Morgunblaðið - 22.05.1976, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 22. MAl 1976
Ragnhildur Helgadóttir, forseti neðri deildar Alþingis:
Jarðlagafrumvarpinu átti að vísa
til ríkisstjómar til frekari athugunar
Gallað í veigamiklum atriðum
og gagnstætt anda stjórnarskrár
Stjórnarfrumvarp tii nýrra jarðlaga var samþ.vkkt
með meginþorra atkvæða úr öllum þingflokkum í báðum
þingdeildum. Engu að síður hlaut það verulega gagn-
rýni, einnig af þeim, sem greiddu því atkvæði. Talsmað-
ur Alþýðubandalagsins, Eðvarð Sigurðsson, sagði t.d. að
frumvarpið hefði þurft að fá mun betri skoðun en tími
hafi unnizt til og á því væru ýmsir ágallar. Hins vegar
styddi hann frumvarpið sökum þess, að það fæli engu að
síður í sér margháttaðar lagfæringar frá núverandi
ástandi. Ragnhildur Helgadóttir (S) flutti frávísunartil-
lögu i neðri deild, svohljóðandi: „Þar sem viss ákvæði
frumvarpsins ganga í berhögg við anda stjórnarskrár-
innar, og frumvarpið hefur auk þess aðra alvarlega
ágalla í veigamiklum greinum er lagt til að því sé vísað
aftur til ríkisstjórnarinnar til frekari umfjöllunar.“
Þessi tillaga var felld að viðhöfðu nafnakalli með 29
atkvæðum gegn 6, 1 sat hjá, 4 fjarverandi. Atkvæði með
tillögunni greiddu: Ragnhildur Helgadóttir (S), Gylfi Þ.
Gíslason (A), Ólafur G. Einarsson (S), Pétur Sigurðsson
(S), Sighvatur Björgvinsson (A) og Sverrir Hermanns-
son (S). Albert Guðmundsson (S) tók frávísunartillögu
Ragnhildar upp, er málið kom til efri deildar, en þar var
hún felld með þorra atkvæða gegn einu (hans sjálfs).
Rétt þykir að sjónarmið andmælenda frumvarpsins, sem
töldu skylt að skoða málið betur, áður en að lögum yrði,
fái einnig að ná augum lesenda blaðsins. Ilér fer því á
eftir efnisþráður þingræðu Ragnhildar Ilelgadóttur í
umræðu um málið (nokkuð st.vttur).
• GKGN ANI)A
STJORNARSKRAR
Virt fjöllum hér um frumvarp,
sem i þrjú ár hefur verið til með-
ferðar í landtTúnaöarráðuneyti.
Það var lapt fyrir háttvirt Alþingi
í þvi formi að í þvi voru ekki
fa*rri en ferns konar atriði, sem
stríddu ýmist ótvírætt pegn
ákva'ðum stjórnarskrárinnar eða
t;epn anda stjórnarskrárinnar.
Þetta sepir sina söttu um það, að
það kann að vera tilefni tíl að
endurskoða starfsaðferðir emb-
ættismannakerfisins. Starfsað-
ferðir Alþingis eru oft gagnrýnd-
ar, en mér sýnist á þessu frum-
varpi, að það sé ekki minna tilefni
til að athuga vel starfsaðferðir
stjórnarráðsins. Ég veit, að stjórn-
arráðið hefur fjölmörgum mjög.
vel hæfum embættismönnum á að
skipa. Eg veit líka, að þetta frum-
varþ hefur verið athugað af
fjöldamörgum mönnum Það hef-
ur verið rætt á mjög mörgum
fundum að því er mér er tjáð. Það
er alveg ljöst, að í frumvarpinu er
fjallað um atriði, þar sem menn
hafa óhjákvæmilega mjög skiptar
skoðanir. Engu síður ætti eftir
allan þennan tíma að hafa fundizt
viðunanleg úrlausn, þannig að
unnt va-ri að leggja slíkt frum-
varp fram sem sæmilegt frum-
varp ríkisstjórnar, sem i eru
Sjálfstæðisflokkur og Eramsókn-
arflokkur.
— Eg hef velt þessu ntikið fyrir
mér. hvernig því getur vikið við,
að svo stórgallað frumvarp getur
komið úr höndum svo margra
færra manna. Eg held. að það sem
gerzt hefur sé, að einmitt vegna
þess hve margir hafa um það fjall-
að, þá hafi menn hneigzt til þess
að ætla hver öðrum að hafa athug-
að frv. nægilega vel. M.ö.o., það
hefur verið þríbjörn í tvíbjörn-
reglan, sem hefur gilt við samn-
ingu þessa frumvarps. Þeir sem
hafa setið á einuin fundi og litið á
frumvarpið hafa sennilega verið
að flýta sér við athugun einhverra
annarra mála og hafa treyst því
að þeir, sem áður höfðu athugað
málið, hl.vtu að hafa gengið frá
ýmsum bæði formsatriðum og
efnis, þannig að óhætt væri að
leggja blessun sína yfir það. En
árangurinn varð eins og oft er um
störf, þar sem hver ætlár öðrum
að vinna verkin. að verkið varð
ekki unnið, þ.e.a.s. það verk að
búa til frambærilegf frumvarp.
Eg veit að það er nokkuð mikið
upp í sig tekið áð segja þetta, en
því miður er þetta staðreynd.
• GILDISSV IÐ LAGANNA
Það kann að vera, að önnur
ástæða liggi til þess, að frumvarp
þetta var svo úr garði gert sem
raun ber vitni heldur en sú, hve
margir fjölluðu um það. E.t.v. er
höfuðástæðunnar að leita í öðru.
Sem sé í því að uni þetta frum-
varp hafa einungis fjallað aðilar,
sem allir hafa sömu hagsmunina
að leiðarljósi. Það eru einungis
hagsmunaaðilar landbúnaðarins,
sem hafa fjallað um þetta frum-
varp. Arangurinn er sá, að
ákvarðanir samkvæmt þessu
frumvarpi, ef svo illa færi, að það
yrði samþykkt á Alþingi, ákvarð-
anir samkvæmt því væru einnig
allar í höndum hagsmunaaðila
landbúnaðarins. Þótt svo þær
snerti og bitni á hagsmunum ann-
ars fólks, þá eiga allar ákvarðanir
annaðhvort að vera teknar af
landbrh.. jarðanefnd, Landnámi
ríkisins eða þá sveitarstjórnum,
með hagsmuni þessara aðila fyrir
augum. Ef ágreiningur verður
milli sveitarstjórna og jarða-
nefnda, þá á landbúnaðarráð-
herra að skera þar úr. Það er sem
sagt ekki hægt að finna annars
stað i þessu frumvarpi, en að allar
ákvarðanir eigi að vera í höndum
aðila, sem hafa sömu hagsmunina
að leiðarljósi. Og það er ekki ein-
ungis, að allar ákvarðanir eigi að
vera í höndum þessara hagsmuna-
aðila, heldur er gildissvið frum-
varpsins svo stórt, að það er í
raun og veru verið að leggja allt
landið undir stjórn þessara aðila
eða a.m.k. fasteignir á öllu land-
inu nema í kaupstöðum og skipu-
lögðum kauptúnum. Ég veit ekki,
hvort hv. þdm. hafa gert sér grein
fyrir þessum hlut, en hér er um
hlut að ræða, sem grípur svo al-
varlega inn í mörg stór atriði í
verkefnum ríkisstjórnar og f
verkefnum annarra ráðherra, að
það er alveg ótrúlegt, að þetta
skuli hafa komizt í þessu formi
inn í sali Alþingis.
Þegar ég ræði um gildissvið
frumvarps, þá vil ég lesa 3. gr.
frumvarpsins. Hún hljóðar svo
með leyfi hæstvirts forseta:
„Lög þessi taka til jarða, jarðar-
hluta, afréttarlanda, öræfa, lóða
og landspildna", það er að vísu
Kagnhildur Helgadóttir
tillaga um, að orðið ,,lóða“ falli
burt, ef ég man rétt, það er hér í
brtt. frá n., en það skiptir engu,
ég held lestrinum áfram með leyfi
hæstvírts forseta. Eg hafði lesið
að Iögin tækju til jarða, jarðar-
hluta, afréttarlanda, öræfa, lóða
og landspildna. Enn segir: „svo og
til ítaka, skóga, vatnsréttinda,
veiðiréttinda og hvers konar ann-
arra hlunninda, hvort sem þau
eru skilin frá jörð eða ekki. Þétt-
býlissvæði, sem skipulögð eru fyr-
ir fasta búsetu manna, sem ekki
stunda landbúnað, eru undanskil-
in ákvæðum laga þessara.“
Þá þarf að átta sig á, hvað sé
landbúnaður. Svar við því er í
þessari sömu gr. og enn segir með
leyfi hæstvirts forseta:
„Rísi ágreiningur um það, hvað
teljast skuli landbúnaður
samkvæmt 1. þessum eða um
starfssvið jarðanefnda að öðru
leyti, sker landbúnaðarráðherra
úr um það.“
• IIVAÐ UM
ORKURÉTTINDIN?
Þetta var einfalt svar. Sem sagt,
landbúnaðarráðherra sker nánar
úr um það, hvar þessi lög skuli
gilda. Veiðiréttindi, vatnsréttindi,
hvers konar önnur hlunnindi,
hvort sem þau eru skilin frá jörð
eða ekki. Menn muna kannski eft-
ir biturri reynslu í sambandi við
land, sem hefur átt að taka til
mikilvægra orkuframkvæmda
ríkisins. Hvernig halda menn, að
slíkt gæti farið eftir gildistöku
þessara 1? Svo er að sjá sem hæst-
virtur iðnaðarráðherra hafi ekki
af þessu atriði minnstu áhyggjur.
I II. kafla frumvarpsins segir í
4. gr. að í hverri sýslu skuli starfa
jarðanefnd. í þessari jarðanefnd
eiga að vera 3 menn, Búnaðarsam-
bandið í sýslunni nefnir 2. sýslu-
nefnd einn, svo að það er alveg
öruggt, að hagsmunir þessara
sömu stétta ráða jarðanefndinni.
Siðar í frumvarpinu segir, að
þóknun jarðanefnda skuli ákveð-
in af landbúnaðarráðherra, það er
í 20. grein, og í þeirri sömu grein
segir, að kostnaður ekki aðeins
laun jarðanefndarinnar, heldur
kostnaður við störf jarðanefndar
greiðist að hálfu af viðkomandi
sýslu og Búnaðarsambandi og að
hálfu úr ríkissjóði. Það er oft gerð
um það krafa, a.m.k. þegar þing-
menn flytja mái, sem hafa í för
með sér kostnað, að slíkum frum-
vörpum fylgi einhver kostnaðar-
áætlun. Ég hélt kannski sem þing-
maður, að það skipti einhverju
máli, að það lægi fyrir einhver
kostnaðaráætlun. Ég hélt
kannski, að hæstvirtur fjármála-
ráðherra teldi það einhverju
skipta. i þessu frumvarpi eða
Framhald á bls. 19
NO VALIN veggfóðrið er ofið. Það hefur þvi alveg sér-
staka áferð sem einkennir aðeins NO VA LIN veggfóður.
Þau eru til í mörgum gerðum og litum.
Vandlátir velja því NOVALIN.
Verzlun Friðrik Bertelsen,
Lágmúla 7 Reykjavík sími 86266