Morgunblaðið - 04.06.1976, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 04.06.1976, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JUNl 1976 31 Hvers vegna trúa kristnir menn þvf, að þeir muni lifa eilíflega? Vissa okkar byggist á fyrirheitum Guðs, á heilög- um anda í hjörtum okkar og jafnvel á skynseminni. í guðspjalli Jóhannesar er okkur sagt, að hver sá, sem trúi á soninn, hafi eilíft líf. Þetta þýðir, að eilífa lífið byrji á þeirri stundu, er við tökum á móti Kristi sem frelsara og Drottni. Þessi dýrlega og endalausa tilvera er yðar jafnvel núna, ef þér eruð kristnir. Við getum lifað og vitað af nálægð Krists í hjörtum okkar og vitað, að sá dagur kemur, þegar við munum sjá hann og vera með honum um eilífð. Jesús lofar okkur þessu. Jóhannesar guðspjall 5. kap., 24. vers: „Sá, sem heyrir mitt orð og trúir þeim, sem sendi mig, hefur eilíft líf og kemur ekki til dóms, heldur hefur hann stigið yfir frá dauðanum til lífsins.“ Það er þessi vissa, sem gefur kristnum manni kraft til þess að horfast í augu við lífið og allt, sem að höndum kann að bera, með fullkomnu trausti og von. Þegar þér lesið Bibliuna og vinnið þessi fyrirheit, þá mun heilagur andi veita yður trú og vissu, sem þér þarfnizt, því að hann útskýrir Biblíuna fyrir þeim, sem biðja hann. Loks segir skynsemin okkur, að þetta líf sé ekki allt. Um alla jörð er fólk, sem trúir því fyrir víst, að líf sé að loknu þessu lífi. nöfn foreldra þeirra hjóna og seg- ir það sína sögu. Á undanförnu ári og allt til dauðadags, átti Alfreð við mjög erfiðan sjúkdóm að stríða. Er það mál allra, sem til þekktu, að hann hafi sýnt mikla karlmennsku I ójöfnu og erfiðu stríði. En þar stóð hann ekki einn. Svo sem mannlegur máttur leyfði, veitti traustur lífsförunautur hans hon- um þá aðhlynningu og uppörvun sem hægt var. Aðstoð lækna og hjúkrunarfólks var einnig frá- bær. Nú er leiðir skilja, er okkur vinum hans og skólafélögum söknuður í huga, en geyma munum við minninguna um góðan dreng og félaga. Við Lotti vottum Dídl og börn- um hennar innilega samúð okkar ög biðjum guð að blessa þeim minninguna um góðan dreng, ástríkan eiginmann og föður. Oddur Guðjónsson. Aðfararnótt sunnudagsins 30. maí s.l. lést að heimili sínu Miklu- braut 18 í Reykjavík Alfreð Gísla- son bæjarfógeti í Keflavík og sýslumaður I Gullbringusýslu. Fæddur var hann í Reykjavík 7. júlí 1905. Sonur Gísla Þorbjarnar- sonar búfræðings, síðar fasteigna- sala, og konu hans Sigríðar Þor- steinsdóttur, mætra og vel- þekktra heiðurshjóna, sem þekkt voru eldri Reykvíkingum. Með þeim í hópi systkina ólst hann upp, lengst af á Bergstaðastræti. Þaðan átti hann ljúfar minningar, sem oft bar á bóma við upprifjun æskuáranna. — Hann nam við Menntaskólann í Reykjavík, sem þá var hinn eini í landinu. Lauk þaðan stúdentsprófi 1927. Hóf lögfræðinám við Háskóla íslands. Lauk lögfræðiprófi 1932. Að námi loknu stundaði hann lögfræði- störf i Reykjavík m.a. hjá Ólafi Þorgrímssyni og Garðari Þor- steinssyni. Árið 1937 hófust kynni mín af Alfreð er hann sótti um lögreglu- stjórastöðuna í Kefiavík. Leist mér strax við fyrstu kynni vel á manninn. Hann flutti mál sitt af einurð og festu og á þann hátt að traustvekjandi var. Honum var veitt embættið og varð þannig fyrsti lögreglustjórinn í Keflavík og sá sem mestan svip setti á Keflavík næstu árin. Bæjarbrag- ur breyttist til hins betra. Sam- hliða lögreglustjóraembættinu gegndi hann oddvitastörfum. Lengi var í landi voru þröngur hagur hjá hreppum og bæjar- félögum, þarfirnar margar. Þeir, sem einhverra hluta vegna fóru halloka í lífsbaráttunni, þurftu að ganga þung spor til hins opin- bera, spor sem þóttu niðurlægj- andi þá, en nú þykja aldrei fuli- greidd af því opinbera, áttu í Alfreð skilningsgóðan embættis- mann, sem mat af réttsýni mál þau, sem hann fjallaði um og greiddi úr þeim á þann hátt að viðkomandi aðilar og embættis- skylda hans máttu vel við una. Þegar Keflavík öðlaðist bæjar- réttindi 1949 varð Alfreð bæjar- fógeti og gegndi því embætti fram á s.l. ár (utan 1961—1962 er hann var bæjarstjóri) er hann lét af störfum vegna aldurs og vaxandi vanheilsu. Samhliða bæjarfógeta- embættinu varð hann sýslumaður í Gullbringusýslu eftir sýsluskipt- inguna. Þannig varð hann fyrsti lögreglustjórinn, fyrsti bæjar- fógetinn 'i Keflavík og fyrsti sýslumaðurinn i Gullbringusýslu. Fer ekki hjá því að spor hans marka djúp för i þróunarsögu Keflavikur á þessu timabili. Hann tók strax eftir komuna hingað ást- fóstri við staðinn. Vildi framgang hans sem mestan og studdi með ráðum og dáð framgang góðra mála, sem verða máttu byggðar- lagi okkar til menningar og vaxt- ar. Má minnast malbikunar gatna, stuðnings við iþrótta- og aesku- lýðsmál og annars, sem verða máttu til menningar og þrifnaðar. i oæjarsijórn og bæjarráöi sat hann í áraraðir, lengst af sem forseti bæjarstjórnar. Þá sat hann á Alþingi, sem landskjörinn þing- maður 1959—1963, eftir framboð á vegum sjálfstæðismanna, í Gull- bringu- og Kjósarsýslu. Fjölda annarra trúnaðarstarfa gegndi hann. Var í stjórn Sparisjóðsins í Keflavik nokkur síðustu árin. í hafnarnefnd um árabil, svo og í flugráði. Formaður skattanefndar í fjölda ára, oddviti yfirkjör- stjórnar 1951 —1959. Stofnandi Rotaryklúbbs Keflavíkur og for- seti hans fyrstu árin. Sat alþjóða- þing Rotaryfélaganna á Islandi sem umdæmisstjóri. Þá var hann í stjórn margra þjóðþrifafélaga, oftast sem formaður. Má nefna Krabbameinsfélag Keflavíkur. Rauðakrossdeild Keflavíkur og Norræna félagið í Keflavik. Með- limur var hann i Frimúrararegl- unni. Auk þess sem hér er talið gegndi hann trúnaðarstörfum í fjölda nefnda. Af framansögðu sést að Alfreð kom víða við og lagði góðum málefnum lið. Störf sin rækti hann af trúnaði og sk.vldurækni með velvilja og góð- vild til þeirra, sem minna máttu sin. Aðdáandi uppivöðslu og öfga- manna var hann enginn. — Þetta er í stórum dráttum lífssaga míns látna vinar. Hinn 12. sept. 1931 kvæntist Alfreð sinni mikilhæfu konu Vig- dísi Jakobsdóttur. Hófu þau búskap í Reykjavík og bjuggu þar uns þau fluttust alfarið til Kefla- víkur nokkru eftir að Alfreð hóf störf hér. Þau eiga tvö börn, Gisla Jakob leikara og leikhúsmann við Þjóðleikhúsið, sem kvæntur er Guðnýju Árdal, og Önnu Jóhönnu, sem gift er Finni Björgvinssyni nýorðnum verk- fræðing. Með giftingunni eignaðist Alfreð traustan lífsförunaut, sem studdi hann með ráðum og dáð. Veit ég að hann mat hana og störf hennar mikið. Heimili þeirra var fallegt og aðlaðandi. Gestrisni þeirra og rausn með ágætum, enda trúi ég að flestum er þar dvöldu hafi liðið vel i návist þeirra og þeirra góðu barna. Bæði voru þau hjónin listræn og setti það svip á heirrjilið, unnandi tón- listar, sem meðal annars lýsti sér í forgöngu að stofnun tónlistar- skóla hér í bæ. Ég sem þessar linur rita og fjöl- skylda mín höfum löng og góð kynni af hinum látna. Við kom- una til Keflavíkur bjó hann um tima hjá okkur og hófust þá kynni, sem siðar urðu að vináttu og allnánu sambandi milli fjöl- skyldna okkar, sem haldist hefur fram á þennan dag. Söknuður er okkur í hjarta við lát hans. Alfreð var gjörvilegur maður, góðum kostum búinn til líkama og sálar. Hraustur fram eftir árum, en lét á sjá hin siðari ár. Á fyrra ári kenndi hann sjúkdóms þess er nú hefur dregið hann til dauða. Voru það daprir tímar með löngum sjúkrahúsdvölum og róttækum aðgerðum, en upprofi á milli, sem lofaði góðu, en alltaf sótti í sama farið uns yfir lauk, eins og áður sagði, með hægfara andláti aðfararnótt 30. mai s.l. Dauðinn sigrar alla. Djúp er sorg konu og barna. Huggun er þeim þó að hafa sloppið við að horfa upp á lang- varandi þjáningar, sem oftar fylgja sjúkdómi þeim er dró hann til dauða. Þau geyma góðar minningar um góðan maka, föður og ástríkan heimilisföður. Við hjónin, börn okkar og fjöl- skyldur vottum þeim innilega samúð, og ég sem þessar línur skrifa lít björtum augum til þess tíma, að við hittumst handan við gröf og dauða og rifjum upp gömul kynni. Blessuð veri minning hans. Keflavík 2. júní 1976 Þorgr. St. Eyjólfsson. í ágústmánuði 1957 átti ég að hefja störf hjá bæjarfógeta- embættinu í Keflavík. Það var ekki laust við, að nokkurs kvíða gætti hjá mér -r-' nýtt starf, sem ég kunni ekki skil á og þar að auki nýtt umhverfi, en ég hafði flutzt til Keflavíkur árið 1955. En kvíði minn var með öllu ástæðulaus. Á illöti iliél luk Áifieö Gísiasoii, bæjarfógeti, með sínu milda, elskulega brosi, og prúða fasi, sem einkenndi hann alla tíð. Á þessum árum var bæjarfógeta- skrifstofan ekki fjölmenn, hús- næði var þröngt og annir miklar. En samheldnin innáh skrifstofu- veggjanna með góðri og öruggri stjórn Alfreðs gerði starf okkar allra skemmtilegt og lifandi. Við vorum nánast sem lítil fjölskylda. Fljótlega kynntist ég fjölskyldu Alfreðs, og þá fyrst og fremst dóttur hans, Önnu, sem gætti barna minna síðar meir og þrátt fyrir mikinn aldursmun varð samband okkar Önnu sérlega ein- lægt. Vigdísi, konu Alfreðs, kynntist ég ennfremur skömmu eftir að ég hóf störf min, og reyndust þau hjón mér alla tíð sem beztu vinir, bæði í vinnu og utan skrifstofunnar. Ég bar alla tið einlæga virðingu fyrir Alfreð, bæði sem yfirmanni og vini. hahn var traustur og góður vinur vina sinna, og ég mun ætið minnast hans og fjölskyldu hans með mik- illi virðingu og þakklæti. Vigdís, Anna og Gisli, ég bið góðan Guð að vera með ykkur á þessari stundu og æ síðar. Kristin Sveinbjörnsdóttir. ÞÁ er að þeim vegamótum komið er leiðir skilja að sinni. Alfreð Gíslason, vinur minn, hefur nú haldið áfram eftir nýjum leiðum og skilið okkur eftir við leiðar- merkið á landamærum lífs og dauða, og leyfir okkur að sýsla við gamlar minningar og gengin ævintýr. Minningarnar eru margar og margvíslegar. Ein sú fyrsta er frá þeim tíma er ég horfði á knatt- spyrnu. Þá tók ég eins og aðrir eftir hinum dugmikla, prúða og drengilega „Víking", sem bar af öðrum á leikvellinum. Svo líða dagar og einn þeirra kemur fyrsti lögreglustjóri til Keflavíkur, og það er Alfreð. Leiðir okkar lágu snemma saman, ekki út af því að ég væri óþjáll lögbrjótur, Heldur af því að Alfr- eð varð fljótt forystumaður á svo mörgum sviðum, sem ég var að sniglast um. En þó varð svo að við þekktumst báðir, bæði sem yfir- vald og mannverur og áttum, þeg- ar á botninn var hvolft, svo margt sameiginlegt f lífsskoðunum og viðhorfum, enda þótt ekki væri alltaf hnökralaust. Alfreð var þrjóskur og þrár, því sauð oft upp úr, þegar pólarnir mættust. En i hverri orrustu vann annar hvor. Forystustörfin hlóðust fljótt á herðar Alfreð og bar hann þau vel. Það var nokkuð til hugar- hægðar að þar var þó einn í hans míslitu hjörð, sem hann mátti segja meiningu sína afdráttar- laust. Þess vegna urðum við vinir og verðum áfram einhvers staðar í tilverunni. Einhvern veginn varð það svo, að Alfreð var treyst til forystu á svo mörgum sviðum, að hann varð þess vegna oft bitbein þeirra, sem hann gerði mest fyrir. Eg vildi gjarnan tina margt til, en að leið- arlokum verðum við allir jafnir, leitandi sálir með breytni okkar í bakpoka. Ég veit að hann tekur á móti okkur með framrétta hönd eins og hann gerði í þessu lifi, og ég hlakka til að hitta hann fyrir handan fyrst að samfundum er lokið í þessu lífi. Helgi S.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.