 1975 var fjöldi skipa kominn í 49. Rúmlestafjöldi fiski- báta var árið 1960 3678, fór hæst árið 1967 í 9739 rúmlestir, en var árið 1975 í 5753 rúmlestum. Hér er um að ræða fiskibáta allt að 500 tonnum að stærð. Ef togara- fjöldi er skoðaður, þá voru taldir gerir játningu á árinu 1975 4 síðutogarar í Reykjavik, en voru árið 1960 23, en skuttogarar árið 1975 voru taldir 10, þ.e.a.s. samtals 14 togarar árið 1975 á móti 23 árið 1960. Á árunum 1965 — 1974 hefur heildarfjölgun mannára í Reykja- vík verið 6.600 og þróunin í einstökum höfuðatvinnugreinum verið sem hér segir: 1965: 1974: Mism.: Sjávarútvegur 2.189 1.352 +837 Vöruframl. iðnaðar 5.162 5.405 +243 Viðgerðar- greinar iðnaðar 2.452 2.667 +215 Með öðrum orðum sýna þessar tölur, að öll aukning atvinnutæki- færa hefur orðið utan fram- leiðslugreina. Tölur um hagnýtingu fiskafla, þ.e.a.s. botnlægra fisktegunda, sýna, að fiskvinnsla hefur minnk- að allmikið hér á þessu svæði. Það, sem mest einkennir nú fisk- veiðar frá Reykjavík, er togaraút- gerð, en bátaútgerð fer héðan hnignandi. Þegar enn fremur er höfð í huga sú skýrsla, sem Haf- rannsóknastofnun hefur gefið út um ástand fiskstofna á Islands- miðum og nauðsynlegar friðunar- aðgerðir, má ganga út frá því sem nokkurn veginn visu, að fisk- veiðar og fiskvinnsla hér i Reykjavík a.m.k. á næstu árum muni ekki vaxa og jafnvel hætta á enn frekari samdrætti en verið hefur. Það er því eindregin skoð- un min, að borgaryfirvöld þurfi að hefja skipulega starfsemi til að auka atvinnutækifæri í öðrum greinum hér í borginni. Af þessum ástæðum þá óskaði ég eftir þvi við nokkra embættis- menn borgarinnar, að þeir settust saman í vinnuhóp til að athuga atvinnuuppbyggingu á höfuð- borgarsvæðinu. I vinnuhópnum eru eftirtaldir menn: Eggert Jónsson borgarhagfræðingur, Hannes J. Valdemarsson hafnar- verkfræðingur, Haukur Pálmason yfirverkfræðingur Rafmagnsveit- unnar, Hilmar Ólafsson forstöðu- maður Þróunarstofnunar og Þórð- ur Þ. Þorbjarnarson borgarverk- fræðingur. Þessi hópur héfur unnið allmik- ið starf í vetur og hitzt reglulega og lét frá sér fara stutta greinar- gerð, sem lögð var fram í borgar- ráði nú í april s.l., eins og fram kemur í fundargerð borgarráðs frá 13. apríl, 33. lið fundargerðar- innar. I þeirri greinargerð kemur fram, að farið hefur verið yfir ýmsar skýrslur um tækifæri til nýsköpunar atvinnustarfsemi, sem gerðar hafa verið á vegum ýmissa aðila á undanförnum ár- um. Talið er, að vinna þessi eigi alllangt i land með að skila sér í formi fyrstu greinargerðar, en ýmsir sérfræðingar hafa verið til- kallaðir og farið hefur verið yfir nokkur helztu verkefni, sem við blasa til athugunar á sviði nýrra atvinnugreina. í greinargerðinni kemur eftirfarandi fram: 1. Unnið er að skilgreiningu mælikvarða, sem máli skipta, þegar meta skal atvinnulíf i borginni. Jafnframt fer fram flokkun á framleiðsluþáttum með hliðsjón af tækifærum borgarinnar til þess að hafa áhrif á þá, svo sem að því er snertir skipulag og notkun lands, staðsetningu, orkuöflun, mannafla og samgöngur. 2. Rætt hefur verið við verk- fræðinga hjá Iðnþróunarstofn- un íslands um ný iðnaðartæki- færi á sviði vinnslu nýtanlegra efna úr islenzkum steinefnum. Má þar m.a. nefna trefjaþræði úr basalti, framleiðslu steinull- ar, vinnslu úr perlusteini. 3. Rætt hefur verið við sömu aðila um möguleika til vinnslu úr áli, sem framleitt er hér innanlands. Þar kemur margt til greina, bæði framleiðsla hluta úr álste'ypu, svo og völsun áls ásamt framleiðslu profila úr sama efni. Magnús L. Sveinsson: Um 800 unglingar væntanlega ráonir til borgarinnar í sumar 90 nemendum er tryggð atvinna við uppgræðsluna á Hólmsheiði - 60 fleiri til garðyrkjustarfa en í fyrra Á borgarstjórnarfundi síðast- liðinn fimmtudag bar Björgvín Guðmundsson fram eftirfarandi fyrirspurn. Hvaða ráðstafanir hyggjast borgaryfirvöld gera til þess að greiða fyrir þvi, að skóla- fólk fái atvinnu í sumar? Magnús L. Sveinsson (S) svaraði og sagði ekki óeðlilegt að þessi fyrirspurn kæmi fram. Helztu ráðstafanir, sem gerðar hafa verið, eru: leitað hefur verið til landbúnaðarráðu- neytisins um fjárveitingu frá ríkinu. Viðræður hafa farið fram og af hálfu borgarinnar tóku þátt f þeim borgarfulltrúi Albert Guðmundsson og borgarstjóri Birgir tsleifur Gunnarsson. Ráðherra er hlynntur allt að 10—15 milljón króna framlagi ríkisins, og framlagi Reykjavíkur- borgar á móti. Með þessu ætti að vera hægt að tryggja 90 nemend- um atvinnu við uppgræðslu á Hólmsheiði í sumar. í fyrra voru ráðnir 800 unglingar hjá Reykja- víkurborg yfir sumarmánuðina. Ekki er ólíklegt að svipuð tala verði í ár. Áætlað er að ráða 60 fleiri til garðyrkjustarfa nú en í fyrra. Magnús sagði að bezt væri ef hinn almenni vinnumarkaður gæti hlaupið undir bagga hjá skólafólki. í því sambandi minnti hann á að senn myndu hefjast byggingarframkvæmdir í Hóla- hverfi og ætla mætti að þærtækju við einhverju vinnuaflí. Magnús gat þess að 20. maí í fyrra hefðu verið 539 skráðir atvinnulausir f Reykjavík þar af 257 skólanemar. Nú væru hins vegar 334 skráðir atvinnulausir þar af 183 skóla- nemar. Hann sagðist telja að ef skólafólk fengi ekki atvinnu yrði borgin að hlaupa undir bagga og sagði að nauðsynlegt væri að allt skólafólk fengi atvinnu. Minnti hann á að fyrir utan vinnuna væri þetta mikilvægt uppeldislegt atriði. Magnús sagði að borgar- stjórnarmeirihlutinn hefði ávallt lagt rika áherzlu á að allir sem unnið gætu fengju atvinnu og sagðist hann geta fullvissað alla um að svo yrði áfram. Björgvin Guðmundsson (A) þakkaði Magnúsi L. Sveinssyni greinargóð svör. Sagði hann mikinn ugg hafa verið meðal skólafólks um að fá ekki atvinnu. Hann taldi tölurnar um atvinnu- Magnús L. Sveinsson. leysið þó ekki gefa rétta mynd af ástandinu og sagði að nú yrði þyngra undir fæti en í fyrra að fá atvinnu fyrir skólafólk. Birgir Isl. Gunnarsson. 4. Gerð hefur verið athugun á möguleikum endurvinnslu- iðnaðar, þ.á m. vinnslu úr timburúrgangi, pappir o.fl. Könnun á þessum atriðum fer nú fram á vegum borgarverk- fræðingsembættisins. Könnun þessi hefur tvíþættan tilgang, annars vegar að komast að raun um endurvinnslugildi þess efnis, sem til fellur úr sorphaugum Reykjavíkur- borgar og i öðru lagi tengslum við það, hvort við endur- vinnslu mætti minnka það magn, sem þarf að jarða á haugum. 5. Gerð hefur verið athugun á skipaviðgerðarstöð í Reykja- vfk. Fyrir liggur hagkvæmnis- athugun á slíku fyrirtæki, sem staðsett skal inn við Gelgju- tanga. Gert er ráð fyrir þessu fyrirtæki í aðalskipulaginu, en ekki hefur orðið af fram- kvæmdum ennþá. Jafnframt er nú unnið á vegum Þróunar- stofnunar og Reykjavíkur- hafnar að athugun á möguleg- um aðgerðum til þess að bæta viðgerðarstöðu f vesturhöfn- inni. 6. Athuganir hafa farið fram á möguleikum á ylræktarveri í borgarlandinu. Rannsóknarráð rikisins birti skýrslu árið 1974 um ylræktarver i Hveragerði. Ylræktarver þetta var áætlað vera um 33 ha. að stærð undir gleri. Skýrsla rannsóknarráðs var að mörgu leyti mjög vel unnin, að öðru leyti en því, að augljósir gallar eru á þeim for- sendum, sem gefnar voru, varðandi orku til fyrirtækis- ins. Þótti því ekki úr vegi, að möguleiki á slíku fyrirtæki innan borgarlandsins yrði skoðað upp í þessu samhengi. í því sambandi er rétt að geta þess, að fulltrúar borgarinnar áttu fundi með þeim Hol- lendingum, sem hér hafa kom- jð á vegum Rannsóknarstofn- unar landbúnaðarins til að athuga möguleika á því að setja upp ylræktarver hérna á íslandi. Fengu þeir í hendur upplýsingar frá þessum vinnu- hópi og var gerð grein fyrir þeim upplýsingum í borgar- ráði. Fyrir u.þ.b. hálfum mánuði kom fulltrúi hollenzku stjórnarinnar með greinargerð og ákveðið tilboð, sem felur í sér, að sett skuli upp ylræktar- ver í tilraunaskyni hér á landi, og bjóðast Hollendingar til að gerast aðilar að fyrirtækinu með 25% hlutafjár og að veita hagstæð lán í sambandi við uppbyggingu fyrirtækisins. Þessa skýrslu afhentu þeir Framhald á bls. 31.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.