Morgunblaðið - 04.06.1976, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 04.06.1976, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JUNÍ 1976 Svíar bólusetja við heilahimnubólgusýkli — Þessa sýkils hefur ekki orðið vart hérlendis - segir landlæknir SVÍAR munu á komandi hausti hefja bólusetningu við ákveðinni tegund heilahimnubólgu, sem sýkill veldur. Að þessu tilefni hafði Morgunblaðið samband við Ólaf Ólafsson landlækni og spurð- ist fyrir um þetta og hvort ástæða væri til að bólusetja íslendinga við heilahimnubólgu. Ölafur Ólafsson sagði að orðið hefði vart ákveðinnar tegundar heilahimnubólgu í Finnlandi og hefur hennar aðeins orðið vart í Norður-Svíþjóð. Hafa Finnar unn- ið að því að gera bóluefni við þessum sjúkdómi og í tilrauna- skyni hefur bólusetning farið fram í tveimur lénum í Finnlandi. Niðurstöður virðast benda til þess að bóluefni þetta sé vírkt, en rannsóknum á því er þó ekki lokið enn. Ólafur sagði að enn hefði ekki orðið vart þessarar heilahimnu- bólgu hérlendis, þau fáu tilfelli af heilahimnubólgu, sem skotið hafa upp kollinum á íslandi eru af annarri tegund. Ólafur sagði að íslenzk heilbrigðisyfirvöld hefðu haft nána samvinnu við yfirvöld í Svíþjóð og Finnlandi og nýlega hefðu verið haldnir tveir fundir um þetta, þar sem m.a. var fjallað um heilahimnubólguna. Enn sem komið er kvað Ólafur íslendinga ekki þurfa að óttast þennan sjúk- dóm, en ef útbreiðsla hans ykist, myndu íslenzk heilbrigðisyfirvöld gera sínar ráðstafanir og annast útvegun bóluefnis, ef sú raunin verður á, er rannsóknir liggja fyr- ir að það komi að fullkomnu gagni. Matthías Bjarnason um samningana: Getum aukið hlutdeild okkar í þorskafla um 30—40 þúsund tonn 1 ár „Á fluginu i sjó- inn sá égtelpuna” Snarræði unglings og sjómanns barg mannslífi ið í höfnina, tvær bátslengdir frá okkar bát. Við rukum allir upp og hlupum á eftir strákn- um og þar sem hann benti í sjóinn henti ég mér á fullri ferð út af bryggjunni. Það var ekki fyrr en í fallinu, fluginu í sjó- inn sem égkomauga átelpuna litlu þar sem hún var að sökkva við stefnið á einum bátnum. Ég náði henni strax og strákarnir tóku siðan á móti henni upp á bryggjuna. Það var farið með hana heim og við fórum á sjó- inn, en það var mikil mildi að Runólfur Viðar skildi sjá hana, því það hefur orðið henni til lífs þar sem bryggjan var alveg mannlaus að öðru Ieyti.“ Yfirlýsingu Croslands um bókun 6 _ r stefnt að EBE en ekki Islendingum ÞESSI mynd var tekin á heimili Steinunnar Óskar Óskarsdóttur, Austurhraut 4 Keflavfk í fyrrakvöld ásamt björgunarmanni henn- ar, Jóni Guðbrandssyni, 22 ára gömlum stýrimanni á Frey úr Keflavfk. Þau eru bæði hin hressustu eins og sjá má, en Ifklega stelst sú litla ekki að heiman f bráð. Ljósmynd Runólfur Elentfnus- son. Morgunblaðið náði í gær tali af Jóni Guðbrandssyni stýri- manni á Frey KE 98, en hann bjargaði 4 ára gamalli stúlku Steinunni Ósk Óskarsdóttur frá drukknun í Keflavíkurhöfn á miðvikudagskvöld eins og sagt var frá í Mbl. í gær. Við spurð- um Jón um atburðinn. ,,Við strákarnir vorum að vinna um borð eftir kvöldmat,“ sagði hann, „en skyndilega kom hlaupandi til okkar bátsmaður- inn okkar eins og við köllum hann, strákur úr Keflavík, sem er oft í bátnum hjá okkur, 14 ára gamall og heitir Runólfur Viðar. Hann hrópaði af lífs og sálar kröftum að barn væri fall- Keppt um Morgunblaðs skeifuna á Hólum SKÖMMU fyrir skólaslit Bænda- skólans á Hólum fór fram tamn- ingapróf nemenda skólans, en sem kunnugt er veitir Morgun- blaðið þeim nemendum bænda- skólanna tveggja sem efstir eru á tamningaprófi sérstaka. viður- kenningu, svonefnda Morgun- blaðsskeifu. Að þessu sinni stóð efstur Jóhann Tómasson, Reykja vík, og hlaut hann einkunnina 9.3. Annar varð Þórir Jökull Þor- steinsson, Ökrum III. Hraun- hreppi, Mýrarsýslu og þriðji Guð- mundur Björgvinsson, Kópavogi, en þeir hlutu báðir einkunnina 9,1. í vetur hefur Magnús Jóhannsson bústjóri, leiðbeint skólasveinum á Hólum um tamn- ingar en prófdómari var Maron Pétursson. Meðfylgjandi mynd er af sigurvegaranum, Jóhanni Tóm- assyni, og situr hann Glaum, sem er brúnn og 4 vetra. MATTHlAS Bjarnason sjávarút- vegsráðherra skýrði frá þvf á almennum fundi Sjálfstæðis- félaganna f Reykjavfk í gær- kvöldi að samningurinn, sem gerður var við Breta í Osló sl. þriðjudag hefði það f för með sér að tslcndingar geti þegar á þessu ári aukið hlutdeild sfna f þorsk- afla á Islandsmiðum um 30—40 þúsund tonn. Þá sagði sjávarút- vegsráðherra, að vegna þessa samnings gæti heildarveiði út- lendinga á miðunum hér við land aldrei farið yfir 55 þúsund tonn af þorski á þessu ári. Matthías Bjarnason kv0^' ielja að bréf það er Crosland utanríkis- ráðherra Breta sendi Einari Ágústssyni utanríkisráðherra með yfirlýsingu um, að Bretar mundu beita sér fyrir þvi að bókun 6 félli úr gildi eftir 1. des. n.k. væri í raun ekki stefnt að Vinnuslys í Garða-Héðni ÞAÐ SLYS varð i vélsmiðjunni Garða-Héðni, Garðabæ, í gær, að starfsmaður þar missti járnstykki ofan á fótinn. Hlaut maðurinn fót- brot. íslendingum, heldur Efnahags- bandalaginu í því skyni að Bretar geti gert harðari kröfur á hendur EBE um hærri bætur frá því vegna þess, sem Bretar missa á íslandsmiðum. Sjávarútvegsráð- herra kvaðst sannfærður um, að Fundur Sjálfstæðis- félaganna: Fagnar sigri Á FUNDI Sjálfstæðisfélag- anna i Reykjavík í gærkvöldi var svohljóðandi ályktun sam- þykkt samhljóða: „Almennur fundur Sjálf- stæðisféiaganna í Reykjavík, fimmtudaginn 3. júní 1976 fagnar þeim sigri, er náðst hef- ur með samningum í fiskveiði- deilunni og fela i sér viður- kenningu á óskoruðum yfir- ráðarétti íslendinga yfir 200 mílna fiskveiðilögsögunni. Fundurinn þakkar ötúla og Framhald á bls. 22 mundu taka það í mál, að fresta bókun 6 eftir 1. des., þar sem afleiðingin yrði sú, að samningar þeir, sem þessar tvær þjóðir hafa um veiðar á íslandsmiðum þess, að við höfum unnið við- skiptastríðið við EBE, sagði Matthías Bjarnason. Á fundi Sjálfstæðisfélaganna í Framhald á bls. 22 TÓNUST o u— •i. BÓKMEW %4/vn^ Bandalag ísl. listamanna: Minnispeningar í tilefni af bókmennta- og tónlistar- verðlaunum Norðurlandaráðs — Gullpeningurinn á 50 þúsund krónur BANDALAG Isl. listamanna hef- ur ákveðið að gefa út minnispen- inga f tilefni af bókmennta- og. tónlistarverðlaunum Norður- landaráðs 1976, en verðlaunin féllu að þessu sinni f skaut fveggja tslendinga, þeirra Ólafs Jóhanns Sigurðssonar rithöfund- ar og Atli Heimis Sveinssonar tónskálds. Minnispeningar þessir eru af þremur gerðum: gull, silf- ur og brons og verða þeir tilbúnir til afgreiðslu og sölu sfðari hluta júnfmánaðar en forsala á útgáf- unni er hafin f Gimli við Lækjar- götu milli kl. 16—20. Minnispeningar þessir eru gefnir út til að minna á þann heiður, sem listamennirnir Atli Heimir og Ólafur Jóhann hafa fært þjóð sinni en peningana hef- ur Snorri Sveinn Friðriksson hannað. Ágóði af sölu peninganna rennur til starfsemi Bandalags ísl. listamanna en ýmis verkefni bíða nú úrlausnar hjá Bandalag- inu og má þar nefna Listdreifing- armiðstöð, sem stjórn þess hefur mikinn hug á að koma upp og er ætlunin að tilgangur þessar List- dreifingarmiðstöðvar verði að sinna þjónustu við þá aðila, er óska að fá listamenn í heimsókn. Þá má geta þess að Bandalag ísl. listamanna hefur nú opnað skrif- stofu að Skólavörðustíg 12. Annan dag hvitasunnu efnir Bandalag ísl. listamanna til Lista- mannaþings og er það umræðu- fundur, þar sem fjallað verður um spurninguna: „Til hvers er Listahátíð haldin?" Þingið verður á Kjarvalsstöðum og hefst kl. 16. Eins og áður sagði eru gefnar út Framhald á bls. 22

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.