Morgunblaðið - 22.05.1976, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MAI 1976
29
VELVAKAMDI
Velvakandi svarar'i sima 10-100
kl 14—15, frá mánudegi til föstu-
dags.
0 Þar er
alltof líflegt
Gömul kona skrifar:
Um daginn var farið með
mig í bílferð og við ókum um
höfnina í Reykjavík. Það er ekki
oft sem ég kemst um bæinn, en
þegar ég fór fram hjá Hafnarbúð-
um varð mér hugsað til þess hve
gott þeir ættu, sem fengju að vera
þar. Við höfnina~er alltaf mikið
um að vera, bátar að koma og fara
og fölk fer um götuna.
í blöðum hafði ég séð um það
skrifað að þetta væri ómögulegur
staður fyrir gamalt fólk eða sjúk-
linga, þegar rætt var um að nýta
þetta hús fyrir eitthvað slikt. Og
rökin voru þau, að þarna væri
engin ró, alltaf hávaði og umferð.
Þar sem ég bý núna, fer prýðilega
um mig og ég hefi alla þá ró, sem
hægt er að hafa. Séð er um að sem
fæst trufli okkur. En einmitt þess
vegna veit ég, að það er ekki það
sem við kjósum heizt, mörg okkar
að minnsta kosti. Þó vel fari um
okkur, er það ekki nóg við viljum
sjá hvað er að gerast í kring um
okkur. Mér mundi t.d. finnast al-
veg stórkostlegt að eiga kost á að
fylgjast með því sem gerist við
höfnina.
Ég trúi ekki öðru en að það sé
hressing hverjum þeim, sem ekki
er of veikur, að sjá og fylgjast
með þvi sem fram fer við höfnina.
Ég sem sagt öfunda þá sem þar fá
að vera, fremur en að vera inni á
spítala eða „rólegum stöðum“ fyr-
ir aldraðá. Ég mundi ganga meira
úti og niður að sjó, ef ég kæmist
það.
% Blaðamaður
með skegg
1 auglýsingu, sem hangir
hér uppi á vegg á ritstjórninni er
blaðamanni boðið að taka þátt í
ferðalagi á báti upp Hudsonfljót i
New York vegna 200 ára afmælis-
ins. Hann þarf að hafa ýmsa kosti,
m.a. á þessi blaðamaður að hafa
eða láta sér vaxa skegg.
Nú vill svo til að blaðamaður er
starfsheiti, sem margar konur
bera. Og með þeim lögum, sem
alþingi hefur sett, skilst mér að
bannað sé að mismuna körlum og
konum í störfum. Að vísu hefur
heyrzt um konur með skegg, og
ekki er takið fram i auglýsing-
unni hversu mikið skeggið eigi að
vera. Kannski dugi smá hýjungur
á efri vör. Slikt kalla ungir menn
stundum skegg.
Kannski er þarna komið ráð til
að komast hjá því að mismuna
körlum og konum í starfsauglýs-
tónlist og mannamáli þegar
hann sté út úr bflnum og um leið
og hann skellti bflhurðinni
heyrði hann að tónlistin þagnaðí
snögglega. Og nú ríkti alger graf-
arþögn. Honum varð órótt fnnan-
brjósts. Var hann að verða ruglað-
ur? Hafði hann heyrt raddir og
hljóð sem ekki voru án þess hann
gerði sér grein fyrir þvf. Hann
gekk engu að sfður f áttina að
höllinni og þegar hann nálgaðist
þrepin sá hann Nicole koma á
móti honum.
Hún starði á hann en kom sfðan
þjótandi þegar hún bar kennsl á
hann.
— David! Hvað sé ég! Hvernig
Ifður þér? Og hvar hefurðu verið?
Og hvað ertu að gera hér?
Hann greip f hana og sagði
óstvrkur.
— Ég held þú ættir fyrst að
svara mér. Hvaða Ijósaleikur var
þetta? Og hvaða raddir heyrði ég?
— Það er æfing á Son et
Lumiere, sagði hún. — þau eru að
prófa Ijósin og hljóðin. Þau hyrja
að sýna í næstu viku. Sýningarnar
eru alltaf hér í höllinni á þessum
árstfma.
David hló.
— Guði sé lof að þetta voru þá
jíi
SHÍ) ’ 3 tr
iafej-'-.iásit . ■:.lliij
ingum, eftir að það er bannað.
Það má auglýsa eftir starfsmanni
á vélaverkstæði, sem verður að
geta látið sér vaxa alskegg. Og þá
tilsvarandi, eftir véiritara, sem
verður að geta eignast barn.
En báturinn, sem nota á* er
opinber eign Reykjavíkurborgar
og þá er.spurningin, hvort heimilt
sé að hann sé „Aðeins fyrir
kárla."
% Pólsku
kartöflurnar
Á miðvikudag var stutt
frétt í Morgunblaðinu, sem tekin
var upp úr nýútkomnu fréttabréfi
Upplýsingaþjónustu landbúnað-
arins um innkaup á kartöflum. En
þar sagði orðrétt: „Mestur hluti af
þeim kartöflum, sem Pólverjar
hafa selt hingað, eru af þessu
afbrigði, sem líkað hefur ágæt-
lega en litilsháttar borizt af öðr-
um afbrigðum, sem ekki hafa
reynzt eins vel.“ Og fyrirsögnin
var „Pólsku kartöflurnar hafa lík-
að ágætlega."
Líklega hefur fréttamaðurinn,
sem sá þessa frétt frá upplýsinga-
þjónustunni, sett fréttina í hálf-
kæringi og nánast til gamans, þar
sem allir eru þessum kartöflum
kunnugir. En ekki hefur það þó
skilist svo, því daginn eftir
hringdi fólk unnvörpum i frétta
stjórann, til að mótmæla svona
fréttaflutningi, það hefði ekki átt-
að sig á því að þarna voru tekin
upp orðrétt ummæli Upplýsinga-
þjónustu landbúnaðarins.
Vildu konurnar, þvi þctta voru
mest húsmæður, harðlega mót-
mæla því að sagt væri i Mbl. að
kartöflurnar, sem þær hefðu ver-
ið að bera á borð, hefðu líkað
ágætlega.
HÖGNI HREKKVÍSI
„Þetta á hann til að gera!“
V
l*»i
íslandsmótið
1. deild
Valur — Víkingur
í dag, laugardag kl. 14
Alþingismenn og borgarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins verða til viðtals í Sjálf-
stæðishúsinu Bolholti 7 á laugardögum frá
klukkan 1 4:00 til 1 6:00 Er þar tekið á móti
hvers kyns fyrirspurnum og ábendingum og
er öllum borgarbúum boðið að notfæra sér
viðtalstíma þessa.
Laugardaginn 22. maí verða til viðtals:
Guðmundur H. Garðarsson, alþingismaður
Gústaf B. Einarsson, varaborgarfulltrúi
VIÐTALSTIMI
Alþingismanna og
borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík
að Hvoli t kvöld