Morgunblaðið - 04.06.1976, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JUNÍ 1976
Alfreð Gíslason fyrrv. bœj-
arfógeti og alþingismaður
Fa‘ddur 7. júlí 1905
I)áinn 30. maí 1976
MINN ása-ti vinur Alfred Gfsla-
son er allur. Meó honum er horf-
inn af sjónarsviðinu ftóður dreng-
ur og mikill mannkostamaður. A
þessari kveðjustund hu^sa ég
með þakklæti til þess að.hafa átt
þess kost að eijja Alfreð Gíslason
að samstarfsmanni ojí vini.
Starfsdajjur Alfreðs var orðinn
lan«ur ojí Kifturíkur. er vfir lauk.
Um lanjít árabil var hann einn
helsti forystumaður í Keflavík, oj>
sem slíkur var hann virkur þátt-
takandi ojí haráttumaður í þeirri
miklu uppbysginKu, sem átt hef-
ur sér stað um oll Suðurnes hin
siðari ár. Þau fjölmörjju ábvrfíðar-
oj> trúnaðarstörf, sem hann axlaði
um ævina skulu þó ekki tíunduð
hér í einsktökum atriðum. Þess
skal aðeins jjetið, að sá maður,
sem ba'ði er til þess valinn að
vera í stjórn sveitarfélajís síns,
alþinjíismaður oj; yfirvald, hlýtur
að eijja traust marjjra. Því trausti
reyndist hann fyllilega verður,.og
alla tíð var hann traustur baráttu-
maður oj; heilshuj>ar fulltrúi
þess fólks, sem hann lifði oj; starf-
aði með sem yfirvald, vinur oj;
samstarfsmaður. Hann þekkti sitt
fólk, vissí hvar skórinn kreppti
hverju sinni og j;ekk ötrauður
fram fyrir skjöldu, fullur af vilja
til að leysa þau verkefni, sem við
var að glíma hverju sinni. Atorka
hans var mikil oj> lajjni oj; j;óð-
huj;ur slíkur, sem ómetanlej;ur
reyndist við úrlausn hvers vanda.
I Reykjaneskjördæmi sakna því
marjþr vinar í stað oj; þá sérstak-
lej;a í Keflavík, heimabyj;j;ð hans,
horfa marj;ir í daj; á eftir manni,
sem í senn var virtur leiðtogi oj;
j;óður vinur.
Alfreð Gíslason var samstarfs-
maður minn á Alþinjþ
1959—1963. Fyrir það samstarf er
éj; honum ævinlej;a þákklátur. Kr
störf mín, reyndist hann ætíð
reiðubúinn til að miðla af sinni
miklu reynslu og veita hver þau
hollráð, er hann mátti, enda var
Alfreð þrautreyndur baráttumað-
ur í sveitarstjórnar- og landsmál-
um, er hann kom til þings.
Þvi fór þó fjarri, að áhugi
Alfreðs væri einungis bundinn
við sitt næsta nágrenni eða
heimabyggð. Honum var það full-
komlega ljóst, að á Alþingi íslend-
inga var hann alþingismaður
þjóðar sinnar, er bar fulla ábyrgð
á framvindu allra þeirra málefna,
er Alþingi fjallaði um.
Sjálfstæðismenn í Reykjanes-
kjördæmi og forysta Sjálfstæðis-
flokksins þakka Alfreð Gislasyni
að leiðarlokum fyrir ötult starf og
árangursríkt og færa eftirlifandi
konu hans og fjölskyldu innilegar
samúðarkveðjur.
Persónulega kveðjum við, eig-
inkona mín og ég, góðan vin með
þakklæti og biðjum honum bless-
unar. Við sendum Vigdísi og fjöl-
skyldu hennar hugheilar samúð-
arkveðjur.
Matthfas Á. Mathiesen.
Það fækkar nú óðum í hópi
félaganna, sem luku stúdents-
prófi frá Menntaskólanum í
Reykjavík 1927. Sá síðasti, sem
kvaddi þennan heim, var Alfreð
Gislason, vinsæll, félagslyndur og
hrókur alls fagnaðar í góðra vina
hópi. Hann andaðist aðfaranótt
30. maí s.l. á heimili sínu hér í
Reykjavík, eftir löng og erfið
veikindi.
Samband skólafélaga, við og
eftir nám, er að sjálfsögðu mis-
jafnlega náið, en vináttutengslin,
sem hnýtt eru í skóla segja þó
ósjaldan til sín ævilangt. Má ég
þar trútt um tala, er ég nú sé á
hak æskuvini minum. Við Alfreð
ólumst upp svo að segja á sömu
bæjartorfunni, enda steinsnar
milli heimila okkar við Bergstaða-
stíg hér i Reykjavík. I skóla vor-
um við bekkjarbræður, en einnig
á sumrum stunduðum við sömu
vinnu oft á sama vinnustað — við
byggingar eða í síldavinnu í Siglu-
firði. Slíkt veganesti góðra kynna
hefir reynst mér haldgott allt til
þessa dags. þótt á stundum hafi
verið vík á milli vina vegna
langra dvala erlendis.
II.
Alfreð fæddist hér í Re.vkjavík
7. júlí 1905. Foreldrar hans voru
t
Faðír minn,
MÁR EINARSSON.
andaðist á Ríkisspítalanum í
Ósló 31 mai
Gísli, búfræðingur og fasteigna-
sali Þorbjarnarson, bónda á
Bjargarsteini í Borgarfirði Gisla-
sonar, og kona hans Jóhanna Sig-
ríður Þorsteinsdóttir, systir
þeirra bræðra Hannesar heitins
þjóðskjalavarðar og Þorsteins
fyrrverandi hagstofustjóra Þor-
steinssonar frá Brú í Biskups-
tungum.
Börn þeirra hjóna voru 5 og er
nú aðeins eitt þeirra á lifi, Öskar,
ljósmyndari, einn af frumherjum
íslenskrar kvikmyndagerðar.
Svo sem vænta mátti, vorum við
Alfreð heimagangar á heimilum
hvors annars. Er margs að minn-
ast frá þeim tíma — á sviði leikja
og íþrótta, en Alfreð var lengi
knár knattspyrnumaður i öllum
llokkum Víkíngs. Einnig eru mér í
minni heimsóknir á heimili vinar
míns. Þar mátti oft hitta ýmsa
eftirtektarverða aðila, svo sem
Hannes, þjóðskjalavörð, séra
Brynjólf á Ólafsvöllum o.m.fl. Ef
ég man rétt var Hannes móður-
bróðir Alfreðs, nálega fastur
gestur á heimili foreldra hans á
sunnudagseftirmiðdögum. Þegar
okkur félaga eða aðra bar þar að
garði spurði Hannes gjarnan,
hver væri maðurinn. Kom þá oft í
Ijós, að hann kunni betur skil á
ætt okkar og uppruna en við sjálf-
ir og fylgdi þá jafnan fræðsla um
ættir foreldra okkar eða þeirra
sem spurðir voru. Einn slfk-
ur „ættfræðitími“ kemur mér nú
í hug og skal hans getið hér.
Svo bar við einn sunnudag,
að velmetinn verkstjóri kom
í heimsókn. Sagðist hann
vera að halda upp á fimm-
tugsafmæli sitt, sem einmitt
bæri upp á þennan dag. Ekki vildi
Hannes viðurkenna, að hér væri
farið með rétt fræði. Eftir nokkra
umhugsun segir hann: Þetta er
ekki rétt hjá þér maður minn,
afmæli þitt er ekki fyrr en eftir
þrjá daga og þá verður þú ekki
fimmtugur. heldur 49 ára “ Það
þarf tæpast að taka fra a, að
athugun sýndi, að Hannes hafði á
réttu að standa og hefír verk-
stjóranum því væntanlega gefist
tækifæri til að halda aftur upp á
fimmtugsafmæli sitt. Þótti okkur
félögum mikið koma til ættfræði
Hannesar og minnis og varð saga
þessi brátt kunn meðal skóla-
félaga okkar.
Fjölskylda Alfreðs var mjög
samhent og bjó hún lengi í sam-
býli, einnig eftir að húsmóðirin,
frú Jóhanna, andaðist árið 1923.
Þeir sem gerst þekktu vissu, að
Alfreð tók sér móðurmissinn
mjög nærri, enda viðkvæmur í
lund, þótt hann bæri ekki tilfinn-
ingar sínar á torg, hvorki þá, né
siðar í lífinu.
III.
Eftir stúdentspróf innritaðist
Alfreð i lagadeild Háskóla Íslands
ásamt nokkrum öðrum bekkjar-
félögum og lauk þar prófi vorið
1932. Stundaði hann siðan full-
trúastörf á skrifstofum ýmissa
lögfræðinga næstu árin og rak
raunar eigin lögfræðiskrifstofu
um skeið. En í árslok 1937 urðu
þáttaskil í lífi hans og það svo að
um munaði. Þá hófst sá þáttur í
starfsferli hans, sem hann upp frá
því helgaði krafta sína alla.
Hann var skipaður lögreglu-
stjóri í Keflavík 31. des. 1937 og
gegndi jafnframt störfum oddvita
Keflavíkurhrepps til ársins 1949,
en þá var hann skipaður bæjar-
fógeti. Gegndi hann því starfi þar
til hann lét af embætti árið 1975,
þó að einu ári (1.7. 61 til 1.8. 62)
undanteknu, en þá var hann
bæjarstjóri i Keflavík.
Í hinum nýju heimkynnum
blöstu við Alfreð mörg heillandi
verkefni, ekki aðeins i sambandi
við embætti hans, heldur einnig á
fjölmörgum öðrum sviðum. Hann
vann fljótt traust og tiltrú
samborgara sinna og er engu
líkara en mörgum hafi, þegar frá
leið, ekki þótt málum vel ráðið,
nema hans ráð kæmu þar til. Það
yrði of langt mál hér að telja öll
þau nefnda- og trúnaðarstörf sem
honum voru falin. Skal þó fárra
getið. Hann var kosinn í bæjar-
stjórn 1954 og þá strax forseti og
var það um árabil. Formaður
skattanefndar var hann 1938—49
Gullbringusýslu 1951—59. í
stjórn Landshafnar Keflavíkur og
Njarðvíkur 1947 og lengi síðan. i
stjórn Sparisjóðs Keflavíkur var
hann um árabil.
Þjóðmál lét Alfreð sig miklu
skipta. Hann var lengi formaður
fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna
í Keflavík og landskjörinn
alþingjsmaður 1959—63.
Þess er áður getið, að Aifreð
væri mikill félagshyggjumaður
ávalt reiðubúinn að leggja góðu
máli lið. Þannig var hann hvata-
maður að stofnuri ýmissa félaga,
sem til framfara eða mennirigar-
auka horfðu. Má þar nefna Tón-
listarfélag Keflavikur, Krabba-
meinsfélag Keflavíkur Rauða-
krossdeild og Norrænafélag
Keflavíkur. Var hann formaður
hinna þriggja siðasttöldu félaga
um langt árabil. i þessum efnum
naut hann uppörfunar og ötuls
stuðnings konu sinnar, svo sem á
mörgum öðrum sviðum. Þá má
geta þess, að hann stofnaði
Rotaryklúbb Keflavíkur og var
fyrsti forseti hans 1945—47 og
umdæmisstjóri Rotary Inter-
national á íslandi var hann
1953—54.
Af þessu sem hér hefir verið
talið má marka, hve Alfreð hefir
reynst liðtækur i hinum nýju
heimkynnum, enda bar hann til
hinstu stundar hag Keflavikur og
fólksins, sem þar býr, mjög fyrir
brjósti.
IV.
Alfreð var hamingjumaður I
einkalífi. 12. sept. 1931 kvæntist
hann unnustu sinni og skólasyst-
ur, Vigdísi Jakobsdóttur, útgerða-
manns á Seyðisfirði Sigurðssonar
og konu hans Önnu Magnús-
dóttur, sem mörg ár rak hér eftir-
sóttan smábarnaskóla. Reyndist
Vigdís honum jafnan hinn trausti
lifsförunautur. Voru þau hjón
samhent um margt, enda hún
einnig mjög félagslynd og á auð-
velt með að blanda geði við fólk.
Sameiginleg áhugamál voru mörg
og vinahópurinn samstæður, enda
bæði miklir vinir vina sinna.
Hjónaband þeirra var þvi farsælt.
Börnin eru tvö. Gísli Jakob
leikari, fæddur 1933 og Anna
Jóhanna fædd 1948. Bera þau
ég á þessum árum hóf þingmanns-
t
Stjúpmóðir okkar,
SESSELJA DAGFINNSDÓTTIR,
andaðist í Landspitalanum aðfaranótt 3 júní
Helga Balamenti,
Agnar Kristjánsson.
t
Konan mín og móðir okkar
VILHELMÍNA VILHELMSDÓTTIR
Stigahlíð 4,
andaðist að heimili sinu 2 júni Útför hennar verður tilkynnt síðar
Kristján Karlsson
Ásta Kristjánsdóttir
Karl Kristjánsson
.* Axel Kristjánsson
t
GUÐMUNDUR INGI EIRÍKSSON,
bóndi Álftárbakka
verður jarðsettur að Álftanesi á Mýrum laugardagmn 5 júní kl 1 4 00
Sigurður Karlsson.
Maðurmn mmn og faðir okkar,
BJÖRN BENEDIKTSSON,
prentari
Tjarnargötu 47,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni laugardaginn 5 júni kl 10 30
* h Guðrfður Jónsdóttir
Sigrún Bjömsdóttir
Gunnvör Björnsdóttir
t
Eigínmaður minn. faðir. tengdafaðir og afi,
MAGNÚS JANUS GUOMUNDSSON.
Snorrabraut 30.
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju laugardagmn 5 júni kl 10 30
Guðrún Ólafsdóttir,
Ásgeir Magnússon, Rakel Ólafsdóttir.
Guðrún Magnúsdóttir, Gylfi Gígja,
Sigrún Magnúsdóttir. Jón Matthlasson
og barnaböm.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og jarðarför
konu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu
LILJU GUÐMUNDSDÓTTUR
frá Ferjubakka.
Álfheimum 70
Eirfkur E. Kristjánsson
Hervald J. Eiríksson Kristrún Skúladóttir
Guðrún R. Eiríksdóttir Jónas A. Aðalsteinsson
Trausti Eirfksson og barnabörn
Erna Másdóttir.
Faðir minn,
GUÐMUNDUR HELGI BJARNASON
Norðurbrún 1,
andaðist 2. júní í Borgarspítalanum Jarðarförin ákveðin siðar
fyrir hönd fjarstaddra barna hins látna
Baldvin Helgason
Skrifstofur embættisins
í Keflavík og Grindavík
verða lokaðar í dag föstudaginn 4. júní frá kl
1 2 á hádegi vegna jarðarfarar Alfreðs Gíslason-
ar fyrrverandi bæjarfógeta og sýslumanns
Bæjarfógetinn í Keflavík Grindavík og Njarðvík
Sýslumaðurinn í Gullbringusýslu.