Morgunblaðið - 11.06.1976, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 1976 g
Nýting hafsins fyrir Norðurlandi:
Samræmd stefna í
veiðum og vinnslu
Fjórðungssamband Norðlendinga þingar
um fiskveiðimál á Sauðárkróki um n.k. helgi
önnur Vopnafjarðarskemman svokölluð er nú að rísa uppi í Árbæ. en
þessi tvö verzlunarhús frá Vopnafirði lét Þjóðminjavörður flytja þaðan,
er þau þurftu að víkja. Þetta eru mjög merkilegar og sögulegar
ðyggingar, sem varðveittar eru á þennan hátt. Nú þegar grindin er
komin upp, má glögglega sjá hvernig þessi hús voru byggð. Bjarni
Ólafsson smiður er að setja skemmuna upp, en viðurinn var allur
merktur og fluttur þannig til Reykjavíkur.
FJÓRÐUNGSSAMBAND Norðlend
inga beitir sér fyrir ráðstefnu um
nýtingu hafsins fyrir Norðurlandi, frá
Homi að Langanesi, stöðu sjávarút-
vegs og fiskvinnslu I landsfjórðungn-
um og framtfðarmöguleika f þessum
atvinnugreinum. Markmið ráðstefn-
unnar sem haldin verður á Sauðár-
króki nk. laugardag, er að vinna að
samræmdri stefnu i veiðum og
vinnslu á Norðurlandi. Ráðstefnan er
haldin í samvinnu við sjávarútvegs-
ráðuneytið, stofnanir í sjávarútvegi
og samtök sjómanna, útvegsmanna
og vinnsluaðila í fiskiðnaði á Norður-
landi. í fréttabréfi FSN segir m.a. að
„ráðstefnan sé liður í því starfi FSN
að leita eftir breiðu samstarfi sveit-
arstjórnarmanna og hagsmunaaðila
um mótun heildarstefnu fyrir lands-
hlutann í þeim málaflokkum, sem
efst séu á baugi hverju sinni" Ráð-
stefnan er öllum opin, sem hana vilja
sækja, með málfrelsi og tillögurétti.
í lok ráðstefnunnar verður kjörin
samstarfsnefnd, er vinnur úr niðurstöð-
um hennar, skipuð fulltrúum sjávarút-
vegsstofnana, útvegsmanna, sjó-
manna, fiskvinnsluaðila, sölusamtaka
og sveitarstjórna, er mótar endanlegar
tillögur í málinu fyrir næsta fjórðungs-
þing FSN, sem haldið verður í Siglu-
firði í ágústlok nk
Erindi á ráðstefnunni verða þessi:
0 Matthías Bjarnason, sjávarút-
vegsráðherra, greinir frá stefnu stjórn-
valda í hafréttar-, fiskveiði- og
sjávarútvegsmálum almennt, m a. með
hliðsjón af gerðum veiðisamningum og
stjórnun sóknar í fiskstofnana
^ Kristjón Kolbeins, fulltrúi hjá
Framkvæmdastofnun ríkisins, gerir
grein fyrir áætlanagerð í sjávarútvegi,
^ Jakob Jakobsson, aðstoðarfor-
stjóri Hafrannsóknastofnunar, gefur yf-
irlit um ástand fiskstofna á hafsvæðinu
frá Horni að Langanesi. setur fram
hugmyndir um nýtingu þeirra og ræðir
möguleika á skynsamlegri veiðistjórn-
un
0 Már Elisson, fiskimálastjóri, ræð-
ir um fiskveiðilagarétt fyrir Norður-
landi, hafréttarráðstefnuna og hafrétt-
armálefni almennt, en Már var einn af
þeim er undirbjó frumvarp til laga um
nýtingu fiskveiðilögsögu okkar.
0 Björn Dagbjartsson, forstjóri
Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins.
ræðir nýtingu sjávarafla og nýjungar í
fiskiðnaði, þ.á m. nýtingu fleiri fiskteg-
unda en nú eru unnar og hugsanlegar
afurðir úr þeim
^ Jónas Blöndal. skrifstofustjóri,
form. samstarfshóps, sem undirbjó á
vegum Rannsóknaráðs ríkisins sér-
staka úttekt á sjávarútvegsmálum,
ræðir nýjar leiðir og markmið í fisk-
veiðum. Hann mun ma fjalla um
stefnumótun, er tekur mið af líffræði-
legum staðreyndum og hagrænum
markmiðum, með það i huga, að fisk-
veiðar verði sem arðmestar i þjóðar-
búinu, þrátt fyrir óhjákvæmilega afla-
takmörkun.
9 Þá munu fulltrúar útvegsmanna,
sjómanna, fiskiðnaðar, sölusamtaka
og einstakra sveitarstjórna gera sér-
staklega grein fyrir sjónarmiðum sin-
um á ráðstefnunni
Bæjarstjórn Sauðárkróks býður ráð-
stefnugestum til hádegisverðar og far-
in verður sérstök kynningarferð á veg-
um Útgerðarfélags Skagfirðinqa og
Framhald á bls. 18
Þrjár ísl.
kvikmyndir
frumsýndar
á Akranesi
í DAG, föstudag, verða frumsýndar í
Bióhöllinni á Akranesi þrjár islenzkar
kvikmyndir Allar eru myndirnar i
litum og fjalla um Akranes og Akur
nesinga
Lengsta myndin nefnist Akranes
1 974 og er um 65 minútna löng og er
i henni brugðið upp svipmyndum frá
atburðum á Akranesi á þjóðhátiðarár-
inu Meðal atriða i myndinni má nefna
þætti úr atvinnulífinu á Akranesi, svip-
myndir frá komu b v. Vers, Akraborg-
arinnar nýju og kútters Sigurfara,
vigslu byggðasafnsins i Görðum o.fl
Þorvaldur Þorvaldsson samdi texta við
myndina og er hann einnig þulur
Önnur myndin er frá sameiginlegri
þjóðhátið ibúa Mýra- og Borgarfjarðar-
sýslu og Akurnesmga að Reykholti i
Borgarfirði og er myndiri 14 minútna
löng Þessar tvær myndir hafa þeir
Þrándur Thoroddsen og Jón Her-
mannsson tekið
Þriðju myndina, sem sýnd verður,
tók Sören Sörensson á Akranesi fyrir
um 30 árum Þessi mynd hefur ekki
verið sýnd fyrr en í henni má m a sjá
hátiðahöld á sjómannadegi. svipmynd
frá heiðursborgaraathöfn i Akranes-
Framhald á bls. 18
.
mmm
lii
TIZKUVERZLUN UNGA FOLKSINS
' -mv
:'L •'."V- V.V,,
'i
LAUGAVEG 66 LAUGAVEG 20a
SÍMI FRÁ SKIPTIBORÐI 28155
AUSTURSTRÆTI 22
.....
w,pbIUI